Morgunblaðið - 08.08.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.08.1992, Qupperneq 14
4*i|Í jfif $■•&%<§ R M MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992 ; , iðlllJI|£%l i Jt .. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992 15 JKtftgnnMnMfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. ( lausasölu 110 kr. eintakið. Ofsóknir og voða- verk Tæknin hefur fært þjóðir heims í nábýli; svo að segja í túnfót hvor annarrar. Það er fárra tíma ferð um loft- in blá til fyrrum Júgóslavíu þar sem sólþyrstir íslendingar flat- möguðu til skamms tíma á ströndum Adríahafsins. Á þessu gamalgróna ervrópska menningarsvæði, sem fyrrum ríki Júgólavíu heyra til, ríkir nú ógnaröld; vopnað og deyð- andi hatur, magnað af úreltri hugmyndafræði og þjóðemis- þröngsýni, sem valdið hefur dauða og limlestingum ótalinna þúsunda saklausra borgara, þar á meðal barna. Hemaðurinn á þessu svæði hefur leitt til mesta flótta- mannavanda í Evrópu frá lykt- um síðari heimsstyijaldarinnar. Talið er að 2,3 milljónir manna hafí flúið heimkynni sín í fyrr- um ríkjum Júgóslavíu og þús- undir flosna upp á degi hverj- um. Meirihluti flóttamannanna er á leið vestur frá yfirráða- svæðum Serba í Bosníu og Króatíu. Milli 400 og 500 þús- und flóttamenn em þegar utan landamæra þeirra ríkja sem áður mynduðu Júgóslavíu, flestir í Þýzkalandi. Það segir sína sögu að stór hluti flóttamannanna hrökkl- aðist ekki frá heimkynnum sín- um beinlínis vegna bardaga, heldur var þeim smalað saman, haldið í búðum en síðan flæmd- ir á burt í skipulegri herferð serbneskra hersveita, sem stefna að því að skapa „þjóðern- islega hrein svæði“, eins og það heitir í skýringu gjörendanna. Á síðustu vikum og dögum berast æ óhugnanlegri féttir af ofsóknum Serba á hendur Kró- ötum og múslímum í Bosníu- Herzegovínu. Það er ekki nóg með að íbúum þorpa á land- svæðum, sem Serbar girnast, sé smalað saman, fjölskyldum sundrað, og fólk flutt þúsund- um saman úr heimkynnum sín- um. Brezkir fréttamenn, sem rætt hafa við flóttamenn í Norð- ur-Bosníu, segja að Serbar stundi skipulegt ofbeldi í „þjóð- ernishreinsunum“ sínum og gera því jafnvel skóna, að þeir reki útrýmingarbúðir að hætti nazista í síðari heimsstyrjöld- inni. Fréttamaður ITN-sjón- varpsins, sem fékk aðgang að Omarska-búðunum sagði fanga greinilega vannærða og ástand fólksins réttlætti kröfur um taf- arlausa rannsókn á aðbúnaði þess. „Fólk, sem kom frá Om- arska, sagði að barsmíðar og nauðganir væru þar daglegt brauð,“ segir í Reuters-frétt hér í Morgunblaðinu í gær. Milan Panic, forsætisráð- herra Júgóslavíu (þ.e. Serbíu og Svartfjallalands), ber af Serbum slíkar sakir og fór í fyrradag með fréttamenn í fangabúðir fyrir múslima til að styðja mál sitt. En umheimur- inn hefur hryggilegar sannanir fyrir grimmdinni, sem við- gengst í ógnaröldinni í Bosníu- Herzegovínu, í skotárás Serba á rútu, er flutti sjúk og van- nærð börn frá Sarajevo, og í sprengjuhríð á aðstandendur við útför bamanna sem drepin voru. Bandaríkjamenn hafa nú formlega viðurkennt Bosníu, Króatíu og Slóveníu. Sú viður- kenning hefur enn þrengt stöðu Serbíu eða þeirra afla, sem standa fyrir hernaðaraðgerðum