Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐip LAUGARDAGUR 16. MAI 1992
Nýtt og gamalt frá Gömmum
___________Jass______________
Guðjón Guðmundsson
GAMMARNIR léku nýtt og gamalt
efni á tónleikum sínum í Súlnasal á
fimmtudagskvöld. Nýja efnið verður
á hljómdisk sem kemur út með sveit-
inni um næstu mánaðamót, þeirri
þriðju sem hún gerir. Meðal nýrri
laga var Ættarmótið eftir Björn
Thoroddsen, fallegt lag með
skemmtilegu sólói Bjöms, Bassus
sopranus, eftir Stefán S. Stefánsson,
sem er stutt lag þar sem sópransaxa-
fónn og bassinn bera uppi laglínuna.
Bjami Sveinbjömsson fór á kostum
í sínu sólói. Gammamir léku einnig
eldra efni; fönklagið frábæra Ósögð
orð, Stál, sem Gammarnir fluttu
sennilega fýrst á Norrænum útvarps-
jassdögum í hitteðfýrra. Gammarnir
hafa líklega aldrei verið í betra formi,
íslenski Hollendingurinn, Marteinn
van der Valk, setur skemmtilegan
blæ á tónlistina og Halldór G. Hauks-
son er að skipa sér í sveit með allra
bestu trommuleikurum landsins.
Að leik Gammanna loknum kom á
svið sænski söngvarinn Svante Thur-
eson, píanistinn Gösta Rundquist,
bassaleikarinn Hasse Backenroth og
Pétur Östlund. Backenroth hljóp í
skarð Sture Ákerbergs sem forfallað-
ist. Um leið og sveitin steig á svið
fylltist salurinn af Svíum. Svante
Morgunblaðið/Keli
þessi er einn vinsælasti söngvari Svía.
Hann hefur næma jasstilfinningu en
er ekki maður mikilla átaka í radd-
beitingu. Söngurinn var ekki ósvipað-
ur því sem Chet Baker gerði í Gamla
bíói um árið. En það má vera að
svona söngur falli að smekk ein-
hverra, altént virtust sænsku gestirn-
ir taka sínum manni vel. Fluttir voru
velþekktir jassstandardar, svo sem
Take the A-train, The Song is You,
Bluesette söng hann á sænsku og
blístraði eitt gott sóló. Hljómsveitin
var hins vegar af betri gerðinni.
Gösta Rundquist er einn fremsti
jasspíanisti Svía og Backenroth var
þéttur undir. Pétur Östlund þekkja
landsmenn. Trúlega hefur hann sjald-
an leikið betur en einmitt á þessum
tónleikum. í salnum voru saman-
komnir nokkrir helstu jasstrommu-
leikarar landsins til að hlýða á Pét-
ur, sem er orðin goðsögn í lifanda lífi.
Tónleikar Jon Hendricks & Comp-
any hefjast í Háskólabíói í dag kl.
14.30 og er ástæða til að hvetja alla,
jafnt jassunnendur sem aðra, til að
missa ekki af þessum viðburði.
Hendricks hefur lengi verið í fremstu
röð jasssöngvara í heiminum, enda
er hann tónlistarlega uppalinn af
Charlie Parker og Thelonius Monk.
Hann er ekki söngvari í hefðbundnum
skilningi, heldur jasssöngvari sem
impróviserar og teygir og togar allar
laglínur á listfenginn hátt. Enginn
ætti að missa af þessum tónleikum.
Miðar eru seldir í Japis í Brautar-
holti og við innganginn og kosta
1.900 kr. Um kvöldið verður botninn
sleginn í hátíðina en þar koma fram
Útlendingahersveitin og fleiri.
____________Brids_______________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Akureyrar
Síðasta mót vetrarins hjá Bridsfé-
iagi Akureyrar var einmennings-
keppni sem jafnframt var firma-
keppni. Fyrsti liður hennar fór reynd-
ar fram 18. febrúar. Einmennings-
meistari verður sá sem bestan árang-
ur fær tvö kvöld af þremur möguleg-
um, en hæsta skor hvers einstaks
kvölds ákveður sigurvegarann í firma-
keppninni. Spilað var í tveimur 16
manna riðlum öll kvöldin.
Röð efstu manna:
Magnús Magnússon 225
Ora Einarsson 222
Sigurbjörn Þorgeirsson 221
Firmakeppni 1992 lauk með sigri
Fasteigna- og skipasölu Norðurlands,
en vegna þess hve nafnið er langt,
er fyrirtækið skráð sem Lögberg hf.
sem reyndar er eigandi fyrra fyrir-
tækisins. Spilari var Magnús Magnús-
son með 119 stig og þurfti að draga
um sigurinn því Sigurbjörn Þorgeirs-
son hafði jafnháa skor.
Aðalfundur BA var haldinn 12. maí
1992.
Bridsfélag Breiðholts
Nú er lokið firmakeppni félagsins
sem stóð yfir í tvö kvöld. Spilaður var
einmenningur í tveimur riðlum. Úrslit
urðu þessi:
íslandsbanki
Guðjón Siguijónsson 209
Stjömusalat
Kolbrún Thomas 209
Ámi Gunnarsson sf.
Óli Bjöm Gunnarsson 204
Kjötborg
Ingvarlngvarsson 198
Neon
RúnarEinarsson 197
Gerðuberg
Hanna Friðriksdóttir 196
Einmenningsmeistari félagsins
varð Guðjón Sigurjónsson. Næsta
þriðjudag verður spilaður eins kvölds
tvímenningur. Allir velkomnir.
