Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992 37 Minning: Sæmundur Jónsson Fæddur 5. október 1895 Dáinn 23. júní 1992 Á vorvertíðarlokum andaðist föð- urbróðir minn, Sæmundur Jónsson, Aðalgötu 9, í Ólafsfirði. Hann var svo sannarlega orðinn saddur lífdaga sökum hárrar elli og líkamlegrar hrörnunar. Sæmundur ólst upp hjá foreldrum sínum, Þóreyju Ásmunds- dóttur og Jóni Magnússyni, sem bjuggu á Austari-Hóli í Flókadal í Vestur-Fljótum. Sem flestra annarra ungra manna var háttur í Fljótum á þessum árum fór hann til sjós á há- karlaskip og kynntist þá því harðn- eskjulífí sem þar var lifað. Oft skynj- aði ég af frásögnum hans hvílíkt regin vosbúðariíf var um borð í þess- um skipum. Annað og betra þekktist ekki og ekki miklaði hann þetta fyr- ir sér. En nú verða þáttaskil í lífí Sæmundar. Hann fellur ofan í lest á hákarlaskipinu „Flink“ og hlýtur af því slíkan áverka á baki að hann verður aldrei samur maður til heilsu. Árið 1918 kynntist hann konuefni sínu, Salbjörgu Helgu Þorleifsdóttur, frá Búðarhóli, Kleifum í Ólafsfirði. Þau gengu í hjónaband árið 1919. Böm þeirra voru fjögur: Björg, f. 24. júlí 1920 — d. 7. júní 1992. Gift Sigurði Jóhannessyni frá Giljalandi í Haukadal, Dalasýslu. Hann var meðal annars kaupfélagsstjóri í Haganesvík, í Fljótum. Hann lést um aldur fram 3. mars 1947. Þau áttu eina dóttur, Sigurbjörgu, sem gift er enskum manni og býr í London; Rósleifur, f. 29. júní 1922 — d. 10. janúar 1928; Bára, hún býr í Ólafs- firði. Hennar maður er Bjarni Ing- ólfsson. Þeirra dóttir er Sæbjörg Anna; Guðmundur, f. 11. desember 1934. Hann er kvæntur Sigrúnu Finnsdóttur frá Hóli í Norðurárdal. Þau eiga þijár dætur: Lindu Sal- björgu, Eddu Herdísi og Öldu Björk. Um 15 ára skeið bjuggu þau Sæ- mundur og Salbjörg í Neðra-Haga- nesi í Fljótum og þar stundaði hann smíðar ýmiskonar, bæði úr tré, járni og leðri. Hann var hreinasti völundur í höndunum. Það sýndu margir gripa hans og varð mér, ungum sveini framan úr Flókadal, allsendis óvön- um öllu slíku, stórlega starsýnt á hvað frændi gat búið til. Mun ég oft hafa óskað mér slíkrar náttúru, hvað mér ei auðnaðist nokkru sinni. Ég gleymi aldrei er frændi rétti mér nýsmíðuð skíði og sagði: Eigðu þetta. Hið eina sem ég gat gert var að gleðj- ast og kyssa hann fyrir. Á þeim árum var nóg með skíði að gera í Fljótum. Öðru sinni gaf hann mér nýja skauta sem líka voru vel þegnir. Sæmundur fiuttist með fjölskyldu sínatil Ólafsfjarðar 1950 og áttu þau heimili á Aðalgötu 9. Þar var alltaf gott að koma. Um marga hluti var spjallað og mikið var hugur hans haldinn saknaðarkennd þegar við héldum málþing okkar um Fljótin. Þau voru honum svo einkar kær. Eiginlegt var honum að beina sam- ræðum okkar að vísnagerð. Þar á hafði hann gott vit og sterka mál- kennd og gerði marga góða vísuna. Þetta var honum hugleikið umræðu- Kveðjuorð: Agnes G. Gísladóttir Fædd 20. desember 1911 Dáin 30. júní 1992 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þann 30. júní sl. andaðist á sjúkra- húsinu á ísafirði systir mín Agnes Guðríður Gísladóttir frá Gjögri. Hún var jarðsett í Árnesi á Ströndum, 7. júlí sl. Mig langar til að minnast hennar með fáeinum kveðjuorðum, þar sem ég gat ekki verið við útför hennar. Agga, eins og hún var alltaf köll- uð, fæddist á Gjögri 20. desember 1911. Foreldrar okkar voru Gísli Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. OpiÖ alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070. Guðmundsson kennari og sjómaður og Steinunn Halldóra Ólafsdóttir húsmóðir. Agga átti heima á Gjögri alla tíð, því ung hóf hún búskap á Gjögri ásamt eiginmanni sínum, Axel Thorarensen og eignuðust þau níu börn. Agga systir var afburða- dugleg kona, heimilið var hennar vinnustaður, þar vann hún frá því snemma að morgni til seint að kvöldi, eldaði, bakaði, þvoði, kom stórum barnahóp til manns, við að- stæður sem