Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992 Engin aðgengileg tilboð hafa bor- ist í Súðarvog 6 Sölutap ríkissjóðs 63 milljónir króna FASTEIGNIN Súðarvogur 6 í eigu Sláturfélags Suðurlands hefur verið til sölu frá því í marsmánuði 1991, eða allt frá því að fast- eignin gekk upp í makaskiptasamning Sláturfélagsins og ríkis- sjóðs, sem jafnframt fól í sér að ríkissjóður eignaðist fasteign SS í Laugamesi. Hjalti Hjaltason, fjármálastjóri SS, sagði að eitthvað hefði verið spurst fyrir um fasteignina en ekk- ert tilboð komið í hana sem hægt hefði verið að ganga að. Settar eru 75 milljónir kr. á fasteignina, en árið 1990 keypti ríkissjóður sömu eign af Ingimundi hf. á 117,4 millj- ónir króna. Forsaga þess að fasteignin Súð- arvogur 6 komst í eigu SS er löng og kostnaðarsöm fyrir ríkissjóð. I skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárhagsstöðu ríkisábyrgðasjóðs kemur fram að í október 1985 gerði þáverandi fjármálaráðherra samkomulag við Sigló hf. á Siglu- firði, sem fól í sér að öllum kröfum ríkissjóðs á félagið skyldi breytt í 15 ára lán sem yrði afborgunar- laust fyrstu 5 árin. Höfuðstóll láns- ins nam um 31 milljón króna, verð- tryggður með 5% vöxtum. en á móti keypti ríkissjóður eignir Ingimundar hf. að Súðarvogi 6 á 117,5 milljónir kr. Þá liggur fyrir að ríkissjóður seldi eignir Ingimundar hf. að Súð- arvogi 27. mars 1991 til Sláturfé- lags Suðurlands fyrir 54,5 milljón- ir kr. Sölutap ríkissjóðs vegna þeirrar eignar nemur 63 milljónum kr. og heildarframlag ríkissjóðs vegna Sigló hf. nemur þannig um 174,9 milljónum kr. Sigló hf. hefur verið lýst gjaldþrota og nam krafa ríkissjóðs á félagið um síðustu ára- mót um 88 milljónum kr. Yfírgnæf- andi líkur eru á að um 85 milljón- ir kr. tapist og leggur Ríkisendur- skoðun til að sú fjárhæð verði af- skrifuð. Morgunblaðið/KGA KA og Valur í úrslit Valur sigraði Fylki 4:2 í Árbænum og KA sigraði Akurnesinga 2:0 á Akureyri, í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. KA- menn komast nú í fyrsta skipti í úrslit bikarkeppninnar, en þeir hafa lagt hvert toppliðið af öðru á leið sinni í úrslitaleikinn. Valsmenn héldu sigurgöngu sinni í bikamum áfram, en þeir eru núverandi bikarmeistar- ar. Á myndinni beijast Einar Páll Tómasson Val, og Baldur Bjarnason Fylki, um boltann í leiknum í Árbænum í gærkvöldi. Kröfu um slit Fjölmiðlunar sf. vísað til afgreiðslu stjómar: Langur sáttafundur að afloknum hluthafafundi HLUTHAFAFUNDUR Fjölmiðlunar sf. sem hófst um hádegi í gær stóð aðeins yfir i hálftíma en að honum loknum settust eigendur úr hópi meirihluta og minnihluta innan félagsins niður á löngum sáttafundi sem stóð til kl. 18. Verður þeim viðræðum haldið áfram á mánudag samkvæmt upplýsingum Jóhanns J. Ólafssonar, stjórnar- formanns félagsins. „Það er verið að vinna að sáttum á milli manna,“ sagði hann. „Aðilar málsins vinna að því hörðum höndum að reyna að leysa þá hnúta sem myndast hafa og ég á von á því áð menn reyni heils hugar að ná endum saman," sagði Jóhann Óli Guðmunds- son, einn eigenda Fjölmiðlunar sf. að fundinum loknum. í október 