Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JULI 1992
Stöðugar göngur í
Borgarfirðinum
„ÁIN er full af laxi og það eru stöðugar göngur. Svæð-
in eru öll virk, allt frá Stekk og upp úr. Ég var þarna
í þijá daga raeð Bandaríkjamanni, við tókura það ógur-
lega rólega, en fengum samt 18 laxa. Það er eingöngu
fluguveiði þarna þessa dagana. Laxinn er yfirleitt 4
til 8 pund, en það veiðast ennþá stórir fiskar úr fyrri
göngum í bland,“ sagði Magnús Jónasson uraboðsmað-
ur Orvis í samtali við Morgfunblaðið, en hann lauk
veiðum í Norðurá í Borgarfirði á hádegi sunnudags-
ins. Nú eru komnir um það bil 800 laxar úr ánni og
er hún í öðru sæti, næst á eftir Þverá sem er með
rúmlega 1100 laxa. Mikil veiði er í ánum þessa dag-
anna og tölur fljótar að breytast.
Glæðist í Rangánum
Talsverð ganga kom í
Rangárnar fyrir síðustu
helgi og á mánudaginn voru
komnir samtals rúmlega 30
laxar á land. Gagnstætt því
sem menn áttu von á, var
gangan skipuð tveggja ára
löxum úr sjó, þannig að enn
lætur smálaxinn á sér
standa. Stórstreymt er hins
vegar þann 16. þessa mán-
aðar og einblína menn nú á
næstu daga. Selur var skot-
inn í ósnum um helgina og
er kunnara en frá þurfi að
segja, að selir geta sem
hægast tafið laxagöngur.
Hópar af súlum hafa verið
að stinga sér mikið í ósnum
síðustu daga og veit það á
eitthvað, en hvort það er lax
verður tíminn að skera úr
um. En Rangárnar eru nú
líflegri en áður í sumar og
fyrstu laxamir hafa veiðst
í Eystri Rangá og er það
hálfum mánuði fyrr en vant
er. Veiddust nokkrir laxar
meira að segja frammi í
Fiská á svæði sex. Einnig
á Bergsnefi og Móbakka.
Um 100 silungar hafa
veiðst og bleikjuveiði hefur
glæðst síðustu daga.
Þreföld veiði í
Húseyjarkvísl
Um 60 laxar höfðu veiðst
í Húseyjarkvísl á mánu-
dagsmorguninn og er það
þrisvar sinnum meiri heldur
en á sama tíma í fyrra. Að
auki er meðalvigtin miklu
hærri en áður, en um helg-
ina fóru þó fyrstu smálax-
arnir að sýna sig þannig að
kalla mætti það göngur.
Eiríkur S. Eiríksson sem var
þama á veiðum á föstudag
sagði í samtali við Morgun-
blaðið að 48 hefðu verið
komnir á land er hann kom
að ánni. Aðeins fjórir fískar
hefðu vegið undir 10 pund-
um og flestir hefðu þeir
verið 12 til 16 pund og sá
stærsti 19 pund sem Júlíus
Bjömsson veiddi í Gullhyl.
Eiríkur og félagar veiddu
við vond skilyrði og fengu
þó þijá laxa, tvo 15 punda
og einn 17 punda. Eiríkur
dró sjálfur 17 punda laxinn
og sagði hann að hann hefði
verið að ljúka veiðum í Lax-
hyl er hann ákvað í ein-
hveiju bríaríi að snúa sér
við uppi í miðri hlíð og kasta
einu lokakasti. „Ég var með
spón og hann var svona 30
sentimetra frá bakkanum
og kominn allur upp úr að
krækjunni undanskilinni, er
þessi bolti skellti sér á hann.
Þetta var eins og að sitja á
fremsta bekk undir kvik-
myndinni „Jaws“,“ sagði
Eiríkur. Ekki var öll sagan
sögð, því laxinn átti eftir
að teyma Eirík mörg hundr-
uð metra niður eftir á og
mölva háfinn áður en hann
játaði sig sigraðan.
Hér og þar...
