Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992 Borgarstjórn: Lagt til að breyta um- gjörð verks- ins Sólfars Menningarmálanefnd Reykja- víkur hefur lagt til að umgjörð verksins Sólfars við Sæbraut verði endurhönnuð i samráði við handhafa höfundarréttar og menningarmálanefnd. í greinar- gerð Gunnars B. Kvarans, for- stöðumanns listasafna Reykja- víkur, sem lögð var fram á fundi nefndarinnar, segir að víst sé að umgjörð verksins sé orðin hluti af listaverkinu sem því miður skerði frummerkingu og höfund- arsérkenni Sólfarsins. Tillaga menningarmálanefndar var sam- þykkt á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld. í greinargerð Gunnars B. Kvar- an kemur fram að greinilegt sé að verkið Sólfar standi of lágt auk þess sem steinveggur skyggi óþarflega mikið á verkið séð frá Sæbraut. Súlurnar framan við þrengi að verkinu og byrgi áhorf- endum sýn. Auk þess sé ljóst að súlurnar, sem menningarsögulega hafi mjög skýrar táknfræðilegar tilvísanir, geti truflað og jafnvel afvegaleitt merkingu verksins. Hætta sé á að áhorfendur túlki súlurnar sem öndvegissúlur sem breyti inntaki bátsformsins í eins konar víkingaskip. Þá sé ennfrem- ur hætta á að súlurnar virki líkt og hlið eða inngangur inn á svæði verksins. Vert sé einnig að minna á að hönnuðirnir hafi gert undir- stöðu verksins hringlaga en frum- myndin sem varðveitt sé á Kjárv- alsstöðum hafi ferhyrnda undir- stöðu í dökkum lit. Brottför 12. okt. 2 vikur. Uppgötvaðu einstaka töfra Karíbahafsins og njóttu þess að dvelja um borð í einu glæsilegasta skemmtiferðaskipi veraldar MS NORWAY. Sex daga dvöl í Florida. ti Brottför 15. ágúst. 2 vikur. y Mósel- og Rínardalur, Heidelberg, Svartiskógur (y og Miinchen. Sé Fararstjóri: Friðrik G. Friðrik*^ W V i Brottför 3. sept. 16 dagar. Tignarleiki Alpanna og heillandi fegurð Rínar láta engan ósnortin. Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir Reykjavík- urpassi fyrir ferðamenn í UNDIRBÚNINGI er útgáfa á Reykjavíkurpassa fyrir erlenda og innlenda ferðamenn. Passinn mun veita afslátt af aðgangseyri að listasöfnum borgarinnar, far- gjaldi strætisvagna, í sundlaug- ar, í Húsdýragarðinn og að væntanlegum Fjölskyldurgarði í Laugardal. Að sögn Olafs Jóns- sonar, upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar, er gert ráð fyrir að verð passans miðist við dollar og að það verði 6 dollarar fyrir dagspassa eða um 330 krónur miðað við núverandi gengi. Ólafur sagði, að boðið yrði upp á sameiginlegan ferðamanna- passa, sem gildir í einn til þijá daga og lækkar verð passans í hlutfalli við dagafjölda. Miðað er við að passinn verði tilbúinn og til sölu í haust þannig að ferðaskrif- stofur gætu kynnt erlendum ferða- mönnum þennan möguleika í ferðatilboðum næsta árs. „Passinn miðast ekki eingöngu við erlenda ferðamenn, íslendingar munu einnig geta notfært sér þennan möguleika," sagði Ólafur. Reykjavíkurpassinn verður til sölu á ferðaskrifstofum, á hótelum og á upplýsingamiðstöð ferða- manna í Reykjavík. Hann mun veita afslátt að Kjarvalsstöðum, Ásmundarsafni, Árbæjarsafni, sundstöðum borgarinnar, Hús- dýragarðinum, Fjölskyldugarðin- um í Laugardal eftir að hann hefur verið tekinn í notkun og hugsan- lega að skautasvellinu í Laugardal að vetri til. Brottför 9. sept. 16 dagar. Uppgötvaðu töfra Kanada og austurstrandar Bandaríkjanna. Fararstjóri: Ragnhildur Vigfúsdóttir Brottför 15. nov. 16 dagar. Jerúsalem, Dauðahafið, Jeríkó, Nazareth og Getsemanegarðurinn. Ferð til Landsins helga á söguslóðir Biblíunnar er upplifun sem þú gleymir aldrei. Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir m Brottför 3. okt. Ein vika. Vínuppskeruhátíðir í Mósel- og Rínar- dalnum eru engu líkar. Sannkölluð veisluferð. Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson ■vi. "II «oiKLI^.l4plH Brottför 14. ágúst. 2 vikur. Heimsborgin London, borg ástarinnar París og þar á milli eitt óslitið ævintýri. Fararstjóri: Lilja Hilm^*" ^DV t' **.r. - fít ► " Brottför 2. nóv. 3 vikur. Áhyggjulaust strandlíf og í|í spennandi kynnisferðir á vit heillandi menningar Mayanna. Fararstjóri: Svavar Lárusson Brottför 12. sept. 2 vikur. Skemmtisigling um Karíbahafið. Heillandi hitabeltiseyjar, munaður um borð í glæsilegu skemmtiferðaskipi og vikudvöl í Florida. IðlUS ttlll| y |}IU lini i>A »y Im m í'fii £ n iiil j m w i 13 V (Kalifornia Colorado) Brottför 30. sept. 19 dagar. Tvö af fegurstu ríkjum Bandaríkjanna. Sierra Nevada fjallgarðurinn, Los Angeles, San Francisco, Las Vegas, Grand Canyon þjóðgarðurinn og þá er aðeins fátt eitt talið. Fararstjóri: Ragnhildur Vigfúsdóttir ^fÚRVAL-ÚTSÝN / Mjódd: sími 699 300; við Austurvöll: sími 2 69 00 í Hafnarfirði: stmi 65 23 66; við Ráðhústorg á Akureyri: sími 2 90 00 - og hjá umboðsmönnum um land allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.