Morgunblaðið - 21.06.1992, Side 17

Morgunblaðið - 21.06.1992, Side 17
 sérstaka tegund sína af gamansemi, sem öðrum gat stundum fundizt kaldranaleg og óviðeigandi. Blysför og hylling Daginn eftir tilræðið, 22. október, vissi öll þjóðin um það. Ekki færri en 15.000 manns gengu fram hjá heimili Estrups til þess að hylla hann. Menn báru fána og áletraða borða og hrópuðu heillaóskir. Skipu- lögð ganga aðdáenda þrammaði eft- ir Toldbodgade eftir kvöldmat og var 55 mínútur að fara fram hjá dyrum á húsi Estrups. Hann stóð grafkyrr og þegjandi yið opinn glugga á ann- arri hæð. Á þriðju hæð stóð frú Estrup við glugga og lét yngsta son þeirra hjóna standa í gluggakist- unni. Hún var greinilega mjög hrærð. Þótt Estrup virtist, aldrei taka sér nærri fjandskap og níðskrif and- stæðinganna, því að hann taldi allt slíkt aðeins eðlilegan hluta af þátt- töku í stjórnmálabaráttu, vissu menn, að hin fíngerða kona hans var oft mjög beygð vegna árása á eiginmann hennar. Nú sá hún fyrst, að „fólk var reiðubúið til þess að fara út á götumar fyrir minn elsk- aða Jacob“. Ekki voru þó allir á sama máli og fólkið í blysförinni. Allmargir stúdentar höfðu staðið á gangstétt- um, flautað á kyndilberana og'hróp- að vígorð gegn Estrup. Aðrir góluðu og ráku út úr sér tunguna framan í göngumenn. Félagsmenn úr tveim- ur stúdentafélögum voru farnir að hrinda fólki og virtust þess albúnir að hefja ryskingar. Sérþjálfaðir lög- regluþjónar gerðu áhlaup á þessa flokka stúdenta og handtóku átján. Meðal þeirra var ung stúdína og þótti almenningi það miklum og ill- um tíðindum sæta. Stúdentunum var sleppt, þegar líða tók á nóttina. Þeir gáfu út yfirlýsingu þess efnis, að þeir væru ekki að sýna samstöðu með aðferð tilræðismannsins, þótt þeir væru þess fullvissir, að honum hefði gengið gott eitt til, „þegar framtíð Danmerkur er höfð í huga“. Hins vegar vildu þeir mótmæla lang- setu ríkisstjórnar Estrups, af því að hún væri á móti „framfórum í land- inu“. Samsæriskenning sett fram að veiyu Öll dagblöð stjórnarandstöðunnar hörmuðu tilræðið. Þetta stóð í „Soc- ial-Demokraten“: „Það er engu lík- ara en þess hræðilegi atburður komi eftir pöntun. Vér viljum ekki halda því fram, að atburður gærdagsins hafi verið umbeðinn og settur á svið. Væntanlega er hann það ekki. Hins vegar er það alveg makalaust, hve hann kemur öllum estrúppum lands- ins vel, einmitt á þessum tíma, svo að það er næstum því grunsamlegt." Þeir, sem ortu svokallaðar skild- ingavísur um nýliðna merkisatburði, settust nú allir niður við yrkingar, og von bráðar voru langir vísna- flokkar um tilræðið prentaðir og seldir um allt landið. Lagboðar voru settir við kveðskapinn, svo að fólkið gæti sungið vísumar, þar sem það kom saman, sem var aðallega inni á ölkrám. Ýmis félög kvenna stóðu fyrir því að halda Estrup veglegt heiðurssamsæti í leikhúsinu stóra, Casino, og þótt Estrup væri ekki sérstaklega hrifinn af of mikilli þátt- töku kvenna í stjórnmálum eða opin- beru lífi sat hann þama í heiðurs- sessi ásamt fjölskyldu sinni. Þegar konurnar höfðu haldið honum ræður og flutt honum kvæði allt kvöldið stóð hann að lokum upp og þakkaði fyrir sig. Að venju var hann stuttorð- ur og skýrmæltur, því að honum var illa við málalengingar og óljóst tal. Hver setning hans var meitluð og þrungin merkingu, því að hugsun hans var jafnan skýr og orðfærið hnitmiðað. Kunnugir sögðu, að í fyrsta og síðasta skipti á ævinni hefði hann sézt hrærður í ræðustól, því að þessi virðingarvottur kven- fólksins hafði greinilega ratað að hjarta hans. Mikilmennskuórar fangans Julius Rasmussen var dæmdur í fjórtán ára fangelsi. Hann hlustaði steinþegjandi á réttarhöld og dóms- uppkvaðningu. Síðan var hann flutt- ur í fangelsið í Horsens á Jótlandi. Hann var fálátur, einrænn og af- skiptalaus um annarra hagi, en um MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍj 1992 C 17 leið einþykkur og ófús að hlýða skip- unum. Samt gerði hann það oftast án þess að mögla. Fangaverðir og samfangar umgengust hann eins og fordekraðan krakkakjána, fullan af þrjózku og