Morgunblaðið - 16.05.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992
35
iíltóáur
r
a
morgtrn
ÁSKIRKJA: Messa kl. 14 á veg-
um Átthagafélags Sléttuhrepps.
Matthildur Guðmundsdóttir
prédikar. Kór Átthagafélags
Sléttuhrepps syngur. Sóknar-
prestur þjónar fyrir altari. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Arna, Gunnar og Sigur-
jón. Guðsþjónusta kl. 14. Ein-
söngur Ingibjörg Marteinsdóttir.
Tríó nemenda úr Tónlistarskól-
anum í Reykjavík: Kristín Lárus-
dóttir, selló, Hrafnhildur Atla-
dóttir, fiðla, Halla Stefánsdóttir,
fiðla. Messukaffi Seyðfirðinga
eftir messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 10.30.
Prestsvígsla. Biskup íslands,
herra Olafur Skúlason, vígir
eftirtalda kandidata í guðfræði:
Hannes Björnsson til Patreks-
fjarðarprestakalls í Barða-
strandarprófastsdæmi, Sigríði
Óladóttur til Hólmavíkurpresta-
kalls í Húnavatnsprófastsdæmi
og dr. Sigurjón Árna Eyjólfsson
sem aðstoðarprest í Bústaða-
prestakalli í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi vestra. Vígsluvottar
sr. Andrés Ólafsson fyrrum pró-
fastur á Hólmavík, sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson,
Reykjavík, sr. Pálmi Matthías-
son, Reykjavík, og sr. Sigfús J.
Árnason, Hofi, Vopnafirði, sem
lýsir vígslu. Altarisþjónustu ann-
ast sr. Jakob Á. Hjálmarsson
dómkirkjuprestur. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn H.
Friðriksson. Miðvikudag kl.
12.10. Hádegisbænir í kirkjunni.
Léttur málsverður á kirkjuloftinu
og kl. 13.30—16.30: Samvera
aldraðra í safnaðarheimilinu.
Tekið í spil. Kaffiborð, söngur,
spjall og helgistund.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestursr. Guð-
mundur Guðmundsson. Organ-
isti Kjartan Ólafsson. Félag fyrr-
verandi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11. (ath. breyttan messutíma).
Prestur sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Þriðjudag: Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur í 10 mínútur. Fyrir-
bænir, altarisganga og léttur
hádegisverður. Biblíulestur og
kirkjukaffi kl. 14. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Miðvikudag: Aðalsafnaðar-
fundur Hallgrímskirkju kl. 20.30
í safnaðarsal.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Mánu-
dag: Biblíulestur kl. 21.00.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru í
kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Guðni
Gunnarsson. Kór Langholts-
kirkju (hópur I) syngur. Organ-
isti Jón Stefánsson. Tónlistar-
flutningur í guðsþjónustunni
helgaður minningu dr. Róberts
Guðspjall dagsins:
Jóh. 16.: Sending heilags
anda.
A. Ottóssonar. Aftansöngur
virka daga kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA: Kristni-
boðsdagur í Laugarneskirkju.
Messa kl. 11. Altarisganga.
Ragnar Gunnarsson kristniboði
prédikar og sóknarprestur þjón-
ar fyrir altari. Laufey Geirlaugs-
dóttir syngur einsöng. Organisti
Ronald Turner. Börn, sem koma
með foreldrum sínum til messu
í sumar, fá tækifæri til að fara
í safnaðarheimilið meðan á
prédikun stendur og hlusta -þar
á sögur og leika sér. Að messu
lokinni verður sýning á munum
og myndum frá Kenýu og boðið
upp á kaffi.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 í umsjá sr. Einars Eyjólfsson-
ar. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Guðmundur Óskar
Ólafsson. Miðvikudag: Bæna-
messa kl. 18.20. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Gyða
Halldórsdóttir. Prestur sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir. Mið-
vikudag: Kyrrðarstund kl. 12.
Söngur, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu. Samkoma kl.
