Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.08.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992 17 Morgunblaðið/Eiríkur Að bjarga sér sjálfur Maður verður víst að gera þetta sjálfur fyrst enginn annar gerir þetta fyrir mann. Heysalan í óvissu enn ALLT er enn afar óljóst í heysölumálum íslendinga til Norður- landa. Norðmenn munu hafa afþakkað hey austfirskra bænda en Svíar hafa ekki látið heyra til sín síðan norðlenskir bændur sendu þeim sýnishorn. Þeir höfðu sæst á verð en ekki var búist við að samið yrði um kaupin fyrr en í september. Að sögn Ólafs Vagnssonar hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar eru engar skýrar línur komnar í hey- sölumál til Norðurlanda utan þær að Búnaðarsamband Austurlands hefur nýlega fengið skeyti frá við- semjendum sínum í Noregi um að þeir falli frá fyrirhuguðum hey- Ljósmyndamaraþon verður þreytt í fyrsta sinn á Akureyri þann 15. ágúst. Keppnin er haldin í samvinnu Kodak-umboðsins og Ahugaljþsmyndaraklúbbs Akur- eyrar (ÁLKA). Keppnin felst í því að taka ljósmynd- ir af fyrirfram ákveðnum verkefnum eða mótífum eftir tiltekinni röð á ákveðnum tíma. Við rásmark fá keppendur 12 mynda Kodak litfilmu og 3 fyrstu úrlausnarverkefnin og fá ný verkefni á þriggja tíma fresti. Tólf tímum síðar lýkur keppninni og skila keppendur þá fílmunni, eftir kaupum. Ástæður eru tvær, annars vegar mikill flutningskostnaður og hins vegar að aðstæður og veðurfar hafa breyst mjög til hins betra þar heima fyrir. Hvað viðvíkur heysölu norð- lenskra bænda til Svíþjóðar sagði Ólafur að allt væri í biðstöðu. Svíar að hafa tekið eina mynd af hverju verkefni. Verðlaunaafhending verður dag- inn eftir, sunnudaginn 16,. ágúst. Fyrir bestu fílmuna, heildarútkomu, eru verðlaunin Kodak myndgeisla- spilari og fyrir bestu myndina er veitt Kodak S-1100 myndavél. Að auki verður fjöldi verðlauna fyrir ein- stök verkefni. Keppendur þurfa að hafa meðferð- is myndavél fyrir 35mm filmu, en búnaður vélarinnar að öðru leyti skiptir ekki máli. Nánari upplýsingar veitir Kodak umboðið Hans Petersen hf. og Pedromyndir á Akureyri. hefðu verið sáttir á verð sem þeim hefði verið boðið, en þar hefði verið rætt um 12 krónur á kflóið miðað við að bændur flyttu hey að skips- hlið. Svíar hefðu sjálfir ætlað að sjá um flutninga. Það síðasta sem gerst hefði í þessu máli hefði verið að Svíum hefði verið sent sýnishorn af heyi. Hins vegar væri ekki við því að búast að gengið yrði frá þessum málum strax þar sem Svíar hefðu gert ráð fyrir að samið yrði um heykaup í fyrsta lagi í septem- ber. Þeir vildu sjálfsagt reyna til þrautar að útvega sér hey heima fyrir á þeim slóðum sem heyjast hefði og ef til vill brygði að ein- hvetju leyti til betri heyskapartíðar hjá þeim líkt og hjá Norðmönnum. Verðið, 12 krónur fyrir kílóið, sagði Ólafur að væri heldur lægra en það sem væri kallað kostnaðar- verð en nokkrir bændur hefðu verið tilbúnir að selja á þessu verði þar sem víða væri til talsvert umfram- hey, bæði nýtt og einnig afbragðs- gott hey frá fyrra ári. Svíar hefðu beðið um nýtt hey, en ef til kæmi að þeir keyptu það hér kæmi frá þeim fulltrúi til að kynna sér vör- una og yrði honum þá sýnt árs- gamla heyið líka. Keppt í ljósmyndamaraþoni > . Utvegsmannafélag Norðurlands: Boðar til fundar með þingmönnum á Akureyri ÚTVEGSMANNAFÉLAG Norðurlands hefur boðað til fundar á Akur- eyri á miðvikudag. Alþingismenn á Norðurlandi eystra og vestra eru boðaðir til fundarins en þar verður fjallað um vanda sjávarútvegs. Útvegsmannafélag Norðurlands hélt fund með stjórnarþingmönnum af Norðurlandi þann 31. júlí síðastlið- inn og þá var stefnt að því að annar fundur yrði um miðjan ágúst. Nú hefur Útvegsmannafélagið boðað til fundar þar sem vænst er viðveru alþingismanna Norðurlands eystra og vestra. Fundurinn verður á Hótel KEA miðvikudaginn 12. ágúst og hefst klukkan 13. Að sögn Sverris Leóssonar, for- manns Utvegsmannafélags Norður- lands, verður á þeim fundi fjallað áfam um vanda sjávarútvegs í kjöl- far niðurskurðar á aflaheimildum og hugsanlegar leiðir til úrbóta. Útvegs- menn vilji nota tækifærið og ræða þessi mál við þingmenn í tíma, en Alþingi kemur saman 17. ágúst. Hér sé um að ræða hagsmunamál fjöl- margra byggðafiaga og útgerðarað- ila á stóru svæði, en Útvegsmannafé- lag Norðurlands nær yfir svæðið frá Þórshöfn í austri til Skagastandar í vestri. Bæjarstjórn Akureyrar: Oformleg útihátíð á 130 ára