í þágu „draumsins“ um Stór- Serbíu. Bush Bandaríkjaforseti hefur jafnframt krafist þess að fangabúðir Serba verði opnaðar eftirlitsmönnum til að ganga úr skugga um réttmæti framko- minna ásakana um „einangrun- ar- og útrýmingarbúðir“. For- setinn hefur og fyrirskipað taf- arlausa rannsókn á því hvort Serbar séu sekir um „þjóðar- morð“ í Bosníu, það er standi að skipulögðu ofbeldi í meintum „þjóðernishreinsunum“. Því miður hefur margra mán- aða viðleitni Sameinuðu þjóð- anna og grannríkja í Evrópu til að stöðva ógnaröldina í fyrrum ríkjum Júgóslavíu eftir samn- ingaleiðum ekki borið neinn umtalsverðan árangur. Vopna- hlé, sem samið hefur verið um, og þau skipta tugum, hafa ver- ið brotin svo að segja jafnóðum og gerð hafa verið. Því miður hafa Serbar ítrekað með vopna- valdi komið í veg fyrir bráð- nauðsynlegt hjálparstarf við saklaus fórnarlöinb átakanna á þessu svæði. Þess vegna er nú í fullri alvöru talað um að Sam- einuðu þjóðimar beiti sér fyrir hernaðarvernd við hjálparstarf fyrir nauðstadda. Og verði ekki lát á hroðalegum ofsóknum Serba á hendur Króötum og múslímum mun kröfunni um hernaðaríhlutun umheimsins, til að koma á viðunandi ástandi í fyrrum ríkjum Júgóslavíu, hraðvaxa fylgi. Kaup Hagkaups á helmingshlut í Bónus: Hagkvæmarí innkaup geta leitt af sér lægra vöruverð - segja forsvarsmenn fyrirtækjanna KAUP Hagkaups á helmingshlut í Bónusverslununum er til þess gert að styrkja stöðu beggja fyrirtækjanna að sögn forsvarsmanna þeirra og búa þau undir hugsanlega samkeppni erlendis frá með tilkomu Evrópsks efnahagssvæðis. Með sameiginlegum innkaupum fyrirtækjanna sé hægt að ná fram stærðarhagkvæmni sem geri mögulegt að lækka vöruverð. Fyrirtækin verði áfram að öllu öðru leyti rekin sjálfstætt og verði í samkeppni hvort við annað. Þeir segja að kaupverðið sé trúnaðarmál og verði ekki gefið upp, en af viðskiptunum hefði ekki orðið nema að báðir væru sáttir. „Við göngum til þessa samstarfs í upphafi með blendnum huga. Við höfum verið í hörkusamkeppni. Það er búið að vera virkilega gaman og við vonum að við verðum í hörkusamkeppni og það verði áfram gaman. Það er ekkert gaman í verslun ef kúnninn er ekki ánægð- ur,“ segja þeir í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Samstarf til að verða sterkari Jóhannes Jónsson í Bónus sagði aðspurður að fyrirtækin gengju til samstarfs á grundvelli styrkleika síns til þess að verða enn sterkari. Fyrirtækin væru ekki að ganga til samstarfs vegna veikleika annars fyrirtækisins eða beggja, eins og venjan væri hér á landi. „Ástæðan er sú að við verðum betri dreifendur á matvæium; nauðþurftum almenn- ings, svo góðir, að það verður ekki heillandi fyrir erlenda aðila að hasla sér völl á smásölumarkaðnum á ís- landi, sem óneitanlega hefur verið ýjað að við okkur. Ef við stöndum okkur ekki og verðum stórir inn- kaupaaðilar opnum við hliðin fyrir erlenda aðila, sem geta hafið hér starf eftir gildistöku samningsins um Evrópskt efnahagssvæði vænt- anlega um næstu áramót," sagði Jóhannes. Þeir segja aðspurðir að það sé alls ekki ástæðan að fyrirtækin séu að sameinast af því að samkeppnin hafi verið að verða þeim ofviða. Það hafí verið að gerast