Morgunblaðið - 16.05.1992, Page 47

Morgunblaðið - 16.05.1992, Page 47
47 og Thomas Doll verið öruggir með sæti sín í byrjunarliðinu. Nú leika þeir hvorugur jafn vel og áður, Thomas Hássler aftur á móti miklu betur og Uwe Bein, eins og í allan vetur, næstum óaðfinnanlega. Verkefni, velgengni og vandræðamenn Berti Vogts sagði strax eftir að ljóst varð að Mattháeusar nyti ekki við, að deila þyrfti ábyrgðinni og verkefnunum sem Mattháeus hefur venjulega axlað einn. Nú er það höfuðverkur landsliðsþjálfarans að finna út hvernig réttast er að deila niður hlutverkum á nýjan leik og segir til um hæfni hans, hvernig til tekst. Það er reyndar athyglisvert að þeir leikmenn sem nú koma til greina hjá Vogts eru allt saman hálfgerðir vandræðamenn. Effen- berg hefur þrisvar verið settur út úr Bayern-liðinu í vetur fyrir kjaft- hátt og þegar hann komi inn á í leik þýska landsliðsins í leik gegn Wales í fyrra — í Þýskalandi — púuðu 50.000 áhorfendur á hann sem einn maður. Vogts neyddist til þess fyrir leikinn gegn Ítalíu í mars að setja Möller útúr landsliðshópn- um, þar sem hann var búinn að gera allt vitlaust í Þýskalandi og á Italíu með því að skrifa undir a.m.k. tvo samninga í einu en neita svo að efna þá. Fégræðgi og framkoma Möliers í samningamálum féllu ekki í kramið hjá Vogts. Matthias Sammer hefur átt í útistöðum við Vogts, a.in.k. í tvígang og þurft að gjalda fyrir það. Nú þarf Vogts að finna aðferð til að gleyma göml- um deilum og fá þremenningunum ný hlutverk. Ómögulegt er að spá fyrir um gengi Þjóðverja á EM. Reyndar verður varnarleikurinn örugglega lítið vandamál, sóknarleikurinn get- ur liinsvegar orðið þrautin þyngri, sérstaklega ef Völier leikur jafn máttleysislega og hann hefur gert að undanförnu. Sóknarleikurinn var mjög slakur í leikjunum við ítali og Tékka, ekkert færi skapaðist gegn ítölunum og eitt gegn Tékk- um, og augljóst að með þeim hætti verða Þjóðveijar ekki Evrópumeist- arar, en um það gera sér flestir nokkuð miklar vonir. Jafnvel þó Lothar Mattháeus leiki ekki með. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992 KORFUKNATTLEIKUR / NBA SKOTFIMI KNATTSPYRNA / ENGLAND Carl reynir við ÓL-lágmarkið Carl J. Eiríksson, skotmaður, er nú í Damörku til að freista þess að ná ólympíulág- markinu í skotfimi. Hann fór út í síðustu viku og sagði við blaða- mann Morgunblaðins að hann ætlaði sér að keppa á fjölmörgum mótum bæði í Danmörku og Sví- þjóð næsta mánuðinn. Carl sagð- ist reyna allt til að komast á Ólympíuleikana í Barcelona, Shreeves rekinn Kemur mérekki á óvart, segir Guðni Bergsson ieikmaðurTottenham Peter Shreeves var rekinn sem framkvæmdastjóri Tottenham í gær og er þetta í annað sinn á sex árum sem hann er rekinn frá félaginu. Miklar líkur eru á að David Webb, fyrrum fyrirliði Chelsea, sem hefur verið fram- kvæmdastjóri Southend í fjögur ár, taki við starfi Shreeves. Guðni Bergsson, leikmaður Tott- enham, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að það hafi ekki kom sér á óvart