Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992 Minning: Þórarinn Guðjóns- son frá Kirkjubæ Fæddur 20. janúar 1912 Dáinn 7. maí 1992 Persónuleiki manna er eins mis- jafn og birtan við berg úteyjanna. Sumum laðast maður að án þess að vita beinlínis ástæðuna, en svo lærist það á löngum tíma að það sem á bak við býr er tilfinningin djúpa úr hjartarótunum sem finnur sér farveg til vináttu með einum fremur en öðrum. Þannig maður var Tóti á Kirkjubæ í Vestmannaeyjum. Að hitta hann var eins og að nema hlýlegt orð, vinarþel í fasi og fram- setningu, því hann var allt í senn skemmtilegur, beittur og nærgæt- inn. Hann naut sín til fulls í veiði- mannasamfélagi bjargveiðimanna, úteyinganna, þar sem áhyggjur og syndir heimsins hverfa út í buskann og við tekur eitthvað sem andar af náttúrunni sjálfri, eitthvað sem gef- ur hveijum einstaklingi færi á að vera eins og hann er án þess að skammast sín fyrir það vegna reglu- gerðaæðis kröfusamfélagsins. Hann var hæglátur en hnyttinn og hafði ótrúlegt yndi af gamansemi og prakkaraskap í orðaleikjum útey- inga þar sem hver eyja um sig er persónugerð og allt kapp lagt á að stríða án þess að særa, allt til þess að skerpa kærleikann og vei þeim sem ekki er hægt að stríða, því hann á tæpast heima í þessari sér- stæðu veröld veiðimanna. Úteyjar Vestmannaeyja eru eins og steinmenn í hafinu og svo eru líka menn í röðum úteyinga sem eru eins og eyjar, rísa upp úr hinu gullna meðaltali með tign og frelsi sjálf- stæðis. Þannig var Tóti á Kirkjubæ, traustur og taktfastur í skoðunum, hógvær í hóp og lítillátur en trúr vinum sínum og þeim vettvangi sem tilveran valdi honum. Hann vildi hafa allt í lagi og það er nú meira en hægt er að segja um marga. Fræg er ræða hans frá kvöldvöku lundaúthalds í Elliðaey á fyrsta degi eftir að menn höfðu gert allt klárt í kofanum, málað og snurfusað. Þeir Ellireyingar höfðu kallað heim til Heimaeyjar um kvöldið og spurðu margra einlægra spurninga eins og þeim var tamt. Til dæmis heyrðist þessi gullsetning í talstöðinni: „Við vorum að bika kofann í dag, er hann ekki bjartur að sjá að heim- an?“ En þannig henti umrætt kvöld að Ellireyingar gleymdu að slökkva á talstöðinni. Margir á heimalandinu hlustuðu því á kvöldvöku úteying- anna sem dýpkaði jafnt og þétt í glasi sem leið á kvöldið. Þar kom að er Tóti biður um orðið og segir: „Kæru vinir, það er eitt hér í kofan- um sem er ekki í lagi, eitt atriði sem ég tel að við þurfum að fjalla um. Það er mottan fyrir utan kofann, það er gat á henni.“ Þá gellur í Gumma og Pétri um leið: „Farðu bara út, Tóti minn, og snúðu helvít- is mottunni við.“ Tóti bregst skjótt við með miklum hátíðarsvip, kemur síðan inn aftur eftir drykklanga stund, biður um orðið og segir sár- blíðum rómi: „Bræður, þetta gekk ekki, það er gat á mottunni hinu- megin Iíka.“ Tóti á Kirkjubæ var hvort tveggja í senn saga og ljóð, hann varð ósjálf- rátt haldreipi í sínum hópi, kafli sem menn tóku óafvitað mið af og virtu, því hann var svo blessunarlega laus við hégóma og sýndarmennsku. Hann var lipur og þægilegur, en ef því var að skipta gaf hann ekkert eftir sinn hlut fremur en bjargvegg- urinn í baráttunni við úthafsölduna. Það mættust stálin stinn. Alveg eins og íslensk tunga er sameign allra íslendinga var Tóti allra úteyinga og hans er sárt saknað. Minningin um yndislegan félaga er rík og sem betur fer eru enn að vaxa sérstæð mannlífsblóm í ranni Elliðaeyjar, þessarar