um alla Evrópu að fyrirtæki hafi verið að sameinast til að standast þá auknu samkeppni sem menn sjái fram á. „Það er þró- un í Evrópu, sérstaklega í matvöru- versluninni, að verslunarkeðjunum er að fækka og þær eru að stækka. Þar með aukast möguleikarnir á að auka hagkvæmnina. Markaðurinn á Islandi er lítill og við verðum að vera stórir til þess að geta gert hagkvæm innkaup. Þó við séum stórir á íslenskan mælikvarða erum við óskaplega litlir í samanburði við erlenda aðila í matvöruverslun," sagði Sigurður Gísli. Samkeppni fyrirtælganna heldur áfram Þeir segja að samkeppni fyrir- tækjanna muni halda áfram. „Ég tel mig hafa þær skyldur við al- menning eins og hann hefur tekið mér að standa mig í samkeppninni og ég veit að Hagkaup mun einnig gera það,“ segir Jóhannes og Sig- urður Gísli tekur undir við hann. Hann segir að það sé rétt að undir- strika að það verði sáralitlar breyt- ingar á rekstrarfyrirkomulagi versl- ananna við þessi kaup. „Það verða engar breytingar gerðar á rekstri Bónusverslananna. Jóhannes og Jón Ásgeir sonur hans, munu reka þær alveg eins og verið hefur,“ segir Sigurður Gísli. Þeir segja að sama gildi um rekst- ur 10-11 verslana, hann verði áfram í höndum Eiríks Sigurðssonar. Hag- kaup, Bónus og 10-11 verslanirnar bjóði upp á þijá máta fyrir fóik til að versla sem samræmist að mörgu leyti ágætlega. Hagkaup hafi lang- an opnunartíma, mikið vöruúrval og leggi áherslu á ferska matvöru. Bónus verslanirnar séu opnar rúmar sex klukkustundir á dag, séu með fáar vörutegundir og leggi höfuðá- herslu á að hafa vöruverð í algjöru lágmarki. 10-11 verlanirnar bjóði síðan upp á lengstan opnunartíma fyrir fólk sem vill versla þegar því hentar. Ef til vill sé þetta upphafið að það skapist hefðir í matvöruversl- un hérlendis. Vonandi fylgi þessu síðan stöðugleiki, en það hafi verið þessari atvinnugrein fjötur um fót undanfarna áratugi. Það sýni þær verslanir og verslanakeðjur sem hafi horfið undanfarin ár. Þessi óstöðugleiki verði ekki neytendum til góðs ef svo haldi áfram. Með því fyrirkomulagi sem nú verði til sé verið að þjóna neytandanum vel bæði hvað varðar verð, gæði og þjónustu. Þessi þijú verslunarform geti þrifist vel hlið við hlið og veitt hvert öðru aðhald þar sem þau verði öll rekin sjálfstætt. Stjómunarlega muni Hagkaup ekki hafa nein af- skipti af Bónus. Hins vegar geti fyrirtækin gert innkaup sameigin- lega þegar það henti og þau geti í miklu ríkari mæli verslað beint við framleiðendur erlendis og hérlendis og flutt vöru beint frá framleiðend- um. Það muni skila sér í betri kjör- um. Engu að síður verði samkeppn- in hörð milli fyrirtækjanna um kúnnana. Sigurður Gísli segir að sennilega hefði verið útilokað að ná þessu samkomulagi um kaupin ef eigend- ur Hagkaups sæju um daglegan rekstur fyrirtækisins eins og verið hefði fyrir fáum árum. Þá hefðu menn verið svo uppteknir af sam- keppninni að tími hefði ekki gefist til að hyggja að öðru. Aðspurður hvort ekki megi segja að Hagkaup standi á krossgötum með þessum kaupum og það boði fráhvarf frá þeirri stefnu fyrirtækisins að vera mjög ódýr verslun, segir hann: „Við leggjum ekki áherslu á verð ein- göngu lengur, fleira