Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992
Greinargerð OLÍS breytír ekki lagalegri túlkun Verðlagsstofnunar:
OLIS ætlar ekki að hætta
með auglýsingar sínar
OLÍUVERZLUN íslands hefur sent Verðlagsstofnun greinargerð vegna
athugasemda stofnunarinnar við auglýsingaherferð fyrirtækisins
„Græðum landið með OLÍS“. Forsvarsmenn OLÍS segja að ekki komi
til greina að hætta með auglýsingamar jafnvel þó að Verðlagsráð leggi
bann við þeim. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, álítur fordæmi sem
nefnd em í greinargerðinni ekki vera sambærileg við auglýsingar OLIS.
Óskar Magnússon, stjörnarfor- væri sem fordæmi væri ekki sam-
maður OLIS, sagði að í greinargerð-
inni væru ítarleg lögfræðileg svör
við athugasemdum Verðlagsstofnun-
ar. Bent væri á fordæmi eins og gjald
það sem væri á plastpokum í mat-
vöruverslun þar sem ákveðin ijárhæð
rynni til Landvemdar. Þetta hefði
verið látið átölulaust í áraraðir. Ósk-
ar sagði að hann fengi ekki betur
séð en að allir ættu að sitja við sama
borð í þessu máli.
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri,
sagði að fyrstu viðbrögð við greinar-
gerð OLÍS væru að ekkert kæmi
fram í henni sem breyti lagalegri
túlkun Verðlagsstofnunar á auglýs-
ingum fyrirtækisins. Georg sagði að
gjald það á plastpokum sem nefnt
VEÐUR
bærilegt við mál OLIS. Það væri
matsatriði hversu áleitnar auglýs-
ingaaðferðinar væru þegar auglýst
væri með þessu móti. Að sögn Ge-
orgs er óákveðið hvenær Verðlagsráð
kemur saman til þess að funda um
málið.
Óskar Magnússon sagði að hann
skildi málflutning Verðlagsstofnunar
þannig að það væri í lagi að segja
að OLÍS styrkti landgræðslu en það
væri ekki í lagi að segja að ákveðinn
upphæð af hverjum seldum lítra
rynni til Iandgræðslu. Að mati Ósk-
ars er því verið að segja að rangt
sé að veita neytendum fyllri upplýs-
ingar. Fyrirtæki ætti auðvelt með
að blekkja og gefa smáaura til land-
græðslu ef ekki væri tilgreint hvern-
ig framlag fyrirtækisins væri reikn-
að.
Óskar benti á að þó að ákveðinn
upphæð færi til landgræðslu hjá
OLÍS væri verð og gæði bensíns sam-
bærilegt og hjá samkeppnisaðilum,
munurinn væri aðallega í þeirri þjón-
ustu sem væri boðið upp á.
Óskar sagði að athugasemdir
Verðlagsstofnunar væri óþarfa við-
leitni þar sem farið væri með smásjá
í eina lagagrein sem væri almennt
orðuð og sem mætti heimfæra allt
mögulegt upp á. Að sögn Óskars
kemur til greina að halda áfram með
auglýsingamar ef Verðlagsráð settur
bann á þær og greiða dagsektir, síð-
an yrði farið með málið fyrir dóm-
stóla þar sem vænta mætti réttláts
úrskurðar. Óskar sagði að það kæmi
ekki til greina að hætta með auglýs-
ingarnar eða hætta að styrkja land-
græðslu.
I DAG kl. 12.00
Heimild: Veöurstofa Islands
(Byggt ó veðurspá kl. 16.15 í gœr)
VEÐURHORFUR I DAG, 31. JULI
YFIRLIT: Skammt suðvestur af hvarfi er 993 mb lægð sem hreyfist
suðnorðausturen hæðarhryggur yfir fslandi þokast norðaustur, hiti breyt-
ist fremur lítið.
SPÁ: Vaxandi suðaustanátt. Um landið sunnan- og vestanvert verður
skýjað og fer að rigna uppúr hádegi. Norðaustanlands verður léttskýjað
fyrri hluta dags en þykknar upp síðdegis. Hlýtt verður í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðaustlæg átt. Rigning um
sunnan- og vestanvert landið en þurrt að mestu og víða bjart veður
norðaustantil. Hlýtt veröur í veðri, einkum norðaustanlands.
Svarsími Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt
r r r
r r
r r /
Rigning
Léttskýjað
*
Hálfskýjað Skýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V V V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær)
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Hlöðuvallavegur hefur
verið opnaður, þannig að fjallabílum er nú fært um allt hálendið. Uxa-
hryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Athygli má vekja á því að
tekin hafa verið í notkun ný umferðarljós við Vífilstaði, á vegarnótum
Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar. Ferðalangar eru hvattir til þess að
leita sér nánari upplýsinga um færð áður en lagt er af stað í langferð
til þess að forðast tafir vegna framkvæmda. Upplýsingar um færð eru
veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91 -631500 og í grænni línu 99-6315.
Vegagerðin.
H /
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veöur
Akureyri 13 léttskýjað
Reykjevík 11 léttskýjað
Bergen 13 rigning
Helsinki 17 skýjað
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað
Narssarssuaq 11 skýj8ð
Nuuk 9 skýjað
Osló 20 skýjað
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Þórshöfn 11 rigningásíð. klst.