Sumarbrids í Reykjavík
Sumarbrids í Reykjavík 1992 hefst
á mánudaginn, 18. maí. Spilað verður
í húsi Bridssambandsins (nema næsta
þriðjudag, en þá verður spilað í Drang-
ey við Stakkahlíð og opnar húsið kl.
18) að Sigtúni 9. Húsið opnar kl. 18
á mánudaginn og stefnt er að upp-
hafi spilamennsku kl. 19. Spilaður
verður Mitchell-tvímenningur.
í framtíðinni verður svo spilað fjór-
um sinnum I viku; á mánudögum (opn-
að kl. 18), á þriðjudögum og fimmtu-
dögum (opnað kl. 16.30) og á laugar-
dögum (opnað kl. 13).
Allt spilaáhugafólk er velkomið, en
hvert kvöld er sjálfstæð keppni. Á
mánudögum hefst spilamennska kl.
19, á þriðjudögum og fimmtudögum
hefst spilamennska í hverjum riðli um
leið og hann fyllist, en síðasti riðill fer
af stað um kl. 19. Á laugardögum
mun spilammenska hefjast í síðasta
lagi um kl. 13.30.
Ólafur og Hermann Lárussynir ann-
ast umsjón Sumarbrids.
Sýningum
lýkur 6. júní
SÝNINGUM á leikritinu Ég
heiti ísbjörg - Ég er ljón
eftir Vigdísi Grímsdóttur í
leikgerð Hávars Sigurjóns-
sonar lýkur 6. júní nk. Leik-
ritið var frumsýnt í Smíða-
verkstæðinu, nýju leiksviði
Þjóðleikhússins, í janúar sl.
og hefur verið sýnt við
mikla aðsókn og fádæma
góðar undirtektir jafnt
áhorfenda sem gagnrýn-
enda. Leikritið fjallar um
unglingsstúlkuna ísbjörgu
sem situr í fangelsi ákærð
fyrir morð. í tengslum við
sýninguna hafa áhorfendur
átt kost á umræðum þar
sem aðstandendur sýning-
arinnar og Kvennaat-
hvarfsins hafa setið fyrir
svörum.
ísbjörg er leikin af Guðrúnu
Gísladóttur og Bryndísi Petru
Bragadóttur. Aðrir leikarar
eru Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Jóhann Sigurðarson,
Þórarinn Eyfjörð, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir, Pálmi
Gestsson og Hjálmar Hjálm-
arsson. Leikstjóri er Hávar
Bryndís Petra Bragadóttir
og Guðrún S. Gísladóttir í
hluverkum sínum.
Sigurjónsson, leikmynd og
búninga gerir Elína Edda
Árnadóttir, tónlistin er eftir
Lárus Grímsson en lýsingu
hannar Björn B. Guðmunds-
son.
Næstu sýningar á ísbjörgu
verða sunnudaginn 7. maí,
miðvikudaginn 20. maí. og
laugardaginn 24. maí.
Sandspyrna á
Eyrarbakka
FYRSTA af fjórum sand-
spyrnum sumarsins verð-
ur haldin við Eyrarbakka
(þ.e. við nýju Ölfusár-
brúna) nk. sunnudag kl.
14.
■ Keppnin gefur stig til ís-
landsmeistara þannig að
allir hörðustu kapparnir
með öflugustu keppnistæk-
in eru væntanlegir til
keppni. Keppni af þessu
tagi hefur verið haldin frá
1976 og árlega falla metin,
þannig að tækin eru orðin
ótrúleg. Þeir öflugustu hafa
náð 130 km hraða á 92
metrum og á aðeins 3,75
sek. og það á sandi. Margir
hafa nýtt veturinn vel og
fjárfest í öflugri búnaði og
það verður spennandi að sjá
hvernig það skilar sér. í
sandspyrnu keppa öll
keppnistæki, s.s. snjósleðar,
kvartmílubflar, bifhjól, tor-
færutæki og óbreytt öku-
tæki.
VITASTÍG 3 T
SÍMI623137
Laugard. 16. maí. Opið kl. 20-03.
EFTIRMÁLIRÚREK '92
ÚTLENDINGAHERSVEITIN
ÁRNI EGILSS0N,
bassi,
JÓN PÁLL BJARNASON,
gitar,
PÉTUR ÖSTLUND.
trommur
& VINIR:
Arni Scheving, víbrafónn,
Reynir Sigurðsson. vibr«afónn,
Þórarinn Olafsson, pianó.
KL.22:
TJARNARKVARTETTINN
KL. 21-22 HAPPY DRAFT HOUR
(sælu-dælu-stund)
Þetta verður geggjað kvöld fyrir
djassgeggjara!
PÚLSINN
- engum líkur!
H^L L í
HDAVERD 700
OPID TIL KL.3
UNGFRU
ALHEIMSÞOKKI
1992
A FULLU
TUNGLI
í Gyllta salnum
HdTEl BOKC
Opið fró kl. 23-3
Hefst kl. 13.30 __________ j
Aðalvinningur að verðmæti________ ?!
:________100 bús. kr.______________ 11
Heíldarverðmæti vinninqa um — TEMPLARAHOLLIN
3QQ.þÚ5._ kr. Eiríksgötu 5 — S. 20010