Morgunblaðið - 14.07.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.07.1992, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JULI 1992 Mývatn: M Akvörðun um útsýnis- bát í haust UMSÓKN um leyfi til að reka útsýnisbát á Mývatni, er lögð var fram af einkaaðila í vor, er nú til umfjöllunar Náttúrurannsóknar- stöðvar Mývatns. Að því loknu mun Náttúruverndarráð funda um málið, en ákvörðun um leyfis- veitingu mun ekki liggja fyrir fyrr en í haust, að sögn Þórodds F. Þóroddssonar, framkvæmda- stjóra Náttúruverndarráðs. Sótt var um leyfí til áætlunarferða með báti milli Skútustaða og Reykja- hlíðar auk þess sem boðið yrði upp á útsýnisferðir um vatnið. Sveitar- stjórn Skútustaðahrepps leitaði um- sagnar Náttúruverndarráðs um leyf- ið. Þóroddur kvaðst reikna með að málið yrði tekið fyrir á fundi Nátt- úrurannsóknarstöðvar Mývatns í þessum mánuði. „Menn ætla að skoða þetta mjög vel,“ sagði hann. „Það þarf að kanna möguleg áhrif á fuglalíf og náttúru. Þá er spurning- in hvers konar bát væri um að ræða, hvar hann megi sigla, hve hratt hann megi fara og fleira." Þóroddur sagði að hagsmunaaðil- ar heima fyrir væru einnig að skoða málið. „Það er líka spurning hvernig ætti að haga leyfisveitingu ef af henni yrði. Hvort það ætti að þýða að einungis yrði leyfður einn bátur eða hvort fleiri aðilum yrði leyft að reka þarna bát.“ Náttúruverndarráð fundar næst í ágústlok, og kvað Þóroddur því ákvörðunar ekki að vænta fyrr en með haustinu. ----» ♦ ♦---- Reykjavík: Hálsbólga af völdum Slökkviliðsmenn að störfum í kjallaranum eftir brunann. Ljósmynd/Ingvar Morgunblaðið/Sverrir Dælt á eldinn í gegnum eld- húsgluggann. Bruni í kjallara Alþýðuhússins SLOKKVILIÐIÐ var kallað að Alþýðuhúsinu svokallaða á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu kl. 17.17 í gær. Eldur hafði orðið laus í skemmtistaðnum Ingólfs- cafe á jarðhæð og reykur gaus út um glugga. Jón Viðar Matth- íasson, varaslökkviliðsstjóri, segir mikla mildi að auðveldlega hafa tekist að komast að upptök- um eldsins og hindra útbreiðslu hans. Töluverðar skemmdir urðu í kjallaranum og reykur barst með lyftuhúsi allt upp á efstu hæð. Jón Viðar sagði að aðkoman hefði verið fremur slæm. Hins vegar hefði verið mikið lán að hægt hefði verið að greina elds- upptök í eldhúsi utanfrá. Reyk- kafarar hefðu getið gengið beint að eldinum og slökkt hann. Hann sagði að upphaflega hefðu menn óttast að missa eldinn upp á efri hæðir hússins í gegnum stokk en oft væru stokkar í göml- um húsum sem þessu. Svo hefði hins vegar ekki verið. Aftur á móti sagði hann að reykur hefði komist í gegnum lyftuhús allt upp á efstu hæð. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út til að ráða niðurlögum eldsins og gekk það greiðlega að sögn Jóns Viðars. Slökkviliðsmennirnir náðu undirtökunum á 10-15 mín- útum. Pjórir slökkviliðsbílar og sjúkrabílar voru til taks. Ekkert fólk var { kjallaranum og fljótt var gengið í að tæma efri hæðir hússins. Jón Viðar sagði að töluverðar brunaskemmdir hefðu orðið í hluta af kjallara hússins en þær væru nokkuð afmarkaðar. Skemmdir af völdum reyks væru annars staðar í kjallaranum og á efri hæðum en ekki