Morgunblaðið - 08.08.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992
9
Ánægðir aðstandendur Veggfóðurs eftir frumsýninguna. Frá vinstri:
Jóhann Sigmarsson, Steinn Ármann Magnússon og Júlíus Kemp.
Veggfóður samtímis í
tveimur stórum sölum
ÍSLENSKA kvikmyndin „Veggfóður, erótísk ástarsaga" var frum-
sýnd í Bíóborginni í fyrrakvöld. Hún var jafnframt tekin til al-
mennra sýninga í tveimur stórum sölum Bíóborgarinnar og Bíóhallar-
innar. Myndin er reykvísk ástarsaga og er sjónum beint að lífí ungs
fólks í höfuðstaðnum.
Kostnaður við gerð myndarinnar
nam samtals um 20-25 milljónum
króna en að sögn framleiðenda
tókst það „með útsjónarsemi, dugn-
aði og velvild ótal aðila“. Aðstand-
endur myndarinnar telja að svo
kunni að fara að frumsýning þess-
arar myndar verði til að hleypa
nýju lífi í kvikmyndagerð. Það sé
nú sannað að hægt sé að gera kvik-
mynd í fullri lengd fyrir lítið fé ef
áhugi er fyrir hendi.
Júlíus Kemp og Jóhann Sigmars-
son framleiddu myndina auk þess
sem þeir skrifuðu handritið í sam-
einingu. Leikstjórn var í höndum
Júlíusar en um kvikmyndatöku sá
Jón Karl Helgason. María Ólafs-
dóttir sá um búninga, Máni Svav-
arsson um tónlist, Sigríður Sigur-
jónsdóttir um leikmynd og Stein-
grímur Karlsson um klippingu.
AÐSTOÐ Á HEIMILI
Aðstoð óskast á heimili í Breiðholti vegna veikinda.
Vinnutími frá kl. 15.30—20.00 mánudaga til
fimmtudaga.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrrí störf leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merktar A — 10353" fyrir 11. ágúst nk.
Njóttu lífsins...
með því að auka frítíma frá náminu ( vetur.
Bættu námsárangur þinn með minni fyrirhöfn.
Á hraðlestrarnámskeiði margfaldar þú lestrarhraðann og bætir
eftirtekt við allan lestur. Fyrir þá, sem vilja auðvelda námið,
gefst nú gott tækifæri með því að koma vel undirbúin(n) í skólann.
Athugið: Nemendur fjórfalda að jafnaði lestrarhraða sinn á nám-
skeiðunum. Þeir, sem ekki tvöfalda lestrarhraða sinn, fá endur-
grelttl
Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 13. ágúst nk.
Skráning f sfma 641091.______________________________
HRAÐLESTRARSKOLINN
S 1978-1992 E
SÓKNARBÖRN
IANGHOLTSKIRKJU
Sumarleyfum starfsfólks kirkjunnar er að
Ijúka. Þjónusta kirkjunnar hefst á sunnudag-
inn með hámessu kl. 11.00.
Ferð fyrir aldraða í boði Bæjarleiðabílstjóra
og Kvenfélags Langholtssóknar verður farin
þriðjudaginn 11. ágúst. Brottför frá safnað-
arheimilinu kl. 13.00. Ekið verður austur að
Nesjavallavirkjun og síðan farið í Þorláks-
hafnarkirkju.
Séra Flóki Kristinsson,
Sovétmafían
lifði af lýðræð-
isbyltingnna
Alþýðubladið segir í
forystugrein:
„Ríkissjónvarpið sýndi
áhugaverða heimildar-
mynd í fyrrakvöld um
peningavöíd forréttinda-
stéttar fyrrum Komm-
únistaflokks í Sovétrikj-
unum. Myndin, sem var
gerð af brezka ríkissjón-
varpinu, BBC, segir frá
þvi hvemig forréttinda-
stétt komniúnista, sem
vanist hafði Iúxuslífi
meðan alþýðan svalt,
hafði komið fyrir auðæf-
um ríkisins í fyrirtækjum
og fjármálastofnunum,
bæði í Samveldinu og
erlendis. Forréttinda-
stéttin, sem gjaman er
kölluð Nomenklatura,
virðist hafa lifað af lýð-
ræðisbyltinguna og kom-
ið sér þægilega fyrir á
nýjan leik án þess að
missa spón úr aski sfnum
meðan allur almenningur
í fyrrum Sovétríkjum býr
við efnahagslega og at-
vinnulega upplausn í
kjölfar perestrojkunnar.
Það tómarúm sem
myndast hefur við um-
breytinguna frá komm-
únisma til kapítalisma
virðist hafa verið hag-
stæður tími fyrir hátt-
setta embættismenn,
flokksgæðinga, herfor-
ingja og aðrar forrétt-
indaklíkur gamla Komm-
únistaflokksins. Flokks-
broddunum gömlu hefur
tekist að koma leynileg-
um sjóðum fyrir á ótrú-
legustu stöðum til að
tryggja framtið sína og
fjárhagslegt öryggi
flokksins. Það sem vekur
einna mesta eftirtektina,
er hvemig gæðingum
Kommúnistaflokksins
hefur tekist að lifa af
umbreytinguna á
sovézku þjóðfélagi og
jafnframt að nýta sér
einkavæðinguna og aðr-
ar lýðræðislegar efna-
hagsaðgerðir og færa sér
í nyt á eigin spýtur eða
í samstarfi við alþjóðlega
auðhringi og bankasam-
steypur.“
Tíminn
FBJALSLYWPIS, SAMVHWU 00 FÉLAGSHYCBJU
Fjölskylduvemd er
heilbrigðismál
Einkavæðingin í Sovét
og á íslandi
Kerfið er hrunið en
Nomenklatúran lifir
Marxískt þjóðskipulag A-Evrópuríkja og
Sovétríkja er hrunið. En hugmyndafræði
marxismans er enn til staðar í veröld-
inni, sem og „forréttindastétt kommún-
ista“ í fyrrum Sovétríkjum, ef marka má
heimildarmynd brezka ríkissjónvarpsins,
BBC, sem fjaliað var um í forystugrein
Alþýðublaðsins í fyrradag. Staksteinar
glugga í hana sem og leiðara Tímans í
gær um fjölskylduvernd og heilbrigðis-
mál.
