Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUlfNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992
dhíþróttaskóli
^Stjörnunnar
Nýtt námskeið hefst mánudag-
inn 22. júní, hægt er að vera
hálfan eða allan daginn.
Ath. Námskeiðið stendur 13 vikur.
Verð kr. 2.900,- hálfan daginn
kr. 5.300,- allan daginn
kr. 9.900,- allan daginn með mat
Gæsla frá kl. 8-9 og 16-17
Mæting í Garðaskóla.
Innritun í síma 651940.
GARÐASTAL
Lausn á steypuskemmdum
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 652000
l
Iíu-- x :pn
... i - 3
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Sigurður Hall (t.v.) frá íslenskum matvælum, sem ásamt Viking Brugg er samstarfsaðili kynningar-
innar í júnímánuði, og Bjarni Þór Olafsson, veitingastjóri Hótels Loftleiða.
ÍSLENSKUR MATUR
Framleiðsla íslenskra
fyrirtækja kynnt
Hótel Loftleiðir efnir í sumar
til kynningar á framleiðslu
íslenskra matvælafyrirtækja
með það fyrir augum að vekja
athygli ferðafólks og íbúa
höfuðborgarsvæðisins á því hve
langt íslensk fyrirtæki hafa náð
á þessu sviði og vekja jafnframt
athygli á gæðum íslensks
hráefnis.
>
Ahótelinu eru tveir veitinga-
staðir sem báðir taka þátt í
kynningunni. í hádeginu er boðið
upp á hlaðborð í Lóninu, sem er
nýinnréttaður veitingastaður inn-
af anddyri hótelsins. Þar er sér-
stök áhersla lögð á laxa- og síldar-
rétti ásamt öðrum sjávarréttum.
Á maðseðli Blómasalar, sem er
aðalveitingastaður hótelsins,
verður megináhersla lögð á nýja
fiskrétti.
Morgunblaðið/Alfons
Pétur Jóhannesson afhendir Gísla Wíum og Óttari Guðlaugssyni verðlaun fyrir björgun úr sjávarháska.
Á SJÓMANNADAGINN
Hátíðahöld í Ólafsvík
Tilboðsverð
í maí og júní
Gott verð
MEGA skifulaga álpHturnar ryðga
ekki og upplitast ekki. Þær eru
langthnalausnin sem þú leitar að.
Fást í mörgum stærðum.
Yfir þrjátfu ára reynsla á íslandi.
LANGTÍMALAUSN
SEM MJ LEÍTAR AÐ
SPARAÐU VtÐHALD
N0TAÐU ÁL
Mega h/f, Engjateigi 5, 105 Reykjavík
Pósthólf 1026, 121 Rcykjavík.
Sími 91-680606. Fax 91-680208.
SJÓMANNADAGURINN i Ólafsvík var haldinn hátíðlegur 13. og 14.
júní. A laugardaginn fóru keppnisgreinar fram við höfnina. Keppt
var í flotgallasundi, kappróðri og koddaslag og var sannkölluð
sumarblíða báða hátíðisdagana.
Asunnudeginum kl. 9 var farið í
skemmtisiglingar út víkina á
þremur bátum og fjölmenntu heima-
menn með böm og fullorðna. Kl. 11
fór fram í Ólafsvíkurkirkju sjómann-
amessa þar sem sr. Friðrik Hjartar
sóknarprestur predikaði og sjómenn
fluttu ritningarorð og einnig tók lag-
ið sönghópurinn Rjúkandi ásamt
kirkjukórnum undir stjóm Helga E.
Kristjánssonar, skólastjóra Tónlist-
arskólans.
Eftir hádegi fóm hátíðahöldin
fram í Sjómannagarðinum. Ræðu
dagsins flutti Bjöm Amalds formað-
ur verkalýðsfélagsins Jökuis. Þá
vom sjómenn heiðraðir fyrir björgun
úr sjávarháska. Það voru Óttar Guð-
laugsson, skipstjóri á Auðbjörgu II
SH 197, en hann ásamt skipshöfn
bjargaði skipverjum af Homstrend-
ingi HF 117 er sökk út af Dritvíkur-
töngum 9. september 1991. Þá var
Gísli Wíum einnig heiðraður fyrir
það einstæða afrek að bjarga skips-
félaga sínum, er hann féll fyrir borð
á Hamri SH 224 og fór inn í trollið.
Gísli tók sér hníf og kastaði sér á
eftir honum og skar gat á trollið og
síðan voru þeir hífðir upp.
Þá gerði Sævar Þóijónsson flug-
maður mikla lukku er hann flaug
vél sinni yfir íþróttavöllinn og dreifði
sælgæti til hátíðargesta.
Mikii þátttaka var í keppnisgein-
um sem fóru fram í góðviðri báða
dagana og fjölmenntu bæjarbúar á
samkomur þessar.
Sjómanndeginum lauk með sjó-
mannahófí í Félagsheimili Ólafsvík-
ur. Þar fóru fram ýmis heimatilbúin
skemmtiatriði. Tvær sjómannskonur
vom heiðraðar, þær Bjarney Sig-
tryggsdóttir og Sigíður Þóra
Eggertsdóttir.