Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992 Jón G. Briem forseti Skák- sambands Norðurlanda ÞING Skáksambands Norður- landa var haldið í Östersund í Svíþjóð laugardaginn 25. júlí sl. Öll Norðurlöndin að Færeyjum meðtöldum eiga rétt á að senda tvo fulltrúa á þingið. Stjórn skáksambandsins skipa einn maður frá hverju landanna. Löndin skiptast á að eiga for- seta sambandsins. Á þinginu var Jón G. Briem, hæstaréttarlög- maður kosinn forseti skáksam- bandsins næstu þijú ár. Á þinginu var samþykkt sú lagabreyting að framvegis skuli hvert land hafa eitt atkvæði á fundum sambandsins. Þetta var mikið hagsmunamál fyrir íslend- inga þar sem áður miðaðist at- kvæðamagn við fjölda skráðra fé- lagsmanna í aðildarfélögum skák- sambanda landanna. Þetta leiddi til þess að áhrif íslendinga á ákvarðanir gátu orðið mjög lítil. Það mál sem var einna mest rætt á þinginu var fyrirkomulag Skákþings Norðurlanda og svæðismót FIDE á svæði 3. Það svæði nær yfir Norðurlöndin. Þessi tvö skákmót hafa að undanfömu verið tefld í einu lagi, það er sem eitt mót sem gefur tvenns konar réttindi. íslenskir skákmenn hafa verið mjög óánægðir með það fyr- irkomulag og vilja heldur að hald- in verði tvö aðskilin mót eins og tíðkaðist áður. Á þinginu bar Jón G. Briem upp tillögu um að mótin yrðu framvegis aðskilin og lýsti því yfír að íslendingar væru reiðu- búnir að halda þau bæði. Helst þannig að Norðurlandamótið yrði um sumarið 1994 og svæðismótið í upphafí árs 1995. Þessari tillögu var vísað til stjómar sambandsins til afgreiðslu. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Gísli Ágústsson Liðsmenn Bílddælinga fagna sigri að leik loknum með héraðsbikar- inn sem liðið vann til eignar. Bílddælingar sigruðu á hér- aðsmóti í knattspyrnu Fræðsla og skemmt- un við höfnina UM ÞESSA helgi verður ýmislegt í boði á Miðbakka, hafnarbakk- anum framan við Hafnarhúsið. Á svæðinu verða sælífsker til skoðunar á botnlífverum í höfninni sem veiddar hafa verið í gildrur. Margskonar leiktæki verða til af- nota frá kl. 10 til 17 og borð og stólar verða á hafnarbakkanum. Þá verður til sýnis fyrsta eimreiðin sem kom til landsins, landhelgisbátur- inn, flögurra manna far sem Hann- es Hafstein sýslumaður hugðist nota við handtöku landhelgisbijóts árið 1899, og sérkennilegur björg- unarbátur sem hafður var í björgun- Þú byrjar nýtt líf með heilsudvöl HÓTELÖQK ♦ arskýli austur á Söndum. Hægt verður að frá fjörueinar á Reykja- víkursvæðinu til skoðunar, eyðublöð og kort verða afhent og leiðbeint með noktun þeirra. Ekkert þátt- tökugjald er í ofangreindu. Að þessum kynningum standa Reykjavíkurhöfn, íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur og Náttúru- verndarfélag Suðvesturlands. Gegn vægu gjaldi verður hægt að sigla með litlum og stórum bát- um um höfnina, út á Kollafjörð og út í eyjar á Kollafírði. í Hafnarhúsinu eru tvær sýning- ar í gangi, afmælissýning Reykja- víkurhafnar verður opin frá kl. 11 til 16 um helgar og 13 til 18 virka daga. Þá opnar Listmunahúsið sýn- ingu á laugardaginn kl. 16 á verk- um Gunnlaugs Schevings. (Úr fréttatílkynningu.) -------» ♦ ♦ ■ ÞRIÐJA og næstsíðasta keppni til íslandsmeistara í kvartmílu verður á kvartmílubrautinni við Straumsvík sunnudaginn 9. ágúst nk. Keppnin hefst stundvíslega kl. 14 og lýkur kl. 16. T-Jöfóar til XX fólks í öllum starfsgreinum! HVERAGERÐI SÍMI 98-34700 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTIORI KRISTINN SIGURJ0NSS0N. HRL. loggiltur fösteignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Úrvals íbúð - lyftuhús - Vesturbærinn „Stúdfó-“íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi í gamla góöa Vesturbænum um 85 fm nettó auk sólskála og svala. Rlshæð fylgir með rúmgóðu svefn- herb. og góðum sjónvarpsskála. Laus strax. Einkasala. í þríbýlishúsi við Hávallagötu Glæsileg efri hæð 5 herb. 125,1 fm í þríbhúsi. Sérinng. Tvær sami. sólríkar stofur meö suðursv. Sérhiti. Bílsk. Ræktuð lóö. Frábær stað- ur. einkasala. Nýleg og góð - langtímalán Glæsil. 