Morgunblaðið - 05.07.1992, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.07.1992, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MININUNGAR SUNNUUAGUR 5. JÚLÍ 1992 v Minning: Kristjana Jóns- dóttírkennari Fædd 5. ágúst 1900 Dáin 25. júní 1992 Lát Kristjönu frá Sólheimum kom engum á óvart sem til þekktu. Hún var orðin háöldruð og smám saman þvarr þrek hennar, þar sem hún dvaldist á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík. Kristjana var fædd í Steig í Mýr- dal 5. ágúst 1900. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Þorsteinsson og Sigríður Þorsteinsdóttir. Kristjana var fjórða í röðinni af átta systkin- um, sem upp komust. Á öðru aldurs- ári var hún tekin i fóstur á Eystri- Sólheimum í Mýrdal og þar var hennar æskuheimili. Rúmlega tví- tug að aldri settist hún í Kennara- skólann og lauk kennaraprófi 1924. Eftir það varð kennsla ævistarf hennar í hartnær hálfa öld. Fyrsta veturinn kenndi hún á Búðum á Snæfellsnesi en 1925-1927 í Gaul- veijarbæjarhreppi. Árið 1927 hóf hún svo kennslu í Kirkjubæjar- hreppi í Vestur-Skaftafellssýslu og þar kynntist hún manni sínum, Magnúsi Auðunssyni frá Eystri- Dalbæ í Landbroti. Árið 1934 reistu þau nýbýlið Sólheima í landi Fagur- hlíðar í Landbroti. Þar stóð heimili þeirra þar til Magnús lést, snemma árs 1966. Þá um haustið brá Krist- jana búi og fluttist til Reykjavíkur. Þau Magnús eignuðust tvö börn, Guðrúnu Sigríði cand. mag., sér- fræðing á Ömefnastofnun: hennar maður er Bjöm Jónsson skólastjóri og eiga þau tvö böm, Magnús Jón tannlækni og Heiði, nema í viðskipt- afræði. Yngra bam þeirra Kristjönu og Magnúsar er Helgi, BA í ís- lensku og sögu. Hann er starfsmað- ur hjá bókaforlaginu Emi og Örlygi » og hefur þar tekið þátt í ritstjóm öndvegisverka á sviði sögu og land- afræði. Má þar til nefna Landið þitt og íslandshandbókina. Eg kom nemandi í skólann til Kristjönu í Þykkvabæ í Landbroti þegar ég var níu ára. Um þriggja kílómetra ieið var milli heimilis míns og skólans og lá leiðin um Landbrotshólana. Það gat verið æði stautsamt fýrir svo ungan mann að fara þessa leið, einkum ef mikill snjór var eða slabb í leysingum. Þá var gott til þess að vita að miðja vegu á leið í skólann bjó kennarinn, og átti það til að hinkra og gá vel í kringum sig í morgunskímunni við Peningalaut, áður en hún hélt eftir skorningunum niður í Hest- lækjargilið, til að gá að því hvort sveinsstauli væri að pjakka í sköfl- unum. Þetta var áður en skólabílar komu til sögu og löngu áður en farið var að fella niður kennslu vegna veðurs. Kennt var í skólastofu í vestur- enda íbúðarhússins í Þykkvabæ. Þama vora í sömu stofunni böm frá tíu ára aldri og upp að ferm- ingu, sum að stíga sín fýrstu spor í skóla og önnur að ljúka fullnaðar- prófi. Hópurinn var því býsna sund- urieitur. Kristjana lagði mikla áherslu á að uppfylla þarfir og ósk- ir þeirra allra og fórst það frábær- lega vel úr hendi. Henni tókst að láta öll bömin vera sívinnandi í tímum, þótt við- fangsefnin væra misjöfn. Hún hafði einstakt lag á að laða það besta fram í hveijum nemenda og um hana mátti segja hið sama og sagt var forðum: Ollum kom hún til nokkurs þroska. Síðan hefi ég haft marga kennara og enginn komst með tæmar þar sem hún hafði hæjana. Ég held að tvennt sé mér minnis- stæðast úr kennslu hennar. Annað er hve gott samband myndaðist milli hennar og drengs í skólanum, sem orð lék