kemur til. Um margra ára skeið hefur Hagkaup verið leiðandi í verðum. Síðan höfum við aukið mjög vöruvalið og þjón- ustuna í gegnum tíðina og lagt meiri og meiri áherslu á gæði og úrval í ferskmeti, sem betur fer eru þarfir fólks mismunandi. Þessi þró- un gerði það að verkum að það skapaðist þörf fyrir ódýrari verslun. Með þessu samkomulagi má segja að það sé verið að innsigla ákveðna þróun sem hefur átt sér stað í gegn- um árin. Hagkaup leggur ekki áherslu á verð eingöngu lengur, heldur leggjum við einnig áherslu á úrvál, þjónustu og gæði. Það þýðir auðvitað ekki að við gleymum verði vörunnar, því við þekkjum það af reynslunni að það má ekki sofna á verðinum,“ segir Sigurður. Fyrsta Bónusverslunin opnuð 1989 Aðspurðir segjast þeir hafa trú á því að þetta geti leitt af sér lægra matvöruverð fyrir neytendur og þessi samvinna eigi að leiða til þess. „Ef við stöndum okkur ekki eins vel og hægt er í þessum efnum erum við að gefa öðrum tækifæri. Það hefur sýnt sig í gegnum árin að samkeppnin í versluninni er svo miskunnarlaus og á því verður eng- in breyting. Það er ekki hægt að kaupa sig frá því,“ segja þeir. Aðspurðir segja þeir að markaðs- hlutdeild fyrirtækjanna beggja í matvörusölu sé líklega um 30% á landsvísu og rúmlega 35% á suð- vesturhorninu. Bónus rekur nú fimm verslanir í Reykjavík, Kópa- vogi og Hafnarfírði. Fyrsta verslun- in var opnuð í apríl 1989 í Skútu- vogi í Reykjavík. Að auki eru opnar tvær 10-11 búðir, önnur í Kópavogi og hin í Reykjavík. Til viðbótar er ráðgert að Bónus opni tvær nýjar verslanir og 10-11 aðrar tvær. Eng- in breyting verður á þessum fyrir- ætlunum. Hagkaup rekur níu mat- vöruverslanir í Reykjavík, Seltjam- arnesi, á Akureyri og í Njarðvíkum. Samtals eru þetta sextán matvöru- verslanir. „Það er því mikil ábyrgð á okkar herðum og við verðum að standa okkur,“ segja þeir. Aðspurðir hvort þeir séu ekki smeykir við viðbrögð viðskiptavina sinna við þessum kaupum í ljósi þess að fyrirtækin hafa átt í mjög harðri samkeppni allt frá því Bónus- verslanirnar hófu göngu sína, segir Jóhannes: „Ég er svo hræddur við Álitsgerðin var samin að beiðni Kristins Péturssonar, stjórnar- manns í Félagi um nýja sjávarút- vegsstefnu. Sigurður Líndal byggir niðurstöður sínar m.a. á 69. grein stjórnarskrárinnar þar sem segir: „Engin bönd má leggja á atvinnu- frelsi manna, nema almenningsheill krefji, enda þarf lagaboð til.“ Sig- urður vitnar til Hæstaréttardóms sem kveðinn var upp 15. desember 1988 þar sem meirihluti réttarins skýrði framangreint stjórnarskrárá- kvæði á eftirfarandi hátt: „Sam- kvæmt 69. grein stjómarskrárinnar þarf lagaboð til að leggja bönd á atvinnufrelsi manna. Með orðinu „lagaboð" er átt við sett lög frá Alþingi. Reglugerðarákvæði nægja ekki ein sér ... “ Sigurður telur í betra samræmi við stjórnskipan rík- isins að lögum verði breytt í það horf að Alþingi taki sjálft ákvörðun um þann heildarafla sem veiða má. „Slíka ákvörðun ber að taka með lögum, en ekki fela hana ráðherra svo sem gert er. Sú skipan er ekki í samræmi við þessa viðurkenndu meginreglu," segir í álitinu. Sigurður bendir þó á að íslenskir dómstólar, eins og dómstólar á Norðurlöndum, hafí farið afar gæti- Iega við það að lýsa lög andstæð stjómarskrá. viðbrögðin að ég er alveg ákveðinn í að standa mig og halda áfram á þeirri braut sem ég hef verið á. Ef við ætlum að fara að reka fyrirtæk- ið af einhverri græðgi þá drepur það okkur og við erum alveg fullkom- lega meðvitaðir um það. Fólk er alltof vel upplýst til að láta bjóða sér slíkt.