Morgunblaðið - 14.07.1992, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992
Iþróttamót Geysis á Gaddstaðaflöt:
Enn o g aftur ný sljarna í skeiðinu
_________Hestar______________
Valdimar Kristinsson
Skeiðmeistarakeppnin sem
haldin var í lok íþróttamóts Geys-
is um helgina var að mörgu leyti
endurtekið efni frá keppninni i
fyrra en þá sigraði þar ungur og
lítt kunnur skeiðreiðarmaður og
það sama gerðist nú. Logi Laxdal
gerði sér litið fyrir og sigraði
ekki ómerkari menn en Sigur-
björn Bárðarson og Ragnar Þór
Hilmarsson, sigurvegarann frá
síðasta ári.
Skeiðmeistarakeppnin gengur þann-
ig fyrir sig að þeir fjórir knapar sem
ná bestum tíma úr kappreiðaskeiðinu
mæta með fáka sína til leiks þar sem
hver situr sinn hest í fyrsta spretti
og síðan er skipt í hveijum spretti
þannig hver knapi situr alla hestana
og eru sprettimir því fjórir. I fyrsta
spretti sigraði Sigurbjörn, Ragnar
varð annar, Logi þriðji og Asgeir
Herbertsson fjórði. í öðrum spretti
nær Logi sér vel á strik er honum
einum tekst að láta hestinn liggja
og fær 5 stig og kemst þar með einu
stigi yfir Sigurbjöm. í þriðja spretti
sigrar Sigurbjöm nokkuð ömgglega,
Logi kemur næstur og Ásgeir þriðji
en Ragnar missti hest sinn upp og
þar með vom möguleikar hans á að
veija titilinn úti og veðjuðu þá flest-
ir á Sigurbjöm í síðasta spretti.
Ragnar sigraði þann sprett mjög
ömgglega á Snarfara, hesti Sigur-
björns, og Logi kom næstur á hesti
Ásgeirs, Þjótanda, en Sigurbjörn
missti Dreyra, hest Ragnars, upp á
síðustu metranum og þar með var
skeiðmeistaratitillinn kominn í hend-
ur Loga Laxdal. Var hann vel að
titlinum kominn því honum einum
tókst að láta alla hestana liggja
sprettfærið á enda.
Þátttaka í mótinu var ágæt í full-
orðinsflokki en afar léleg í yngri
flokkunum. Sigurbjörn Bárðarson
sigraði ömgglega í tölti, fjórgangi
og fimmgangi. Var hann með háar
einkunnir í öllum þessum greinum.
f gæðingaskeiði sigraði Trausti Þór
Guðmundsson á stórgæðingnum
Gými frá Vindheimum með 103,6
stig, næstur kom Hinrik Bragason á
Eitli með 99 stig og Guðni Jónsson
á Skolla með 95,5 stig en þetta era
óvenju háar einkunnir í þessari grein.
Guðmar Þór Pétursson hafði mikla
yfírburði í tölti og fjórgangi barna
en í töltinu fékk hann yfir 80 stig
sem er góður árangur.
Til stóð að keppa í fyrsta skipti í
ratleik en engir keppendur fundust
að þessu sinni svo ekkert varð af
henni eins og gefur að skilja.
Úrslit urðu sem hér segir:
Fullorðnir: Tölt
1. Sigurbjörn Bárðarson á Oddi frá
Blönduósi, 98,64.
2. Þórður Þorgeirsson á Siggu frá Nýja-
Bæ, 81,36. (Sigurvegari hjá Geysi)
3. Sveinn Jónsson á Hljómi, 85,60.
4. Guðni Jónsson á Svarti. 90,64.
5. Hafliði Halldórsson á Kerúlfi, 85,36.
Fjórgangur
1. Sigurbjöm Bárðarson á Oddi, 56,97.
2. Atli Guðmundsson á Feng, 48,60.
3. Fransicka Laack á Trausta, 47,79.
(Sigurvegari hjá Geysi)
4. Guðni Jónsson á Svarti, 46,41.
5. Sveinn Jónsson á Hljómi, 45,90.
Fimmgangur
1. Sigurbjörn Bárðarson á Höfða frá
Húsavík, 60,60.
