Morgunblaðið - 16.05.1992, Síða 45
i
(
<
i
i
i
i
i
i
<
i
i
<1
I
€
MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992
---------------------------------,----
Náttúruperla á Seltjarnarnesi
Frá Gunnari Kvaran:
AÐ undanförnu hafa skipulags-
og umhverfismál á Seltjarnamesi
verið mikið til umræðu.
Ástæðan eru áætlanir meiri-
hluta bæjarstjórnar um aukna
byggð vestan núverandi byggðar.
A gagnlegum fundi sem Sjálf-
stæðisflokkur Seltjarnarness efndi
til nýlega um bæjarmál kom fram
mjög skýr andstaða meirihluta
fundarmanna (ca. 80 manns) gegn
þessum byggingaráformum. Þessi
fundur var mér persónulega mikið
gleðiefni, því í hjarta mínu hafði
ég ekki þorað að vonast eftir svona
skýrum skilaboðum til bæjar-
stjórnar um þessi mál.
Seltjarnarnes er orðið einhver
vinsælasti búsetustaður á suðvest-
urhorninu. Af hveiju? Vegna þess
að Seltjamarnes hefur upp á ýmis-
legt að bjóða sem aðrir staðir hafa
ekki. Einn aðalkostur þess að búa
á Nesinu er ekki síst nálægðin við
náttúruna. Þar þarf ekki að nota
bílinn til þess að komast í snert-
ingu við yndislega óspillta náttúru.
Það er nóg að ganga smáspöl og
þá er maður staddur í heimi sjald-
gæfra jurta og fugla og nýtur
hreins sjávarlofts og dásamlegs
útsýnis. Þetta eru forréttindi sem
æ fleiri kunna að meta. Fólk er
að vakna til meðvitundar um að
gæði lífsins felast ekki eingöngu
í jarðnesku góssi og steinsteypu,
heldur í vaxandi mæli í fögm og
hreinu umhverfi og virðingu gagn-
vart náttúrunni.
I áratugi hefur verið tönnlast á
orðinu „hagvöxtur" sem einhvers-
konar lykilorði fyrir hamingju og
velferð, en lítið minnst á andlegan
hagvöxt, það er hvernig fólkinu
líði raunverulega á sálinni. Hér
hefur orðið á breyting, enda mál
til komið, því við höfum oft greitt
dýru verði þá ytri hagsæld sem
við búum við. Við Nesbúar eigum
sjaldgæfa náttúruperlu rétt við
bæjardyrnar. Þesssi perla yrði ekki
einungis okkur á Nesinu gleðigjafi
yrði hún varðveitt, heldur ótöldum
íbúum Reykjavíkur og nágrennis,
sem vildu leggja leið sína hingað
vestureftir.
í ítarlegri skýrslu Náttúru-
vemdarráðs um ástand gróðurs,
fuglalífs og náttúrufars á Seltjarn-
arnesi er bent á, að öll röskun
þessa svæðis, sem enn hefur feng-
ið að standa óhreyft sé óæskileg
og skaðleg. Eru þessi tilmæli
ásamt okkar eigin sterku tilfinn-
ingum og óskum um varðveislu
svæðisins ekki nægileg rök gegn
byggingaráformum? Eg vona að
Nesbúar og aðrir geri sér grein
fyrir alvöru þessa máls og láti álit
sitt í ljós beint eða óbeint, skýrt og
skorinort.
GUNNAR KVARAN,
sellóleikari, Valhúsabraut 23.
Seltjamamesi.
Vont
skipulag
Frá Lindu Guðmundsdóttur:
ÉG TEL að símþjónustan hjá
Læknastöð Vesturbæjar sé rangt
skipulögð og ekki nógu góð. Panti
maður tíma hjá lækni segir síma-
daman að maður eigi að hringja
aftur eftir t.d. mánuð og þá verði
teknar niður pantanir. Þegar mað-
ur hringir svo aftur eftir mánuð
er manni sagt að maður komist
ekki að vegna þess að maður hafi
ekki verið hjá viðkomandi lækni
áður. Nú veit ég að ásóknin er
mikil en þetta mætti samt skipu-
léggja betur. Maður gæti t.d. átt
rétt á að panta hjá tveimur læknum
og væru þá auknar líkur að kom-
ast að hjá öðrum þeirra.
LINDA GUÐMUNDSDÓTTIR
Fornhaga 15, Reykjavík.
Pennavinir
Frá Ghana skrifar 22 ára stúlka
með áhuga á kvikmyndum og bóka-
lestri:
Agnes Bethy Eshun,
Box 760,
Cape Coast,
Ghana.
Nítján ára stúlka frá Litháen
með mikinn íþróttaáhuga:
Jurgita Kreivenaite,
Siaures pr. 93-40,
Kaunas,
Lithuania.
Velsk 24 ára stúlka sem safnar
póstkortum, einkum dýramyndum,
og hefur auk þess áhuga á tónlist,
ferðalögum, sögu, alþjóðamálum:
Martina Rees,
56a Ridgeway Road,
Rumney,
Cardiff,
CF3 9AE,
South Wales,
Great Britain.