20.30 á vegum Seltjarnarnes-
kirkju og sönghópsins „Án skil-
yrða“ undir stjórn Þorvaldar
Halldórssonar. Söngur, prédik-
un, fyrirbænir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organleikari Sigrún
Steingrímsdóttir. Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Ath. breyttan
messutíma. Organisti Daníel
Jónasson. Bænaguðsþjónusta
þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
FELLA- og Hólakirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organ-
isti Guðný M. Magnúsdóttir.
Prestarnir.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta kl. 11 í Félaga-
smiðstöðinni Fjörgyn. Organisti
Sigríður Jónsdóttir. Vigfús Þór
Árnason.
HJALLAPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Prestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son. Sóknarprestur.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
prédikar. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Molakaffi eftir
guðsþjónustuna. Sóknarprest-
ur.
ÓHÁÐl söfnuðurinn: Guðsþjón-
usta kl. 11. Safnaðarprestur.
FRÍKIRKJAN í Rvík.: Guðsþjón-
usta kl. 14. Samverustund með
sjálfboðaliðum næturvöku að
guðsþjónustunni lokinni. Mið-
vikudag 20. maí morgunandakt
kl. 7.30. Orgelleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 14. Börn
syngja og sýna helgileik. Anna
Marid og Daniel stjórna. Kl. 20
er þjóðhátíðarfagnaður Norð-
manna Per Landrö flytur há-
tíðarræðu á norsku. Veitingar.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Messa kl. 14. Ensk
messa kl. 20. Laugardagur:
Messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messa
kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Laugardag:
Messa kl. 14. Fimmtudag:
messa kl. 19.30 og aðra rúm-
helga daga kl. 18.30.
KFUM/KFUK: Samkoma í
kristniboðssalnum kl. 20.30 í
umsjá „Samtaka um kristna
boðun meðal gyðinga" kl. 20.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fila-
delfía: Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Almenn sarhkoma kl. 16.30 í
umsjá Samhjálpar.
VEGURINN: Fjölskyldusamvera
kl. 11 og almennar samkomur
kl. 16.30 og kl. 20.30. Linda
Beling prédikar og þjónar. Nk.
miðvikudag Biblíulestur. Sr.
Halldór S. Gröndal.
MOSFELLSPREST AKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Að lokinni messu verður aðal-
safnaðarfundur í safnaðar-
heimilinu Þverholti 3. Kaffiveit-
ingar.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í
Garðakirkju kl. 14. Fundur í
Æskulýðsfélaginu nk. þriðju-
dagskvöld í Kirkjulundi kl. 20.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur. Organisti Úlrik Ólason.
Sr. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 14. Altarisganga. 25-
ára fermingarbörn taka þátt í
messunni og ætla síðan að
koma saman í veitingahúsinu
Skútunni. Organisti Helgi Braga-
son. Sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Kristjana Ásgeirsdóttir.
Fermingarhópar 40 og 50 ára
taka þátt í guðsþjónustunni. Sr.
Einar Eyjólfsson.
KAPELLA ST. Jósefsspítaia:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga
daga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga kl. 8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa kl.
14. Fundur nk. mánudag kl.
20.30 fundur í Systra- og bræðr-
afélag, Keflavíkurkirkju.
KAÞOLSKA kapellan Keflavík:
Messa kl. 16.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa
kl. 14. Að henni lokinni verður
aðalsafnaðarfundur í safnaðar-
heimilinu. Sóknarnefnd.
NLFÍ, Hveragerði: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Guðmundsson.
KOTSTRANDARKIRKJA:
Messa kl. 14. Sr. Tómas
Guðmundsson.
AKRAN ESKIRKJ A: Messa kl.
14. 50 ára fermingarbörn taka
þátt í messunni. Nk. fimmtudag:
fyrirbænamessa kl. 18.30. Beð-
ið fyrir sjúkum. Organisti Jón
Ól. Sigurðsson. Sr. Björn Jóns-
son.
Minning:
*
Agústa Ebeneser-
dóttir, Isafirði
Fædd 29. ágúst 1915
Dáin 6. maí 1992
Þó að engill dauðans hafi svarta
vængi séða með augum lifenda er
allt eins víst að þeir séu úr tandur-
hvítri perlumóður frá öðru sjónar-
horni. Hinum megin við okkar
dimma dal er sagt að bíði grænar
grundir þar sem við fáum að hvfl-
ast og vötn þar sem við megum
næðis njóta og ef einhver á skilið
umbun í öðru lífi, þá er Gústa áreið-
anlega framarlega í þeim hópi.