2ja herb. íb. á 1. hæð við Næfurás um 70 fm. Sérþvhús. Park- et. Sólsvalir. Útsýni. 40 ára húsnæðislán kr. 2,4 millj. Laus strax. Skammt frá Landspítalanum Nýlega endurbyggð neðri hæð við Egilsgötu 4ra herb. tæpir 100 fm. Ágæt sameign. Þríbýli. Langtímalán geta fylgt. Hentar m.a. námsfólki Elns og 2ja herb. fbúðir við: Ásvallagötu - Tryggvagötu - Grettisgötu - Kleppsveg og Asparfell. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. Skammt frá Verslunarskólanum Sem ný 4ra herb. úrvalsíb. 104 fm. 3 góð svefnherb. Sérþvhús. Tvenn- ar svalir. Ágæt sameign. Góður bílsk. „Gamla“ húsnæðislánið kr. 5,9 millj. fylgir. íbúð í sérflokki. Fjöldi fjársterkra kaupenda Fyrir fjórsterka gamla og góða viðskiptavini leitum við m.a. aö sérhæö- um, raðhúsi á einni hæö, íbúðum miðsvæöis í borginni með bilsk. og rað- eða einbhúsi í borginni eöa nágr. sem má þarfnast endurbóta. • • • Opiöfdag kl. 10-16. Almenna fasteignasalan sf. var stof nuö 12. júlí 1944. AIMENNA FASTEIGN ASAL AN LAUGÁvÉGMnÍMAR2ÍÍ5^Í37Ö Bildudal. ÍÞRÓTTAFÉLAG Bílddælinga sigraði Ungmennafélag Tálknafjarð- ar í úrslitaleik í knattspyrnu í meistaraflokki nýlega 3-1 og unnu þar með héraðsbikarinn í þriðja sinn í röð og nú til eignar. ■ / VIÐEY verður helgardag- skráin með hefðbundnum hætti. Laugardaginn 8. ágúst verður far- in gönguferð um Austureyna, skoðaðar byggðarleifarnar á Sund- bakkanum, Kvennagönguhólmarn- ir og hellisskútinn Paradís. Að lok- um verður fomleifagröfturinn skoðaður. Sunnudaginn 9. ágúst verður svo staðarskoðun á sama tíma kl. 14.15. Hún hefst í kirkj- unni þar sem kirkjan verður skoðuð og saga eyjarinnar rifjuð upp. Síð- an verður haldið út að fomleifagr- eftrinum og hann sýndur. Loks verður næsta umhverfí skoðað og útsýnið af Heljarkinn. Staðarskoð- unin krefst ekki mikillar göngu og er lítt háð veðri. Kaffísala er báða dagana í Viðeyjarstofu kl. 14-16.30. Þar er einnig opið fyrir kvöldverðargesti. Bátsferðir verða úr Sundahöfn á heila tímanum frá kl. 13. Leikurinn var mjög spennandi og mikið tekið á. Tálknfirðingar skomðu fyrsta markið í fyrri hálf- leik og var staðan 1-0 þegar flaut- að var til leikhlés. Tálknfírðingum hefði dugað jafntefli til að sigra á mótinu. Valdimar Gunnarsson jafnaði fyrir ÍFB fljótlega í seinni hálfleik. Logi Hannesson bætti öðm marki við skömmu síðar við mikinn fögnuð heimamanna úr áhorfendastúkunni. Þegar 13 mín. vom eftir skoraði Þórarinn Hann- esson þriðja markið fyrir ÍFB og innsiglaði sigurinn glæsilega. Það var Jens Bjamason fyrirliði UMFT sem afhenti Bílddælingum sigur- verðlaunin að leik loknum. Hannes Friðriksson eigandi veit- ingastaðarins Vegamóta á Bíldudal bauð öllum leikmönnum Bíldu- dalsliðsins til hamborgaraveislu að leik loknum og var þar góður andi og mikið fagnað. Þess má geta í lokin að stuðningsmenn UMFT sem fjölmenntu á úrslitaleikinn urðu sér og liði sínu til mikillar skammar með hótunum til leik- manna ÍFB sem ekki era prenthæf- ar. Þá voru nokkrir staðnir að verki þegar þeir voru að hleypa lofti úr dekkjum leikmanna Bíldudals. Slík framkoma á ekki að þekkjast hér- lendis og hvað þá heldur á smá- stöðum þar sem nágrannabyggðir leika knattspymu til að hafa gam- an af. R. Schmidt. Umsjónarmaður Gísli Jónsson 652. þáttur Ömólfur Thorlacius rektor skrifar mér svo: „Kæri Gísli! Löngum les ég pistla þína með ánægju og er oftast sáttur við túlkun þína og pennavina þinna á íslensku máli. Nú langar mig að komast í þann sæla hóp og tek því saman þetta bréf. Hvaða stétt manna ætli sé breyttir borgarar? Ég spyr vegna þess hversu fréttamönn- um og fleirum verður tíðrætt um þá óbreyttu. Ef ekki dugir að tala um borgara, sem mér virðist oftast nóg, mætti þá ekki kalla þá almenna borgara? Eitt er það lýsingarorð ís- lenskt