perlu í paradísarkeðju úteyjanna. Góður Guð gefi Tóta góða átt á bjargsyllum eilífðarinnar. Snör augu hans og hönd á háfi gátu farið hraðar en tíminn, en í elfur samtímans var Tóti ankeri þar sem menn bundu vináttu við sér- stæðan persónuleika. Arni Johnsen. Þórarinn Guðjónsson fæddist 20. janúar 1912. Tóti frá Kirkjubæ var einn af kunnari úteyjarmönnum í Eyjum. Fastur punktur í hans til- veru var „paradísin" Elliðaey. Eftir tvítugsaldur fór hann nær því á hveiju sumri í Elliðaey og dvaldi þar við eggjatöku og lundaveiðar. Tóti var mjög mikill Ijallamaður. Hann fór létt með að bera 80 fugla á bakinu yfir eyjuna þvera. Þó að farin væri ferð eftir ferð, blés hann ekki úr nös á meðan helmingi yngri menn áttu fullt í fangi með burðinn. Margir sögðu að Tóti væri þind- arlaus. Aðalveiðistaður Tóta var Pálsnef í Elliðaey. Þaðan blasti Heimaey við í allri sinni dýrð. Á Pálsnefi fengu ungir veiðimenn að fylgjast með kappanum fanga lunda í háf og læra réttu tökin við veiðamar. Að loknum góðum veiðidegi var slegið upp kvöldvöku og sungin úteyjarlög, ekki síst landsfræg lög og textar sem samin hafa verið um Tóta frá Kirkjubæ. Þá voru einnig fluttar ræður og lét Tóti sitt ekki eftir liggja í þeim málum. Hann flutti margar góðar og eftirminnilegar tölur til félaga sinna, sem seint gleymast. Yfirleitt endaði hann sinn málfiutning með orðunum: Farðu á skautum farsældar, fram hjá brautum glötunar, gakktu á skíðum gæfunnar, í grænum hlíðum lukkunnar. Það fylgir flestum sönnum úteyj- armönnum að fara að huga að næstu lundavertíð fljótlega upp úr áramótum. Tilhlökkun og áhugi leyna sér ekki og umræðuefnið er oftast það sama þegar veiðifélagar hittast. Fyrstu árin sem Tóti fór í Elliðaey voru vistarverurnar ekki jafn glæsilegar og nú. í kofanum var moldargólf og veggir hlaðnir úr grjóti. Næsta hús var mun veg- legra. Það var byggt 1953 og var mikil breyting á aðbúnaði. Þar undu veiðimenn glaðir við sitt. Þó átti Tóti eftir að sjá enn meiri breyting- ar á húsakynnum í Elliðaey. Árið 1987 var vígt stórt og glæsilegt veiðihús. Þar mætti Tóti og hélt ræðu við vígsluna. Hann var farinn heilsu, en lét sig ekki vanta, samgladdist með sínum vinum og félögum. Má segja að hann hafi kvatt Elliðaey með glæsibrag þegar hann yfírgaf vígsluathöfnina og tók tæknina í sínar hendur og flaug á braut í þyrlu. Félgamir kveðja Tóta á Kirkjubæ með þökk og virðingu Elliðaeyingar. Þórarinn Guðjónsson var fæddur í Kirkjubæ í Vestmannaeyjum, 20. janúar 1912, sonur hjónanna Guð- jóns Eyjólfssonar Eiríkssonar og konu hans Höllu Guðmundsdóttur Þórarinssonar bónda að Vesturhús- um í Vestmannaeyjum. Afi hans og amma, þau Eyjólfur Eiríksson og Jórann Skúladóttir, höfðu fengið byggingu fyrir jörðinni Norður Hlaðbæ, sem var ein átta Kirkjubæjaijarða árið 1869 og sat sama ættin þá jörð samfleytt í 70 ár, en samtals hafði fólk af þessari ætt búið þar í um 90 ár, þegar síð- asti ábúandinn Magnús Pétursson og kona hans Þórdís Guðmundsdótt- ir urðu að flýja Eyjarnar í eldgosinu 1973, en Þórdís er þriðji ættliður frá Eyjólfí Eiríkssyni. Mikill ættbogi er kominn frá Eyjólfí og Jóranni og búa margir afkomendanna í Vest- mannaeyjum, en dreifðust þó mjög um landið hér suðvestan lands eftir eldgosið í Heimaey árið 1973. Þórarinn eða Tóti á Kirkjubæ eins og hann var kallaður alla tíð ólst upp á fjölmennu heimili foreldra sinna, en þau eignuðust 12 börn og komust níu þeirra til fullorðinsára, 5 