Morgunblaðið - 21.06.1992, Síða 24

Morgunblaðið - 21.06.1992, Síða 24
24 C -p *•> MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992 „Ef þá ertcú hringjco Cit af ridetar- ZQ.r&arstdrfinu, þá erþafr fhrib-" MMIJirUJnger/Distribute^b^UniversalPressS^^ S/ Ekki mikið leggjandi upp úr ákvörðun þinni um að leggja þig? Við í þessu fyrirtæki erum sem ein fjölskylda. HOGNI HKEKKVISI „H/WN HL<m)/?AÐ Ze/eA AÐ F»RA £ITTHZAE> ... HAMN £& AE> PAK/cA." -...-■v.........mwn'xmr ia\r fJJ n f TCJ7/7 Tri-CfOjr fftipir BRÉF TEL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reylgavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Hvað rís úr rústunum? Frá Rúnari Gústafssyni: VIÐ ERUM heppin að vera lítið hijóstrugt eyríki langt úr alfaraleið því það er okkar besti vinur í að halda íslandi fyrir íslendinga. ís- land kemur ekki til með að sleppa við þær hræringar sem eiga eftir að koma, hversu mikið sem við beijumst fyrir sjálfstæði okkar. Til eru hagfræðingar sem segja að hrunið á verðbréfamarkaðnum 1987 hafi bara verið smámunir miðað við hið raunverulega hrun sem mun koma innan fárra ára, og það hrun verður einnig hrun kapítalismans. Hvað er þá eftir, hin fullkoma sundrun, hin algera ringulreið, fyn- mitt leyti verð ég að segja að ég hlakka jafn mikið til þess eins og ég kvíði. Hvað rís úr rústunúm verður að sjálfsögðu háð því hver eða hveijir verða fljót- astir til að átta sig á nýjum tímum. Hvað getur allsheijar alheims kreppa leitt af sér. Jú, við, jarð- arbúar, komum sjálfsagt til með að drepa hver annan pínulítið og fyrir pínulítið og svelta í hel og deyja úr sjúkdómum allskonar og það algeralega óháð hörundslit, stétt eða skoðunum. Hvemig stjórnskipulag gæti sprottið upp sem ekki hefur verið prófað áður eða ekki hefur mistekist áður. Kannski einstaklingurinn rísi til vegs og virðingar ekki í persónu- dýrkun að hætti örvæntingarfullra og/eða ofsóknarbijálaðra einræð- isherra heldur að verðleikum, utan valda flokkapólitíkur sem alltaf býður upp á baktjaldamakk. Eitt af einkennum örvæntingar stjórn- valda í lýðræðisríkjum er að allir flokkar hafa á pappímum ólíka stefnuskrá en í kosningum er eng- inn mismunur. Ég hef alltaf að- hyllst jafnaðarstefnu en það fyrir- fínnst varla nothæfur jafnaðar- flokkur lengur, allir meira . og minna orðnir til hægri og sósíalist- ar halda sig saman í litlum upp- gjafarhópum og vona að enginn minni þá á að kommúnismi Sovét- ríkjanna er fallinn. í skorti hald- bærrar jafnaðarstefnu á íslandi hef ég haft það happ að undir þeirra flaggi hefur ávallt verið hæft fólk, sem er mergurinn málsins. Kosn- ingar eiga að vera um einstaklinga sem hafa eitthvað til málanna að leggja og sem maður þá væntan- lega lætur vera að kjósa ef þeir standi ekki við kosningaloforðin fögru og geta ekki skýlt sér á bak við flokksmaskínu eða kastað flokksformanninum og sandi í augu kjósenda. Einstaklings- hyggja, ekki sú sem nefnd hefur verið í sömu andrá og kapítalismi heldur sú sem nefnist á erlendum tungum individualismi, er verðug- ur arftaki núverandi fyrirkomu- lags, algert skoðana og aðgerða- frelsi þar sem mikilvægi einstakl- ingsins er í fyrirrúmi og hver ein- staklingur er gerður ábyrgur fyrir sínum gerðum, opinberum og per- sónulegum. Mér verður hugsað til mannanna sem einhverntíman á sjötta áratugnum gerðu tilraunir með að blanda mannablóði apa- blóði til lækningar malaríu en gerðu sig að líkindum seka um að koma HlV-vírusnum inn í mann- skepnuna og með því athæfí líklega orðið mestu fjöldamorðingjar sem nokkrusinni hafa gengið þessa jörð. Ef þetta reynist rétt efast ég um að þeir verði nokkru sinni látn- ir svara til saka frekar en þeir sem stóðu að gerð, eða fyrirskipuðu notkun sprengjanna sem kastað var á Hirosima og Nagasaki. Ekki hafa ráðamenn, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, heldur verið gerðir ábyrgir fyrir innrásir sínar í Víet- nam og Afganistan, ekki heldur leiðtogar annarra ríkja sem með heimsvaldastefnu hafa kúgað önn- ur ríki og aðrar þjóðir. Ég er ein- staklingur af þessari jörð, en ég hef ekkert að segja um framtíð hennar nema ég tilheyri einhveij- um flokki eða trúarbrögðum og þykja mér það harðir kostir og ófysilegir. RÚNAR GÚSTAFSSON Smalgangen 23 0188, Osló 1 Noregi EFTA hjáríkjasamband Frá Birni S. Stefánssyni: ÞRISVAR í röð hefur Útvarpið bætt þeirri skýringu við