Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT seer íjtil .s írunAciimMUg fiiuAjanuoflOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992 Gjaldskrá Landsbankans hækkar: Hækkað til sam- ræmis við aðra banka — segir Brynjólfur Helgason aðstoðar- bankasljóri ÝMIS þjónusta Landsbankans hefur hækkað í verði frá 1. júlí með nýrri gjaldskrá bankans. Þar á meðal hafa 25 blaða tékk- hefti hækkað úr 220 krónum í 250, eða um 14%. Kostnaður veg-na innstæðulausra tékka hækkar úr 480 kr. í 540 kr. eða um 12,5%. Brynjólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri Lands- bankans, segir að bankinn hafi hækkað gjaldskrá sína til sam- ræmis við aðra banka og verð á þjónustu hans sé hvergi hærra en hjá öðrum bönkum. Sem dæmi um hækkanir hjá Landsbankanum má nefna að 25 eyðublaða tékkhefti kosta nú 250 krónur, en kostuðu 220 krónur samkvæmt fyrri gjaldskrá frá 1. apríl síðastliðnum. Tékkhefti kosta einnig 250 kr. hjá íslandsbanka og sparisjóðunum samkvæmt gild- andi gjaldskrám þeirra, en 220 kr. í Búnaðarbanka. Lágmarksþókn- un viðskiptavíxla er nú 830 kr. hjá Landsbanka í stað 550 áður 'O INNLENT og er þar um tæplega 51% hækk- un að ræða. Hjá íslandsbanka er þetta gjald einnig 830 krónur, en 750 kr. hjá Búnaðarbanka og sparisjóðunum. Kostnaður vegna innstæðu- lausra tékka er nú 540 kr. hjá bæði Landsbanka og íslands- banka, en 500 kr. í Búnaðarbanka og 485 kr. hjá sparisjóðunum. Að útbúa skuldabréf eða trygginga- bréf kostar nú 830 kr. í Lands- bankanum, en 630 áður og nemur hækkunin 31,7%. Hjá Islands- banka er kostnaðurinn einnig 830 kr., en 750 kr. hjá Búnaðarbanka og sparisjóðunum. Ýmsir liðir í gjaldskrá Landsbankans hækka ekki, til dæmis innlendar ábyrgðir, farmskírteinisábyrgðir, viðtaka geymslufjár, millifærslur og fleira. Brynjólfur Helgason, aðstoðar- bankastjóri Landsbankans, sagði að bankinn hefði lengi haft lægri gjaldskrá en aðrir og með nýju gjaldskránni væri sá munur lag- færður. „í vaxtamálunum höfðu menn víða orð á því þegar við vorum eilítið hærri en aðrir bankar þótt það væri ekki nema brot úr prósenti og sums staðar værum við lægri. Nú liggjum við undir og þá heyrist ekki neitt,“ sagði Brynjólfur. Hann sagði að um smávægilega aðlögun á gjaldskránni væri að ræða og bankinn seldi enga þjón- ustu dýrar en aðrir bankar. „Það hefur verið ákveðinn þrýstingur á að vextimir væm í svipuðum dúr á milli banka og við vorum komn- ir niður fyrir aðra banka. Það eru ekki aðstæður til að vera undir bæði í útlánsvöxtum og gjald- skrá,“ sagði Brynjólfur. Land undir Breiðamerkuijökli. Fremst á mynd sést sjórinn, upp af honum Jökulsárlón og síðan fjörður- inn undir jöklinum. 200 metra djúpur fjörður undir Breiðamerkuijökli NIÐURSTÖÐUR mælinga Raun- vísindastofnunar Háskóla íslands hafa leitt í ljós að upp af Jökulsárl- óni undir Breiðamerkuijökli sé 20 til 25 kílómetra langur, 2 til 5 kílómetra breiður og rúmlega 200 metra djúpur fjörður. Mælingam- ar voru gerðar síðasta sumar í samvinnu við Vegagerðina og Landsvirkjun til að kanna hvernig land væri undir jöklinum og jafn- framt til að gera kort af yfirborði hans. Var þetta gert til að finna út hvaða ráðum eigi að beita til að bregðast við þeim vanda sem upp kann að koma á næstu árum vegna mikils landbrots á þessu svæði en það ógnar veginum yfir Breiðamerkursand. Helgi Björnsson, járðeðlisfræðing- ur hjá Raunvísindastofnun háskól- ans, segir að landbrotið hafi í mörg ár verið frá 8 allt upp í 20 metra einstök ár. Sjórinn flytji þannig með sér efni úr fjörunni og nálgist stöð- ugt veginn við Breiðamerkursand. Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri FÍI: Viljum verulega lækkun á raforku næstu fimm ár til að auka atvinnu Segir iðnað hafa haldið sínum hlut í þjóðarframleiðslu o g útflutningi SVEINN Hannesson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda, segir að í stórum dráttum megi segja að iðnaður- inn hafi haldið sínum hlut gagn- vart öðrum atvinnugreinum hvort sem litið sé til þjóðarfram- leiðslu eða útflutnings. Hins veg- ar séu þeir ekkert sérstaklega ánægðir með það, því vonir hafi staðið til að hlutdeild iðnaðar ykist og að þvi hafi verið stefnt með inngöngunni I EFTA fyrir 20 árum. Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri hjá íslands- banka, segir í Morgunblaðinu í gær að iðnþróun á Islandi hafi á síðustu árum að verulegu leyti verið að ganga til baka. Sveinn sagði að í nýrri skýrslu iðnaðarráðuneytisins um framtíðar- stefnu og þróun íslensks iðnaðar komi fram að það sé nokkuð góður árangur hjá iðnaðinum * að hafa haldið sínu gagnvart sjávarúvegi, því á þessu tímabili hafi orðið geysi- Ieg framleiðslú- og útflutnings- aukning í sjávarútvegi vegna stækkunar landhelginnar. „Við hefðum hins végar viljað að árang- urinn hefði orðið betri og menn vonuðust sannarlega til þess fyrir 20 árum að iðnaðurinn myndi auka sinn hlut. Við teljum líka að þessi mikla útþensla sjávarútvegsins hafi að sínu leyti tafíð það, því iðnaður- inn hefur ekki fengið þá athygli og þau starfskilyrði sem hann þurfti við hliðina á sjávarútveginum," sagði Sveinn. Hann sagði að skjótvirkasta leið- in til að vinna sig út úr þeirri efna- hagslægð sem væri framundan vegna minni sjávarafla væri að bæta starfsskilyrði iðnaðarins, því fyrirtækin og framleiðslugetan væru fyrir hendi í landinu. Innflutn- ingur í samkeppni við íslenska iðn- aðarframleiðslu næmi um 20 millj- örðum á ári samanborið við að framleiðsluverðmæti iðnaðar innan- lands fyrir utan stóriðju væri á milli 70 og 80 milljarðar. Fljótvirk- asta leiðin til að auka atvinnu væri að laga starfskilyrði iðnaðarins og flytja sem mest af þessari iðnaðar- framleiðslu inn í landið. Sem dæmi um starfsskilyrði sem þyrfti að lagfæra nefndi Sveinn nið- urfellingu aðstöðugjalds sem hvergi tíðkaðist og lækkun raforkuverðs. Nú væri búið að virkja meiri raf- orku en markaður væri fyrir og hann vildi láta lækka raforkuverð til iðnfyrirtækja til dæmis næstu fimm ár í stað þess að hækka það eins og gert hefði verið um síðustu áramót, því iðnaðurinn ætti að borga niður umframraforkuna. „Við viljum fá verulega lækkun á raforku og tryggingu fyrir því að sú lækkun vari að minnsta kosti næstu fimm ár til þess að auka atvinnu,“ sagði Sveinn að lokum. Með sama áframhaldi muni sjórinn taka veginn og því hafí mælingamar verið gerðar til að athuga hvernig bregðast megi við þessu. „Fram að 1938 fór þessi fram- burður allur út í sjó, bætti við suður- ströndina og kom þannig til mótvæg- is við það sem sjórinn tók. Nú fer allur aurinn niður í Jökulsárlónið en lítið sem ekkert berst út í sjóinn. Það kemur því lítið til móts