synir og 4 dætur, auk þess ólu þau upp frá 8 ára aldri Edvin Jóels- son, bróðurson Guðjóns. Þórarinn var yngstur þeirra bræðra. Hinir voru Guðmundur, Jóhann, Gísli og Gunnar og drukkn- uðu þeir allir með sviplegum hætti. Jóhann tók út af heyflutningabát sumarið 1924, en Guðmundur fórst í miklu sjóslysi við Eiðið hinn 16. desember 1924, þegar sjö menn fórast af árabát, sem lagði út af Eiðinu út í es. Gullfoss, sem lá þar fyrir utan. Bræðumir Gunnar og Gísli fórust saman með vélbátnum Víði í útdrætti, fyrsta róðri á vetrar- vertíðinni 1938 og var Gunnar skip- stjóri á bátnum. Systurnar voru Sig- rún, sem er látin, Emma, alin upp hjá Jóhanni Reyndal og bjó á Akara- nesi, gift Guðna Eyjólfssyni skip- stjóra þar, Jórunn, ekkja Guðmund- ar Guðjónssonar frá Oddsstöðum og Þórdís, ekkja Sigurðar Bjamasonar skipstjóra í Svanhól í Vestmanna- eyjum. Þær systur Jórunn og Þórdís dvelja nú á Dvalarheimili aldraðra Hraunbúðum og Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja við nokkra vanheilsu, en góða aðhlynningu. Sorgin kvaddi snemma og oft dyra á æskuheimili Þórarins Guð- jónssonar, en þetta fólk æðraðist ekki. Heimilið í Norðurbænum var mannmargt og skemmtilegt. Útsýni var óvíða jafn fagurt í Vestmanna- eyjum og frá Kirkjubæ jafnt á vetri sem sumri og fólk í náinni snertingu við haf og hauður. Guðjón, faðir Þórarins, átti eins og svo margir Eyjamenn á upp- gangsárum vélbátaaldarinnar hlut í bát og gerði út vélbátinn Hansínu. Á vetrarvertíðum vora auk heimilis- fólksins fjöldi vertíðarmanna á heimilinu eins og þá var títt. Ágúst Þorvaldsson fyrrv. alþingismaður lýsti skemmtilega verferð og vertíð- ardvöl í Vestmannaeyjum á fyrri hluta aldarinnar, en hann var 12 vertíðir í Vestmannaeyjum og reri fyrstu vertíðimar á mb. Hansínu. Ágúst dvaldi þá á Kirkjubæ hjá for- eldrum Þórarins, Guðjóni og Höllu, og skrifaði síðar um dvöl sína þar: „Þau Kirkjubæjarhjón tel ég hik- laust meðal hinna bestu manna sem ég hef kynnst." Um heimilislífíð á Kirkjubæ sagði Ágúst: „Við, sem vorum aðkomumenn á Kirkjubæ á vertíðum vorum á allan hátt með- höndlaðir eins og við værum hluti af fjölskyldunni. Oft var glatt á hjalla á heimilinu, því bæði voru hjónin glaðlynd, þrátt fyrir miklar raunir vegna bamamissis." í þannig jarðvegi ólst Þórarinn Guðjónsson upp. Hann varð fljótt að taka til hendinni, við fiskverkun á vetrum, fiskþurrkun og heyskap að sumrinu en þó ekki síst við allar nytjar jarð- arinnar í úteyjum og fjöllum, en frá fomu fari áttu Kirkjubæjatjarðir bæði veiðiréttindi og hagagöngu í Brandi og Suðurey auk Geldungs til fýla og súlu og alla fýlatekju í Flugum. Með öðram Vestmanna- eyjajörðum áttu Kirkjubæir auk þess ítök í Súlnaskeri, Geirfugla- skeri og Hellisey. Hlunnindi þessi voru snar þáttur í lífsafkomunni. Guðjón, faðir Þórarins, og þeir Kirkjubæjarbræður, Gísli á Búa- stöðum og Jóel á Sælundi voru allir annálaðir veiði- og fjallamenn, þó sérstaklega Jóel, en Guðjón var for- ystumaður í leigumála Kirkjubæjar- manna um tugi ára, þar til Jón Magnússon í Vestri Staðarbænum á Kirkjubæ tók við því starfi. Tóti á Kirkjubæ vandist því á mjög ungum aldri við úteyjarferðir og veiðiskap. Frá þeim þætti í lífi hans og í hópi bjargveiðimanna í Vestmannaeyjum á ég bestar minn- ingar um Tóta. Ég var svo heppinn að fá að fara sem göngumaður á Súlnasker í síðustu súlnaveiðiferð, sem jarðabændur í Vestmannaeyj- um fóra að fomum sið sumarið 1952. Ég var þá 17 ára