Morgunblaðið - 16.05.1992, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992
KNATTSPYRNA / ÞYSKALAND
íbr ÚRSLITALEIKUR krr
Reykjavíkurmót 1992:
FRAM - KR
á gervigrasvelli í Laugardal í dag kl. 14.00.
Hækkað verð.
Fullorðnir kr. 600,- Börn kr. 200,-
Meiðsli Matthausar
setja Vogts í vanda
Möguleikar Þjóð-
verja á Evrópu-
meistaratitli minnka
MEIÐSLi fyrirliða þýska landsliðsins Lothar Mattháusar, munu
valda Berti Vogts gríðarlegum vandræðum á Evrópumótinu í
Svíþjóð í sumar. Mattháus var ekki bara fyrirliði, hann var reynd-
asti maður liðsins, leikstjórnandi þess, einn af mestu markaskor-
urumog (nánast alltaf) besti maður liðsins í hverjum leiknum á
fætur öðrum um nokkurra ára skeið. Leikkerfi þýska landsliðsins
snerust um hann án undantekninga og fjarvist hans gerir liðið
á örskotsstundu að höfuðlausum her.
Ítalíudraugurinn
Meiðsli Mattháusar eru því ekki
eina vandamálið sem Vogts á við
að glíma. Landsliðsþjálfarinn berst
m.a. við draug sem hefur aðsetur
á Ítalíu og birtist þannig að allir
þýsku landsliðsmennirnir sem leika
á Ítalíu — 9 talsins — að frátöldum
Jurgen Kohler, hafa leikið langtum
verr en þeir eiga að sér í langan
tíma. Kohler á hinsvegar við meiðsli
að stríða og þátttaka hans í EM
er óviss. Miðheijamir Völler og
Klinsmann eru dauðir úr öllum
æðum, sérstaklega á Völler langt í
land, en samt hefur Vogts ákveðið
að gera hann að fyrirliða þýska liðs-
ins í Svíþjóð og það þýðir að Klins-
mann og Karlheinz Riedle berjast
um hina stöðuna í framlínunni.
Vængmennirnir Brehme og Reuter
eru langt frá sínu besta og Reuter
hefur á slnu fyrsta keppnistímabiili
á Ítalíu breytt um leikstíl, blandar
sér ekkert í sóknarleikinn hjá Ju-
Berfl Vogts, þjálfari Þýskalands.
Kristján
Kristjánsson
skrifar
frá Þýskalandi
Vogts hefur síðustu vikur verið
að gera upp hug sinn um það
hvaða leikmenn fá að fara með til
Svíþjóðar í sumar og
valið hefur verið erf-
itt, enda margir
kallaðir en fáir út-
valdir. Þrátt fýrir að
Vogts hafi byggt á sama kjarna
og Beckenbauer gerði 1990, þegar
Þjóðveijar urðu heimsmeistarar (en
úr byijunarliðinu frá lokaleiknum í
HM 1990 eru aðeins Klaus Augent-
haler, Thomas Berthold og Pierre
Littbarski ekki lengur með), hefur
hann neyðst til að gera býsna marg-
ar tilraunir með leikmenn sem
gengið hafa misjafnlega, hinn fasti
kjarni hefur ekki verið jafn álitlegur
og oft áður og án Mattháusar er
kjarninn varla lengur neinn kjarni.
Að auki hefur Vogts sagt að enginn
leikmaður fái að fara til Svíþjóðar
sem ekki hefur gengið frá hugsan-
legum félagaskiptum fýrir komandi
keppnistímabil. Þeir sem enn eru á
milli vita í þeim málum — og geta
þar af leiðandi að mati Vogts ekki
•éinbeitt sér sem skyldi — verða að
sitja heima. Stefan Effenberg,
Andreas Möller og Thomas Helmer
gætu því þurft að sitja eftir og
enginn veit enn hvort Inter Milan
ákveður að setja Jiirgen Klinsmann
og Andreas Brehme á sölulista.
Tveir æfingaleikir hafa verið leiknir
á þessu ári, 0:1 gegn nýju liði ítala
í mars og 1:1 gegn Tékkum í apríl
leiddi í ljós.að þýska liðið er enn
sterkt, en langt frá því jafn skeinu-
hætt og fyrir tveimur árum. Sókn-
arleikurinn sem var svo kröftugur
og fjölbreyttur er orðinn ráðleysis-
legur og sóknarmennimir megna
ekki lengur að snúa af sér vamar-
menn.
ventus, líkt og hann gerði með góð-
um árangri hjá Bayem Miinchen
og lætur helsta vopn sitt, hraðann,
rykfalla. Brehme er á 32. ári og
andstætt Reuter er það hraðann
sem hann skortir fyrst og fremst.
Bæði Doll og Riedle hafa misst flug-
ið eftir kraftmikla byijun og reynd-
ar hafði Mattháus einnig leikið illa
um langa hríð. Einu gleðitíðindin
sem berast frá Ítalíu eru þau að
Thomas Hássler hefur, eftir tveggja
ára lægð, sýnt sitt rétta andlit og
hann var besti maður þýska liðsins
í leiknum gegn Tékkum.
Vogts hefur þógreinilega ákveð-
ið að byggja á „Itölunum" sínum.
