Morgunblaðið - 05.07.1992, Síða 32
Hraðari póstsendingar milli landstiluta 6Mb Regiubimdinn M/# spamaður
4tSs> PÓSTUR OG SlMI M Landsbanki Mk íslands MmJM Bankl allra landsmanna
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMl 091100, SIMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 15S5 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 5. JULI 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Eistlendingar
gera kvikmynd:
Islending-
ur samdi
handritið
EISTLENDIN G AR hafa gert
kvikmynd eftir handriti Guð-
mundar Steinssonar, sem byggt
er á leikriti hans Lúkas. Lauk
tökum á myndinni i lok maí sl.
og verður hún frumsýnd í sept-
ember í Tallin og skömmu síðar
á íslandi. Þar sem Guðmundur
er höfundur myndarinnar og
danskur umboðsmaður annast
dreifingu á Vesturlöndum, er
þetta eistlensk-íslensk-dönsk
samvinna. Þetta er fyrsta kvik-
myndin sem Eistlendingar gera
eftir íslenskan rithöfund.
Það er kvikmyndastjórinn Tonu
Vivre sem gerir myndina og hlut-
verkin eru í höndum þriggja
þekktra leikara austur þar, Juris
Jarvets, Itu Ever og Ain Lutseps.
Þýðinguna á handriti Guðmundar
gerði Arvo Alas, sem síðar varð
sendiherra Eistlands í Kaupmanna-
höfn eftir að þeir losnuðu undan
Sovétríkjunum.
Sjá frásögn og viðtal við Guð-
mund Steinsson á bls. 18.
Morgunblaðið/Bjami
Þyrla Landhelgisgæslunnar leggur af stað til Reykjavíkur með þann þremenninganna sem slasaðist mest.
Bílvelta í Kjós:
Tveir alvarlega slasaðir
FÓLKSBÍLL með þremur far- og var annar af þeim fluttur Samkvæmt upplýsingum lög- og mun ökumaður bílsins hafa
þegum fór út af veginum í með þyrlu Landhelgisgæsl- reglunnar varð slysið á móts við misst stjórn á honum í beygj-
Kjós um klukkan 10 á laugar- unnar á slysadeild en hinn og afleggjarann af þjóðvegi 1 í átt unni með fyrrgreindum afleið-
dagsmorguninn. Tveir far- þriðji farþeginn með sjúkra- að Meðalfellsvatni. Á þessum ingum.
þeganna slösuðust alvarlega bíl. stað er kröpp beygja á veginum
Bílarnir voru rispaðir á öllum hliðum og toppi. Morgunbiaðið/Árni Sæberg
Fimm bílar skemmdir
FIMM bílar voru skemmdir á
Sunnuvegi aðfaranótt laugar-
dags með því að lakk á bílunum
var rispað.
Þær upplýsingar fengust hjá lög-
reglunni í Reykjavík að íbúar við
Sunnuveg hefðu komið að fimm
bflum illa rispuðum í gærmorgun.
Tilkynnt var um þessi skemmdar-
verk til lögreglunnar í Reykjavík í
gærmorgun en engin vísbending er
um hver framdi verknaðinn þar sem
enginn sjónarvottur hefur komið
fram. Slíkar skemmdir á lakki bfla
eru mikið tjón fyrir bílaeigendur.
Ein fjölskylda átti tvo bílanna og
er yón hennar metið á hundruð
þúsunda króna.
Hundruð manna leituðu að týndri smáflugvél:
Flugvélin fannst norð-
ur af Tindfjallajökli
VÍÐTÆK leit stóð yfir að lítilli einshreyfils flugvél TF-IVI frá því
á aðfaranótt laugardagsins og fram til klukkan rúmlega 14 á laug-
ardag. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann þá flugvélina um 20-30
km norður af Tindfjallajökli. Er Morgunblaðið fór í prentun á laug-
ardag höfðu ekki borist staðfestar fregnir af afdrifum flugmanns-
ins um borð í vélinni.