Fyrsta gangan kom í
Setbergsá um helgina og
eftir iaugardags- og sunnu-
dagsveiðina lágu 10 laxar í
valnum og sáu menn lax
víða um ána. Þessir fiskar
voru allt að 14 punda og
var sá stærsti dreginn úr
veiðistaðnum Tvídröngum.
Um helgina voru komnir
um 240 laxar úr Laxá í
Kjós. Veiði hefur ekki geng-
ið sem skyldi á þeim bæ,
en var þó víst eitthvað að
glæðast síðast er fréttist.
Menn hafa verið að
draga’ann óðan í Meðal-
fellsvatni, ekki lax heldur
urriða og bleikju. Þeir fá
reyting sem veiða frá lönd-
um, en þeir sem mest afla
eru kunnugir menn sem
hafa báta til umráða og
þekkja bestu miðin. Morg-
unblaðið frétti af einum um
helgina sem veiddi 125 urr-
iða á flugu og var fram á
rauða nótt úti á svölum í
aðgerð. Annar sem fréttist
af dró 60 stykki. Þetta er
ekki stór fískur, en þykir
sniðinn á útigrillið.
Við fréttum einnig af
veiðimönnum sem fóru í
Hvalvatn og fengu rífandi
veiði og góðan silung í
bland. Reyndar var það ein-
ungis einn af þremur sem
fékk alla veiðina. Sá beitti
spæni, en hinir sveifluðu
flugu. Kaus bleikjan fremur
spóninn þennan daginn.
Álftá hafði gefíð um 40
laxa rétt fyrir helgi og var
talsverð ganga í ána og
vatnsmagn hið ágætasta.
Sá stærsti var 16,5 pund
og var mikið af nýjasta
göngufískinum í kring um
7-8 pund. Þetta er áþekk
byijun í Álftá og var stór-
veiðisumarið 1988.
Kiðafellsá í Kjós lætur
ekki mikið yfir sér, þar er
aðeins veitt á eina stöng og
veiðisvæðið er tiltölulega
stutt. En þar hefur verið
sleppt miklu magni af
gönguseiðum síðustu sumur
og veiði verið á köflum
nokkuð góð. Um helgina
skrapp einn af vildarvinum
árinnar einn morguninn og
fékk þijá laxa, 10, 13 og
14 punda. Áður hafði annar
fengið tvo, 6 og 7 punda.
Lítið hefur verið farið í ána
það sem af er, ef framan-
greindir kappar eru undan-
skildir og nokkuð mun vera
til af lausum veiðileyfum.
STÆRSTA BÍÓIÐ ÞAR SEM JÉ______
ALLIR SALIR ERU FYRSTA I j.
flokks HASKOLABIO SIMI22140
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300,- Á ALLAR MYNDIR NEMA VERÖLD WAYNES OG
GREIÐINN, ÚRIÐ OG STÓRHSKURINN.
!Vi4i IlnJiiiu
blurn Nauil** Kk IiomImui
«~l Mk-lu*I BLík
FAVOXIR.
.ImWATCJI,
&tlu- vny |
■ Rómantísk
jgamanmynd
.y*j^ utan
venjulegrar
9A reynslu.
m KiaiM siKWEaaraa
Greiðasemi borgar sig ekki alltaf, og
sennilega hvað síst í þeim málum er
tengjast hinu Ijúfa lífi. Louis kynnist
Sybil, Sybil kynnist ástinni, ástsjúkur
píanisti tryllist.
,ýnd kl. 5, 7, 9 og 11. - Bönnuð i. 12 ára
* ★ ★ ★TVÍMÆLALAUST
GAMANMYND SUMARSINS
F.l. Bíólína/i.
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05
liflUlllil!!
|ÍS]HÍ Bllill
UR DAGBOK
LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK:
10.-13. júlí
Þó lítið hafi verið um
innbrot og þjófnaði það
sem af er júlímánuði var
tilkynnt um 18 innbrot og
15 þjófnaði um helgina,
en það er óvenju mikið.