1989 keypti ríkissjóður fasteign Sigló hf. á nauðungarupp- boði fyrir 90 milljónir kr. Eignin var keypt með það fyrir augum að tryggja kröfu ríkissjóðs á 13. veðrétti, sem á uppboðsdegi nam 64,4 milljónum kr. Yfirtekin lán ríkissjóð að 13. veðrétti námu 87,4 milljónum kr. Þá nam útlagður viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna kaupanna 2,8 milljónum kr. Ríkis- sjóður fékk því ekkert upp í kröfu sína á 13. veðrétti. Ennfremur keypti ríkissjóður vélar og tæki Sigló hf. að fjárhæð 29,7 milljónir kr. Kostnaður ríkis- sjóðs vegna kaupa á eignum Sigló hf. ásamt tapaðri kröfu hans í þrotabúið nam því 186,9 milljónum kr. Þann 4. september 1990 gerðu ríkissjóður og Ingimundur hf. í Reykjavík með sér makaskipta- samning. Samkvæmt þeim samn- ingi seldi ríkissjóður Ingimundi hf. eignir Sigló hf. á 75 milljónir kr. Hluthafar í félaginu mótmæltu sölu stjómar félagsins á 150 milljón króna hlut félagsins í Stöð 2 til Útheija hf. að sögn Jóhanns Óla Guðmundssonar og Garðars Sig- geirssonar. Lögð voru fram skrifleg mótmæli á fundinum en stjómar- menn sem stóðu að sölunni héldu uppi vörnum að sögn Garðars. „Þetta þýðir að við erum formlega búnir að hafna þessari sölu því mennimir höfðu ekkert umboð til að selja hlut sem þeir áttu ekki,“ sagði hann. Jóhann J. Ólafsson, stjómarfor- maður Fjölmiðlunar sf., segir að engin ákörðun hafí verið tekin á fundinum í gær og sölu hlutaijárins hafí ekki verið hafnað en nokkrir einstaklingar hafi staðfest afstöðu sína til málsins. Á fundinum var einnig lögð fram krafa um að félaginu verði slitið og var hún tekin til afgreiðslu stjómar en í framhaldi af því þarf að gera félagið upp að sögn Jó- hanns J. Ólafssonar. Lögbannsbeiðni á sölu hlutabréfa Fjölmiðlunar sf. til Útheija hf. sem hópur hluthafa hefur farið fram á verður tekin fyrir hjá sýslumannin- um í Reykjavík á mánudag. Byijað að breyta Höllinníá þessu ári BREYTINGAR og lagfæringar á Laugardalshöllinni vegna heims- meistarakeppninnar í handknatt- leik sem þar verður haldin 1995 verða hafnar á þessu ári. Sæta- fjöldi verður aukinn um 1.200, úr 3.000 í 4.200, auk þess sem ýmiss konar endurbætur verða gerðar á höllinni að utan og inn- an. Að sögn Júlíusar Hafstein, formanns íþrótta- og tómstunda- ráðs, er tími kominn til að endur- bæta Laugardalshöllina og hefði stærstur hluti lagfæringanna verið gerður á henni þó heims- meistarakeppnin hefði ekki verið haldin hér á landi. Höllinni verður, að sögn Júlíusar, breytt úr 3.000 manna húsi í 4.200 manna með því að auka áhorfenda- rými í suðurhluta hússins, við hlið- ina á sviðinu, auk þess sem byggð verður heiðursstúka á sviðinu sjálfu. Pallar í norðurhluta hússins verða lengdir og þeim fjölgað. Jafn- framt verður áhorfendastæðum í efri sal fjölgað. Höllin verður auk þess endur- bætt að öðru leyti, þar á meðal öryggis- og brunavamamál, salern- isaðstaða og veitingasala auk þess sem aðkoma að húsinu og bílastæði fyrir utan verða bætt. Áætlaður heildarkostnaður við breytingarnar er um það bil 60 milljónir króna. „Það er alveg ljóst að stór hluti af þessu hefði verið