Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992 Skuggahliðar sumar- leyfisins eftir Urði Gunnarsdóttur. Myndir: Kristjón G. Arngrímsson í fríinu fer stundum allt úr böndunum, við borðum of mikið, drekkum of mikið, eyðum of miklu og ætlum okkur of mikið. Sveifl- umst öfganna á milli. Allt það sem á að ná á stuttu ferðalagi gæti við nánari athugun nægt í hálfsársdvöl á staðnum og eftir á að hyggja hefði verið betra að gefa sér örlítinn tima til að leggja drög að ferðinni. Flest vitum við sjálfsagt upp á okkur skömmina að hafa einhvern tímann anað af stað í frí lítt undirbúin og þreytt og snú- ið heim örmagna á sál og líkama. Skemmst er að minnast útvarpsheljunnar Jónasar og fjölskyldu, sem túlkaði listavel hinn „dæmi- gerða“ íslending á ferð. Sem betur fer eru þeir margir sem fara í gott frí og snúa endurnærðir heim en hvernig líður hinum sem hvorki ná eða kunna að slaka á í fríinu? VÍS:+ , ' ' . ; f f . I Vi Að sjálfsögðu er frí af hinu góða, það brýt- ur upp hversdags- leikann og fyrir flesta er fólginn ákveðinn léttir í því. Fríið er tilhlökkunarefni og einmitt þess vegna kemur það fyrir að vænt- ingarnar verða of miklar, sett er samasemmerki á milli þess að fara í frí og ánægju og skemmtunar. Þá ber einnig að hafa í huga að fríið verður aldrei annað en það sem við leggjum í það, ferðalag verður sjaldn- ast skemmtilegt af sjálfu sér. „Frí er tiltölulega nýtt fyrirbæri í íslensku þjóðfélagi og fylgir batnandi efnahag. Okkur er ekki tamt að hugsa um frí og undirbúa það á jafn eðlilegan hátt og ýmsum öðrum þjóð- um. Þar hefst undirbúningur frísins að hausti, ákveðið er hvert á að fara og lagt til hliðar í ferðasjóð. Margir íslendingar hafa hins vegar þann háttinn á að stökkva af stað eftir auglýsingu í blaði og vilja helst fara samdægurs af stað,“ segir Nanna K. Sigurðardóttir félagsráðgjafi. í starfi sínu með hjónum og fjölskyld- um hefur hún kynnst því hversu erf- itt frí getur reynst fjölskyldum sem leggja upp með fulla tösku af óleyst- um vandamálum. En Nanna hefur einnig séð hvernig skynsamlegt frí getur orðið til þess að létta álagi af fjölskyldunni og á þann hátt bætt samskiptin. „Það getur verið mikið álag fyrir fjölskyldu sem er lungann úr deginum að heiman að vera skyndilega saman allan sólarhring- inn. Hver og einn hefur sínar vænt- ingar til frísins og þær fara ekki alltaf saman. Undirbúningur ferðarinnar skiptir meginmáli, að fólk geri sér grein fyrir því hvað það vilji gera og hvern- ig hægt sé að sameina mismunandi óskir. Ef fólk ræðir ekki saman áður en lagt er að stað um hvað eigi að gera er hætt við allsheijar upplausn þegar á hólminn er komið. Einn vill kannski vera sífellt á ferðinni á með- an annar vill slappa af. Oftar en ekki er það sá sem sterkastur er innan fjölskyldunnar sem ræður ferð- inni. Eftirá verða vonbrigðin því mik- il.“ Börnunum bætt upp afskiptaleysið Nanna segir marga foreldra ætla að bæta börnum sínum upp ónóga samveru með þvi að fara með þau í frí. Foreldrar verði þó að gæta þess að það geri einnig kröfur til þeirra í foreldrahlutverkinu, þ.e.a.s. að það þurfi að sinna bömunum. „Margir foreldrar verða þreyttir og pirraðir að loknu slíku fríi. Sektarkenndin yfir samskiptunum við barnið er söm, barnið hefur ef til vill ekki sýnt þau viðbrögð sem foreldramir áttu von á og fríið stenst ekki þær væntingar sem gerðar voru. Því verða foreldrar að gæta þess að fara einnig í frí án barnanna og gæta þess að missa ekki sjónar hvort á öðru á meðan þau sinna foreldrahlutverkinu og lífs- baráttunni. Það að fara í frí án barn- anna getur verið það besta sem for- eldrar geta gert fyrir þau. Tökum sem dæmi foreldra smábama, þeim er nauðsynlegt að fá smáfrí frá ábyrgðinni og vökunóttum. Því er það ekki vitlaust að foreldrar klípi hluta af fríinu fyrir sjálfa sig og fari svo endumærðir með börnunum í frí. Þegar foreldrar velja það að fara í frí með börnunum verða þeir að gera ráð fyrir þeim. Það er ekki nóg að panta sæti í flugvélinni eða gera ráð fyrir þeim í bílnum. Fæstum bömum fmnst t.d. gaman að sitja Ekki koma allir endurnærðir úr sumarleyfinu. Streita hvers- dagsins getur brotist út þegar lóksins á að slaka á, uppgjör innan fjölskyldunnar orðið óhjákvæmi- legt og bakverk- urinn og vöðva- bólgan magnast lengi í bíl eða fara í búðir. Þau vilja hafa eitthvað fyrir stafni. Og þegar komið er að unglingunum gefast margir foreldrar upp. Unglingurinn er kannski á móti öllu þvi sem pabbi og mamma vilja og margir foreldrar reyna að kaupa sig frá