Morgunblaðið - 21.06.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992
C 19
í afmæli FM. Frá vinstri eru Þóra Ólafsdóttir, Jón Halldór, Valdís Gunnarsdóttir og Hrund Gunnarsdóttir.
ÞINGVELLIR
Fjölmenni á Hótel Yalhöll
FM-starfsmenn skála. Frá vinstri
eru Haraldur Jóhannesson,
Ragnar Már Vilhjálmsson, Val-
geir Vilhjálmsson og Hafliði
Jónsson.
>1
Veislugestir á Germaníu-hátíð.
grillað og um kvöldið voru
skernmtiatriði í stóra sal hótelsins.
Útvarpsstöðin FM sendi fyrst
út 13. júní 1989 og ákváðu eigend-
ur og starfsmenn stöðvarinnar að
fara á Þingvöll og gera sér glaðan
dag á Hótel Valhöll í tilefni þriggja
ára afmælisins. Meðfylgjandi
myndir eru því til sönnunar að
FM-fólk hefur skemmt sér hið
besta í afmælinu.
Starfsemi Hótels Valhallar á Þingvöllum er nú komin í fastar
skorður, en 1. maí var það opnað aftur eftir vetrardvala. Um 30
manns starfa nú á hótelinu sem er opið alla daga. Um helgar er
boðið upp á heitan mat allan daginn og kaffihlaðborð síðdegis en
algengt er að þeir sem fara hinn sígilda „Þingvallahring“ komi við
á hótelinu og gæði sér á „bakkelsi“ og öðru fíneríi af hlaðborðinu.
Stefnt er að því að hafa lifandi tónlist á barnum á kvöldin um
helgar. Eyjólfur Krisfjáusson reið á vaðið um síðustu helgi og
söng fyrir gesti við góðar undirtektir.
Laugardaginn 13. júní var hald-
in í hótelinu 150 manna eft-
irmiðdagsgrillveisla Germaníu,
vinafélags Islands og Þýskalands.
Veislugestir gæddu sér á ýmsum
þýskum sérréttum, svo sem súr-
káli og þýsku salati. Sérstakir
gestir félagsins í veislunni voru
Gerhard Polt og „Die Biermöslb-
losn“ en þeir komu fram á Lista-
hátíð í Reykjavík fyrir skemmstu.
Veislan byijaði með því að farið
var í leiki með bömunum, síðan
var farið út í garð þar sem var
SJÓMENNSKA
Heiðraðir á sjómannadaginn
Á sjómannadaginn í Reykjavík, 14. júní sl. heiðraði Sjómannadags
ráð fimm menn fyrir langa og dygga sjómennsku og störf í þágu
sjómanna.
Frá vinstri: Arnór Gíslason skip-
stjóri, Andrés Gunnarsson
vélstjóri, Helgi Gíslason bryti,
Hörður Einarsson skipstjóri og
Hannes Hafstein forstióri Slysa-
varnarfélags íslands sem hlaut
gullkrossinn æðsta heiðursmerki
sjómannadagsins fyrir störf sín að
björgunar- og slysavarnarmálum
sjómanna.
Morgunblaðið/KGA
EFRI ÁRIN
Að skapa sér vinnu
HVAÐ eiga menn að gera þegar aldurinn færist yfir og þeir eru allt
í einu orðnir „löggilt gamalmenni" þó að þeir séu í fullu fjöri og mjög
svo vinnufærir til margra hluta?
essu velti Jóhann Waage fyrir
sér þegar ljóst var að hann
myndi hætta sem forstöðumaður
íþróttahúss Borgarness í lok þessa
árs en Jóhann verður sjötugur á ár-
inu. Hann ákvað að reyna fyrir sér
á „markaðnum" og hannaði og
byggði nokkur garðhýsi sem einnig
má nefna sólstofur, því þau eru hugs-
uð til skjóls fyrir norðanáttinni þegar
sólin skýn hér vestanlands. Það
fyrsta smíðaði hann fyrir sjálfan sig
og sína fjölskyldu og síðan hyggst
, hann bjóða hin til sölu á almennum
markaði og fá 360 þúsund krónur
fyrir hvert hús. Sagði Jóhann að
húsin væru einnig tilvalin til að hafa
við sumarbústaði. Húsin eru átt-
strend um 10 fermetrar að flatar-
máli og frístandandi. Þau eru smíðuð
í einingum og því auðveld í uppsetn-
ingu og nánast hægt að setja þau
upp hvar sem er.
Jóhann er meistari í húsasmíði að
mennt og kveðst hafa starfað að
smíðum frá unga aldri. Síðan hafi
hann byrjað á að sauma út og vinna
að smíði innanstokksmuna er hann
hafi verið að ná sér eftir slæmt
umferðarslys er hann varð fyrir árið
1976. Upp úr því hafi hann gerst
forstöðumaður Iþróttahúss Borgar-
ness en jafnframt því starfi kvaðst
hann hafa gripið í smíðarnar af og
til og meðal annars smíðað sumarbú-
staði og nokkuð af útidyrahurðum
svo eitthvað sé nefnt.
TKÞ.
Morgunblaðið/Theodór
Jóhann Waage trésmiður stendur við eitt garðhýsanna sem hann
hefur smiðað og hefur til sölu.
RHEINLAND-PFALZ - Ferðaævintýri í eigin bíl
Vesterbrogade 6 d, DK-1620 Kbh. V. Simi: (90) 45 3312 70 95
Spennandi sumarleyfisland í hjarta Þýskalands.
Luxemborg er hliðið að hinum rómantísku
héruðum Rheinland-Pfalz.
Þangað er um 1-3 tíma akstur með bíl.
Njóttu pess að ferðast um Mosel- og Rínarhéruðin.
Flug og bíll í A-flokki til Luxemborgar
verð frá 28.200 kr. á mann m.v. tvo í btl.
Flugvallarskattur kr. 1.250.- er ekki
innifalinn í ofangreindu verði.
FLUGLEIÐIR
Traustur (slenskur fer&afélagi
Hafðu samband viö ferðaskrifstofuna þína.
Söluskrifstofur okkar og umboösmenn um allt land
eða í síma 690 300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8:00-18:00).