Fjöldinn er þó í samræmi
við þróun mála fyrrihluta
ársins. M.a. var brotist inn
í bíla og úr þeim stolið
verðmætum, sem skilin
höfðu verið eftir, s.s.
myndavél, radarvörum,
geislaspilurum og veskj-
um. Á sunnudagsmorgun
var tilkynnt um innbrot í
gullsmíðaverslun við
Laugaveg, en ekki er að
sjá að nokkru hafí verið
stolið. Þá var einnig til-
kynnt um innbrot í lista-
hús, en ekki er vitað til
að nokkru hafi verið stolið.
Lögreglan þurfti 10
sinnum að hafa afskipti
af ölvuðu, æstu og miður
skemmtilegu fólki í nýjum
skemmtigarði á Bakka-
stæði í miðbænum. Vista
þurfti sumt það í fanga-
geymslunum uns um
hægði. Víðast hvar reynir
fólk að fara sæmilega edrú
inn á slík svæði og það fer
þangað yfirleitt með það
fyrir augum að hafa gam-
an af, skemmta sjálfum
sér og öðrum, en hér á
landi virðast alltaf vera
nokkrir, sem virðast ekki
gera sér grein fyrir til
hvers leikurinn er gerður.
Mikið bar á meðhöndlun
áfengis hjá unglingum og
þurfti að hella niður miklu
magni á staðnum. Þeir
yngstu, sem hellt var niður
hjá reyndust vera 12 ára.
Fólk, sem lögreglan
þarf að hafa afskipti af,
er misjafnlega háttvíst.
Einn þeirra er fjarlægja
þurfti af Bakkastæðinu
eftir að hafa slegið starfs-
mann skemmtigarðsins,
neitaði að segja til nafns,
þrátt fyrir ákvæði lögreg-
lusamþykktar, en í henni
er kveðið á um skyldu
fólks til þess að gefa lög-
reglu upp nafn sitt og
heimilisfang, sé það spurt.
Hann lét öllum illum látum
og reyndist því nauðsyn-
legt að færa hann í fanga-
geymsluna. Á leiðinni hót-
aði hann lögreglumönnun-
um og dundu óprenthæfar
svívirðingar á lögreglu-
mönnunum, en því miður
eru slíkar hótanir ekkert
einsdæmi, jafnvel frá full-
orðnu fólki. Á þær er bara
aldrei minnst opinberiega.
Manninum var gert að
greiða sekt.
Hafa þurfti afskipti af
breskum togarasjómönn-
um þegar kom til ryskinga
á millum þeirra og land-
ans. Sjómennirnir voru
handteknir og færðir um
borð í dallinn. Síðar þurfti
að reka nokkur ungmenni,
aðallega kvenkyns, upp úr
togaranum og koma þeim
í hendur foreldra sinna.
Þetta minnir á gamla tíma,
sem flestir eru þó sam-
málá um að hefðu mátt
missa sín.
Á sunnudagsmorgun
missti ökumaður bifhjóls
vald á hjóli sínu á Sæbraut
við Laugarnestanga og
lenti síðan ofan í skurði
utan vegar. Ökumaðurinn
og fagþegi, sem á hjólinu
var, voru fluttir á slysa-
deildina. Ökumaðurinn er
grunaður um að hafa verið
undir áhrifum áfengis við
aksturinn. Alls voru 12
ökumenn grunaðir um ölv-
un við akstur um helgina,
þar af 2 eftir að hafa lent
í umferðaróhöppum.
Allir þeir, sem frömdu
afbrot um helgina, ganga
nú lausir. Lögreglan hefur
oft vakið athygli á nauð-
syn þess að auka skilvirkni
í meðferð mála þeirra, sem
fremja afbrot, sérstaklega
ef um ítrekun er að ræða.
Ekki er einungis nægilegt
að afgreiðsla málanna
gangi hratt fyrir sig, held-
ur þarf að gefa einstakl-
ingunum kost á að taka
út refsingu sína í beinu
framhaldi af brotinu.
Þannig á það að vera frem-
ur regla en undantekning
að einstaklingur, sem
staðinn er að alvarlegu
afbroti, fari beint í varð-
hald eftir að hafa lent í
höndum lögreglu að rann-
sókn og dómsniðurstöðu
fenginni.