Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992
C 23
SPEMNU/GAMANMYNDIN:
TOFRALÆKNIRINN
STORKOSTLEGT ÆVINTÝRI!
FRAMMISTAÐA CONNERYS GLEYMIST SEINT EÐA ALDREI.
David Sheehan. NBC TV L.A.
STORKOSTLEG OG HRIFANDI!
„TÖFRALÆKNIRINN" ER FERSK OG HRÍFANDI SAGA UM
ALVÖRU FÓLK OG RAUNVERULEGA BARÁTTU.
. HÚN ER ALGJÖRT UNDUR. ÞAÐ EINA SEM
HÆGT ER AÐ SEGJA UM
CONNERY
ER ÞAÐ AÐ HANN ER
___ EINFALDLEGA BESTI
LEIKARI OKKAR
TÍMA.
Iltl llinwn - The Waihinfton PoM
TÖFRALÆKNIRINN" ER
LÍFLEG OG LITRÍK
UMGJÖRÐ UTAN UM
STÓRKOSTLEGAN
LEIK CONNERYS.
Aðalhlutverk:
. Sean Connery og
Lorraine Bracco.
Leikstjóri:
John McTierman
æknir finnur lyf
ið krabbameini en
ýnir formúlunni.
MIÐAVERÐ KR. 300
Á 5 OG 7 SÝNINGAR
ALLA DAGA
VIGHOFÐI
★ ★*'/? DV
★ ★★'/; Mbl.
ÍSiSPE
★ ★★'/* MBL. ★★*- DV
Þessi magnaða spennu-
mynd með Robert De Niro
og Nick Nolte á stóru tjaldi
í Dolby Stereo.
Sýnd í B-sal
kl.4.50, 6.55, 9 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
MITTEIGIÐIDAHO
★ ★ ★ ★ L.A. TIMES
★ ★ ★ ★ Pressan ★ ★ ★ Mbl.
Sýnd í C-sal
kl.5, 7, 9og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
K
sími 112
LEIKFERÐ ÞJÓÐLEIKHÚSSINS UM NORÐUR- OG
AUSTURLAND
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju
SAMKOMUHÚSIÐ A AKUREYRI:
f kvöld kl. 20.30.
Aðgöngumiðar I miðasölu Leikfélags Akureyrar, sími
24073, opið kl. 14-18 alla virka daga nema mánudaga.
EGILSSTAÐIR, VALASKJÁLF:
Mánudag 22. júní kl. 21, þriðjudag 23. júní kl. 21.
Miðapantanir í Hótel Valaskjálf, sími 11500.
NESKAUPSTAÐUR, EGILSBÚÐ:
Miðvikudag 24. júní kl. 21.
Miðapantanir f Hótel Egilsbúð, sími 71321.
VJterkurog
k./ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
REGNBOGINN SÍMI: 19000
<fe<»
*
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÞRUGUR REIÐINNAR
byggt á sögu John Steinbeck. Leikgerð: Frank Galati.
I kvöld, allra sföasta sýning, uppselt.
Þrúgur reiðinnar verður ekki á fjölunum f haust.
Miðar óskast sóttir fjórum dögum fyrir sýningu, ann-
ars seldir öðrum.
Miðasalan opin alla daga fri kl. 14-20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanlr I sfma alla vlrka daga frá kl. 10-12, slml
680680. Myndsendir 680383
NÝTTI Leikhúslínan, sími 99-1015.
Greiðslukortaþjónusta.
Námskeið 1 skap-
andi listþjálfun
HALDIÐ verður námskeið í skapandi listþjálfun fyrir
börn, unglinga og fullorðna í sumar. Á námskeiðunum
er ýmislegt búið til. Unnið er með liti, málningu, leir,
gifs o.fl. Listsköpunin er frjáls og þurfa þátttakendur
ekki að hafa „tæknilega færni“ í listum. Spjallað er um
listsköpunina og hugsanir tengdar þeim.
Markmið námskeiðanna er
að hjálpa þátttakendum að
virkja sköpunargáfu sína,
hafa gaman af að skapa og
gefa þeim möguleika á að tjá
með orðum hugsanir og til-
finningar tengdar listsköp-
uninni.
Unnur
þjálfi.
Ottarsdóttir
Hámarksfjöldi þátttak-
enda í hverjum hópi er aðeins
sex. Lögð er áhersla á að
mynda vinsamlegt andrúms-
loft þar sem hver einstakl-
ingur fær hvatningu og at-
hygli.
Leiðbeinandi á námskeið-
unum er Unnur Óttarsdóttir
sem er listþjálfi (art therap-
isti) og kennari að mennt.
Unnur hefur unnið að með-
ferð ög námskeiðum fyrir
börn, unglinga og fullorðna
í listþjálfun.
Innritun og upplýsingar
eru hjá Unni Óttarsdóttur
listþjálfa, alla virka daga kl.
17-19.
BIRÆFNII
BEVERLY HILLS
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Stórrán í Beverly Hills
(„The Taking of Beverly
Hills"). Sýnd í Bíóhöll-
inni. Leikstjóri: Sidney
J. Furie. Aðalhlutverk:
Ken Wahl, Matt Frewer,
Robert Davi, Harley
June Kozak.