að Shreeves hafi verið rek- inn. „Það bjuggust fiestir við þessu. Þetta breytir engu fyrir mig í stöð- unni. Ég veit nátturlega ekki hver tekur við, hvort það verður Terry Um helgina Knattspyma KR og Frani leika til úrslita í Reykja- víkurmótinu á gervigrasvellinum í Laugardal kl. 14 í dag. Akranes og Keflavík leika til úr- slita í Litlu-bikarkeppninni á Akra- nesi kl. 14 í dag. Reynir Sandgerði og Víkverji leika í forkeppni Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrnu í Sandgerði kl. 20 í kvöid. Armann og Árvakur leika í 1. umferð bikarkeppninnar kl. 20 á mánudag. Frjálsíþróttir Húsasmiðjuhlaup FH, almennings- hlaup, verður haldið í dag og hefst kl. 10.00 við Húsasmiðjuna, Hellu- hrauni í Hafnarfirði. Þátttakendum er boðið upp á að,velja milli 3 km (hringur í HafnarFu-ði), 10 km (hlaupin Reykjanesbraut og endað við Húsasmiðjuna í Reykjavík) og liálfmaraþons (hlaupin Reykjanes- braut að Skútuvogi og til baka og endað við Ilúsasmiðjuna í Hafnar- firði). Keppt er í aldursflokkum (14 ára og yngri, sem hlaupa aðeins 3 km, 15-39 ára, 40-49 ára og 50 ára og eldri) og fá allir keppendur verð- launapening. Tekið er við skráning- um i dag frá kl. 08.45 við Húsasmiðj- una í Hafnarfirði. Þátttökugjald er 500 kr. og 300 kr. fyrir 14 ára og yngri. Boðið verður upp á drykki og grillmat fyrir alla eftir hlaupið. Þeir sem taka þátt í hálfmaraþoni eiga möguleika á ferð til Bretlands í vinn- ing, en dregið verður úr nöfnum þeirra. Golf Opið stigamót verður hjá Golfklúbb- inum Keili í Hafnarfirði í dag. GS verður með opið mót á Hólm- svelli f leiru á sunnudaginn. Byijað verður að ræsa út kl. 9. Skráning í sínia 92-14100. Keila Laugardagsmót Öskjuhlíðar verður kl. 20 í kvöld í keilusalnum í Öskju- hlíð. Á morgun verður minningarmót um Birni Þórðardóttur. úrslit verða kl. 17.30. Skotfimi Vormót í hagglabyssuskotfimi verð- ur á skotsvæði Skotfélags Reykjavík- ur í Leirdal kl. 9 í dag. Skautar Yngri flokkur Isknattleiksfólags Bjarnarins (7 - 12 ára) ætiar að lilaupa á línuskautum áheitahlaup frá Selfossi að skautasvellinu í Laug- ardal í dag. Hlaupið hefst kl. 10 á Selfossi og verður skautað 50 km ieið til Reykjavíkur. Venables eða einhver annar. Þetta er nokkuð spennandi og ég mun fylgjast með þessu af miklum áhuga. Þetta getur skipt miklu máli fyrir mig persónulega og sjálf- sögðu liðið,“ sagði Guðni. Shreeves, sem er 51 árs, sagðist vera vonsvikinn. „En knattspyrnan er óútreiknanleg. Ég lít fram á veg- inn og vonast til að verða flótlega aftur með í leiknum.“ ■ ROB Jones, bakvörður Li- verpool, mun ekki leika með Eng- landingum í EM í Svíþjóð. Hann er meiddur á sköflungi og þarf að taka sér hvíld frá knattspyrnu fram í ágúst. ■ STEVE Nicol, varnarleikmað- ur Liverpool, mun ekki leika með Skotum í EM. Hann er meiddur á öxl og fer í uppskurð á næstu dög- FELAGSLIF Lokahóf skíðamanna Lokahóf skíðafélaganna í Reykjavík verður í kvöld í Agoges- salnum Sigtúni. Húsið opnar kl. 19, en borðhald hefst kl. 20. Uppskeruhátíð