Morgunblaðið - 21.06.1992, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992 C 25
Á GRÆNULJÓSI
TILBOÐ
ÓSKAST
Gjöfult land
Frá Elsu Georgsdóttur:
KOMIÐ þið sæl. Nú verð ég að
segja að mér finnst nóg komið,
ég get ekki horft upp á þetta
lengur, án þess að leiða sannleik-
ann í ljós. Jón Sigurðsson hugs-
aði sér þjóð sína sem lítið stúlku-
barn. Enginn finnur hamingjuna
nema gefa hana öðrum. Hér er
ekkert gert nema eitt á kostnað
þjóðarinnar. Konur og karlar
heimsóttir, sem skreyta sig með
gervikórónu, ráðstefnur sóttar,
eintóm ferðalög og hótelgisting-
ar, allt á kostnað almennings.
Við eigum að vera varkár í sam-
skiptum okkar við hinn umkomu-
lausa heim. Það er nóg að gera
hér heima, margir sem þurfa á
hjálp að halda. Hin sanna menn-
ing er að sýna náunganum skiln-
ing og kærleika. Kærleikur okkar
mannanna leiðir okkur að lokum
til þekkingar á kærleika Guðs.
Hvar er þörfin allra mest, hvar
er þörf að vinna, ísland skortir
allra mest eining barna sinna.
Engin list er manninum æðri.
Við eigum gjöfult land, þurfum
næstum ekki í messu, því landið
allt messar. Það er talandi tákn
Guðdómsins. Og hafið sem
verndar það, hið seiðmagnaða
hjartaslag hafdjúpsins.
Á þessari þjóðhátíð var það
skíðaskálinn sem bjargaði okkur,
fallegt tréhús. Hann var opnaður
þá, að lokum. Okkur vantar líf í
bæinn. Það má íjölga strætis-
vögnunum, spörum bilana og
tökum vagnana. Og börnin leika
sér úti í parís og boltaleik. Það
gerir ekkert til þótt rigni, sólin
getur skinið á jörðu niðri meðal
okkar eins og á heiðskírum
himni. Því andi mannsins er að
lokum eins og sólin með stjörnur
svífandi í kringum sig. Hann er
eins og alheimurinn.
Ur hugsunum, orðum og at-
höfn er unnið í lífsins þráð. Vér
fáum á örlaga akri það eitt, sem
til var sáð.
Hugsum frekar með hjartanu
en höfðinu, það hreinsar höfuðið,
og þar býr hin sanna viska. Ver-
um glöð og hress. Við höfum
ekkert að fela fyrir hvort öðru,
sleppum okkur lausum, losum af
okkur böndin, verum fijáls.
Landið okkar elur ekki af sér
annað en vel gefið fólk, það hef-
ur sýnt sig. Annað er misskiln-
ingur. Verum íslensk. Látum ís-
lenska listamenn njóta sín í sjón-
varpi og útvarpi.
ELSA GEORGSDÓTTIR
Lindargötu 36, Reykjavík
homdu o sQninguno
og nældu þer TsumarNlhoö...
□ BVLTINGÍTJflLDVÖGNUM
□
□ GOS HflNDR ÖLLUM
hringdu - við sendum bæhling
ASTRO
TJALDVAGNAR
bremsubúnaöur - 13" felgur
sterk galvaniseruö stálgrind
má breyta í bílakerru
einföld uppsetning
SEGLAGERÐIN
EYJASLOO 7 • REYKJAVIK • SIMI91-621780 • FAX 91-623843
í Ford Aerostar XL, árg. '87, Lada Sport
1600 4 W/D, árg. 90 (ekinn 6 þús. km.),
Dodge Ramcharger 4x4, árg. ’87 og aðrar
bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi
9, þriðjudaginn 23. júní kl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í dráttarvagn
f/jarðýtur 35 tonn, árg. ’78 og Ford strætis-
vagn B-700, árg. 78.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Fiskveiðar og rannsóknir.
.... JQIIIfl
A FELLIHYSUM, TJOLDUM, TJALDVOGNUM ofl.ofl.
Frá Ólafi Helga Ólafssyni:
VARÐANDI þennan „stóra-sann-
leika“ sem dembt var yfir þjóðina
fyrir skömmu um hugsanlegt hrun
þroskstofnsins og umræður í fram-
haldi af því, kom mér eftirfarandi
í hug:_
1. Á sama tíma og við erum að
hafna erlendri ráðgjöf um nýtingu
hvalastofna við landið, sjá menn
ástæðu til þess að þiggja leiðbein-
ingar frá alþjóðlegri stofnun varð-
andi þorskinn. Þora okkar menn
ekki að taka á málinu, eða voru
útlendingamir notaðir sem próf-
dómarar til að yfirfara útreikninga
okkar manna? Er kannski stutt í
að alþjóðlegar stofnanir fari að
stjórna okkar veiðum?
2. Því er haldið fram, að úr
hveiju goti þorskhrygnu sé mögu-
leiki á að allt að 2 milljónir ein-
staklinga hefji lífsbaráttuna. Af
þessum fjölda ná aðeins 20-40
þorskar veiðanlegri stærð. Getur
það verið, ef litið er til þessara
stærða, að veiðar hafi einhver úr-
slitaáhrif á stofnstærð? Auðvitað
verður að sjá til þess að þorskurinn
hafi frið til að hrygna.
3. Hafrannsóknastofnun verður
að fá miklu meira fé á fjárlögum
til að geta sinnt grundvallarrann-
sóknum. Rannsóknum á allri líf-
keðju sjávarins, hvers einasta
hlekks í keðjunni, allt frá svifum
upp í hvali. Rannsóknum á seltu,
straumum og hita. Það þurfa að
vera 4-5 fullkomin rannsóknaskip
á sjó, helst allt árið. Ef svo væri,
yrði tillögur stofnunarinnar trú-
verðugri.
4. Sjávarútvegsráðherra þarf að
hafa sér til ráðgjafar hóp útvegs-
manna til að meta skýrslur Haf-
rannsóknar, koma með tillögur um
rannsóknarefni og rannsóknarað-
ferðir (veiðarfæri t.d.).
5. Þegar „stóri-dómur" um
æskilegan 40% niðurskurð á þorsk-
kvóta á næsta ári barst mér til
eyrna, hræddist ég taugaveiklun
stjórnmálamanna meira en tillög-
una sjálfa.
Ég held menn ættu að hlusta á
fiskifræðinginn sem bent hefur .á
meðaltalsveiði þorsks hér við land
síðastliðna áratugi og telur rétt að
menn haldi sig sem næst þessu
meðaltali.
Ein aðalauðlind okkar íslend-
inga er hafið í kringum landið. Það
er kominn tími til að sátt náist um
nýtingu þessarar auðlindar allri
þjóðinni til heilla.
ÓLAFUR HELGI ÓLAFSSON
Neðstaleiti 13, Reykjavík
I