í hasarmyndinni Stórrán
í Beverly Hills leikur Ken
Wahl broshýra fótbolta-
hetju sem atvikin haga svo
til að verður eini maðurinn
sem eyðilagt getur áform
bíræfinna ræningja, er lok-
að hafa heilu hverfi í borg-
arhlutanum fræga og láta
greipar sópa. Hann er einn
gegn öllum maður getur
verið viss um frá upphafi
að allir tapa.
„Stórrán" undir leik-
stjórn Sidney J. Furie er
afar slöpp formúlumynd
sem leggur helst áherslu á
algerlega tilgangslausar
eyðileggingar bifreiða og
sviðsmynda. Það á að
koma í stað hasarsins en
verður fljótlega þreytandi
þegar bíl eftir bíl er ekið
inní hveija leikmyndina á
fætur annarri. Og svo er
sprengt einhverstaðar þess
á milli.
Wahl hefur greinilega
lagt meiri áherslu á lík-
amsrækt í seinni tíð en
leiklist og hlúnkast í gegn-
um hetjudáðirnar án þess
að gera eitt eða neitt fyrir
myndina og Robert Davi
leikur stórhuga illmennið á
gamalkunnum nótum.
Kvenhetjan er leikin af
Harley June Kozak sem er
með öllu sviplaus en sá eini
sem einhvern lit sýnir er
Matt Frewer í hlutverki
löggu sem aðstoðar Wahl
gegn bófunum.
Furie hefur áður gert
ágætar bíómyndir en ekk-
ert bitastætt í seinni tíð.
Myndin hans er langt und-
ir meðallagi og greinilega
gerð fyrir áhorfendur sem
litlar eða engar kröfur gera
til hasarmynda bara ef
eitthvað er sprengt í loft
upp á fárra mínútna fresti.
Að auki er hugmyndin að
baki„„Stórránsins“ ansi
fjarstæðukennd. Nokkrar
alvörulöggur er læstar
inná lögreglustöð á meðan
platlöggur setjaásvið-
„eiturefnaslys" og tæma
Beverly Hills af fólki áður
en þær ræna og rupla up-
pundir 60 milljörðum
króna - allt svo illmennið
Davi geti komist í forstjó-
rastól tryggingarfyrirtæk-
is, eða hvað?
Stykkishólmur:
Grunnskólanum slitið
Stykkishólmi.
GRUNNSKÓLANUM í Stykkishólmi var slitið 27. maí sl.
við hátiðlega athöfn í nýju kirkjunni. Var kirkjan þéttset-
in og mun ekki hafa verið slikur fjöldi við skólaslit áður
eða allt að 500 manns.
Nemendur önnuðust söng
milli atriða og í byijun og lok
og tók fólkið undir. Alls voru
í skólanum í vetur 284 nem-
endur í 10 bekkjardeildum
og auk tveggja framhalds-
deilda. Við skólann störfuðu
23 kennarar bæði í hálfu og
fullu starfi. Heilsufar var
gott og skólasókn eftir því.
Sýning á munum barna og
eins flutningur ljóða sem
samin voru, vöktu athygli.
Afhent voru prófskírteini 24
nemenda sem útskrifuðustu
úr 10. bekk. Gerði það Lúð-
vík Halldórsson skólastjóri
sem skýrði einnig skólastarf-
ið í vetur og námsárangur.
Þá fékk Astrós Þorsteins-
dóttir afhent frá Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi, stúd-
entaskírteini, og afhenti skól-
ameistari Þórir Óskarsson
það með völdum viður-
kenningarorðum en Ástrós
hefur verið tvo vetur í fram-
haldsnámi hér í Grunnskól-
anum og auk þess lesið utan
skóla, en tók svo próf við
Fjölbrautaskólann. Er þetta
í fyrsta sinn sem stúdenta-
prófskírteini hefur verið af-
hent við skólann í Stykkis-
hólmi.
Við skólaslit voru auk þess
mættir fullnaðarprófsnem-
endur og fermingarsystkin
frá árunum 1964 og 1965
og voru þau um 30 sem
mættu og héldu síðan daginn
hátíðlegan með borðhaldi á.
Hótel Stykkishólmi um
kvöldið. - Árni.
Steinasýning opin
á Akureyri í sumar
Félag norðlenskra steinasafnara efnir til steinasýningar
í húsnæði félagsins í Hafnarstræti 90 á Akureyri í sumar.
Sýningin var opnuð 15.
júní síðastliðinn og verður
hún opin frá kl. 13 til 16 alla
daga nema laugardag í júní,
en í júlí og fram til 15. ágúst
verður hún opin frá kl. 10 til
17 alla daga nema laugar-
daga.
Félagið stóð fyrir steina-
sýningu síðastliðinn vetur og
sýndu bæjarbúar henni mik-
inn áhuga, þannig að ákveðið
var að opna aðra sýningu og
gefa bæjarbúum og ferða-
mönnum tækifæri til að
kynnast töfrum hins íslenska
steinaríkis.
(Fréttatilkynning)