Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 48
MICROSOFT. einar j.
WlNDOWS. SKÚLASONHF
MORGVNBLADW, ADALSTRÆTl C, 101 REYKJAVlK
'ítill 691100, SÍMBRÉF 691ISI, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 16. MAI 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Kvennaskólinn í Reykjavík:
Fjölgað um helm-
ing á fyrsta árinu
AÐ ÓSK menntamálaráðuneytisins verða helmingi fleiri nemendur
teknir inn á fyrsta ár við Kvennaskólann í Reykjavík næsta haust
miðað við í fyrra, eða 200 í stað 100. Þá fær skólinn nýrri hluta
gamla Verslunarskólans til afnota, og innritunarfyrirkomulagi verð-
ur breytt þannig að nemendur verða teknir inn í skólann ósvæðis-
bundið úr Reykjavík allri. Að sögn Aðalsteins Eiríkssonar skólameist-
ara Kvennaskólans, verður stöðugildum kennara við skólann væntan-
lega fjölgað um 5-6 af þessum sökum, en heildarkostnaður vegna
breytingarinnar verður á bilinu 10-15 milljónir króna.
Aðalsteinn sagði að menntamála-
ráðuneytið hefði farið þess á leit
við skólanefnd Kvennaskólans
skömmu fyrir páska að skólinn
kæmi inn í að leysa fyrirsjáanlegan
vanda sem við blasir varðandi inn-
ritun í framhaldsskólana í vor og í
haust, og á fundi í gær hefði skóla-
nefndin samþykkt að verða við
þessari málaleitan ráðuneytisins.
Miðlunartillagan;
Mjótt á mun-
unum hjá KI
MJÓTT var á mununum í gær
T atkvæðagreiðslu félaga í
Kennarasambandi Islands um
miðlunartillögu ríkissáttasemj-
ara í kjaramálum. Af þeim sem
greiddu atkvæði voru 44% fylgj-
andi tillögunni, en 46,31% voru
á móti. Tillagan telst samþykkt,
þar sem meira en 50% þeirra,
sem atkvæði greiða, þurfa að
vera á móti til að fella hana.
Kennarar luku við að telja at-
kvæðin um kl. 23 í gærkvöldi. Á
kjörskrá voru 3.576 og 3.105
greiddu atkvæði, eða 86,83%.
Fylgjandi tillögunni voru 1366,
eða 44%, en á móti 1438, eða
46,31%. 251 skilaði auðu, 8,08%
og ógild atkvæði voru 50, 1,61%.
Miðlunartillagan telst felld, ef
minnst 50% af greiddum atkvæð-
um eru á móti henni, enda hafi
minnst 35% atkvæðisbærra manna
eða meira greitt atkvæði. Miðað
við þetta hafa kennarar samþykkt
tillöguna, þó naumt hafi verið.
Nemendur í Kvennaskólanum
voru samtals 300 síðastliðinn vetur,
en með þessari breytingu verða
þeir væntanlega orðnir um 500
skólaárið 1993-94, og verður þá
allt húsnæði gamla Verslunarskól-
ans tekið undir starfsemi skólans.
Kennarar við skólann voru 27 tals-
ins í vetur, og verður þeim fjölgað
um 5-6 næsta haust að sögn Aðal-
steins. Þetta ætti ekki að leiða til
aukinna útgjalda ríkissjóðs, heldur
væri um tilfærslu fjárveitinga að
ræða. „Það er þó alveg ljóst að ein-
hver aukin útgjöld verða vegna
þein’ar aðstöðu sem nú er ekki fyr-
ir hendi í húsnæði gamla Verslunar-
skólans, og í Kvennaskólanum
þurfa að koma til breytingar innan-
húss þegar kennaraliðinu fjölgar."
Morgunblaðið/RAX
200 Þjóðverjar í veislu á Vatnajökli
Hátt í 200 Þjóðvetjar komu saman á Vatnajökli í gær til veisluhalda í boði umboðsaðila Cointreau í
Þýskalandi. I hópnum voru bæði viðskiptavinir fyrirtækisins og þýskir blaðamenn. Að sögn Ingvars
Karlssonar framkvæmdastjóra heildverslunar Karls K. Karlssonar var Vatnajökull valinn til að leggja
áherslu á að drekka bæri Cointreaulíkjör á ís.
Frumvarp r íkisstj órnar innar um greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins:
Tæpum 3 milljörðum verði
varið til greiðslu á skuldum
SAMKVÆMT stjórnarfrumvarpi
sem lagt var fram á Alþingi í
gær verður innistæðum á reikn-
ingum einstakra framleiðenda í
Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegs-
ins varið til greiðslu afborgana
og vaxta af skuldum þeirra 1.
júní næstkomandi. Verði frum-
varpið að lögum er gert ráð fyr-
ir að tæplega 2.700 miiyónum
verði varið til lækkunar á skuld-
um þeirra framleiðenda sem
mynda innistæður í Verðjöfnun-
arsjóði sjávarútvegsins, en auk
þess verður um 278 milljónum
ráðstafað til lífeyrissjóða sjó-
manna. Frumvarpið kom til
fyrstu umræðu í gærkvöldi, og
lýstu allir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar sem til máls tóku
stuðningi við frumvarpið, og hef-
ur því verið vísað til sjávarút-
vegsnefndar.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra kynnti tillögur um greiðsl-
ur úr Verðjöfnunarsjóði sjávarút-
Ný lög um LÍN:
Flest í framkvæmd á
greiðslum lána óbreytt
NÝ LÖG um Lánasjóð ísienskra námsmanna voru samþykkt á AI-
þingi í gær. Lárus Jónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðsins, segir
að námsmenn muni fá í hendur láns- og tekjuáætlun þar sem fram
komi hvaða rétt þeir eigi á Iánum eftir að hafa skilað árangri. Þessa
áætlun geti þeir svo farið með til viðskiptabanka sinna og fengið út
á hana lán til að brúa bil sem kunni að myndast.
lána þegar þeir hafi skilað árangri.