gamall og naut frændaliðs bæði í uppgöngunni og á bát þar sem var Þorgeir á Sælundi, formaður á bm. Lunda. Þessi ferð var farin við nokkuð erfíð- ar aðstæður til fjallaferða, rigning- arsudda og brim svo að ganga varð upp á sokkaleistunum og var Tóti forystumaður eins og svo oft áður upp á Súlnasker. Það þótt ætíð virðingarstaða meðal fjallamanna og í þessari ferð voru sem fyrrum haldnir í heiðri gamlir og góðir sið- ir, beðin bæn á Bænabring við upp- haf fjallaferðarinnar og síðan signdu menn sig. Þegar upp var komið var Skerprestinum offrað. Eftir þessa ferð í Skerið þóttist ég maður að meiri og varð kunn- ugri Þórami frænda mínum. Mér var ætíð mjög hlýtt til hans, þó að við færam ekki saman fjallaferðir eftir þetta, en í þeim var hann öllum hnútum kunnugur, sérstaklega lip- ur, laus og sem undirsetumaður, en fór ekki í bjargsig svo orð væri á gerandi. Á Þjóðhátíðum var Tóti fastur maður í sigaiiðinu á Fisk- hellanefí með Eyjólfi föður mínum, Súlla Johnsen, Erlendi í Ólafshús- um, Sigga á Löndum, og því liði, en sigamenn vora í þann tíð oftast Jónas í Skuld og Skúli Theódórsson. En ég hitti hann oft í hópi glaðra félaga í Ellirey, þar sem hann var við lundaveiðar í áratugi, lengst með þeim Oddsstaðamönnum, Pétri, Kri- stófer, Guðmundi og Guðlaugi Guð- jónssonum, Hjörleifí uppeldisbróðir þeirra, Hávarði Sigurðssyni, Einari í Norðurgarði og þeim félögum. Þar í Ellirey var þessi samvaldi hópur sannarlega í „kompaníi við allífíð". Tóti lá við í Ellirey fram á efri ár. Yngri kynslóð þeirra Ellireyinga fórst vel við frænda minn, þegar hann komst ekki upp Pálsnef og báru þeir félagar hann upp í heiðurs- stóli til þess að hann gæti verið við vígslu nýs veiðibóls, sem var tekið í notkun fyrir nokkrum áram. Þórarinn Guðjónsson dvaldi í for- eldrahúsum á Kirkjubæ þar til Halla móðir hans andaðist haustið 1939, en þá hafði Guðjón andast nokkra áður. Þegar brugðið var búi á Kirkjubæ og jörðin seld óskyldu fólki flutti hann að Svanhól til Þór- dísar systur sinnar og eignaðist hlut í mb. Kára VE 27 og síðar nýsmíð- uðum stærri bát Kára VE 47 með mági sínum, Sigurði Bjarnasyni skipstjóra. Hann var nokkur úthöld á Kára, bæði á síld og til þorskveiða, en seldi sinn hlut í útgerðinni nokkra eftir stríðið og keypti þá vörubíl og vann á Vörabifreiðastöð Vest- mannaeýja. Nokkra fyrir 1960 var Þórarinn tvær vertíðir vélstjóri á mb. Bryngeiri með frændum sínum Torfa og Jóni Bryngeirssonum á Búastöðum, en Þórarinn tók ungur vélstjórapróf. Síðustu árin áður en heilsa hans fór að bila var Þórarinn póstmaður. Eftir að Þórarinn hætti í útgerðinni flutti hann að Presthúsum og bjó hjá Jórunni systur sinni og mági, Guðmundi frá Oddsstöðum. Eftir lát Guðmundar árið 1969 héldu þau systkini heimiii saman. Tóti á Kirkjubæ tilheyrði þeirri kynslóð Vestmannaeyinga sem setti lit og líf á tilveruna um og eftir miðbik þessarar aldar. Hann kvænt- ist aldrei, en var börnum og þá sér- staklega systkinabömum sínum hinn besti félagi og vinur. Tóti fór ekki alltaf troðnar slóðir. Hann verður samferðamönnum sín- um minnisstæður og eigi ég eftir að hverfa enn einu sinni stutta stund á vit úteyjalífsins mun ég sakna hans. Oft hefur verið glettst á milli veiðimanna í austureyjunum, Bjarn- arey og Ellirey, og setti Tóti á Kirkjubæ þar krydd á lífið, svo að lengi verður í minnum haft. Hann var örgeðja, en hjartahlýr, frændrækinn og félagslyndur og var þar engin hálfvelgja, þegar