Börnin og að-
standendurnir
Tíminn segir í forystu-
grein í gær:
„Ástand ijölskyldunn-
ar hefur mikil áhrif á
heilsufar og staðfest er
með rannsóknum hér og
erlendis, að þeir sem
lenda í þjónaskilnaði eiga
oft við meira heilsufars-
og sálarlega vanheilsu að
stríða en þeir sem lifa í
farsælu hjónabandi.
Áhrif þjónaskilnaða á
börn eru langvinn og oft
n\jög neikvæð. Athygli
vekur að dauði föður eða
langar fjarvistir hafa
minni langtimaáhrif á
börn en missir föður
vegna hjónaskilnaðar.
Einnig það að bömum
sem fæðast utan hjótui-
bands, sem oft eiga ung-
ar mæður, famast oft
betur en bömum sem
lenda í aðskilnaði for-
eldra. Sennileg orsök er
sú að fjölskyldutengsl og
aðstoð náinna aðstand-
enda við þau er oft til
fyrirmyndar, segir í
skýrslu landlæknis. Ekki
er sagt hverjir þessir
nánu aðstandendur em,
en ekki mun fjarri lagi
að geta þess til að þar
séu ömmur og afar og
kannski systkini foreldra
bamsins. En hver sem
tengslin em hlýtur það
að vekja athygli, að vel-
ferð bama byggist ekki
eingöngu á umhyggju
foreldranna heldur allr-
ar Ijölskyldunnar."
Fjölskyldu-
vemd er heil-
brigðismál
Siðan segir Tíminn:
„Félagslegar orsakir
upplausnar og vanheilsu
má rekja til fjárhags-
vanda, einangrunar,
streitu, sálarkramar,
reykinga og neyzlu
áfengra drykkja, segir í
skýrslu landlæknis um
breytingar á kjamafjöl-
skyldunni.
Á þessu má sjá að fjöl-
skylduvemd er heil-
brigðismál og að tómt
mál er að tala um velferð
bama án tengsla þeirra
við (jölskylduna og sína
nánustu. Og fjölskyldu-
vemd er þjóðfélagsmál
sem öllum kemur við þvi
að upplausn fjölskyld-
unnar fylgir gliðnun
samfélagsins. Bersýni-
legt er að breytingar á
kjamafjölskyldunni em
flestar til hins verra og
er þróunin örari en góðu
hófi gegnir.
Fátt verður um svör
þegar spurt er hvað sé
tíl ráða enda ekki létt
verka að sigrast á tíðar-
anda. En reyna mættí að
byija á að treysta íjár-
hagsgrundvöll heimila
umfram allt og búa
kjaraafjölskyldunni það
öryggi sem henni er
nauðsynlegt til að halda
velli.
Þá gætu opinberir
uppalendur að ósekju lát-
ið heimilum og íjölskyld-
um eftir eitthvað af upp-
eidi og uppfræðslu
baraa.
En ef kjamaljölskyld-
an er úrelt þing er sjálf-
sagt að hýsa ömmumar
í gamalmennaturaum og
sjá foreldrunum fyrir
nægri vinnuþrælkun tíl
að standa undir lánasjóð-
um og húsbréfum og
heimta fleiri og stærri
stofnanir til að bömin
þurfi sem minnst af
venslafólki sinu að hafa
að segja. En hverra kosta
sem völ er ættí aldrei að
gleymast að fjölskyldu-
og bamavemd er heil-
brigðismál, og það ekki
Iítíð.“
Armstrong
KERFIS-LOFT
Yíir 250 gerðir
af loftaplötum.
CMC -
upphengikerfi
og lím.
Leitið tilboða
EINKAUMBOÐ
TEPPABÚÐÍN
BYGGINGAVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 26.
SÍMI 91-681950
Innanhússarkitekt
ráðleggur
viðskiptavinum
Metró
Guðrún Benediktsdóttir
innanhússarkitekt, FHÍ,
ráðleggur um val á KAM-
INNRÉTTINGAR 'nnréttingum 1 versluninni
Metró fimmtudag og
föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14.
í hinni glæsilegu KAM-línu eru eldhúsinnréttingar,
baðherbergisinnréttingar og fataskápar.
Veríð velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf.
iMVMETRÓ
__________í MJÓDD___________
ÁLFABAKKA 16 • REYKJAVÍK • SÍMI 670050
BÍLASÝNINGÍDAGKL. 10-14
Komió og skoóió 1992 árgeróirnar af MAZDA !
RiESIR HF
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVlK S.61 95 50