„Þetta blað geta námsmenn farið
með til sparisjóða og viðskipta-
banka og þá mun sjóðurinn greiða
lánin inn á reikning í þessum pen-
ingastofnunum þegar þau verða
greidd út,“ segir Lárus.
Hann segir þetta fyrirkomulag
einungis viðbót, flest annað í fram-
kvæmdinni verði óbreytt frá því sem
það hefur verið.
Lárus segir að í tengslum við
umræðu í stjórn LÍN um úthlutun-
arreglurnar verði rætt hvernig fara
eigi með einstaka þætti þessa máls.
Sjá miðopnu.
Lárus segir að vilji sé fyrir því
hjá stjóm LÍN að ræða við banka
og sparisjóði um að námsmenn geti
fengið góða fyrirgreiðslu hjá þeim
til að brúa bil sem kunni að mynd-
ast nú þegar lánin verði greidd eft-
Ír að önnum lýkur.
Eftir að námsmenn sækja um
námslán munu þeir fá í hendur láns-
og tekjuáætlun sem byggð verður
á upplýsingum í umsókn þeirra um
námsframvindu, fjölskylduhagi,
tekjur og fleira.
Samkvæmt þessum upplýsingum
mun í áðumefndri áætlun koma
fram hvaða rétt þeir eigi til náms-
Eftir atkvæðagreiðslu á þingi í
gær lögðu námsmenn blóm við
styttu Jóns Sigurðssonar á Aust-
urvelli til að minnast hugsjóna
sem hann hafði um menntun
landsmanna.
vegsins á ríkisstjórnarfundi í gær,
en þar voru þær samþykktar og
stjórnarfrumvarp þar að lútandi
lagt fram síðdegis. Þorsteinn sagði
í samtali við Morgunblaðið að með
þessum aðgerðum ætti fyrst og
fremst að tryggja atvinnu í sjávar-
plássum landsins, í öðru lagi að
treysta grundvöll efnahagsstefnu
ríkisstjórnarinnar sem byggir á
áframhaldandi stöðugleika, og i
þriðja lagi að auðvelda atvinnufyrir-
tækjum á þeim gmndvelli að laga
sig að nýjum aðstæðum. Augljóst
væri að í kjölfar hins mikla aflasam-
dráttar hefði orðið mikið tekjuhrap
í sjávarútveginum og hann þyrfti
að laga sig að þessum nýju aðstæð-
um. Forsenda þess væri lækkandi
vextir og stöðugleiki, en þar að
auki þyrfti að aðstoða útflutnings-
atvinnugreinarnar með sérstökum
almennum aðgerðum og þetta væri
einn þáttur í því.
Þorsteinn sagði að gert væri ráð
fyrir að greitt yrði út úr Verðjöfnun-
arsjóði til fyrirtækjanna í réttu hlut-
falli við það sem þau hafa greitt inn
í sjóðinn.
„Hér er um inneign að ræða sem
fyrirtækin hafa sjálf greitt í Verð-
jöfnunarsjóð, og það er verið að
greiða það fyrr til baka en orðið
hefði samkvæmt gildandi lögum.
Þetta er að því leyti sértæk aðgerð
að hún beinist að sjávarútveginum
sem höfuð útflutningsatvinnugrein,
en á hinn bóginn er hún almenn
gagnvart fyrirtækjum í sjávarút-
veginum og felur ekki í sér neina
mismunun þar sem fyrirtækin fá
greitt út í samræmi við það sem
þau hafa lagt inn,“ sagði hann.
Verja á innstæðunum til greiðslu
eftirtalinna skulda sem gjaldfallnar
verða við gildistöku laganna: Af-
borgana og vaxta af veðskuldum
viðkomandi framleiðanda sem hvíla
á eignum er tengjast fiskveiðum
og fiskvinnslu, skattskulda við ríki
og sveitarfélög og annarra gjald-
fallinna skulda framleiðanda er
tengjast fiskveiðum og fiskvinnslu
og vaxta af þeim. Þá verði innistæð-
um einnig varið til afborgana og
vaxta af þeim veðskuldum sem falla
í gjalddaga fyrir lok ársins 1992,
og til lækkunar höfuðstóls veð-
skuldanna. Sjávarútvegsráðherra
sagði að hann hefði sett þá ósk
fram í viðræðum við forystumenn
stjórnaraðstöðunnar að þeir greiði
fyrir því að frumvarpið fáist af-
greitt fyrir þinghlé, þar sem gífur-
legir atvinnuhagsmunir á lands-
byggðinni væru í húfi, og jafnframt
útflutningshagsmunir sem þjóðin
öll þurfi að huga að.
-------»-■» »-------
Akranes:
Brotist inn
í sundlaug-
arbyggingu
BROTIST var inn í sundlaugina
á Akranesi, Jaðarsbakkalaug, i
fyrrinótt og stolið þaðan ávísun-
um og peningum að upphæð 35
krónur.
Farið var inn um glugga á sund-
laugarbyggingunni. Málið er óupp-
lýst en lögreglan vinnur að rann-
sókn þess. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa innbrot verið
nokkuð tíð á Akranesi að undan-
förnu.