Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 177. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins 111 meðferð Serba á föngum í Omarska-búðunum vekur hrylling Viðurkenna að fangar séu sveltir Zagreb, Zenica, Belgrad. The Daily Telegraph, Reuter. LEIÐTOGI Serba í Bosníu-Herzegovínu, Radovan Karadzic, viður- kenndi í gær að fangar í Omarska-fangabúðunum væru sveltir eftir að sjónvarpsmyndir af grindhoruðum föngum þar vöktu hörð viðbrögð um allan heim. Karadzic lofaði rannsókn á aðbúnaði fanganna og sagði að þeim sem fremdu stríðsglæpi yrði refsað, en orð hans mættu van- trú flestra vegna vaxandi sannana fyrir skipulögðum aftökum og hryðjuverkum í fangabúðum og í „þjóðernishreinsunum" Serba. Tals- maður Júgóslavíuhers varaði vestræn ríki við hernaðaríhlutun í Bosníu í gær og sagði að hún gæti leitt til víðtækara stríðs á Balkan-skaga og í Evrópu. Milan Panic, forsætisráðherra hinnar nýju Júgóslavíu [Serbíu og Svartfjallalands], hvatti í gær til þess að öllum fangabúðum í Bosníu yrði lokað. Panic samdi í gær við Króatíu um skipti á 1.000 stríðsföng- um frá stríðinu þar. Karadzic reyndi í gær að bera í bætifláka fyrir Serba eftir að mynd- um frá Omarska-búðunum var líkt við myndir úr útrýmingarbúðum nas- ista fyrir nærri hálfri öld. Hann sagði að óhæfuverk væru óhjákvæmileg í stríði og væru framin af einstakling- um sem brytu gegn fyrirmælum hans og annarra leiðtoga Serba. Hann sakaði Bosníustjóm um að starf- rækja einangrunarbúðir fyrir Serba, en blaðamenn, sem fóru til þriggja staða í Sarajevo sem Serbar hafa nefnt í þessu sambandi, fundu tvo staðina tóma og sáu engin merki um illan aðbúnað serbneskra fanga á þriðja staðnum. Flóttamenn í Bosníu segjast hafa orðið vitni að fjöldamorðum í mörg- um bæjum sem serbneskar sveitir hafa tekið. Maður frá þorpinu Brcko sagði bandaríska blaðinu New York Newsday að um 1.350 manns af 1.500 hefðu verið skotnir eða skorn- ir á háls eftir að þeir voru teknir til fanga af Serbum og líkunum síðan hent í Sava-fljótið. Gamall múslimi frá þorpinu Visegrad sagði The Daily Telegraph svipaða sögu; eftir að júgóslavneski sambandsherinn yfir- gaf þorpið og lét það í hendur serb- neskum skæruliðahópi hefðu fjölda- morð verið framin og fólkinu kastað í Drina-ána. „Í Drina-dalnum voru engar fangabúðir, aðeins fjölda- morð,“ sagði hann. Fjórir franskir gæsluliðar í sveit- um SÞ í Sarajevo særðust, þar af einn alvarlega, þegar sprengjum var kastað að aðalstöðvum liðsins í borg- inni. SÞ segir árásina hafa greinilega verið beint að sér. Reuter skjóli Skyggnst úr Serbneskur hermaður í grennd við bæinn Gorazde í Bosníu skyggnist út úr fylgsni sínu þegar hlé varð á bardögum við múslima. Einvígi Fischers og~ Spasskís 1 Sveti Stefan Vilja fá Friðrik Ólafs son sem skákdómara Reuter Rússagullið skoðað Kínverskir kaupsýslumenn virða fyrir sér úrvalið í skartgripaverslun í Moskvu. Þrátt fýrir versnandi efnahagsástand í Rússlandi hefur auk- ið frelsi í viðskiptum leitt til þess að Kínveijar streyma til landsins til að selja Rússum neytendavörur og fá oft borgað í fríðu, því gjaldeyrir er af skornum skammti. ÁKVEÐIÐ hefur verið að biðja Friðrik Ólafsson stórmeistara að dæma skákeinvígi Bobby Fischers og Borísar Spasskís í haust. Jezdimir Vas- iljevic eigandi Yugoscandic-bankans í Belgrad sem fjármagnar keppn- ina sagði Morgunblaðinu frá þessu í gærkvöld. Friðrik Ólafsson segist vilja gera það sem hann getur til að Fischer komi aftur fram í dagsljósið. Vasiljevic segist gera fastlega ráð fyrir að Þjóðveijinn Lothar Schmid annist dómgæslu í fyrstu skák ein- vígisins í septemberbyijun og minn- ist þannig Reykjavíkurkeppninnar sem hann dæmdi 1972. En skák- mennirnir vilja að sögn Vasiljevic helst fá Friðrik Ólafsson til að dæma aðrar skákir einvígisins í Svartfjalla- landi. „Þessu máttu gjarnan segja honum og öðrum frá,“ segir Vas- iljevic