Morgunblaðið - 21.06.1992, Side 2

Morgunblaðið - 21.06.1992, Side 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992 I XMjresilukonur hafa aðrar áherslur Fyrstu einkennisklæddu lögreglukonurnar: Dóra Hlín Ingólfs- dóttir og Katrín Þorkelsdóttir. Á milli þeirra er Guðlaug Sverrisdóttir, sem hefur starfað hjá lögreglustjóranum í Reykjavík frá 1958. Hlín nefnir strax ofbeldismálin.„Það þarf sérhæfingu og reynslu af ofbeld- isafbrotum til þess að fást við þau. Ég get orðið óskaplega svekkt yfir meðferðinni sem kynferðisafbrota- mál fá oft á tíðum. Sérfræðingurinn er löglærður, en ég held að ekki síð- ur þurfi sérhæft fólk eins og sálfræð- inga til þess að vinna að slíkum rann- sóknum. í svona brotum þarf að grafa djúpt. Maður stillir ekki bami upp og gengur að því með spurning- ar, ef einhver því nákominn hefur brotið gegn því. Ég vil þó taka fram að í þessum málum er fólk sem er komið með ágæta reynslu. Og við höfum ágæt lög, svo að ætti að vera hægt að vinna þetta vel. En það eru mörg ljón á veginum, embættismenn sem virka sem flöskuháls í kerfinu." Það hlýtur að vera erfitt að vinna að lögreglumálum ef maður er ekki sáttur við framgang þeirra. Dóra Hlín tekur undir það. Segist vera ósátt á meðferð kynferðisafbrota- mála og mála þar sem um er að ræða ofbeldi á konum. Til dæmis sé óskaplega erfitt að vera í því hlut- verki að að þurfa að tilkynna skelfdri konu, sem hefur upplifað sig í lífs- hættu, að maðurinn verði látinn laus, ekki beitt gæsluvarðhaldi. Einhvern tíma síðar komi málið svo kannski fyrir dómstóla. Mér finnst ákaflega erfítt að vera verkfæri í slíkum mál- z Dóra Hlín Ingólfsdóttir, rannsóknalögreglumaður Morgunbiaðið/Júiíus Lögreglukonur á góðri stundu á árinu 1976. Nú eru þær allar hættar í lögreglunni nema tvær. Dóra Hlín er önnur frá vinstri og önnur frá hægri systir hennar Svanhvít Ingólfsdóttir, nú hjá Rannsóknalögregl- unni í Kópavogi, eftir Elínu Pólmadóttur LÖGREGLUKONUR sjást orðið býsna oft á skjánum í erlendum myndum og virðast ekkert síður eiga þar heima en karlmennirn- ir. Ekki eru lögreglumenn af kvenna kyni þó algeng sjón í ís- lensku samfélagi. Eru þó til, ef að er gáð. Ein þeirra og sú sem lengst hefur verið í lögreglunni er Dóra Hlín Ingólfsdóttir. Byrj- aði ásamt annarri í götulögregl- unni 1973, en hefur nú um ára- bil starfað hjá Rannsóknalög- reglu ríkisins. Okkar lögreglu- kona er að vísu ekki sí og æ að vinna afreksverk á borð við þess- ar á skjánum. Engu síður er áhugavert að spjalla við hana um konur í daglegum lögreglustörf- um, sem virðast mun tilþrifa- minni. Maður skyldi ætla að á þessum 20 árum síðan Dóra Hlín byrjaði hljóti kvennahópurinn í Iögreglunni þó að vera orðinn all fjölmennur. Ekki nógu fjölmennur, svarar hún að bragði. í stéttarfé- lagi okkar, Landssam- bandi lögreglumanna, eru 27 konur á launaskrá. Og þegar spurt er hve margar séu í yfirmanna- stöðum, segir Dóra Hlín að konunum gangi illa að klífa upp metorðastig- ann. Hafi gjaman setið eftir, svo hvergi séu lögreglukonur í yfir- mannsstöðum. Svo tekur hún sig á, bætir við að núna alveg nýlega hafí ein af þeim konum sem lengst hefur verið í lögreglunni, Jónína Sigurðar- dóttir, verið sett yfir fjarskipadeild lögreglunnar í Reykjavík, þar sem hún hefur mannaforráð. Annars er ein kona lögreglufulltrúi og gerir 3,1?