“ Þörf á menntunarátaki fyrir verslunarfólk Sigurður Gísli segir að ef eitthvað sé slakað á klónni varðandi verð og gæði þá komi einfaldlega fram nýir samkeppnisaðilar sem bjóði betur. „Ég held að fólk skilji það samt líka að til þess að geta rækt skyldur sínar þurfa fyrirtækin að standa styrkum fótum og að stöðugleikinn er eftirsóknarverður.“ Sigurður segir að það sé ekki markmið í sjálfu sér að verða stærri, heldur sé öllum fyrirtækjunum það sameiginlegt að þau vilji vera best, hvert á sínu sviði. Hann sagði að Bónus væri einstaklega vel rekið fyrirtæki og hann gæti fullyrt að það væri ekki lakar rekið en best gerðist erlendis í smásöluverslun. Jóhannes segir að síðast en ekki Endurskoðunarnefndin athugi þetta sérstaklega Davíð Oddsson forsætisráðherra kvaðst ekki hafa vitað um að þetta mál hefði yfírleitt verið á döfínni. Álit Sigurðar kæmi sér því á óvart. Hann hefði ekki sjálfur tekið þátt í þessari lagasetningu á sínum tíma og hefði því ekki haft ástæðu til að setja sig inn í málið. Davíð segir að álit Sigurðar Líndals sé mjög afgerandi varðandi það að framsal valds með þeim hætti sem þarna hafí verið gert bijóti í bága við 69. grein stjómarskrárinnar. „Hann vekur þó athygli á því að dómstólar hér hafí verið mjög hikandi við að skerða mat almenna löggjafans á því hvaða svigrúm stjórnarskráin veiti þeim til lagasetningar. Ríkis- stjórnin ræddi þetta í dag og ljóst er að með nefndarstarfi er verið að undirbúa endurskoðun á núverandi lögum um stjórn fiskveiða. Það er eðlilegt að þetta atriði komi sérstak- lega til athugunar þar og frekari lögfræðilegrar skoðunar. Þarna er um eitt álitið að ræða, sem er að vísu mjög afgerandi, en við myndum vilja fara mjög ítarlega í þetta og hafa það til hliðsjónar við endur- skoðun á lögunum. Ef menn mætu það svo að þarna væri um framsal valds að ræða sem ekki stæðist yrðu síst hafí menntun starfsfólks í smá- sölugreinum verið í algjörum molum undnfarin ár og þar telji hann virki- lega þörf á átaki. Þar muni fyrir- tækin örugglega taka til hendinni, því ástandið hérlendis í þeim málum sé langt að baki því sem gerist hjá nágrannaþjóðunum. Fólk stoppi stutt við í þessari atvinnugrein og því verði að linna, því mikill kostnað- ur sé samfara því að vera í sífellu að þjálfa nýtt starfsfólk. Starfs- greinin njóti ekki þeirrar virðingar sem henni beri og þetta gegnum- flæði fólks sé ein af ástæðunum fyrir því að hún sé láglaunagrein. Þjálfað starfsfólk skili betri afköst- um og það sé hægt að borga því hærri laun. Þetta sé því eitt af stærstu verkefnunum sem blasi við. menn að skilja meira á milli reglu- gerðarvalds annars vegar og laga- setningarvalds hins vegar. Eg geri ráð fyrir þvf að sú nefnd sem vinn- ur að endurskoðun laganna muni að sjálfsögðu biðja um lögfræðilega athugun sérstaklega í framhaldinu