miklar. Elds- upptök eru ókunn. Sáum í anda hvað gera þyrfti - segir Anna Friðriksdóttir starfsmaður Landsbókasafns „Við vorum í kaffistofunni. Ég held á lyklunum og segi svona við Ólaf að ég þurfi að fara yfir þegar okkur er litið út um gluggann og við sjáum reykinn,“ sagði Anna Friðriksdóttir, starfs- maður Landsbókasafnsins á Hverfisgötu, en hún og Ólafur Ólafs- son, húsvörður voru meðal þeirra fyrstu sem komu á vettvang. „Við hlupum auðvitað strax af Alþýðuhússins. Ólafur kvaðst stað og sáum í anda hvað við þyrftum að gera,“ sagði Anna og vísaði þá til þess að um helmingur allra erlendra bóka í eigu Lands- bókasafnsins er geymdur á 1. hæð búast við að þar væru að minnsta kosti 5.000 bækur geymdar. Á fímmtu hæð hússins er tónlistar- deild safnsins. Þar eru meðal ann- ars geymdar allar íslenskar hljóm- plötur frá upphafi, dagblöð frá 1885-1920, smáprent, snældur og diskettur. Nokkur reykur komst upp á fyrstu hæðina en allir gluggar voru opnaðir upp á gátt um leið og mögulegt var. Ólafur sagðist ekki búast við að bækurnar hefðu skemmst en mikill hiti gæti haft slæmar afleiðingar. sýkla herjar Umferðarnefnd Reykjavíkur: HÁLSBÓLGA af sýklavöldum var tíðari meðal Reykvíkinga í júnímánuði en mánuðina á und- an. Að sögn Heimis Bjarnasonar að- stoðarhéraðslæknis er ekki hægt að segja að um faraldur sé að ræða en endanlegar tölur um fjölda til- fella liggja ekki fyrir. Heimir segir að þegar sýklar valdi hálsbólgu sé hún gjaman erfiðari viðfangs en þegar aðrar orsakir valda sjúk- dómnum. Fj öldi slysa viö aftanákeyrsl- ur hefur fjórfaldast á 8 árum FJÖLDI slysa vegna aftaná- keyrslna rúmlega fjórfaldaðist frá árinu 1983 til 1990 sam- kvæmt framhaldskönnun Um- ferðarnefndar Reykjavíkur á umferðarslysum í borginni íslandsbanki: Útlánsvextir hækka vegna spár um aukna verðbólgu ÍSLANDSBANKI hækkaði vexti margra flokka óverðtryggðra útlána á siðasta vaxtabreytingadegi, sem var á laugardag. Hækkunin nam 0,10 til 0,15% í flestum tilvikum. Að sögn Ragnars Önundarsonar framkvæmdasljóra hjá íslandsbanka er ástæða hækkunarinnar ný verðbólguspá Seðlabankans sem gerir ráð fyrir heldur hærri verð- bólgu en bankinn spáði í vor. Vextir annarra innlánsstofnana breytt- ust ekki að þessu sinni. Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands íslands telur vaxtabreytingu íslands- banka rúmast innan þeirra yfirlýsinga sem viðskiptabankarnir gáfu út við gerð síðustu kjarasamninga. íslandsbanki hækkaði forvexti víxla úr 11,65 í 11,75% og vexti yfírdráttarlána úr 14,40 í 14,5%. Vextir almennra skuldabréfaútlána hækkuðu um 0,15%, kjörvextir eru nú 10,65% og vextir B-flokkslána 12,40%. Vextir Visa-skiptigreiðslna lækkuðu úr 16,9 í 16,7%. íslands- banki er nú með hæstu vexti í flest- um þessara flokka, til dæmis eru aðrir bankar með 11,5% forvexti af víxlum og 10 til 10,5% kjörvexti af almennum skuldabréfaútlánum. Ragnar Önundarson sagði að Seðlabankinn hefði í vor reiknað með að verðbólguhraðinn yrði 2%. Samkvæmt nýrri spáð frá miðjum síðasta mánuði reiknaði Seðlabank- inn með 2,5% verðbólguhraða að meðaltali næstu 4-5 mánuði. Væri Islandsbanki að laga vexti sína að þessum breytingum og