2. Trausti Þór Guðmundsson á Létti,
53,80.
3. Jón G.Þorkelsson á Mekki, 54,80.
4. Guðni Jónsson á Skolla, 56,0.
5. Adolf Snæbjörnsson á Móra, 53,0.
Sigurvegari, Geysi: Þórður Þorgeirsson
á Flotti, 52.0. Stigahæsti knapinn: Sig-
urbjöm Bárðarson 155,61 stig.
Stigahæst, Geysi:
Fransicka Laack, 216,85 stig.
íslensk tvíkeppni:
Sigurbjörn Bárðarson, 155,61 stig.
íslensk tvíkeppni, Geysi:
Þórður Þorgeirsson, 123,84 stig.
Skeiðtvíkeppni:
Guðni Jónsson 151,5 stig.
Ungmenni: Tölt
1. Gísli Geir Gylfason á Ófeigi, 86,40.
2. Lilja Kristjánsd. á Létti, 69,36.
3. íris Björg Hafsteinsd. á Gleði, 89,84.
4. Sara Ástþórsd. á Domingo, 61,36.
5. Knútur Berntsson á Eygló, 55,20.
Fjórgangur
1. íris Björg Hafsteinsd. á Gleði, 48,60.
2. Lilja Kristjánsd. á Létti, 42,33.
3. Gísli Geir Gylfason á Ófeigi, 48,30.
4. Þórunn Sigþórsd. á Andvara, 39,93.
5. Herdís Reynisdóttir á Mána.
Stigahæsti knapinn: íris Björg Haf-
steinsd. 138,44 stig.
Unglingar: Tölt
1. Reynir Aðalsteinsson á Pentu, 62,40.
(Sigurvegari hjá Geysi)
2. Steinar Sigurbjörnsson á Val, 61,60.
3. Ingvar Grétarssson á Æsu, 38,96.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Þórður Þorgeirsson til vinstri afhendir hér Loga Laxdal Skeiðmeist-
arabikarinn eftirsótta en Sigurbjörn og Ragnar Hilmarsson fylgjast
með. Vafalítið hafa rifjast upp fyrir Ragnari sælar minningar frá
síðasta ári er hann stóð í sporum Loga.
Sigurbjörn Bárðarson lét eins og oft áður greipar sópa í gullinu en
hann sigraði í tölti, fjórgangi og fimmgangi auk þess að verða stiga-
hæstur í fullorðinsflokki. Hér situr hann Odd frá Blönduósi en þeir
sigruðu í tölti og fjórgangi.
Þolreið á Þingvöll:
Fimm ára met loks slegið
ÓTRÚLEGA góðir tímar náðust í þolreiðarkeppninni sem nú var
haldin í fimmta sinn. Sigurvegarinn Daði Ingvarsson sem keppti á
Funa fór vegalengdina á 4 klukkustundum og 11 mínútum en riðið
var frá Laxnesi í Mosfellsdal að Skógarhólum á Þingvöllum fyrri
daginn og frá Valhöll á Þingvöllum í Laxnes seinni daginn.
Bima Lámsdóttir á Batmann varð
í öðm sæti á 4 klukkustundum og
13 mínútum og Björgvin Jónsson
þriðji á Pæper frá Varmadal sem
er þekktari fyrir þátttöku í kapp-
reiðaskeiði en þolreiðum. Björgvin
og Pæper vora á 4 klukkustundum
og 19 mínútum. Tímar fyrri daginn
vora undir tveimur klukkustundum
og er þá metið á þessari vegalengd
sem sett var í fyrstu þolreiðar-
keppninni fallið en það var 2,07
klst. Það vora Hestaleigan í Lax-
nesi, Flugleiðir og Stöð 2 sem stóðu
að keppninni eins og áður.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Daði Ingvarsson og Funi hrósuðu sigri í þolreiðinni að þessu sinni.