knatt- spyrnufélagið Týr var annars vegar. Við gamlir og grónir Þórárar, sem eigum ættir að rekja til stofnenda þess félags máttum þakka fyrir að vera ekki reknir úr Kirkjubæjarætt- inni, þegar mesta harkan var í innanbæjarkeppnum á milli félag- anna. Allir sem þekktu Þórarin Guð- jónsson, Tóta á Kirkjubæ, blessa minningu hans. Hann andaðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja hinn 7. maí sl. eftir mikla vanheilsu hin síð- ari ár. Útför hans verður gerð frá Landakirkju í dag, laugardaginn 16. maí. Ég og fjölskyida mín sendum systrum hans og fjölskyldum þeirra hluttekningarkveðjur. Guðjón Ármann Eyjólfsson. í dag verður jarðsunginn frá Landakirkju Þórarinn Guðjónsson. Hann var sonur hjónanna Höllu Guðmundsdóttur og Guðjóns Eyj- ólfssonar bónda í norðurbænum á Kirkjubæ, fæddist þar og ólst upp í stóram systkinahópi, en þau vora 14, og var Tóti, eins og hann var kallaður, níundi í röðinni. Á æskuárum Tóta var lífsbarátt- an hörð hér í Eyjum og byijuðu börn snemma að hjálpa til við bú- störfín. Kirkjubæimir voru jarðir, sem áttu tilkall í úteyjar, með haga, eggja- og fuglatekju. Oft var ei-fitt að fást við úteyjarnar vegna sjólags og mátti ekki mikið útaf bregða að illa tækist til. Tóti varð fljótt liðtæk- ur í þessar ferðir og síðar eftirsótt- ur. Hann fór oft í hinar erfiðustu fjallaferðir í súlu og egg, m.a. Súlna- sker, Geldung o.fl. Var hann góður undirsetumaður. Oft hjó hafið stór skörð í fjölskyldur í þá daga. Missti Tóti 2 bræður sína í sjó 1924 og aftur aðra 2 sama daginn 1938. Tóta kynntist ég í bytjun júlí 1948, er ég var á 14. ári, en það var þá, sem ég fékk að fara mína fyrstu ferð til lunda í Elliðaey. Þeir sem fóra þá ferð voru Tóti, Einar Einarsson frá Norðurgarði, Brynj- úlfur Sigfússon kaupmaður og tón- skáld, og Kristófer Guðjónsson frá Oddstöðum, en á hans vegum var ég. Þá var verið í gamla (elsta) kofanum og hver fyrir sig með sinn skrínukost og prímus notaður til að hita vatn í kaffi. Fljótt fann ég, „peyinn“, það að Tóti var barngóð- ur, þegar veðrið var best og engin veiði var fór hann með mig í göngur í Austururð, Vestururð, Búrin, Teistuhelli og á bekkinn í Háubæl- um svo eitthvað sé nefnt. Hann var bæði fótviss og sporléttur. Tóti var mikill náttúruunnandi og Vestmannaeyingur og var Elliða- ey alltaf mjög ofarlega í huga hans. Hann hlakkaði alltaf til að fara í Elliðaey og naut hann innilega veru sinnar þar. Oft fór hann með vísu- orð Óskars Kárasonar (Bólsöng Elliðaeyjar): Hér lífið er frelsi við unað og yndi, með ómum frá lundans og svölunnar klið. í úteyjarfaðminum vægum í vindi, við skulum gleðjast að bjargmannasið. Nú veiði er lokið og sigin er sól, syngjum við glaðir og skálum við ból. Mörgum hef ég verið með í Ell- iðaey um dagana og er Tóti sá, sem ég hef dvalið flestar stundir með > þar. Margar góðar og skemmtilegar minningar á ég frá þessum tíma með Tóta og félögum okkar, sem nokkrir eru látnir núna. Mig minnir að Tóti hafí sagt mér, að fyrsta ferð hans í lunda í Elliðaey hafi verið 1935, -en síðasta ferð hans þangað var 27. júní 1987, þegar nýi kofinn var vígður, og fór hann samdægurs heim með þyrlu. Af systkinum Tóta eru aðeins 3 systur hans á lífi, Jórunn, sem er í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja, Þórdís, sem er á Dvalarheimili aldraðra Hraunbúðum Vm. og Emma, sem býr á Akranesi. Tóti giftist aldrei og átti engin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.