á að væri góður í teikn- ingu. Hann heitir Guðmundur Guð- mundsson, nú þekktari sem Erró. t KRISTJANA JÓNSDÓTTIR kennari frá Sólheimum f Landbroti, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. júlí kl. 13.30. Helgi Magnússon, Guðrún S. Magnúsdóttir, Björn Jónsson, Heiður A. Björnsdóttir, Magnús J. Björnsson. t Útför systur okkar, RANNVEIGAR BJARNADÓTTUR frá Hörgsdal á Siðu, verður gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu fimmtudaginn 9. júlí nk. kl. 14.00. Fyrir hönd systkinanna, Helga Bjarnadóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR AUÐUNS, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 7. júlí kl. 15.00. Sigríður Torfadóttir, Auður Torfadóttir, Sigurður Gústavsson, Torfi Sigurðsson, Gústav Sigurðsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, SIGURÐUR EINARSSON, Ásgarðl 165, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 7. júlíkl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess. Ellen Svava Stefánsdóttir, börn og tengdabörn. Kristjana kenndi bæði teikningu og handavinnu í skólanum, eins og allt annað. Hún skildi vel löngun hans til að teikna og ekki var trútt um að hann fengi stöku sinnum að sinna hugarefni sínu þegar aðrir voru látnir skrifa eða gera eitthvað því Iíkt. Kristjana hvatti hann raun- ar óspart til að teikna hvenær sem færi gafst. Ef til vill fann hún eitt- hvað af sjálfri sér í honum, því þegar hún var komin á eftirlaun tók hún sig til og settist á skólabekk til að læra myndlist og þar lék allt í höndum hennar. Hitt sem mér er minnisstætt, og raunar ógleymanlegt, var þegar hún tók sér í hönd bók landkönnuð- arins Sven Hedin, og þýddi úr henni og las upp fyrir okkur krakkana jafnharðan. Svo gott vald hafði hún á því tungumáli sem bókin var skrif- uð á að þar varð aldrei neinn hnökri á og þar við bættist að Kristjana talaði ákaflega gott og auðugt ís- lenskt mál. Þessar stundir voru ógleymanlegar. Þá urðu dýrin úr dýrafræðinni og ævintýraborgir Austurlanda úr landafræðinni ljós- lifandi fyrir hugskotssjónum okkar heimalninganna. Eftir að störfum hennar lauk í sveitinni heima og hún fluttist til Reykjavíkur hófst nýr en stuttur og farsæll kafli í lífi hennar. Hún hóf kennslu við Landakotsskólann í Reykjavík og stundaði hana þar til hún varð að hætta vegna aldurs. Til þess þurfti mikinn kjark, því vissulega hlaut viðmót borgar- bamsins að vera talsvert ólíkt því sem hún hafði vanist eystra. En á örskömmum tíma ávann hún sér traust og virðingu bamanna svo haft var á orði. Þar sannaðist að böm era böm og kennarar kennar- ar, hvar sem er. Eftir að kennslu lauk settist hún sjálf á skólabekk og stundaði mynd- listamám, eins og áður segir. I því fékk hún mikla lífsfyllingu og átti eftir mörg góð ár til að sinna hugð- arefnum sínum. Hún bjó með Helga syni sínum, enda áttu þau mörg sameiginleg áhugamál. Hálfníræð fór hún að kenna lasleika og 1987 fluttist hún á hjúkranardeiid Hrafn- istu í Reykjavík og naut þar góðrar ummönnunar, uns yfir lauk. Ég votta bömum hennar og öðr- um aðstandendum samúð mína. Góð kona er gengin. Magnús Bjarnfreðson. Kristjana Jónsdóttir kennari, sem á morgun verður kvödd í Fossvogs- kirkju, var fædd hinn 5. ágúst árið 1900 í Steig í Mýrdal, svo að hún var nær 92 ára þegar hún andaðist hinn 25. júní síðastliðinn. Foreldrar Kristjönu vora hjónin Jón Þorsteinsson bóndi í Steig og Sigríður Þorsteinsdóttir