merkilegheitum, og nenntu ekki að þrasa meira í honum en nauðsyn bar til. Þess vegna komst hann stundum upp með duttlunga og kenjar. Hann var mest notaður til málningarvinnu. Smám saman fór fangavistin að taka meira og meira á hann andlega. Ekki var sennilegt, að hann yrði látinn laus fyrr en um þrítugsaldur í fyrsta lagi. Honum þótti það ömurleg tilhugsun að þurfa að dúsa inni beztu ár ævi sinnar vegna misheppnaðrar morðtilraunar. Þegar komið var fram á þriðja ár fangelsisvistarinnar var eins og and- legt myrkrið grúfði sig æ þéttar um sálarlíf hans. Hann yrti ekki á nokkurn mann og var að mestu hættur að anza ávarpi. Dag nokkurn í nóvember 1889 neitaði hann að þrífa hjá sér, eins og honum bar að gera daglega. Fyrir það hlaut hann smárefsingu, þ.e. færðist neðar um einn flokk í fangasamfélaginu, en það hafði í för með sér tímabundna synjun um minni háttar atriði. Hann varð svo móðgaður, að hann neitaði að borða mat sinn. Hann lifði enn í einhverjum heimi ímyndana og sjálfsblekkinga og taldi tilræði sitt heija sig upp yfír aðra fanga og skipa honum góðan sess í Danmerk- ursögunni. Hinum föngunum þótti hann hlægilegur og bijóstumkenn- anlegur. Miðvikudagsmorguninn 27. nóv- ember 1889 kom vörður að honum dauðum í svefnklefanum. Hann hafði rifið rúmlak sitt í sundur og hengt sig í tætlunum. EinkennUeg líkfylgd Hrein tilviljun var það, að Julius Rasmussen varð ekki morðingi. Þykkur og gamaldags málmhnappur á vesti Estrups kom í veg fyrir það. 4. desember var líkið flutt frá Hors- ens suður yfir heiðina til Vejle í skrautlegum líkvagni, blómum prýddum. fjöldi manns elti vagninn langleiðina upp á heiði. Blöðin segja, að þetta hafí verið stórkostleg lík- fylgd. Margir sveigar, borðar og bómakranzar lágu á kistunni, þeirra á meðal einn „frá dönskum stúdent- um“. Miklar deilur urðu síðan um það meðal stúdenta, hveijir hefðu sent hann og í umboði hverra. Blöð- in reyndu að finna út, hvort einhveij- ir málsmetandi menn hefðu sézt í líkfylgdinni, en eitt blaðið segir. „Þarna voru hugsjónamenn frá Kaupmannahöfn og smáskrýtið fólk frá Horsens, — en ef til vill er þetta sams konar manntegund!“ í öðru blaði stóð: „Fáránleg líkfylgd! Skömm fyrir Vejle-amt!“ Estrup gerist „fijálslyndur" á efri árum Estrup átti eftir að lifa í meira en 28 ár til viðbótar. Hann stjómaði landinu áfram í níu ár, eða þangað til hann sagði af sér ráðherradómi 1894, en hann sat á þingi til dauða- dags. Hann lifði stjórnlagabreyting- una, sem hann var ekki hrifínn af, en hann mun þó hafa talið, að verri hefðu breytingamar orðið hefði hans ekki notið við svo lengi. Svo mikið er víst, að áhrifa hans gætti lengi í dönskum stjómmálum og danskri stjómsýslu. Enn fullyrða sumir, að margt af því bezta í dönsku stjórn- arfari sé í raun frá honúm komið. Hann skapaði margvísleg fordæmi á ríkisstjórnarámm sínum, sem hann kom á með festu og hafa haldizt næstum óbreytt síðan. Daglega gekk hann um Bredgade á leið sinni í þingið. Fólk brosti vin- samlega til hans og reyndi jafnvel að heilsa honum. Fyrr á árum þótt honum óþægilegt að taka undir kveðjur ókunnugs fólks, en upp úr áttræðisafmælinu fór hann að svara kveðjum karlmanna með örlítilli, vart merkjanlegri smáhöfuðhneig- ingu, en kveðjum kvenmanna með með því að snerta hattbarðið andar- tak með vísifingri hægri handar. Meira gat það nú ekki orðið. Blaða- mönnum þótti þetta vottur þess, að Estrup væri orðinn verulega fijáls- lyndari á efri árum. Hann minntist aldrei einu orði á tilræðið. Hann burtsofnaði á aðfangadagskvöld 1913, 88 ára gamall. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsiiigamiðill! ✓ ...alltafþegar það er betra '&ém TILBOft i IILKÍNI SUMAIt SÓLSTÓLL Fallegur, sterkur, stöðugur. Staflast mjög vel. Verð án sessu. Aðeins Harðger og duglegur. Hentar afar vel í útiker. Minni Stærri GRASKUPPUR Handhægar og liprar, með veltiblaði. Þrælgóðar á allskon SUMARVON - Brosandi blóm á betra verði - Rósabúnt, Fresíubúnt, Blandaðir blómavendir. Falleg blómabúnt á sumarverði. 4"\««Í 5«“ «1 Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.