vandanum, t.d. með því að senda unglinginn eitt- hvert annað eða skilja hann eftir heima, þó það sé ef til vill alls ekki tímabært." Nanna segist vita til þess að hjón eða pör kvíði því að fara saman í frí, því þau óttist að þá komi vanda- málin upp á yfirborðið og samband- inu ljúki. „Enda er frí einn af álags- punktunum í samböndum, þá reynir oft á hvernig parinu líður saman án þess að til komi kröfur frá daglega umhverfinu. Auðvitað getur vel- heppnað frí einnig gert gæfumuninn. Parið nær að tala og vinna saman og finnur þá oft vissan samhljóm sem ekki er alltaf sýnilegur í dagsins önn. Þetta styrkir sambandið. Fólk verður hins vegar að hafa það í huga að vandamálin leysast ekki sjálfkrafa í fríinu, það verður að takast á við þau.“ Er ekki eitthvað að þegar fólk flykkist í svokallaðar kvenna- og karlaferðir, í stað þess að fara saman í frí? „Það þarf ekki að vera. Þetta er nú ef til vill meira tíðarandinn að draga alla hópa á sérstaka bása. En það getur verið merki þess að fólk eigi orðið fátt sameiginlegt þegar það sækir eingöngu í svona ferðir. Mestu máli skiptir að ná jafnvægi í sam- bandinu, að geta notið þess að ferð- ast með maka sínum, svo og án hans.“ Flestir hvílast vel „Vissulega þekki ég það að fólk þurfi að leita læknis í kjölfar ferða- laga en þeir eru þó miklu fleiri sem snúa endumærðir heim,“ segir Ólaf- ur Mixa heimilislæknir. Hann segir það helst þá sem fari í stutt frí sem hvílist lítið sem ekkert og þurfi jafn- vel á læknisaðstoð að halda. „Yfir- leitt er mikill erill hjá fólki áður en það fer í frí og því líða oft nokkrir dagar áður en það nær að slappa af. í stuttum fríum er slík afslöppun stundum rétt hafin þegar lagt er af stað heim og þá vill líkaminn ekki alltaf gefa eftir þá hvíld sem honum ber. Þá geta ýmis þreytueinkenni komið í Ijós, svo sem spenna, svefn- truflanir og þreytutilfinning sem getur lýst sér í vöðvabólgum. Því tel ég fólki hollast að taka sér nógu langt frí, svo að það nái að hvílast.“ „Yfírleitt sýnist mér fólk hvílast vel í fríum og koma heldur hressara til baka,“ segir Pétur Pétursson, heilsugæslulæknir á Akureyri. „Það er þá helst ungt fólk með losaralegan lífsstíl sem lendir í hremmingum; kynsjúkdómum og slysum. Á sumrin flykkjast sunnanmenn hingað í sólina og þá vill brenna við að þeir leiti til okkar, aðallega af þremur ástæðum: í sólinni og þurrkinum kemur í ljós að þeir eru með fijókornaofnæmi sem sunnanrigningin heldur niðri, þeir brenna í sólinni þar sem þeir eru ekki vanir að þurfa að gera viðeig- andi ráðstafanir eða þá að þeir gleymdu meðulunum sínum í öllum flýtinum hingað. En þetta eru auðvit- að atriði sem geta gert fríið óskemmtilegt. Af öðrum fylgikvillum er fátt að segja, nema ef vera skyldi einn og einn sem hefur fengið í bak- ið og svo menn sem fá í fæturna af öllu labbinu þegar þeir fara í ijúpna- veiði á haustin." Yfirspennt í vinnu og fríi Það sem Jóhönnu S. Sigurðardótt- ur, sjúkraþjálfara, dettur fyrst í hug þegar hún heyrir minnst á frí er þeytingur. „Ótrúlega margir þeytast frá einum stað til annars án þess að vera nægilega vel undirbúnir. Margir leita til mín, ýmist fyrir ferðalög og biðja mig um að losa sig við vöðva- bólguna áður en lagt er í hann, eða þeir koma eftir fríið í leit að bata.“ Jóhanna segir að það sem helst hijái þá ferðalanga sem til hennar leiti, sé vöðvabólga, höfuð,- bak,- og fótaverkir, öndunartruflanir og hjart- sláttartruflanir. „Þetta fólk leitar fyrst til læknis, sem fínnur ekkert alvarlegt að líkamsstarfseminni og síðasti möguleikinn er því sá að um sé að ræða vöðvaspennu. Líkaminn tjáir hvemig okkur líður, það er ekki hægt að skilja að líkama og sál. Vöðvaspennan er oft merki um streitu. Oftast er það sama fólkið sem er yfírspennt í vinnu og yfírspennt í fríinu. Til þess að njóta þess að vera í fríi verður þetta fólk því að ná jafnvægi á daglega Iífíð,“ segir Jóhanna. - Eins og dýr í varnarstöðu eða árásarhug Eru einhveijar ferðir öðrum erfið- ari? „Ætli það séu ekki „flug og bíll“-ferðirnar svokölluðu. Margir sem í þær fara ætla sér að skoða allt of margt. Þá er stundum aðeins einn bílstjóri en langkeyrsla er ákaf- lega erfið fyrir líkamann. Keyrsla á hraðbraut er gífurlegur streituvaldur og sá sem les af leiðakortinu er einn- ig undir álagi því mistök geta kostað marga klukkutíma krók og pirring samferðamannanna. Meðal helstu viðbragða líkamans við álagi eru hraðari hjartsláttur og öndun auk þess sem ljósop augnanna víkka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.