okkur nútímafólki þættu erfiðar í dag, því stóran hluta ævi Öggu var t.d. ekkert rafmagn á Gjögri. Mér er ljúft að minnast gest- risni hennar þegar ég hef heimsótt Gjögur, og allra góðu stundanna sem við áttum saman. Oft var glatt á hjalla í eldhúsinu hennar, enda hefur alltaf verið mikill gestagangur hjá Öggu og Axel, og heimili þeirra oft hóteli líkast yfir sumartímann. Minn- ing um góða konu lifir, iðjusemi hennar og umhyggja fyrir öðru fólki var einstök. Ég og fjölskylda mín þökkum Agnesi samfylgdina og ósk- um henni velfarnaðar á þeim vegum sem hún gengur nú. Kæri Axel, börn þín og fjölskyldur þeirra, Guð blessi ykkur öll og styrki. Vigdís Gísladóttir. efni og í gerð vísnanna ekki alltaf farin auðveldasta leiðin í rími. Allt varð að blindfalla saman, rím og efni ef frændi átti ánægður að vera. Þar áttu hortittimir ekki víst húsa- skjólið. Hann setti mig í heilmikinn vanda í sendibréfum sínum til mín með því að láta fljóta með fyrriparta til botnunar. Ég átti þá fárra kosta völ því rímið var fokdýrt. Kona Sæmundar, Salbjörg Helga, lést 20. september 1976 og varð honum áfall sem vonlegt er. Ekki verður svo við þessar línur skilið að ég beri ekki fram hugheilar þakkir til Báru og hennar fjölskyldu fyrir alla þeirra fómfýsi og hjálp til handa frænda mínum. Útför Sæmundar var gerð frá Ólafsfjarðarkirkju 30. júní sl. í einstaklega fögru veðri, rétt eins og útför Salbjargar Helgu, konu hans, fór fram fyrir 16 árum. Ég og konan mín sendum börnum Sæ- mundar og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur um leið og við óskum frænda mínum guðs- blessunar á leiðum eilífðarinnar. Axel Guðmundsson. Svala S. Agústs- dóttir - Kveðjuorð: Með fáeinum orðum viljum við minnast góðrar vinkonu okkar, henn- ar Svövu. Hún hafði um langt skeið barist við erfið veikindi. Nú vitum við að Svövu líður vel og hennar hefur beðið mikilvægt hlutverk á öðmm og betri stað. Höldum fast í þá trú að þeir sem guðirnir elska, deyja ungir. Svava var yndisleg stúlka í blóma lífsins. Hún var sú manneskja sem aldrei gafst upp og komst þangað sem hún vildi komast. Hún var ákveðin, en sýndi þó um leið umburð- arlyndi. Svava átti marga góða vini og góða fjölskyldu sem studdu við bak hennar þegar á þurfti. Hún var mjög jákvæð stúlka og kvartaði aldrei. Oftast mætti Svava í teiti hjá félög- um sínum, tók virkan þátt í félags- lífi, stundaði píanónám og var alltaf með bros á vör. Svövu verður sárt saknað og lengi minnst af öllum þeim sem henni kynntust og lærðu að meta. Svava mun alltaf eiga heima í hjörtum okkar. Við vottum foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Guð varðveiti ykkur öll. Harpa, Sædís og Fanney. Okkur langar að minnast með nokkrum orðum elskulegrar vinkonu okkar Svövu Sólbjartar Ágústsdótt- ur, sem andaðist í Svíþjóð þann 30. júní. Við vorum ekki háar í loftinu þeg- ar við kynntumst jafnöldrum okkar, tvíburasystrunum Jónu og Svövu. Við fæðingu þeirra kom í ljós að önnur þeirra, Svava, var með alvar- legan hjartagalla. Svava var mjög dugleg og sterk og þrátt fýrir veik- indi sín reyndi hún ávallt að taka þátt í leik okkar stelpnanna. Núna síðastliðin tvö ár fór þrek hennar stöðugt minnkandi og varð hún því að komast undir læknishend- ur og fá ný líffæri. Þegar við kvöddum hana í apríl sl. ríkti mikil bjartsýni hjá okkur um að hún Svava kæmi heim sem ný manneskja eftir vel heppnaða aðgerð og gæti þá loksins gert allt það sem ógerlegt hafði verið áður vegna veik- inda hennar. Elsku Jóna, Inga, Gústi, Eddi, Ágúst litli og aðrir aðstandendur, megi Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg. Minningin um hana Svövu okkar mun ætíð lifa í hjörtum okkar. Guð blessi minningu hennar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tið. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Harpa og Inga Rósa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.