FH Uppskeruhátíð handknattleiks- deildar FH, fyrir yngri flokka, fer fram í Kaplakrika í dag kl. 13. Uppskeruhátíð Vals Handknattleiksdeild Vals heldur uppskeruhátíð fyrir yngri flokka í Valsheimilinu í dag kl. 14. Lokahóf á Selfossi Lokahóf handknattleiksdeildar Selfoss verður í kvöld og hefst með kvöldverði klukkan 20. Meðal atriða í hófinu verður uppboð á búningum leikmanna, karokee-keppni milli leikmanna og stjórnarmanna og ávarp Guðna Ágústssonar, for- manns bankaráðs Búnaðarbankans, en bankinn er aðalstuðningsaðili deildarinnar. Veislustjóri verður Sigurður Sveinsson stórskytta. Hóf- ið er öllum opið sem vilja. KNATTSPYRNA Pat Ewing lék vel og skoraði 27 stig iyrir New York. Góður loka- sprettur hiá New York Gunnar Valgeirsson skrífarfrá Bandaríkjunum Pat Ewing átti mjög góðan leik með New York þegar félagið vann Chicago, 100:86. Liðin þurfa því að ieika sjöunda leikinn og fer hann fram á morgun í Chicago. Sigurveg- arinn mætir sigur- vegaranum í leik Cleveland og Bos- ton um sigur í Austurdeildinni. Eftir þijá leikhluta var Chicago með tveggja stiga forskot, en í fjórða leikhlutanum gerðu leikmenn New York út um leikinn, en þá skoraði Chicago ekki stig í fyrstu sex mín. New York vann 32:16. Ewing skoraði 27 stig fyrir New York, en hann snéri sig á ökkla í fyrri hálfleik og haltraði um eftir það. Jordan skoraði 21 stig fyrir Chicago. Flestir spá því að Chicago og Cleveland leiki til úrslita. Eftir leikinn var John Starks hjá New York sektaður um 300 þús. ísl. kr. fyrir fólskulegt brot á Scottie Pippen hjá Chicago, en hann tók hálstak á Prippen. Portland og Utah Jazz leika ti úrslita í Vesturdeildinni. URSLIT Knattspyrna Reykjavíkurmótið Leikur um 3. sætið: Valur - Fylkir.................2:C Amljótur Davíðsson og Jón Grétar Jónsson. Körfuknattieikur Leikir i NBA-deildinni í fyrrinótt: Vesturdeild: Portland - Phoenix Suns....118:106 (Portland vann 4:1). Seattle - Utah Jazz........100:111 (Utah vann 4:1). Austurdeild: New York - Chicago Bulls....100:86 (Staðan er jöfn, 3:3, þegar einn leikur er' eftir). Verður KR meistari fimmta árið í röð? IBrslitaleikurReykjavíkurmótsins í knattspyrnu fer fram á gervi- grasvellinum í Laugardal í dag kl. 14. KR og Fram leika til úrslita og hafa KR-ingar titil að veija, en þeir hafa orðið Reykjavíkurmeistar- ar fjögur síðustu ár. Bæði liðin mæta til leiks undir stjórn nýrra þjálfara. Pétur Ormslev þjálfar Fram, en Tékkinn Ivan Soc- hor þjálfar KR. Liðin hafa leikið vel í mótinu og skorað mikið af mörk- um. KR hefur skorað sautján mörk í fjórum leikjum, en Fram fimmtán í fimm leikjum. Markús Órn Antonsson, borgar- stjóri, verður heiðursgestur á leikn- um og mun afhenta sigurlaunin í leikslok. Grasleikur á Akranesi Urslitaleikur Litlu-bikarkeppn- innar fer fram á Akranesi í dag kl. 14 á aðalleikvanginum. Skagamenn fá Keflvíkinga í heimsókn. Sigurður Jónsson er byijaður að leika með Skagatnönnum og er liann fyrirliði, þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.