% af mannaflanum, kvenkyns rannsóknalögreglumenn 2,85%, varðstjórar 0,95% og lögregluþjón- arnir 7,79%. Dóra Hlín segir greini- legt að konum gangi betur að klífa metorðastigann í löndum þar sem þarf að taka próf til þess að fá stöðu- hækkun. Hér sé ekki eins og víða erlendis neinn yfirmannaskóli, sem áhugasamt lögreglufólk sæki og sé síðan metið eftir námsárangri.„Hér eru menn skipaðir og svo púkkað upp á þá einhverjum námskeiðum á eftir. Mér finnst satt að segja sorg- lega lítið hafa áunnist í fjölgun lög- reglukvenna síðan maður byijaði að arka um götumar í lögreglubúningi 1973,“ bætir hún við. „Aðalmeinið er að lögreglukonur endast stutt í starfi, 7-8 ár að meðal- tali. Þær fara þá í önnur störf eða 40% þeirra, ef tekið er mið af þeim sem farið hafa gegn um lögreglu- skóla. I þessu eigum við Evrópumet. Þetta er þó nokkuð misjafnt eftir löndum. Í Noregi eru talsverð van- höld og svo var líka í Hollandi, en þeir bættu úr með því að bjóða lög- reglukonum hlutastarf. Slíkt er ekki leyft hér í lögreglunni fyrr en fólk, karlar og konur, er orðið 55 ára. Þá geta þeir einnig fengið sig leysta undan vaktavinnu. En þar sem hluta- störf eru leyfð í öðrum löndum er það á þeim forsendum að slíkt sé fyrir foreldra með böm. Nema í Danmörku, þar eru engin skilyrði. Þetta getur verið óþægilegt og ég held að þetta sé eín aðalástæðan fyrir því að konur gefast upp á starf- inu hér.“ Dóra Hlín hefur borið sig saman við lögreglukonur í öðmm löndum. Fyrir frumkvæði hollenskra lögreglu- kvenna, sem em mjög framtakssam- ar, vom 1989 stofnuð samtök. Hitt- ast lögreglukonumar þriðja hvert ár og bera saman bækur sínar.„Það er talsverður stuðningur. Við emm minnihlutahópur," segir hún til skýr- ingar. Nýlega hittust lögreg'ukon- umar í Englandi. Það vekur upp þá spumingu hvort störf lögreglu- kvenna séu nú ekki æði ólík í þessum löndum, þar sem sums staðar eru götuóeirðir tíðar og jafnvel sprengj- utilræði. „Jújú, götuóeirðir þurfum ekki að hugsa um hér, hvað þá spengjur. Á fundinum var ég spurð hve mörg bankarán væm framin á íslandi. Og mér var ekki trúað þegar ég sagði þeim hve fátíð þau em. Störf okkar em vissulega ólík. Þó virðast vand- kvæði lögreglukvenna yfírleitt þau sömu í löndum Evrópu. Sömu Ijónin í veginum þótt viðfangsefnin séu ólík. Og sömu samskiptaörðugleikamir milli kynjanna. Hvemig? Körlunum er dálítið gjamt á að taka fram í fyrir hendurnar á konunum, treysta þeim ekki. Og ákafír ungir lögreglu- menn eiga erfítt með að setjast upp í bíl þar sem kona situr undir stýri og hefur stjórnina.“ Dóra Hlín segir að í lögreglunni hér séu konurnar of fáar til að hafa áhrif, aðeins 4%. En í Englandi, Hollandi og Svíþjóð em þær 12% af mannaflanum. Þá fer áhrifa þeirra að gæta.“ En skipt- ir það máli? Dóra Hlín segir að konur virðist koma inn í málin með_ önnur viðhorf og aðrar áherslur. Víðast sé til dæm- is farið að hafa þær í meðferð ofbeld- ismála og hefur þeim fjölgað í þeim málaflokki. Inn í jafnréttisáætlun frá Félagsmálaráðuneytinu hér eru kom- in tilmæli um að konum verði fjölgað í Rannsóknalögreglunni. Þannig Dóra Hlín Ingólfs- dóttir rannsókna- lögreglukona hefur verið í lögreglunni í nítján ár. komin viljayfírlýsing frá stjórnvöld- um, sem ætti að bæta úr. En hvemig er þetta erlendis? Er þar verkaskipting? Dóra Hlín segir fátítt að konur séu í óeirðalögreglu, en þær séu fjölmennar þar sem um kynferðisafbrot er að ræða.