Dýralæknar þolreiðarinnar, þeir Ölafur Valsson og Lars Hansen,
skoða hér hest sigurvegarans Daða Ingvarssonar sem er til hægri
á myndinni en faðir hans Ingvar heldur í hestinn.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Kengur frá Bræðratungu stóð efstur hesta í A-flokki að loknum
úrslitum, knapi er Kristinn Antonsson sem jafnframt á hestinn.
Hestamót Loga í Hrísholti:
Fellskotsfjölskyldan signr-
sæl í gæðingakeppninni
FJÖLSKYLDAN í Fellskoti var atkvæðamikil á hestamóti Loga í Bisk-
upstungum. Húsbóndinn Kristinn Antonsson sat Keng frá Bræðrat-
ungu, sigurvegarann í A-flokki, og frúin, María Þórarinsdóttir, var
með hryssuna Gráblesu frá Kjarnholtum sem varð önnur og dóttirin
Líney Sigurlaug sat Blæ frá Gunnarsholti, sigurvegarann í B-flokki,
og María kom þar næst með Dropa frá Felli.
Mótið var haldið í Hrísholti þar
sem Logi hefur komið sér upp að-
stöðu í fögm umhverfi sem nýtur sín
vel í góðviðri eins og var þá tvo daga
sem mótið stóð yfir. Þátttaka var
óvenju góð að þessu sinni en yfir
eitt hundrað hross vom skráð til
leiks. Mótin hjá Loga hafa þótt
skemmtileg og alltaf mikið um að-
komumenn úr nágrannasveitunum
og eins hestafólki sem er með hross
í hagagöngu í Tungunum. Mótið fór
vel fram þótt sumum þætti dag-
skránni seint lokið á sunnudeginum.
Úrslit urðu sem hér segir:
A-flokkur
1. Kengur f. Bræðratungu, eig. og kn.
Kristinn Antonsson, 8,35.
2. Gráblesa f. Kjarnholtum, eig. Gísli
Einarsson, kn. María Þórarinsd. 8,02.
3. Gefn f. Gerðum, eig. Ólafur og Drífa,
Torfastöðum, kn. Ólafur Einarss.
8,28.
4. Síða f. Svaðastöðum, eig. Magnús
Benediktss. og Kristján. F. Karlsson,
kn. Kristján F. Karlsson, 7,91.
5. Faxi f. Kjarnholtum, eig. Gísli Einars-
son, kn. Magnús Benediktsson, 8,11.
B-flokkur
1. Blær f. Gunnarsholti, eig. og kn. Lín-
ey S. Kristinsd., 8,22.
2. Dropi f. Felli, eig. og kn. María Þórar-
insdóttir, 8,24.
3. Frigg f. Miðfelli, eig. Sigurður Ævars-
son og Halldóra Hinriksd., kn. Sigurð-
ur Ævarsson, 8,13.
4. Högni f. Áslandi, eig. og kn. Gyða
Vestmann Erlendsdóttir, 8,17.
5. Freyr f. Efri Reykjum, eig. Kristín
Jóhansen, kn. Hulda Karólína Harð-
ard., 8,14.
Unglingar
1. Fannar Ólafsson á Stormi f. Hemlu,
8,33.
2. Bryndís Kristjánsdóttir á Hrímni f.
Borgarholti, 8,28.
3. Stígur Sæland á Reyk, 8,11.
4. Margrét Friðriksd. á Hervari, 7,99.
5. Jóna Mjöll Grétarsdóttir á Ótta f.
Hólum, 7,77.
Börn
1. Elva Biörg Þráinsd. á Frosta, 8,12.
2. Björt Olafsdóttir á Fönn f. Bræðra-
tungu, 8,22.
3. Gunnar Guðmundsson á Icy, 8,01.
4. Þórey Helgadóttir á Fontu, 7,92.
5. Friða Helgadóttir á Telju, 7,98.
í barnaflokki stóðu efst Fríða á Telju, Þórey á Fonta, Gunnar á Icy, Björt á Fönn og sigurvegarinn
Elva Björg á Frosta.