frá Neðra- Dal í Mýrdal, en Kristjana ólst upp á Eystri-Sólheimum í Mýrdal hjá Ólafi H. Jónssyni bónda þar og kennara og konu hans, Sigríði Þor- steinsdóttur. Árið 1924 lauk Krist- jana kennaraprófi frá Kennaraskól- anum og kenndi síðan nær óslitið í 46 ár. Fyrst kenndi hún eitt ár (1924—25) á Búðum á Snæfells- nesi, síðan tvö ár (1925-27) í Gaul- verjabæ í Ámessýslu, 39 ár (1927-66) í Kirkjubæjarhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu (launalaust leyfi í tvö ár) og að lokum í fjögur ár (1966-70) við Landakotsskólann í Reykjavík. Hún átti því óvenju langan kennaraferil að baki. Árið 1932 giftist Kristjana Magn- úsi Auðunssyni frá Eystri-Dalbæ í Landbroti en hann lést árið 1966. Þau Kristjana og Magnús eignuðust tvö böm, Guðrúnu Sigríði, f. 1934, og Helga, f. 1946. Þar sem ég get ekki verið við kveðjuathöfn þessarar mætu konu vil ég með örfáum orð- um rifja upp fom kynni og þakka henni fyrir góða viðkynningu og trausta vináttu. Mér er ákaflega minnisstæður sumardagurinn fyrsti árið 1964. í desember árið 1963 hafði ég tekið við prestsþjónustu í Kirkjubæjar- klausturprestakalli og sem jafnan á þeim dögum var sóknarpresturinn skripaður prófdómari við bamaskól- ana í prestakallinu. Þessi starfi leiddi til kynna við kennara hrepps- ins, Kristjönu Jónsdóttur, en hún bjó þá með eiginmanni sínum, Magnúsi Auðunssyni, greindum bónda og gegnum, á Sólheimum í Landbroti, sem var nýbýli þeirra hjóna og kennt við Sólheima í Mýr- dal þar sem Kristjana ólst upp. Þeg- ar hér var komið sögu vora börn þeirra hjóna flogin úr hreiðri, enda hjónin bæði komin á sjötugsaldur. Prófdagamir sannfærðu mig um frábæra kennslu Kristjönu — ég minnist þess t.d. hvað öll bömin höfðu fallega rithönd — en umfram allt hvað hún átti létt með að laða það besta fram hjá hveijum nem- anda, undur glögg á hæfileika hvers og eins, enda gjörþekkti hún bömin og allt bakland þeirra. Sú hefð hafði skapast í Kirkju- bæjarhreppi að skólaslit vora jafnan á sumardaginn fyrsta. Fjölmenntu þá nemendur, foreldrar og sveitung- ar á skólauppsögnina, en kennari og nemendur höfðu undirbúið fjöl- breytta dagskrá í tilefni dagsins, og teikningar og handavinna nem- enda þakti veggi og borð skólastof- unnar. Allt var þetta eftirtektarvert og nýstárlegt í mínum augum. Þó ekki síst dagskráin, þegar nemendur komu fram á sviðið og stóðu heiðursvörð undir bláhvítum fána + Elsku litli sonur okkar og bróðir, GEORG AXELHANNAH, Vallholti 13, Akranesi, sem lést í Sjúkrahúsi Akraness 19. júní, var jarðsunginn frá Foss- vogskapellu 30. júní. Svandfs Rögnvaldsdóttir, Guðmundur B. Hannah, Rögnvaldur Geir Hannah. Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR HALLGRÍMSDÓTTUR, frá Grfmsstöðum á Mýrum, verður gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. júlí kl. 13.30. Ingveldur L. Gröndal, Halldór S. Gröndal, Guðmundur Áki Lúðvígsson, Hjördfs Geirdal, Sigrfður Steinunn Lúðvígsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ungmennafélaganna, en nokkrir úr hópnum fluttu kvæði Jónasar Hall- grímssonar, hvar í era þessi orð: „Bóndi er bústólpi, / bú er land- stólpi, / því skal hann virður vel.