afmæli bæjarins Á 130 ára afmæli Akureyrarbæjar 29. ágúst næstkomandi er stefnt að því að bæjarbúar og gestir geti gert sér glaðan dag og líflegt verði í bænum. Þá verður meðal annars fyrsta útiskemmtun á vegum bæj- aryfirvalda á endurgerðu Ráðhústorgi. Að sögn Sigríðar Stefánsdóttur, forseta bæjarstjórnar, er ekki fyrir- hugað að þama verði um formlég eða viðamikil hátíðahöld að ræða, miklu fremur að allir sem geta og hafa áhuga leggi sitt af mörkum til að gera daginn eftirminnilegan. Stefnt er að því að líf og fjör verði í miðbænum, til dæmis útimarkaður og skemmtiatriði og tónleikar af ýmsu tagi. Þannig geti félagasam- tök, kórar og hljómsveitir komið fram á nýendurgerðu Ráðhústorgi á fyrstu viðburðum sem bæjaryfirvöld standa að þar, svo eitthvað sé nefnt. Áuk þessa er ætlunin að söfn verði opin og skipulagðar verði gönguferð- ir um bæinn, bæði sögulegar og nátt- úrufræðilegar. Sigríður sagði að stefnt væri að því að virkja sem allra flesta krafta sem fyrirfyndust í bænum og vildi hvetja alla þá sem hafa eitthvað fram að færa eða vilja taka þátt í útimark- aði og öðrum uppákomum á afmæl- inu til að hafa sem fyrst samband við skrifstofu íþrótta- og tómstunda- fulltrúa Akureyrarbæjar. Sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni: Fullt hefur verið í allt sumar Á morgun, sunnudag, lýkur starfi sumarbúða KFUM og KFUK að Hólavatni í Eyjafjarðarsveit. Að kaffisölu I sumarbúðunum. Sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni hafa starfað óslitið síðan 1965. í sumar voru þar 5 dvalarflokkar fyrir drengi jafnt og stúlkur og auk þess dvöldust þroskaheftir í búðunum í nokkra daga. Aðsóknin var mjög góð og var fullskipað í alla dvalarflokka. Alls voru um það bil 150 böm í sumarbúðunum að Hólavatni í sum- ar. Sumarbúðastjóri var Sigfús vanda mun starfinu ljúka með Ingvason guðfræðingur og ráðs- kona var Þórey Sigurðardóttir. Samkvæmt fréttatilkynningu frá KFUM og KFUK er venja að sumarstarfinu ljúki með kaffisölu þar sem gestir geta fengið sér hressingu og styrkt sumarbúða- starfið. Kaffisalan verður á morg- un, sunnudag, klukkan 14.30 til 18.00. Verkalýðsfélagið Eining: Skorar á stjómvöld að endurskoða ákvörðun um hagræðingarsjóð STJÓRN verkalýðsfélagsins Ein- ingar mótmælir ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að nota ekki kvóta hagræðingarsjóðs til að jafna áfall sem byggðir verða fyrir vegna skerðingar þorskkvóta og skorar á ríkisvaldið að endur- skoða ákvörðunina. Á stjórnarfundi verkalýðsfélags- ins Einingar 6. ágúst síðastliðinn var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: „Stjóm verkalýðsfélagsins Ein- ingar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að nota ekki kvóta Hagræðingarsjóðs til að jafna það áfall sem sumar byggðir, einkum á Norðurlandi og Vestfjörð- um, verða fyrir við hina miklu kvótaskerðingu í þorski. Atvinnuástand á Eyjafjarðar- svæðinu mun versna til muna þar sem fiskveiðar byggjast nær ein- göngu á þorskkvóta. Skerðingin gæti samsvarað eins til tveggja mánaða vinnu þar sem hún er mest. Stjórnin skorar á ríkisvaldið að endurskoða ákvörðun sína um Hag- ræðingarsjóðinn þannig að þeim sveitarfélögum sem verða fyrir mestri skerðingu verði úthlutað kvóta úr Hagræðingarsjóði þeim að kostnaðarlausu." (Úr fréttatilkynningii.) UTVEGSMENN NORÐURLANDI Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til fundar á Hótel KEA, Akureyri, miðvikudaginn 12. ágúst nk. kl. 13.00. Dagskrá: Staða útgerðar. Þingmenn í Norðurlandskjördæmi eystra og vestra boðaðir á fundinn. Stjórnin. Hreppsnefnd Grýtubakkahrepps auglýsir eftir hugmyndum að merki fyrir sveitarfélagið. Keppnislýsing fæst afhent á skrifstofu Grýtubakka- hrepps, Gamla skólahúsinu, 610 Grenivík, sími 96-33159. Skilafrestur er til 15. október 1992. Þrenn verðlaun verða veitt, samtals að upphæð kr. 170.000,- Akureyrarbær auglýsir almennan kynningarfund um reglugerð um gerð og staðsetningu skilta (auglýsingaskilta) á Ak- ureyri. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 11. ágúst kl. 10.00 fyrir hádegi í húsi aldraðra við Lundargötu 7. Fundurinn er einkum ætlaður verslunarmönnum, atvinnurekendum og öðrum auglýsendum og hagsmunaaðilum. Reglugerðin mun liggja frammi á bæjarskrifstof- unum, 2. hæð, á mánudag þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana. Byggingarfulltrúi, bæjarlögmaður, skipulagsstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.