Algarve 25 þokumóða
Amsterdam 23 skýjað
Barcelona 28 þokumóða
Berlín 25 íéttskýjað
Chicago 17 léttskýjað
Fcneyjar 32 heiðskírt
Frankfurt 30 heiðskírt
Glasgow 18 skýjað
Hamborg 22 léttskýjað
London 24 skýjað
Los Angeles 21 þokumóða
Lúxemborg 28 heiðskirt
Madrid 33 heiðskírt
Malaga 31 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 18 skýjað
NewYork 21 heiðskfrt
Orlando 24 skýjað
París 32 léttskýjað
Madeira 24 skýjað
Róm 32 léttskýjað
Vín 32 léttskýjað
Washington 20 mistur
Winnlpeg 16 mistur
Annar bílanna eftir umferðaróhappið í gær.
Morgunblaðið/Ingvar
Harður aftanáakst-
ur á gatnamótum
FOLKSBIFREIÐ var ekið harka-
lega aftan á aðra bifreið á mótum
Reykjanesbrautar og Stekkjar-
bakka um hálffjögurleytið í gær.
Að sögn lögreglu tókst svo mildi-
lega til að ekki urðu alvarleg meiðsli
á fólki við þetta óhapp, en báðir
bílarnir voru mikið skemmdir og
þurfti að fá kranabifreið til þess
að flytja þá af staðnum.
Ólöf Ásta Ólafsdóttir;
Akveðinni stefnu-
mörkun um bijósta-
gjöf verði komið á
STOFNAÐUR hefur verið
samstarfshópur til að vinna að
málefnum bijóstagjafar á ís-
landi. Hann var settur á fót
að frumkvæði Kvennadeildar
Landsspítalans i tilefni af al-
þjóðlegri viku helgaðri
brjóstagjöf. I honum munu
sitja fulltrúar ýmissa stofnana
er láta sig bijóstagjöf varða.
í forsvari fyrir hópnum er
Ólöf Ásta Ólafsdóttir ljósmóð-
ir.
Ólöf sagði í samtali við Morg-
unblaðið að með stofnun hópsins
sköpuðust aðstæður til að fag-
stéttir störfuðu saman að kynn-
ingu og ráðgjöf varðandi
bijóstagjöf. „Saman munu ljós-
mæður, hjúkrunarfræðingar,
barnalæknar og áhugahópar
geta kannað málefni bijóstagjafa
í landinu og höfum við í hyggju
að að endurmeta vinnuaðferðir
okkar. Það er einnig mikilvægt
að starfa í nánum tengslum við
landlæknisembættið til að fag-
fólk um land allt njóti ávaxtar
starfs okkar.“
„Meginmarkmið okkar er þrí-
þætt,“ sagði Ólöf. „í fyrsta lagi
er stefna okkar að safna öllum
upplýsingum um btjóstagjöf á
einn stað og í framhaldi af því
getum við bætt þjónustuna við
mjólkandi mæður til muna. I
annan stað er að okkar mati
nauðsynlegt að koma á ákveðinni
stefnumörkun varðandi bijóstag-
jöfina. Loks er brýnt að sam-
ræma fræðslu og ráðgjöf fyrir
fagfólk og mæðurnar sjálfar".
Aðspurð kvað Ólöf litlar sem
engar kannanir hafa verið gerðar
á notkun bijóstamjólkur meðal
íslenskra kvenna. „Við höfum
mikla sérstöðu á íslandi af þeirri
ástæðu að allar konur islenskar
byija með börn sín á bijósti. Það
tilheyrir beinlínis okkar menn-
ingu að hafa þann háttinn á. Það
er staðreynd að allar konur eru
tilbúnar að hafa barn á bijósti
en spurningin er einungis sú
hversu lengi þær gera það. Eng-
ar kannanir hafa farið fram á
þessu málefni og það verður eitt
af forgangsverkefnum okkar.
Það virðist vera sem svo að þær
Morgunblaðið/Þorkell
Ólöf Ásta Ólafsdóttir forsvars-
maður samstarfshóps um
bijóstagjöf.
vanti markvissa hvatningu og
góða ráðgjöf."
„Við ætlum í samvinnu við
Landlæknisembættið að koma á
einhvers konar endurmenntun
meðal fagfólks. Hugsanlega
verða sett á fót námskeið í því
skyni. Það er að minnsta kosti
afar mikilvægt að samræma
fræðsluna og miðla henni.“ Ólöf
kvað einnig líklegt að sérstökum
skipulögðum viðtalstímum fyrir
almenning yrði komið á.
Ólöf lýsti yfir ánægju sinni
með þá athygli sem vikan hefur
hlotið. Næsta skref væri að
ganga til verka, útvega fjármagn
til að halda starfinu uppi og
kryfja þau vandamál sem kunna
að vera til staðar. Ólöf taldi lík-
legt að innan skamms færi fram
ráðstefna þar sem mál yrðu rædd
og niðurstöður innlendra kann-
ana jafnt sem erlendra yrðu
kynntar. Aðspurð um framtíðar-
möguleika sagði ólöf: „Það kann
að vera að við hér á íslandi get-
um haft mikið segja í þessum
tnálaflokki á alþjóðagrundvelli
sökum áðurnefndrar sérstöðu
okkar. Við búum að mikilli
reynslu og hefð og getum auð-
veldlega miðlað af þekkingu okk-
ar í framtíðinni."