og kveðst ætla að hafa sam- band við Friðrik eftir helgina. „Það er mjög ánægjulegt að heyra þetta og heiður að því að þessir menn beri slíkt traust til mín,“ segir Friðrik Ólafsson. Hann kveðst vilja bíða þess að haft verði samband við hann frá Belgrad, en vilja auðvitað glaður gera sitt til að þessir snilling- ar tefli aftur. Vasiljevic segir það rétt að Bobby Fischer hafi dvalið heima hjá honum í Belgrad síðustu daga. „En Fischer fer til Sveti Stefan í dag og hefur þar hús útaf fyrir sig til að undirbúa einvígið með hjálp hóps manna,“ segir hann. „Spasskí er líka kominn og verður í öðru einbýlishúsi með sínu aðstoðarfólki. Þeir eru ánægðir, þurfa nú að sitja við nýju skákklukk- una og eiga eftir að vinna mikið þessa daga í águst.“ Janos Kubat er framkvæmdastjóri keppni Fischers og Spasskís. Vas- iljevic segir að undirbúningur gangi vel, um 200 þekktum gestum hafi þegar verið boðið til að fylgjast með einvíginu. Hann segir að blaða- mannafundur Fischers verði í Sveti Stefan degi áður en það hefst, en síðan verði teflt á hótel Maestro skammt frá. Rætt var um að fá skák- borðið sem notað var í Reykjavík á Adríahafsströndina, en Vasiljevic segir að horfið hafi verið frá því og ákveðið að smíða nýtt. Stórmeistarinn Svetozar Gligoric skýrir skákir einvígisins að sögn Vasiljevic. Það verður flutt til Belgrad eftir fimm unnar skákir, hvenær sem það verður. Hann kveðst sjálfur vera áhugamaður um skák, en hafi hvorki þekkt Fischer né Spasskí persónulega áður en hann hafði samband við þá í október. Frostþolinn lax búinn til London. The Daily Telegraph. KANADÍSKIR vísindamenn hafa fundið erfðavísi sem ræður fram- leiðslu eins konar frostlagar í blóði flatfisks og hafa grætt hann í iax svo hann geti þolað kaldari ár og sjó. Þá hafa vísindamenn við Ríkishá- skólann í Louisiana byijað tilraunir- við að græða erfðavísinn úr fískinum í plöntur í því skyni að draga úr frost- skemmdum í þeim. Þessar upplýsingar koma frá hópi vísindamanna sem kanna kynbætur á fiskum með erfðavísaflutningum í Southampton-háskóla í Englandi og hafa meðal annars reynt að auka vöxt og kuldaþol físka og auka mót- stöðu þeirra gegn sjúkdómum. Þeir telja að hægt sé að fá meðal annars silung til að vaxa hraðar með því að græða í hann erfðavísi, sem stuðl- ar að framleiðslu vaxtarhormóns. -----» ■■» --- Noregur; Láku áætl- unum til Greenpeace Ósló. Frá Morten Rod, fréttaritara Morgunblaðsins. MAÐUR vinveittur Grænfriðung- uin lak upplýsingum til þeirra um áætlanir norskra sljórnvalda til að bregðast við komu skipsins Solo, sem átti að trufla hrefnu- veiðar Norðmanna. Blaðið Verdens Gang sagði frá því að fundargerðir frá fundi forráða- manna norska sjóhersins, utanríkis- ráðuneytisins og norsks sjávarútvegs hefðu hafnað í skjalaskáp Green- peace í Ósló. Blaðið segir Grænfrið- unga hafa haft í mörg ár aðgang að leynilegum skjölum um væntanleg viðbrögð stjómvalda við mótmælaað- gerðum þeirra. Norska vamarmála- ráðuneytið rannsakar nú málið, en talið er að lekinn kunni að vera það- an kominn. -.. ♦ ♦ ♦ Bush segir Iraka munu láta undan Washington. Reuter. Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð- anna komu í gær til Bagdad, þrátt fyrir að íraksstjórn segist ekki munu hleypa þeim inn í ráðuneyti í borginni til að leita að gögnum um hernaðaráætlanir Iraka. Géorge Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann teldi að Irak- ar myndu láta undan. Fyrir skömmu leystist illvíg deila íraka og SÞ um aðgang að landbún- aðarráðuneytinu í borginni. Nú þegar líkur em á að sama sagan endurtaki sig sagðist Bush samt vera vongóð- ur. „Það er erfitt að segja hvort yfír- lýsingar þeirra séu frekar gorgeir eða lýsi vilja til að efna til átaka.'L sagði Bush, en nefndi ekki hvað hann myndi taka til bragðs ef mennimir yrðu hindraðir við störf sín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.