og þá ráðleggingar um hvemig rétt væri að bregðast við,“ sagði forsæt- isráðherra. Víðtæk áhrif á alla stjórnsýslu „Þessi niðurstaða kemur mér spánskt fyrir sjónir. Það er nýtt að fræðimenn túlki þetta ákvæði stjórnarskrárinnar svona þröngt. Hins vegar hafa umræður verið, ekki síst á síðustu árum, um það hvort þingið hafí gengið of langt í framsali á valdi til ráðuneyta. Ég er almennt þeirrar skoðunar að það sé mikið íhugunarefni hvar þau mörk eigi að liggja. Ef hins vegar þetta yrði almennt talin rétt túlkun sýnist mér í fljótu bragði að hún myndi hafa mjög víðtæk áhrif á alla stjórnsýslu. Hún myndi kippa grundvellinum undan mjög veiga- mikilli löggjöf á sviði atvinnumála, bæði í sjávarútvegi, iðnaði og land- búnaði. Einnig á sviði heilbrigðis- mála og hollustuvemdar. Það er engum vafa undirorpið að túlkun sem þessi á stjómarskránni mun kollvarpa þeirri framkvæmd sem höfð hefur verið á í stjórnsýslu hvað varðar þessi svið þjóðfélagsins og því hafa mjög mikil áhrif. Mér sýn- ist að það yrði mjög erfítt að koma við markvissri verndun og stjórn á nýtingu fiskistofnanna. Vissulega mætti taka slíkar ákvarðanir með Iögum en það er hætt við því að það yrði svo svifaseint og þungt í vöfum að það yrði lítið um mark- vissa stefnumótun í þeim efnum,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Jóhannes segir að matvöruverð hafi lækkað vemlega að raunverði hérlendis á undanförnum áram og í fyrsta skipti séu nýlenduvörur hér sem keyptar séu erlendis frá að nálgast það verð sem sé á þeim í nágrannalöndunum. Það sé land- búnaðarkerfið sem geri það að verk- um að heimili á íslandi séu dýrari í rekstri en erlendis. „Núna verður ekki um sinn hægt að sækja hag- vöxtinn í hafíð. Við ætlum að sjá hvort ekki er hægt að skapa sam- stöðu um að hagvöxturinn verði til á heimilunum með lækkun vöm- verðs. Eiga hagsmunir fjöldans að víkja fyrir hagsmunum hinna fáu? Er það eðlilegt? Það er ekki síst okkar sameiginlega baráttuefni inn í framtíðina,“ segja þeir að lokum. „Fyrst þurfa menn að átta sig á því hvort þetta telst rétt túlkun á stjórnarskránni og víðtækari lög- fræðilega umræðu um það efni. Ef þetta er á hinn bóginn talið rétt kemur tvennt til álita. Annars vegar að breyta allri löggjöf sem þessi túlkun kann að hafa áhrif á, sem fæli í sér grundvallarbreytingu á nánast allri atvinnuvega-, umhverf- is- og hollustuháttalöggjöf í landinu, eða þá að breyta stjómarskránni," sagði sjávarútvegsráðherra. Þorsteinn sagði að ekki hefði annað verið ákveðið á ríkisstjómar- fundi í gær þar sem álitsgerðin var kynnt, en að sú nefnd sem vinnur að endurskoðun laga um stjóm físk- veiða skoði þetta mál og kanni með víðtækari hætti lagaleg sjónarmið í því sambandi. „Það hefur verið stefnt að því að nefndin ljúki störf- um í haust eða byijun vetrar. Hann sagði að vissulega væri það aðkall- andi að fá úr því skorið sem fyrst hvort hér væri um rétta túlkun á stjórnarskránni að ræða. „En sé það svo að þetta stangist á við stjórnar- skrá höfum við verið að bijóta stjómarskrána í áratugi, þannig að nokkrar vikur til eða frá skipta ekki öllu máli í því sambandi. Aðalatriðið er að um þetta fari fram lögfræði- leg umræða