við það sem hann grefur,“ segir Helgi. Árið 1938 fór fyrst að grilla í Jök- ulsárlónið sem nú er 10 ferkílómetrar að flatarmáli og meira en 100 metra djúpt Helgi segir að rétt hafi þótt að kanna hvort hugsanlegt væri að fánd kæmi undan jökli á næstu árum eða áratugum, sem hægt væri að byggja veg á. Niðurstöður mælinganna bendi hins vegar til að upp af lóninu sé 20 kílómetra langur og meira en 200 metra djúpur fjörður. „Það er því ljóst að jökullinn mun ekki á næstu áratugum hörfa upp úr lóninu og finna verður aðrar lausnir til að bjarga veginum," segir Helgi. Hann segir jökulinn nú vera um 10 til 15 kílómetrum framar en hann var á landsnámsöld. Talið er að jök- ullinn hafí grafið fjörðinn út á litlu ísöld frá 1600 fram að síðustu alda- mótum en um 1700 er talið að landn- ámsjarðimar Fjall og Breiðá hafí farið í eyði. Stórgöngur pg mokveiði í Langá Það 'ér farið að mokveiðast í Langá á Mýrum eftir daufa bytj- un, síðustu daga hafa ekki veiðst undir 25 til 30 laxar á dag á Langárfossi og Ánabrekku og fiskur er kominn í alla veiðistaði á miðsvæðinu og eitthvað líf er komið á Fjallið. Ingvi Hrafn Jónsson, frétta- stjóri og landeigandi á miðsvæð- unum, sagði í samtali við Morgun- blaðið að það hefði verið tilkomu- mikil sjón að sjá er laxinn sem hafði sveimað um í sjónum fyrir utan ósinn tók sig loks til og rann fram í ána. „Menn voru að horfa á torfuna, sem í voru nokkur húndruð laxar, þar sem hún sveimaði til og frá fyrir neðan Sjávarfoss. Kvöldið eftir var ég sjálfur að veiða í Strengjunum og sá allt í einu út undan mér hvem- ig allt varð kvikt af laxi. Ég kast- aði flugunni linnulaust á vöðuna, en það leit ekki nokkur fiskur við henni og þá varð mér litið um öxl og sá að lax var farinn að stökkva stanslaust í Skuggafoss. Seinna leit ég í stigann og hann var kraumandi. Á mánudagsmorgun- inn upplifði ég svo einhvern þann æðisgengnasta veiðimorgun sem ég hef upplifað. Það var lax á þremur hæðum á Breiðunni og það var sama hvað ég reyndi, ég fékk ekki högg. Ég vissi að það kæmi að því að hann færi að taka og það gerðist milli fimm og hálfsex um daginn og þá tóku Spánveijar 15 laxa í beit og síðan hefur verið linnulaus stórveiði," sagði Ingvi. Mikill lax í Álftá Það er mikill lax genginn í Álftá á Mýrum og á hádegi 2. júlí voru komnir 18 laxar á land og nokkr- ir sjóbirtinga. Það er mjög góð veiði miðað við hve skammt er liðið veiðitíma, en Álftá telst til síðsumarsáa. Veiðimenn hafa séð stóra laxahópa í nokkrum veiði- stöðum eins og í Hólknum, Hrafn- hyl og Kerfossi og reyting af fiski víða um ána. Nokkrir mjög vænir eru í ánni, en þeir stærstu sem á land hafa komið eru um 12 pund. Þjóðleikhúsið: 96 þúsund g’estir á síð- asta leikári AHORFENDUR á sýningum Þjóðleikhússins voru rúmlega 96 þúsund á nýliðnu leikári. Sýning- ar hússins voru 446 og hafa að- eins einu sinni verið fleiri á einu leikári. Ellefu ný verkefni voru frumsýnd á leikárinu og af þeim voru fimm íslensk. Kæra Jelena var það verk sem oftast var sýnt, eða 128 sinn- um, og hefur ekkert verkefni Þjóð- leikhússins verið sýnt jafn oft á sama leikárinu. Flestir áhorfendur sáu samt Emil í Kattholti, sem sýndur var 59 sinnum fyrir 25.799 manns. Áætlað er að fyrsta frumsýning haustsins í Þjóðleikhúsinu verði Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.