Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992 Lavit laia; Michelle Pfeiffer sem Kattarkonan í „Batman Retums". SUMARIÐ I ÞRIDJA VEIDI eftir Amald Indriðason Það er óhætt að segja að afþreyingariðnaðurinn í Holly- wood skarti öllu sínu dýrasta og besta yfir sumarmánuð- ina. Þá taka skemmtimyndirnar völdin, zilljón dollara ævin- týramyndir fyrir börn og fullorðna, fantasíur sem gerast ýmist á jörðu niðri, úti í geimnum eða hinni ímynduðu Gothamborg Leðurblökumannsins þar sem illmenni eins og Mörgæsin og Kattarkonan stjórna undirheimunum. Sum- armyndirnar eru hasarblöð sett í þriðja veldi gerðar til að gleypa í sig á mettíma áður en næsta útgáfa kemur út. Ein þeirra heitir meira að segja „Alien3“. Sumarið er tími rándýru myndanna frá Hollywood. Þær koma hingað stundum nokkrum vikum eftir frum- sýningu vestra og eru margar með tölustöfunum 2 og 3 sem vitna um langlífi og vinsældir. Framhaldsmyndaæðið svokallaða er fjarri því að ljúka; ekki færri en fjórar framhalds- myndir verða frumsýndar í bíóun- um í sumar. Endurunnar hug- myndir er boðorð dagsins. Það er veðjað á örugga vöru. Fólk veit að hveiju það gengur og það virð- ist sífellt vilja meira af því sama. Stóru kvikmyndaverin mala gull á endurvinnslunni. Staðfest- ing er þegar fengin á því. Löggu- myndin „Lethal Weapon 3“ með Mel Gibson og Danny Glover byij- aði mjög vel í miðasölunni og verð- ur sjálfsagt komin yfir sex millj- arða í tekjur er þetta birtist og geimhrollvekjan „Alien3“ tók inn einn og hálfan milljarð fyrstu sýn- ingarhelgina. Leðublökumaðurinn snýr aftur verður frumsýnd 19. júní og er búist við meiriháttar sprengju í miðasölum um öll Bandaríkin. En það verða ekki aðeins sýnd- ar framhaldsmyndir í sumar. Frumsamdar gamanmyndir og sögulegar stórmyndir eru líka í pakkanum. Og stórstjörnufansinn er í samræmi við annað. Hvenær myndimar koma hingað ræðst að einhveiju leyti af því hvenær þær- eru frumsýndar vestra. Biðtíminn er alltaf að styttast frá frumsýn- ingu þar og frumsýningu hér á landi. Þó er það ekki algilt. Sam- bíóin hyggjast sýna „Lethal Wep- on“ í júlí en „Alien3“, sem frum- sýnd var viku seinna í Bandaríkj- unum, kemur að líkindum ekki fyrr en í ágúst/september. Þetta er líka spurning um að koma myndunum fyrir. Ef myndir ganga vei ýta þær öðrum á undan sér. Af samtölum við kvikmyndahúsa- eigendur má ætla að stóru sumar- myndirnar vestra verði farnar að birtast hér í júlí og að flestar verði komnar í lok september ef áætlan- ir standast. Reyndar má segja að sumarver- tíðin hafi byijað í maí með frum- sýningum á tveimur góðum spenn- umyndum, Höndinni sem vögg- unni ruggar og Ógnareðli. „Hönd- in“ hefur gert það gott í miðasölu en Ógnareðli stefnir í metaðsókn enda fáar myndir verið eins umtal- aðar síðustu árin. Þá má geta þess að þijár íslenskar bíómyndir verða frumsýndar í sumar og í haust, Veggfóður - erótísk ástar- saga, Sódóma Reykjavík og Svo á jörðu sem á himni, en óþarfi er að flækja þær inn í sumarmynda- flóðið að vestan. Hér á eftir verða erlendu sumar- myndirnar kynntar, sagt hvar þær verða sýndar og hvenær þeirra er von en allt eru það áætlanir sem geta breyst^ Engar af stóru sumar- myndunum verða frum- sýndar í þessum mánuði. Stjörnu- bíó frumsýnir Bugsy um mafíós- ann Bugsy Siegel, sem Warren Beatty leikur undir leikstjórn Barry Levinsons. Hún var ein af myndunum sem reiknað var með að sópaði að sér óskarsverðlaun- unum í mars en niðurstaðan varð önnur. Myndin segir frá því hvern- ig glæpakóngurinn kom sér fyrir í Nevada-eyðimörkinni og byggði upp borg að nafni Las Vegas. Beatty kvæntist mótleikara sínum, Annette Bening, og átti með henni sitt fyrsta barn. í þessum mánuði frumsýnir Laugarásbíó nýjustu mynd Sean Connerys, „The Medicine Man“ en hana gerir hasarleikstjórinn John McTiernan. Segir hún af vís- indamanni sem leitar lækninga við krabbameini djúpt inni í frumskóg- um S-Ameríku og hefur mikla samúð með indjánum sem eiga þar undir högg að sækja. Connery er ein af fáum stjörnum í dag