LEIÐRÉTTIN G AR
Ekki frum-
flutningnr
í TÓNLISTARGAGNRÝNI Ragn-
ars Björnssonar í Morgunblaðinu
13. maí um flutning Söngsveitar-
innar Fílharmoníu á „la Petite
Messe Solennelle" eftir G. Rossini,
í Langholtskirkju síðastliðinn
sunnudag, telur gagnrýnandi að um
frumflutning hafi verið að ræða á
verkinu hér á landi. En staðreyndin
er sú, að Pólýfónkórinn í Reykjavík
flutti umrædda messu í apríl 1980
undir stjórn Ingólfs Guðbrandsson-
ar í Háskólabíói. Einsöngvarar voru
Janet Price sopran, Ruth L. Magn-
ússon alt, Jón Þorsteinsson tenor
og David Wilson-Johnson bassi.
Píanóleik önnuðust Agnes Löve og
Anna Málfríður Sigurðardóttir; á
harmoníum lék Hörður Áskelsson.
Með þökk fyrir birtinguna.
Friðrik Eiríksson.
Rangt nafn
í FRÉTT á bls. 15 í Morgunblaðinu
í gær um prestsvígslu í Dómkirkj-
unni misritaðist nafn eins vígslu-
þegans. Hann heitir Siguijón Árni
Eyjólfsson, dr. theol. Beðist er af-
sökunar á misrituninni. Vígsluat-
höfnin fer fram í Dómkirkjunni á
sunnudag klukkan 10,30.
Fæðinffar
og
sparnaður
Frá írisi Adolfsdóttur:
AÐ FÆÐA bam er stórviðburður
í Iífi hverrar konu. Líkami konunn-
ar sparar í engu við sköpun barns-
ins, og því skildu peningar skipta
þar máli. Foreldrar meta barn
ekki til fjár, þau vilja því aðeins
það besta. Líðan konunnar á með-
göngu og í fæðingu skiptir miklu
máli. Fæðingarheimilið hefur að
öllu leyti tekist að gera umhverfi
heimilislegt og notalegt og kona
sem vill vera virk í fæðingu verður
róleg og örugg og einnig pabbinn.
En það er sem ráðamenn hugsi
ekki út í það. Þeir setja allar kon-
ur og fæðingar undir einn hatt og
segja að með því sé hægt að spara.
Það er skrítið að ráðamenn skuli
ekki krefjast þess af konum að
þær samræmi fæðingar og hafi
þær bara á vinnutíma 8-16 svo
hægt sé að spara ennfrekar!
ÍRIS ADÓLFSDÓTTIR,
Frostafold 30, Reykjavík.
VELVAKANDI
VESKI
Brúnt kvenleðurveski tapað-
ist á svæðinu Fjölnisveg-
ur/Freyjugata, þriðjudaginn 12.
maí. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja i Karólínu í
heimasíma 17639 eða vinnusíma
14182.
PEYSA
Ný handpijónuð peysa á 10
ára dreng var tekin við leikskól-
ann við Holtsgötu, þriðjudaginn
12. maí. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
29004.
KAPA
Dökkgrá kápa með flauel-
skraga og flauelsermum var
tekin í misgripum á ungversk-
íslensku kvöldi i Safnaðarhejmili
Garðabæjar 8. maí, en svört
kápa með flauelskraga skilin
eftir. Sú sem kápuna tók er vin-
samlegast beðin að hringja í
síma 620432.
RUDDA
Lítil brún budda með lyklum og
strætókorti tapaðist við Grens-
ásveg í síðustu viku. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 15382.
KETTLINGAR
Þrír kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 812146.
GOÐAR
MYNDIR
Valdimar Einarsson:
Ég vil þakka fyrir stórar og
skemmtilegar myndir frá Græn-
landsferð sem birtust í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag. Einnig
fyrir stóra og einstaka mynd frá
afbrotavettvangi sem birtist á
baksíðu blaðsins á þriðjudag.
Þá vil ég lýsa ánægju minni með
þátt Ólafs K. Magnússonar, Úr
myndasafninu, sem birtist á
sunnudögum. Þetta er góður
þáttur en umfjöllunin um þessa
liðnu atbuði mætti vera ítarlegri.
ÚR
Stálúr úr tapaðist sunnudags-
kvöldið 10. maí fyrir utan Hólm-
garð 64, eða við Sigtún 3.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 30761.
FJALLAHJÓL
Fjallahjól fannst í Seljahverfi
11 maí. Upplýsingar í síma
670956.
Innanhússarkitekt ráðleggur
viðskiptavinum Metró
Guðrún Benediktsdóttir innanhússarkitekt.FHÍ,
verður í versluninni Metró
fimmtudag og föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14,
og veitir viðskiptavinum ráðleggingu um val á málningu.
Verið velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf.
M
METRO
í MJÓDD
Álfabakka 16 • Reykjavík • Sími 670050
Stærsta markadshlutdeild
tölvugagnagrunnskerfa
á heimsvísu: 30%
- Gartner Group
ORACLE ísland Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími 91-618131 Fax 91-628131
FAGURGRÆN - VATNSÞOUN
Henta á svalir - verandír og tíl útstillínga.
Hagstætt verð! Breidd 200 cm og 400 cm
4 TEGUNDIR
Tennis velúr (2 og 4 m) kr. 980
Við sníðum eftir þínu máli.
Opið laugardaga kl. 10-14.
TEPPABÚÐIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950