frétt um undirskrift samkomulagsins um EES í Oporto, að þar væri stigið skref til myndunar stærsta frí- verzlunarsvæðis sögunnar. Það er vandasamt að skýra í fáum orðum hvað felst í þessari undirskrift, en eitt er víst, að ekki er verið að mynda fríverzlunarsvæði. Ríkin 19 sem að standa hafa þegar myndað fríverzlunarsvæði. ísland varð aðili að því árið 1972. Samkvæmt samningsuppkast- inu sem leggja á fyrir löggjafar- þing ríkjanna 19 og þing Evrópska samfélagsins (ES) skal færa Ítig og reglur EFTA-ríkjanna 6 til sam- ræmis við lög og reglur ES — það voru fyrir tveimur árum um 60.000 blaðsíður (eins og 60 símaskrár) og varla hefur það minnkað síðan. EFTA-ríkin eiga síðan að breyta lögum sínum og reglum jafnóðum eftir því sem lög og reglur ES breytast, og eiga þar engan rétt til íhlutunar, ekki einu sinni tillögu- rétt. í sem stytztu máli sagt felst í samkomulaginu, að myndað er ríkjasamband með ES-ríkin sem aðalríki og EFTA sem hjáríkjasam- band. BJÖRN S. STEFÁNSSON Vesturvallagötu 5, Reykjavík Yíkveiji skrifar að fer ekki á milli mála í frétt- um síðustu mánaða og vikna að þrengt hefur að íslendingum. Síðasta áfallið, sem raunar hefur legið í loftinu lengi, er fiskifræðileg staðhæfíng þess efnis að þorsk- stofninn, sem staðið hefur að stór- um hluta undir iífskjörum og vel- ferð í landinu, sé í hættu. Við verð- um að draga úr þorskafla með til- heyrandi áhrifum á stöðu þjóðar- búsins og lífskjör landsmanna. Víkveiji sér það og í fréttum síð- ustu daga að sú atvinnugreinin, sem verðið hefur í uppsveiflu mörg næstliðin ár, ferðaþjónustan, á einnig við sinn vanda að glíma. Þá er ekki einungis átt við það að ferðaskrifstofur, sumar hveijar, hafa átt í rekstrarvanda á liðnum misserum, heldur að erlendum ferð- mönnum hér á landi hefur fækkað. Samkvæmt fréttum hafa 700 færri erlendir ferðamenn lagt leið sína hingað til landsins frá ársbyijun til mafloka en á sama tíma í fyrra. Það er ekki ein báran stök á úfn- um sjó íslenzks efnahagslífs. xxx En þrátt fyrir allt tal um erfíð- leika og þrengingar þjóðarbú- skapar, atvinnuvega, heimila og einstaklinga sækjum við í okkur veðrið í utanferðum, einkum og sér í lagi til sólarstranda. Eða eins og segir í einni í blaðafrétt: „íslendingar virðast hins vegar stefna í að slá öll sín fyrri met í utanferðum. Um 11.200 sneru heimleiðis í maímánuði og alls var fjöldi þeirra 43.800 fyrstu fimm mánuðina. Þetta er um 4.200 manna fjölgun frá sama tíma í fyrra og sömuleiðis um 2.500 utanförum fleira en nokkru sinni áður á sama fímm mánaða tímabili." Veðráttan hefur heldur ekki leik- ið við okkur margar undanfarnar vikur hér á suðvesturhominu þar sem lunginn úr þjóðinni hefur sezt að. Það getur varla heitið að séð hafí til sólar það sem af er svoköll- uðu sumri. Regnský hafa grúft yfír mannlífinu, votir vindar hafa snopp- ungað réttláta sem rangláta og súldin hefur jafnvel síast inn í sál- artötrin. Það er næstum því skiljan- legt að þjóð efnahagslegra þreng- inga, þorskstofns á fallandi fæti og minnkandi heildartekna haldi á vit suðrænnar sólar nánast með krítar- kortið eitt í farteski. Den tid, den sorg, eins og sagt var meðan sjór var svartur af síld og sá guli fyllti ryksuguskip tækninnar. Jafnvel þegar við Víkveijar Sögu- eyjarinnar reynum að laga okk- ur að bláköldum veruleikanum rek- um við þumalputtana í horngrýtis vandræðin. Eða eins og segir í bændablaðinu Tímanum: „Færri kindur — fleiri lömb!“ Fyrst drógum við stórlega úr neyzlu kindakjöts af ástæðum sem hér verða ekki raktar. Síðan skámm við hressilega niður sauðfjárstofn- inn til þess að laga kindakjötsfram- leiðsluna að innlendri eftirspum, eins og það hét á hagræðingar- máli, til þess að losna við að þurfa að borga með umframframleiðslu ofan í útlendinga. Eða eins og segir í ævafomu þjóðlegu stefi: „Sé ég eftir sauðunum / sem að koma af fjöllunum / og etnir em í útlöndum!" í bændablaðinu segir sem sagt: „Þegar fækkað er og hjarðirnar grisjaðar er afurðaminnsta féð látið fara, hið frjósama lifir.“ Og síðan: „Vegna stöðugs niðurskurðar á ís- lenzka Qárstofninum síðustu árin vex fijósemi hans.“ Og nú er hver ær tví- eða þrflemd. Það er jafnvel farið að tala um ofurfijósamt fé. Það er því engin furða þótt fyrir- sögn á rammafrétt í Tímanum hljóði svo: „Færri kindur, fleiri lömb!“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.