„Einmitt þar verður maður var við mismun- andi viðhorf til þess hve alvarlega slík mál eru tekin.“ Þegar spurt er hvort íslensku lögreglukonurnar séu einkum í slíkum málum, segir hún að hjá Rannsóknalögreglu ríkisins séu aðeins um tvær konur að ræða og því lítið svigrúm og ein í Kópa- vogi, en hjá lögreglustjóranum í Reykjavík sé engin kona í rannsókna- lögreglunni. Sjálf er Dóra Hlín nú mest í inn- brotsþjófnuðum og og ávísanafölsun- armálum. En þar kemur við sögu mikið af unglingum.„Hvað þjófnaði snertir er 14-15 ára aldurinn slæm- ur. Úr því fer þeim að fækka og svo halda örfáir áfram og verða síbrota- menn,“ útskýrir hún. Ávísanafölsun- armálum fer fjölgandi og mikið að gera í þeim málaflokki.,, Það er aljt- of auðvelt að falsa ávísanir á Is- landi. Alltof litlar kröfur gerðar. Það má t.d. sjá á því að börn eru að falsa tékka, varla skrifandi og kunna ekki að stafsetja nafnið sem þau setja undir þá, en við þeim er tekið. Banka- kortin gera sáralítið gagn, þyrfti að vera á þeim mynd svo þau kæmu að einhveiju gagni. Þetta kemur glöggt fram í fjölda þessara tékka og umfangi málaflokksins." Við víkjum talinu að erfíðustu málunum sem hún hafi lent í á löng- um ferli sem lögreglukona. Dóra um. Mér finnst þolendurnir, sem eru konur og böm, ekki njóta nægilegs öryggis. Þeir fá ekki lögfræðiaðstoð, en það fær sá sem fremur verknað- inn. Frumvarp um opinbera réttarað- stoð, sem tók á þessu, var lagt fram á alþingi, en það fór ekki í gegn og var ekki lagt fram aftur á síðasta þingi." „Það er einmitt þessvegna sem mér finnst svo mikið réttlætismál að konum sé fjölgað í lögreglunni. Kon- ur eru yfir 50% þjóðarinnar og lög- reglan hefur ekki síður afskipti af þolendum afbrotanna. í þeim ríkjum þar sem konur hafa náð einhveijum fjölda er viðurkennt að þær hafa komið inn í stéttina með ný viðhorf sem eiga rétt á sér. Maður fínnur að karlahópurinn hefur aðrar áhersl- ur, lítur oft frá öðru sjónarhorni á ofbeldis og kynferðisafbrot. Á meðan aðilar sem eru að hlúa að þolendum þessara brota, svo sem Kvennaathvaf og Stígamót, kvarta undan samvinn- unni við okkur, þarf eitthvað að bæta. Það er ekki hægt að hundsa endalaust slíka óánægju og setja sig í varnarstöðu. En nú hefur konum mikið fjölgað í lögfræðingastéttinni og það ætti að hafa í för með sér hugarfarsbreytingu hvað þetta snert- ir. Víða erlendis, svo sem í Eng- landi, hefur meðferð kynferðisaf- brota verið mikið bætt og virðast kvennaathvörfin ánægð með sam- vinnuna við lögregluna þar.“ Dóra Hlín segir að erlendis sé víða markvisst unnið að því að fjölga lög- reglukonum. í Hollandi var á fundi lögreglukvenna 1985 gerð markviss áætlun sem miðar að því að 1995 verði lögreglukonur 25% af liðinu á landsvísu. Síðan hefur orðið sú breyt- ing að nú eru 40% nemanna í lögregl- uskólanum þar konur. í flestum héruðum Þýskalands er líka verið að fjölga mikið lögreglukonum og svo komið að þar eru einnig 40% nem- anna í lögregluskólanum konur. Þar í landi hafa þó konui' lengi starfað í rannsóknalögreglunni. Líka hefur orðið fjölgun í Svíþjóð og Noregi, meðan hér miðar lítið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.