fínstilla vextina miðað við markaðinn. Ragnar sagði að vaxtaákvörðun bankans væri í fullu samræmi við yfírlýsingar bankanna við gerð síð- ustu kjarasamninga. Þá hefði verið gert samkomulag um ákveðnar að- ferðir við útreikning vaxta óverð- tryggðra útlána, þar sem tekið væri mið af vöxtum á eftirmarkaði Spariskírteina ríkissjóðs með 2% álagi, verðbólguspá og 1% óvissu- álagi. Samkvæmt þessu gætu vext- ir B-flokks almennra skuldabréfa- útlána verið 12,6% en væru 12,4%. Hannes G. Sigurðsson hjá VSÍ segir að það hafí verið sameiginleg- ur skilningur aðila við gerð síðustu kjarasamninga að bankamir hefðu svigrúm til að hreyfa sig innan vissra marka án þess að það gengi á svig við samkomulagið. Taldi hann að þessar breytingar íslands- banka rúmuðust vel innan þess. 1988-1990. Má nú rekja tæplega 37% meiðsla höfuðborgarbúa í umferðinni til aftanákeyrslna. Um það bil 65% þeirra eru skráðir með hálsmeiðsl. Könnun umferðarnefndar leiðir í ljós að umferðarslysum í Reykjavík hefur fjölgað stöðugt frá árinu 1983 en slysum á börnum hefur hins vegar ekki fjölgað. Yngstu og elstu ökumenn í umferðinni virðast bijóta tíðar af sér en aðrir. Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar hefur hálsmeiðslum fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Þau eru mun algengari hjá konum en körlum og virðast jafn- framt vera tíðari hjá þeim sem nota belti en hinum. Fjölgun á þessum tegundum slysa hefur ver- ið skýrð með þrennum hætti: Fleiri aftanákeyrslum, meðal annars vegna fleiri umferðarljósa og merkja, aukinni notkun bílbelta, rýmri bótarétti og meiri vitund um bætur. Yngstu ökumennirnir bijóta oft- ast af sér vegna of hraðs aksturs, ógætilegs framúraksturs, gáleysis og ógætilegra akreinaskipta. Elstu ökumennirnir eru hins vegar hlut- fallslega oft brotlegir fyrir að virða ekki umferðarljós, umferðarmerki, almennan umferðarrétt og stöðvunarskyldu. Eins og í fyrri könnun er áberandi að 17-19 ára fólk er atkvæðamest í öllum teg- undum brota. Eins og áður segir hefur umferð- arslysum í Reykjavík fjölgað stöð- ugt frá árinu 1983 og kemur í ljós, ef tekið er tillit til stærstu áverka, að gatnamót með umferðarljós eru hættulegusta tegund gatnamóta í borginni. Hafa ber í huga að ljós eru oft sett upp á hættulegustu gatnamótunum. Þrátt fyrir fjölgun slysa hefur slysum á börnum ekki fjölgað. Heldur dregur úr slysum á gangandi og hjólandi bömum í Reykjavík en slysum í framsætum hefur fjölgað. Flestir slasast á föstudögum en umferð er um það bil 15% meiri þann dag en aðra virka daga. Á virkum dögum er slysatíðni í borg- inni hæst milli klukkan 16 og 19 og áberandi hærri en á morgnana. Flest börn slasast í september. Samanburður við stærri sveitar- félög hérlendis sýnir að hjá þeim aldurshópum, sem hafa ökurétt- indi, eru slys tíðari í Reykjavík en annars staðar á landinu en þó er ekki víst að það þýði að slys séu tíðari í Reykjavík miðað við ekna kílómetra í gatnakerfinu þar sem álitið er að 80% umferðár á höfuð- borgarsvæðinu sé innán borgar- marka. Árið 1988 slösuðust 667 í um- ferðinni í Reykjavík, árið 1989 682 og 1990 911.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.