Morgunblaðið - 05.07.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992
l lil IkIai s
KVIKMYNDAÐUR
í EISTLANDI
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Guðmundur Steinsson, höfundur Lúkasar. Hann heldur á krossinum sem Lúkas, glataði sonurinn, gefur
hjónunum og notaður er í kvikmyndinni. Einnig má sjá nokkur blóm úr myndinni.
eftir Elínu Pólmodóttur
Nýlega var lokið í Eistlandi
tökum á kvikmyndinni Lúkas,
sem byggð er á leikriti
Guðmundar Steinssonar rit-
höfundar og verður væntan-
lega frumsýnd í Tallin í sept-
ember og skömmu seinna hér
á íslandi. Leikritið Lúkas
skrifaði Guðmundur 1975 og
hefur það verið sýnt á sviði
hér heima og á nokkrum stöð-
um erlendis. Freyja film í
Eistlandi gerir myndina með
þekktum leikurum þar austur
frá. Leikstjórinn Tönu Vivre
og allir aðrir sem að mynd-
inni standa eru eistlenskir,
nema Guðmundur Steinsson,
sem skifaði handritið og hef-
ur nú síðast verið við tökum-
ar í fjórar vikur. Umboðs-
maður Guðmundar í Dan-
mörku hefur tekið að sér
markaðssetninguna á Vestur-
löndum og er myndin þannig
eistlensk-íslensk-dönsk sam-
vinna og samstarfsaðilinn
Frigg Film. Við leituðum
frétta hjá Guðmundi Steins-
syni af töku þessarar fyrstu
kvikmyndar eftir íslenskan
höfund sem Eistlendingar
gera.
Af kynningu Freyja fílm,
þessa fyrsta óháða kvik-
myndafyrirtækis Eistlend-
inga, má sjá að efnið höfð-
ar nyög til þeirra. Þar seg-
ir m.a.: „Öldruð hjón, Al-
bert og Elísabet, eiga von á gesti,
Lúkasi, til kvöldverðar. Hinn fjar-
stæði söguþráður endurspeglar
heimkomu glataða sonarins, en
sýnir um leið valdabaráttuna milli
hinna undirokuðu og harðstjórans,
Viðtal við
höfundinn,
Guðmund
Steinsson
sem næg dæmi eru um í mann-
kynssögunni." Og maður slær því
snarlega föstu að hugmyndina og
þennan mikla áhuga á að gera
kvikmynd um Lúkas einmitt nú
megi rekja til þess hve hann hittir
í mark þeirra eigin upplifunar og
raunveruleika.
Guðmundur kímir bara að
þessu, enda Lúkas margbrotnara
verk en svo að auðvelt sé að setja
það á bás, og vekur athygli á að
á þessari kenningu sé sá hængur
að þetta hafí verið komið til áður
en Eistlendingar losnuðu undan
harðstjóm Sovétríkjanna. Kynn-
ingin heldur líka áfram: „Hliðrunin
milli fjölskyldunálægðar annars
vegar og hins vegar þess altæka
vegur hámákvæmt salt. Og hvem-
ig Lúkas heijar á þessi óttaslegnu
og virðingarverðu hjón vekur upp
spumingu: Lifum við raunverlega
lífí okkar eins og það er eða höld-
um við bara að við gemm það?“
„Upphaflega komst leikritið í
enskri þýðingu í hendur Arvos
Alas, sem er þýðandi og bók-
menntamaður, lagði fyrir sig nor-
ræn mál í Leningrad, m.a. ís-
lensku, og hefur þýtt Grettlu,“
segir Guðmundur. Arvos útvegaði
sér íslenska textann og þýddi verk-
ið. Hann hafði svo samband við
leikhús í Eistlandi, sem sýndi
áhuga á að setja verkið á svið.
Fyrirstaðan var þó sú að það þarf
mat á hveija sýningu og í landinu
var matarskortur. Málið komst því
ekki á hreyfingu. Þetta var fyrir
einum 4-5 árum“.
Hér er rétt að skjóta inn í að
nú, eftir að Eistlendingar hafa
fengið frelsi, hefur Arvos Alas
verið gerður sendiherra Eistlands
í Noregi, Danmörku og á íslandi
með aðsetri í Kaupmannahöfn og
kom hann til að afhenda forseta
íslands skilríki sín í febrúar sl.
Til gamans segir Guðmundur
Steinsson frá því þegar hann kom
til Danmerkur í annað skiptið til
þess að fara með honum til Eist-
lands, þá kvaðst hann verða að
fara að máta nýjan frakka til
mæta í hjá Danadrottningu. Þótti
þeim báðum þetta dálítið skondin
umskipti.
Þegar Arvo Alas hitti seinna
kvikmyndaleikstjórann Tonu
Vivre, kvaðst hann telja Lúkas
upplagt efni í kvikmynd. Þeir lásu
verkið saman með kvikmyndtöku-
manninum Mait Maekivi, sem
jafnan vinnur með Tonu Vivre.
Hann fékk þarmeð áhuga á að
gera þessa kvikmynd. Þá var hið
ríkisrekna Tallin-fílm að leysast
upp og Vivre og Raymond Feld,
sem lengi hafði verið hjá Tallin,
búnir að stofna nýtt fyrirtæki,
fyrsta sjálfstæða kvikmyndafélag-
ið í landinu og gera eina kvik-
mynd. Nafnið kom til með nokkuð
skemmtilegum hætti. Kvikmynda-
stjórinn hafði nýlega eignast dótt-
ur og vildi skýra hana Freyju, en
móðirin harðneitaði því. Svo hann
færði nafnið bara yfír á annan
hvítvoðung, nýja kvikmyndafélag-
ið. Þýðandinn hafði samband við