Morgunblaðið - 21.06.1992, Blaðsíða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að vara þig á oflæti,
sérstaklega í samskiptum við
þína nánustu. Vertu heima
með fjölskyldunni í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefðir gott af því að fara
út í dag og anda að þér fersku
icfti. Léttara fæði gæti hjálpað
þér að létta skapið.
Tvtburar
(21. maí - 20. júní) töt>
Þú hefur verið fullur af lífs-
orku undanfarið og margar
nýjar hugmyndir komið upp.
Vertu heima í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf) HiS
Stutt ferðalag með ástvini
gæti gert gæfumuninn núna.
Vertu rómantískur í kvöld.
Ljón
(23. júll - 22. ágúst)
Þú hefur verið andstyggilegur
og ósanngjam við ákveðinn
aðila, og þarft að athuga al-
varlega samskipti þín við
hann. Vinnufélagar kunna að
hafa hom I síðu þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú hefur leyft smámunum að
stjóma lífi þínu of mikið og
nú er tími kominn til að greina
smáatriði frá því sem raun-
vemlega skiptir máli. Þú átt
annars á hættu að lenda I
ónáð hjá þeim sem þér þykir
vænt um.
V°g ^
(23. sept. - 22. október)
Viðkvæmni einkennir tilfínn-
ingalíf þitt núna. Einhver hef-
ur óviljandi sært þig og þú
ættir ekki að vera langrækinn.
Fjölskyldan kann vel að meta
nærvera þína í kvöld.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®)|0
Afbrýðisemi gerir þér lífið erf-
iðara en það þyrfti að vera.
Þú þarft að gefa ástvini þínum
frelsi til að vera eins og hann
er og átta þig á að ekki er
hægt að eiga annað fólk.
Bogmaður
(22. nóv. -21. desember) m
Þú hefur ekki áttað þig á því
sem er í kringum þig, þar sem
þú hefur verið upptekinn af
því sem þú ert sjálfur að fást
við. Gefðu fjölskyldunni meiri
gaum, hvemig væri að breyta
til og fara með henni í stutt
ferðalag?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér gengur vel að leysa þau
verkefni sem þér hafa verið
falin. Legðu vinnuna til hliðar
eitt kvöld og vertu heima.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú þarft að huga betur að
útliti þínu og hefðir gott af
því að fara í líkamsrækt og
stunda útivera í meiri mæli.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’£*
Reiðikast þitt kom ástvini þín-
um í opna skjöldu, enda á
hann ekki öðru að venjast en
að þú sért einstaklega jafn-
lyndur. Sjáðu til þess að eftir-
málar þessa spilli ekki sam-
bandi ykkar.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
J?M t?AVfg>‘?-'0
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
1'E5, MA'AM..MY D06 ANP I
WANT TO THANK VOU FOR
ALLOWINS ME TO 60 H0ME
EARLV YESTEKPAY BECAUSE HE
UJAS 5ITTIN6 IN THERAlN..
Já, frú ... ég og hundurinn minn
viljum þakka þér fyrir að leyfa mér
að fara snemma heim í gær, vegna
þess að hann sat úti í rigningunni...
IN FACT, HE UJ0ULP LIKE
T0THANKY0U IN PER50N...
Satt að- segja langar hann til að
þakka þér persónulega ...
Nei, það er í lagi... við skiljum ...
Gerum við það?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vestur kemur út með lauf-
kóng gegn 6 spöðum suðurs:
Norður
♦ 32
♦ ÁKG109
.♦ ÁK109
♦ Á4
Suður
♦ KDG876
V 82
♦ D865
♦ 9
Vestur Norður Austur Suður
2 spaðar
Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Sagnhafi drepur á laufás og
spilar spaða á kóng. Þegar nían
dettur úr vestrinu læðist illur
grunur að sagnhafa, sem hann
fær staðfestan í næsta slag þeg-
ar vestur hendir laufi í spaða-
drottningu. Austur hefur því
byrjað með ÁlOxx í spaða og
ekkert annað en trompbragð
getur bjargað slemmunni.
En tímasetningin þarf að vera
nákvæm. Suður þarf að trompa
tvisvar á eigin hendi (lauf og
hjarta) og frispila hjartað í leið-
inni:
Norður
♦ 3?
VÁKG109
♦ ÁK109
♦ Á4
Vestur
♦ 9
♦ 764
♦ G32
♦ KD7652
Austur
♦ Á1054
♦ D53
♦ 74
♦ G1083
Suður
♦ KDG876
♦ 82
♦ D865
♦ 9
Fyrst er hjartað spilað á ás
og lauf stungið. Síðan hjarta á
kóng og hjarta trompað. Þá eru
teknir tveir slagir á tígul og frí-
hjarta síðan spilað úr borðinu.
Trompi austur ekki, fara niður
tveir tíglar heima og tromptían
loks fonguð í lokin.
Umsjón Margeir
Pétursson
Það kemur jafnvel fyrir allra
sterkustu stórmeistara að leika
afleikjum sem varað hefur verið
við í bókum. Við skulum líta á
fyrstu leikina í skák þeirra Migu-
els IUescas (2.555), Spáni, og
Artúrs Júsupovs (2.655), Rúss-
landi. Frönsk vöm. 1. e4 — e6,
2. d4 - d5, 3. e5 - c5, 4. c3 -
Db6, 5. Rf3 - Bd7, 6. a3 - c4,
7. Rbd2 - Rc6, 8. g3 - Rge7??
{ bókum er varað við þessu og
mælt með 8. — Ra5. Illescas svar-
aði að bragði með:
9. Bxc4! (Auðvitað, því eftir 9.
— dxc4, 10. Rxc4 — Dc7, 11.
Rd6+ — Kd8, 12. Rxf7+ vinnur
hvítur þijú peð og skiptamun.) 9.
— Ra5, 10. Be2 og þrátt fyrir 100
skákstiga mun tókst Júsupov aldr-
ei að vinna upp peðsmissinn og
mátti játa sig sigraðan eftir 60
leiki til viðbótar.