“ Það fór ekki milli mála hvaða hug- sjónir skópu umgerð dagsins og þess starfs, sem unnið hafði verið frá því skóli hafði verið settur um veturnætur. Kristjana Jónsdóttir var ein úr hópi þeirra góðu kennara, sem komu úr Kennaraskólanum á áranum milli stríða, mótaðir af hugsjónum þeirra séra Magnúsar Helgasonar og Frey- steins Gunnarssonar og fluttu síðan að námi loknu fróðleiksþyrstum æskulýð menningu og mennt. Á þessum áram sóttu margir greindir en efnalitnir unglingar nám í Kenn- araskólann, eigandi ekki kost á frek- ara langskólanámi. Kristjana minnir mig raunar á aðra skaftfellska kennslukonu, Guð- rúnu Jónsdóttur frá Skál á Síðu, sem kenndi við Landakotsskólann í ára- tugi. Fom tengsl og vinátta þeirra Guðrúnar og Kristjönu munu heldur ekki hafa spillt, að Kristjana fékk kennslu við Landakotsskólann haustið 1966, þegar hún flutti til Reykjavíkur. Mér er kunnugt um, að í Landakotsskólanum naut hún mikils álits og trausts. Og það var Kristjana, sem eitt sinn er þær vora að rabba saman vinkonumar, hún og Guðrún frá Skál, stakk upp á því við Guðrúnu að hún gæfi Kirkju- bæjarskóla bókasafn sitt vandað og gott. Þar stendur því skólinn í mik- illi þakkarskuld við þær stöllur báð- ar. Jökull Jakobsson rithöfundur tal- ar um það í ágætri minningargrein um Guðrúnu Jónsdóttur í Morgun- blaðinu, hvað hún hafi vakið sterka þjóðemiskennd með nemendum sín- um, en hefði þó í rauninni aldrei tekið sér í munn orð eins og fóstur- land eða ættjörð. Þannig held ég líka að Kristjana hafi kennt — kom- ið því sem hún vildi til skila án þess að beita „hrárri" innrætingu, ef svo má segja. í nær 40 ár kenndi Kristjana í Kirkjubæjarhreppi — öll árin við framstæðar aðstæður, og í rauninni við miklu framstæðari en hún átti skilið, svo frábær kennari sem hún var. Þó skal þess getið, að á marg- an hátt gætti þama þó meiri skiln- ings á skólastarfi en víða annars staðar í sveitum, og bjó þar að arfi þeirra séra Magnúsar Bjamasonar á Prestsbakka og Elíasar Bjama- sonar kennara, er samdi hina lands- kunnu reikningsbók. Þá má heldur ekki gleyma hinum smitandi áhuga Kristjönu og fleiri góðra manna — ekki síst kvenna. Kristjana stóð tryggan vörð um skóla sinn og nem- endur áttu sannarlega hauk í homi þar sem hún var. Minnist ég í því sambandi lítils atviks frá fyrstu áram mínum á Kirkjubæjarklaustri, en ég hafði þá verið skipaður skólanefndarformað- ur eins og nær einhlítt var um sókn- arpresta. Einn morgun er knúið dyra á prestssetri og á hlaðinu stendur Kristjana með nemendahóp sinn — komin til að flytja formanni þá fregn að skólinn hafi ekki verið þrifinn í tvo daga og verði kennsla því felld niður og nemendur sendir heim. Allt var þetta sagt með fullri vinsemd en með þeirri festu, sem henni var lagin. Fóram við svo sam- an til oddvitans, Siggeirs Lárasson- ar, sem með Ijúfmennsku sinni greiddi fljótt og vel úr málum. Oft hefur mér fundist þetta litla atvik varpa ljósi á hina hreinskiptnu af- stöðu Kristjönu til skóla síns og samstarfsfólks. Þótt samvinnan við Kristjönu stæði ekki í mörg ár þá var hún öll þess eðlis, að ég er ákaflega þakk- látur fyrir að hafa kynnst henni. í huga mínum fyllir hún flokk þess úrvalshóps karla og kvenna, sem áttu sín þroskaár á fyrstu tugum aldarinnar og dreifðu síðan kringum sig manndómi og menningu og sættu sig aldrei við doðann og drangann er einatt vildi setjast á herðar þeirra, sem um árabil öttu kappi við fásinni íslenskra sveita. Ég bið guð að blessa minningu Kristjönu Jónsdóttur. Fjölskyldu hennar færam við Jóna hugheilar samúðarkveðjur. Lissabon í júní. Siguijón Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.