Björgunarsveitir af öllu Suðurland-
sundirlendinu, höfuðborgarsvæð-
inu og Borgarfírði voru kallaðar
út og á laugardag tóku nokkur
hundruð manns þátt í leitinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
björgunarmiðstöð Flugmálastjórn-
Gífurleg ölvun og ólæti á Þingvöllum:
Kalla þurfti til liðstyrk
lögreglu frá Reylriavík
GÍFURLEG ölvun og ólæti urðu á tjaldsvæðinu á Þingvöllum aðfara-
nótt laugardagsins, svo mikil að lögreglan á Selfossi þurfti að kalla
til liðstyrk lögreglumanna frá Reykjavík. Sendi Reykjavíkurlögregl-
an tvo bíla og tíu menn austur á Þingvöll til að hafa hemil á verstu
óeirðaseggjunum og til að keyra ofurölvi fólk til síns heima.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Selfossi var margt fólk
saman komið á tjaldsvæðum þjóð-
garðsins. Lögreglan hafði þar tvo
menn fyrri hluta nætur en um
klukkan 1.30 um nóttina óskaði
þjóðgarðsvörður eftir fleiri lögregl-
umönnum til að koma ölvuðu fólki
út úr þjóðgarðinum. Tveir menn
voru sendir til viðbótar frá Selfossi
en er þeir komu á staðinn var
ástandið orðið þannig að ákveðið
var að leita eftir aðstoð Reykjavík-
urlögreglunnar. Stóðu lætin á tjald-
svæðinu síðan fram undir morgun.
Hanna María Pétursdóttir þjóð-
garðsvörður segir að um ungt fólk
hafí verið að ræða og ölvunin mest
í ákveðnum hópi þeirra sem mun
hafa ætlað sér að fara í Þórsmörk
en ekki komist þar sem tjaldstæðin
þar hafí fyllst. „Það var ekki um
annað að ræða en að koma þessu
fólki út af tjaldstæðinu hérna með
aðstoð lögreglunnar, enda truflaði
það mjög aðra gesti þjóðgarðsins
með ólátum sínum,“ segir Hanna
María. „Það var unnið að því að
koma fólkinu í bæinn alla nóttina
með aðstoð lögreglu úr Reykjavik."
Að sögn Hönnu urðu engar
skemmdir á þjóðgarðinum vegna
þessara óláta.
ar og Flugbjörgunarsveitarinnar
tók allt tiltækt björgunarlið þátt í
leitinni en þungskýjað veðurfar á
þessum slóðum hamlaði leit úr
lofti.
Flugvélin TF-IVI fór frá Reykja-
vík klukkan 21.34 á föstudags-
kvöld áleiðs í Þórsmörk. Um borð
voru flugmaður og þrír farþegar.
Flugvélin lenti í Þórsmörk um
klukkan 22.00 þar sem farþegam-
ir urðu eftir. Fiugmaðurinn hóf
flug fljótt aftur áleiðis til Reykja-
víkur að því er talið var, en síðan
heyrist ekkert af honum og ekkert
heyrðist í neyðarsendi flugvélar-
innar. TF-IVI er fjögurra sæta
einkaflugvél í eigu sex einstaklinga
í Reykjavík og af gerðinni Cessna
Cardinal.
Er Morgunblaðið ræddi við Elías
Gissurarson, stjórnanda í björgun-
armiðstöðinni, um hádegisbilið á
laugardag var leit komin á fulla
ferð og náði leitarsvæðið á þeim
tíma frá Reykjavík og austur til
Hafnar í Homafirði. „Við emm nú
að skipuleggja þetta svæði nánar
til leitar og höfum kallað út allar
björgunarsveitir á því,“ sagði Elías.
Aðspurður um hvort talið sé að
neyðarsendir flugvélarinnar hafí
ekki farið í gang sagði Elías að
slíkt eigi ekki að geta átt sér stað.
„Það á ekki að geta gerst að neyð-
arsendir flugvélarinnar fari ekki í
gang hafi hún hrapað en það eru
þó til dæmi um slíkt tilvik," segir
Elías.