sem borið geta uppi bíómyndir og nýt- ur mikilli vinsælda hér á landi enda hinn eini sanni Bond í huga margra. Háskólabíó frumsýnir gamanmyndina „Wayne’s World“ með tveimur skemmtikröftum úr sjónvarpinu vestra, sem eru lítt þekktir hér á landi. Mike Myers og Dana Carvey heita þeir og byggja myndina á gamanatriði sínu í sjónvarpsþáttunum „Sat- urday Night Live“. „Wayne’s World“ hefur rakað inn peningun- um, meira en sex milljörðum frá því hún var frumsýnd í vor. Hún höfðar sterkt til unga fólksins og gæti slegið í gegn hér líka. Stærsta frumsýningin í mánuðinum verður á has- armyndinni „Lethal Weapon 3“ með Mel Gibson, Danny Glover og Joe Pesci undir leikstjórn Ric- hard Donners að venju. Þeir eru allir mætti aftur að endurtaka hasarinn auk Rene Russo (úr „Fre- ejack“), sem leikur siðanefndar- löggu æfða í banvænum karate- höggum. Formúlan er gersamlega skotheld. Það þurfti ekki einu sinni handrit til að byija tökur, aðeins drögin. Svo hittust kvikmynda- gerðarmennirnir hvern laugardag á heimili Donners og ákváðu fram- haldið fyrir næstu viku. Fram- leiðandinn, Joel 'Silver, sprengdi í loft upp 18 hæða fjölbýlishús á Flórída og setti í myndina sem annars var tekin í Los Angeles. „Það var frábært að vinna við myndina, allir skemmtu sér dægi- lega. Þetta var eins og góður dag- ur á ströndinni með Mel og Danny,“ segir Donner. Stjörnubíó frumsýnir nýjustu myndina eftir sögu Stephen Kings í mánuðinum. Hún heitir „Steph- en King’s Sleepwalkers“ og er fyrsta King-myndin sem gerð er eftir frumsömdu kvikmyndahand- riti hrollvekjuskáldsins. Hún segir frá mæðginum sem nærast á hreinum meyjum. Einnig verða sýndar myndirnar Stoppaðu eða mamma skýtur þig í Laugarás- bíói með Sylvester Stallone og „The Inner Circle“ í Stjörnubíói með Tom Hulce sem fjallar um einkasýningarstjóra Stalíns og vSamband hans við einræðisherr- ann. jr Æ' ipilQT Sumannyndirnar að llUUu I vestan taka að berast í öll bíóin. Sjálfsagt er „Batman Returns", sem sýnd verður í Sam- bíóunum, beðið með mestri eftir- væntingu. Skikkjuklæddi skálka- baninn fæst nú við Kattarkonuna (Michelle Pfeiffer) og Mörgæsina (Danny De Vito). Framhaldið kost- aði rúma þijá milljarða króna en framleiðendurnir munu örugglega ná því fljótlega inn aftur. „Bat- man“ fékk metaðsókn og var vin- sælasta myndin í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum en fékk minni aðsókn en búist var við hér á landi (meira en 30.000 manns sáu hana). Gera má ráð fyrir meiri aðsókn nú þegar áhorfendur vita um hvað málið snýst. Leikstjórinn, Tim Burton, er sannkallaður töfra- maður og hefur meiri völd en í fyrri myndinni og finnst hann hafa gert betri blökumynd í þetta sinn. „Ég lagði allt í „Batman“ og líkar við margt í henni,“ segir hann, „en mér finnast þessar nýju persónur áhugaverðari“. í Háskólabíó kemur önnur framhaldsmynd með nýjum aðal- leikara reyndar. „Patriot Games“ segir af enn frekari æfintýrum leyniþjónustumannsins Jack Ry- ans nú þegar hann er sloppinn úr kafbátnum í Leitinni að Rauða október. Vantaði reyndar nokkur volt í háspennuna þar en nú er Harrison Ford kominn í aðalhlut- verkið (Alec Baldwin var með full- miklar launakröfur en á endanum fékk Ford mun meira en hann). Hann eltist við írska hryðjuverka- menn með fast land undir fótum og þarf um síðir að veija sína eig- in fjölskyldu og heimili. Leikstjóri er ástralinn Phillip Noyce („Dead Calm“) sem hefur það erfiða hlut- skipti að taka við af hasarleikstjór- anum John McTiernan. Metsölu- höfundurinn Tom Clancy hefur ekkert viljað kannast við fram- leiðsluna en ef myndin er, eins og einhver hefur sagt, „Straw Dogs“ með pólitísku ívafi, er hún í höfn. Laugarásbíó frumsýnir nýjustu mynd hjónakornanna Toms Cruise og Nicole Kidman í leikstjórn Ron Howards. „Far and Away“ heitir hún og segir frá Irum sem gerast vesturfarar og flytjast til Banda- ríkjanna. Cruise heldur alltaf vin- sældum sínum en eiginkona hans, hin ástralska Kidman, er frægari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.