ERFIDRYKKJUR
Perlan á Öskjuhlíð
sími 620200
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
vió öll tækifæri
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
Það er ekki heiglum hent að
reyna að gera mannsævi skil með
fáum og fátæklegum orðum, hvað
þá rúmlega sjötíu ára erfiði sem
ekki var launað neinum heiðurs-
merkjum eða titilum. Að alast upp
í bæ eins og ísafirði og eiga að
konu eins og Gústu eni forréttindi
sem ekki eru öllum gefin. Að ferð-
ast til baka í huganum kveikir
minningar um alúð, skilning og
hlýju, angan af pönnukökum og
nýlöguðu kaffí. Þótt efnin hafi oft
verið rýr og húsakostur þröngur í
byrjun búskapar Gústu og Láka var
heimilið hlýtt, hreint og notalegt.
Sumt fólk þarf ekki stór hús til að
nægt pláss sé fyrir alla.
Það getur verið erfitt fyrir okkur
sem lifum í dag, að skilja lífsbar-
áttu Gústu og samferðafólks henn-
ar við að komast af í hörðum heimi,
koma börnunum á legg og sjá til
þess að allir hafi nóg að bíta og
brenna, þar sem lífsþægindi og
munaður nútímamannsins voru
óþekkt hugtök, þar sem fólk lærði
að lifa við þröngan kost en gat
samt horft á afkomendur sína stolt
og beint í baki. Þetta er fólkið sem
við eigum allsnægtirnar að þakka,
þetta er fólkið sem með hörðum
höndum byggði ísland.
Þegar börn Gústu og Láka uxu
úr grasi og eignuðust eigin fjöl-
skyldu hélt heimili þeirra hjóna
samt áfram að vera miðpunktur
alls. Þangað fóru barnabörnin í
skólafrímínútum og þar beið þeirra
mjólk og te, smurt brauð og heitir
snúðar úr Gamla bakaríinu. Hinir
eldri komu líka, drukku kaffi og
ræddu málin af ákefð og heimilið
iðaði af athafnasemi og fjöri. Á
stórhátíðum söfnuðust svo allir
saman og héldu hátíð. Það er ekki
að undra að í huga okkar afkömend-
anna eigi heimili þeirra Gústu og
Láka sál, hvort sem það stóð við
Pólgötu, Fjarðarstræti eða Brunn-
götu.
Þessari stuttu kveðju er hvorki
ætlað að vera æviágrip eða úttekt
á lífi Gústu, heldur örstutt minning-
arbrot og þakkarkveðja t.il konu sem
hefur verið svo mikilvæg í lífi okkar
og tilveru.
Megi hún hvíla í friði. Minning
hennar mun lifa björt í huga okkar
alla ævi.
Þórir, Elva, Siggi,
Stefán Þór og Magnea.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN GUÐNASON
byggingameistari,
Hólavegi 22,
Sauðárkróki,
verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 18. maí
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á að láta Sjúkrahús
Skagfirðinga njóta þess.
Margrét Guðvinsdóttir,
Óskar Guðvin Björnsson, Erla Kjartansdóttir,
Lovísa Birna Björnsdóttir, Vigfús Vigfússon,
Guðni Ragnar Björnsson, Anna Marie Stefánsdóttir,
Björn Jóhann Björnsson, Edda Traustadóttir
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞORBJÖRG ÞÓRHALLSDÓTTIR,
Skeiðarvogi 89,
Reykjavfk,
andaðist á hjartadeild Landspítalans aðfaranótt 15. maí.
Jón Kristinn Arason,
Þórhaliur Arason,
Sveinn Arason,
Arnþór Óli Arason,
Atli Arason,
Anna Björg Aradóttir,
Halldór Arason,
Nanna Huld Aradóttir,
og barnabörn.
Sigrún Kristinsdóttir,
Rannveig Tómasdóttir,
Jóna Möller,
Guðný Eiríksdóttir,
Þorleifur Magnússon,
Helga Ólafsdóttir,
Pétur Ingólfsson,
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsfjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.