gerður hvort sem keppnin hefði verið haldin hér eða ekki. Viðbótar- kostnaður vegna keppninnar beint er að öllum líkindum milli 20 og 25 milljónir króna,“ segir Júlíus. „Það er kominn tími til að endur- bæta höllina. Þetta er mannvirki sem er orðið 30 ára gamalt og hef- ur tekið við öllu' sem hér hefur ver- ið að gerast í íþróttum inni þessi ár. Lengst af hefur það auk þess verið eina alvöru keppnishúsið, þó það sé að breytast nú. Þetta er því ekki alvarlegur fjárhagslegur biti fyrir borgina," segir Júlíus. Hann segir að í fjárhagsáætlun fyrir 1992 sé gert ráð fyrir 8,5 milljónum króna í endurbætur á höllinni. Endanleg umfjöllun um málið á eftir að fara fram í borgar- ráði. Wathneshús á Seyðisfirði sem byggt var árið 1896 rifið til grunna um síðustu helgi Bygginganefnd vildi fresta niðurrifí hússins WATHNESHÚSIÐ, eitt af gömlu húsun- um á Seyðisfirði, var rifið til grunna á laugardegi verslunarmannahelgarinn- ar. Hópur manna hafði ráðgert að end- urnýja húsið eftir skemmdir af völdum bruna í janúar í vetur. Það var Friðrik Wathne sem reisti húsið á Reyðarfirði árið 1896. Friðrik flutti húsið síðan til Seyðisfjarðar upp úr aldamótunum og stóð það yst af svokölluðum Watnhes- húsum. Að sögn Arnbjargar Sveinsdóttur for- manns bæjarráðs á Seyðisfirði var það álit bygginganefndar á staðnum að húsfrið- unarlög næðu til Wathneshússins þar sem það var upphaflega reist fyrir aldamót. Eigendum bar því að tilkynna um niðurrif- ið til Húsfriðunarnefndar. Byggingamefnd Seyðisijarðar fór þess á leit við eigenduma að þéir frestuðu niðurrifínu en þeir -urðu ekki við þeim tilmælum. Eigendurinir mættu þó á fund bygginganefndarinnar, sem kölluð var saman á laugardaginn, og skýrðu mál sitt. Jón Guðmundsson, talsmaður eigenda hússins, vísar því á bug að nokkur asi hafí verið á eigendum við niðurrifíð. Hann bendir á að sex mánuðir séu liðnir frá því að húsið brann. Það hafí því verið orðið tímabært að húsið hyrfí, þar sem það hafi verið gerónýtt. Eins bendir Jón á að mörg fordæmi séu fyrir því á Seyðisfirði að hús hafí verið rifín án sérstaks leyfís bygginga- nefndar. Þóra Guðmundsdóttir arkitekt á Seyðis- fírði hafði gert tillögur að endurbótum og nýtingu á Wathneshúsinu fyrir Húsfrið- unarnefnd. Garðar Eymundsson bygginga- meistari skoðaði húsið eftir bmnann og telur að það hafi verið þess vert að gera það upp. Þóra segir að of seint sé að bjarga Wathneshúsinu en kveðst vona að þessi atburður verði til þess að slys af svipuðum toga endurtaki sig ekki. Ambjörg Sveinsdóttir segist álíta að ekki hafi verið búið að reyna til fullnustu að ná samkomulagi milli eigenda Wathnes- hússins og hópsins sem vildi endurnýja húsið. Hún segir að bæjarráð hafí ákveðið að flýta vinnu við að móta stefnu um vemd- un gamalla húsa og húsaraða á Seyðisfírði. Morgunblaðið/Magnús Reynir Fornfrægt hús hverfur Þegar bygginganefndin kallaði eigendur Wathneshúss á sinn fund höfðu þeir þegar byijað að fella húsið. Ákveðið hefur verið að flýta vinnu við að móta stefnu um verndun gamalla húsa á Seyðisfírði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.