Hann hefur ekki ljáð máls á að
refsa þeim fyrir lélegan leik á ítal-
íu, heldur jafnan bent á að þeir
sýni allir sínar bestu hliðar með
landsliðinu. Þannig heldur hann
mönnum eins og félögunum frá
Bayer Leverkusen, Andreas Thom
og Ulf Kirsten, utan baráttunnar
um miðheijastöðumar, stórstjörnur
Bundesligunnar þetta tímabilið,
Michael Rummenigge frá Bomssia
Dortmund og Maurizio Gaudino frá
Stuttgart koma varla til greina.
Littbarski verður að sitja heima
þrátt fyrir augljósa hæfileika sína
sem leikstjómandi og fyrirliði.
Vogts hefur verið gagnrýndur mjög
fyrir þetta, þ.e. að taka ekki nægj-
Andy Möller - verður hann leikstjómandi?
Lothar Matth 'aus, fyrirliði heims-
meistara Þýskalands, leikur ekki með
í EM í Svíþjóð.
stendur, auk þess að ná ótrúlega
vel saman en gjalda þess að Uwe
Bein hefur, þrátt fyrir að vera 31
árs, takmarkaða alþjóðlega reynslu
að baki. Allt veltur þó á því að
Vogts geti séð af Buckwald í varn-
arleiknum, það getur hann ekki
nema því aðeins að Jurgen Kohler
leiki með af fullum krafti.
Möller og Bein þurfa sterkan
vamarleikmann með sér og sama
gildir um Thomas Hássler og Thom-
as Doll. Það gerir möguleika Effen-
bergs meiri en Sammers, ef Vogts
afræður að gera upp á milli þeirra
tveggja, en á hinn bóginn hefur
hvorugur þeirra þá reynslu eða
stjórnendahæfileika sem leikstjórn-
andi þýska landsliðsins þarf að
hafa. Sammer hefur vissulega mik-
inn sprengikraft og yfirferð, en
hann er vanur því hjá Stuttgart að
Buchwald fylli upp í eyðurnar sem
hann skilur eftir sig. Slíku yrði
væntanlega ekki til að dreifa hjá
landsliðinu. Að auki þarf Vogts að
fást við nýtt vandamál. Fyrir tveim-
ur mánuðum hefðu Andreas Möller
anlegt tillit til frammistöðu leik-
manna heima fyrir og horfa fram
hjá slakri framgöngu á Ítalíu.
Effenberg, Sammer, Buchwald
Lothar Mattháus var jafn mikil-
vægur í sókn og vöm. Hann hefur
gríðarlegan sprengikraft og getur
snúið leik við upp á eigin spýtur,
tók fullan þátt í erfíðum vamarleik
en var oft um leið fremsti maður í
sókn. Hann var stanslaust á hlaup-
um, úthaldið nánast ótakmarkað
og yfirferðin meiri en áður þekkt-
ist. Þetta er gríðarlega gott meðan
dugði, nú er það jafn slæmt. Enginn
annar hefur þessa sömu hæfileika
og eiginlega þarf a.m.k. tvo leik-
menn til að fylla skarð fyrirliðans.
Berti Vogts verður að endurskipu-
leggja leik liðsins, honum bjóðast
nokkrir möguleikar en enginn
þeirra er einfaldur eða sjálfsagður.
í fyrsta lagi getur landsliðsþjálf-
arinn einfaldlega sett mann í stöðu
Mattháusar og séð hvernig það
gengur. Það er einfaldast og heppi-
legast ef það gengur upp. Þar koma
til greina Matthias Sammer frá Vfb
Stuttgart og Stefan Effenberg frá
Bayern Miinchen. Sammer er betri
sóknarmaður en Effenberg mun
betri varnarmaður og í landsleikn-
um gegn Tékkum notaði Vogts
tækifærið og prófaði Effenberg
fyrstan manna. í næsta leik, gegn
Tyrkjum, fær Sammer síðan tæki-
færi til að sýna hvað í honum býr,
en Effenberg var engan veginn
sannfærandi gegn Tékkum. Enginn
veit svo hversu mikið það skiptir
að hálfguðinn Franz Beckenbauer
hefur lýst því yfir opinberlega að
Vogts eigi að velja Sammer í stað
Mattháusar — hér eru menn ekki
vanir því að knattspymuheimurinn
láti ráðleggingar keisarans sem
vind um eyrun þjóta.
Vogts gæti síðan tekið þá
ákvörðun, sem ekki er talin ólíkleg,
að færa Guido Buchwald fram á
miðjuna og láta hann leika sömu
stöðu og hann leikur hjá Stuttgart,
á miðjunni með varnarhlutverk í
öndvegi til að vega upp tvo sókn-
djarfa miðjumenn. Það myndi gefa
möguleika á að nýta besta miðjudú-
ettinn í þýsku knattspyrnunni sem
stendur, Andreas Möller og Uwe
Bein frá Eintracht Frankfurt, eða
tefla fram bæði Hássler og Doll í
einu. Bein og Möller njóta þess að
Bein er eini dæmigerði leikstjórn-
andinn í landsliðshópnum sem eftir
Guido Buchwald í nýtt hlutverk?