sem nær ævinlega má fella burt án þess að nokkur merking tapist, en það er stað- settur. Hvaða upplýsingar felast í setningunni „Báturinn var staðsettur á miðjum Faxaflóa", umfram það ef sagt væri eða skrifað „Báturinn var á miðjum Faxaflóa"? Ég hef áður í riti viðrað andúð mína á óyrðinu ferðamannaiðn- aður. Enska orðið industry og samstofna orð á fleiri málum hafa víðari merkingu en iðnaður á íslensku. Sagan segir að þegar skipshöfn Jamesar Cooks kaft- eins hafi komið á barkskipinu „Endeavour" að Nýja-Sjálandi um 1770 hafi innfæddir maóríar ráðist á einn þeirra er fyrstir tóku land, fellt hann og farið að gera að skrokknum til neyslu. Þarna finnst mér við hæfí að tala um ferðamannaiðnað, en ég ætla hvorki gömlum nemanda mínum Helga Jóhannssyni né fyrrum samkennara Paul Rich- ardsyni slíkt. Talandi um mannætur þá komst Kristófer Kólumbus í kynni við þess háttar neytendur austur af Mið-Ameríku fyrir tæpum 500 ámm. Það voru ind- íánar sem nefndir voru kaníbar eða karíbar og snæddu stríðs- fanga sína, þeirra á meðal ein- hveija af liðsmönnum Kólumb- usar. Síðan eru mannætur hvar- vetna við þá kenndar og kallaðir kanníbalar, en einnig innhafíð sem umlykur eyjar þeirra, Kar- íbahaf. Því nefni ég þetta að fréttamenn, auglýsingastofur og fleiri fjölmiðlarar hafa bitið það í sig að þetta haf heiti Karab- íska hafið sem er álíka útúr- snúningur og þegar Þanghafíð eða Sargassohaf er uppnefnt Saragossahaf. Þótt ágreiningur sé um það hvort hylla skuli frelsarann í dansi eða votta honum virðingu á stillilegri máta trúi ég að eng- inn vafí leiki á að illa fari á að kalla kristna menn jesústrúar. Mér er sagt að áhangendur ann- ars spámanns telji jafnfráleitt að gegna titlinum múhameðs- trúarmenn. Þrátt fyrir tyrkja- rán fínnst mér að við eigum að láta eftir þeim að kalla trú þeirra íslam og þá sjálfa múslíma. Þegar læknir nemur burt heil- an lim eða landsQórðungur verð- ur rafmagnslaus eftir að ýtt hefur verið á rangan takka í skiptiborði er talað um mannleg mistök. En geta aðrir gert mis- tök en menn, afkomendur þeirra sem af skilningstrénu átu? Fjárfesting er oft góðra gjalda verð, einkum ef fest var í öðru en farmiða með Sólarflugi eða málarekstri fyrir Kjaradómi. Af þessu er svo dregin sögnin að fjárfesta sem eflaust er kórrétt mynduð. En hafa menn alveg gleymt að hægt er að festa fé í arðbæram eða óarðbærum hlutum? Á sama hátt leikstýra leikstjórar og ritstjórar ritstýra. Hvers vegna bílstýrir enginn eða flugstýrir? Hér áður fyrr mátti stundum heyra orðið eyraafíkja sem var víst til okkar komið sem sletta úr þýsku með viðkomu í skandin- avísku og þýddi löðrungur. En það dynur fleira góðgæti á eyr- um okkar en fíkjur. Þar á ég við eyrnakonfektið sem oft hefur hækkað blóðþrýsting minn, og má ég síst við því.“ Bestu þakkir færi ég Örnólfi fyrir þetta bráðskemmtilega bréf, og þarf þar ekki um að bæta. Eg tek í flestu í streng með honum, ekki síst um orðin „staðsettur", „ferðamannaiðn- aður“ og skrípið „eymakon- fekt“, sem líklega hefur átt að vera fyndið! Reyndar bíður síð- asti hluti bréfs Ö.Th. litla hríð. ★ Skagafjarðar fögur sýsla/ er farin að verða miður sín, orti Haraldur frá Kambi. Og ekki minnkar hættan. Hér í blaðinu var í lok mánaðarins [júlí] greint frá manni sem átti „hálfeyju" í landi því, sem áður nefndist Júgóslavía (Suðurslavía). Á dönsku þýðir halvo reyndar skagi. Það er eins og Laxness segir: Nú eru íslendingar orðnir svo vondir í dönsku að þeir vita ekki hvenær þeir sletta henni. En vonandi fáum við þó ekki „Hálfeyjufjarðarsýslu". ★ Unglingur utan kvað (o, jæja): Það bar við að Heqolfur hryti svo hástöfum skjánum í þyti, en svo vaknaði hann eins og velflestan mann getur vafalaust hent í skáldriti. P.s. í síðasta þætti umsnerist útgáfuár íslenskrar orðabókar úr 1963 í 1936. Beðist er velvirð- ingar á þessu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.