og nánari athugun," sagði sjávarútvegsráðherra. Skylda þingmanna að vinna sitt verk Kristinn Pétursson, formaður Félags um nýja sjávarútvegsstefnu, sagði að álit Sigurðar Líndals væri í samræmi við sínar gmndvallar- skoðanir á stjómarskránni. Hann kvaðst margsinnis hafa varað við því opinberlega að 3. grein laga um stjórn fiskveiða bryti í bága við stjómarskrána. „Eins og segir í áliti Davíð Oddsson forsætisráðherra: Hliðsjón höfð af álitsgerð- inni við endurskoðun laga DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að álitsgerð Sigurðar Lín- dals lagaprófessors um að 3. grein laga um stjórnun fiskveiða bijóti í bága við stjórnarskrána sé nyög afgerandi. Hann segir éðlilegt að nefnd um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða taki álitsgerðina til sérstakrar athugunar og lögfræðilegrar umfjöllunar. Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra segir tvennt koma til greina ef túlkun Sig- urðar Líndals lagaprófessors er rétt. Annars vegar að breyta allri þeirri löggjöf sem þessi túlkun kann að hafa áhrif á, sem hefði gríð- arlegar breytingar á allri sljórnsýslu landsins í för með sér, eða hins vegar að breyta sljórnarskránni. Álitsgerðin var kynnt á ríkis- stjórnarfundi í gær. Álitsgerð Sig- urðar Líndals HÉR Á eftir fer álitsgerð Sigurðar Líndals, prófessors í lögum við Háskóla íslands, þar sem fram kemur það mat hans að 3. grein laga um stjórn fiskveiða bijóti í bága við íslensku stjórnarskrána. Álitsgerð- in var samin að beiðni Kristins Péturssonar, stjórnarmanns í Félagi um nýja sjávarútvegsstefnu. „í bréfi dagsettu 14. júlí sl. er þess farið á leit að ég taki saman álitsgerð um það hvort 3. gr. laga nr. 38/1990 um stjórri fískveiða, þar sem sjávarútvegsráðherra er falið að ákveða með reglugerð þann heildar- afla sem veiða má, standist stjóm- skipan landsins. I lagagrein þessari segir svo: „Sjávarútvegsráðherra skal, að fengnum tillögum Hafrannsókna- stofnunarinnar, ákveða með reglu- gerð þann heildarafla sem veiða má á ákveðnu tímabili eða vertíð úr þeim einstökum nytjastofnum við ísland sem nauðsynlegt er talið að takmarka veiðar á. Heimildir til veiða sam- kvæmt lögum þessum skulu miðast við það magn.“ Hér er álitaefnið hvort vald sé framselt til ráðherra umfram það sem stjómvöld leyfa. Til þess að nálgast svar verður að huga að þvi hvenær lög séu nauðsynleg við stjórn þjóðfé- lagsmálefna. Um það era engar al- mennar reglur í stjómarskrá. Hins vegar hafa verið orðuð viðmið í fræði- kenningum sem hafa má til leiðbein- ingar. Fyrst er þess að geta að í nokkram ákvæðum stjómarskrár era lög sér- Sigurðar Líndals er það skylda al- þingismanna að vinna sitt verk. Alþingi hefur ákveðið hlutverk, það ákveður íjárveitingar í smáatriðum. Ástæðan fyrir því er sú að Alþingi má ekki framselja reglugerð til ijár- málaráðherra sem leyfir honum að veita fjármagni að eigin geðþótta. Álitsgerðin vekur menn til umhugs- unar og væntanlega í framhaldi af því verður sú niðurstaða ofan á að það borgi sig að breyta þeim göllum sem era á núverandi kvótalöggjöf til samræmis við 69. grein stjóm- arkrárinnar, sem fjallar um skyldur löggjafans, og ennfremur þarf að fara nánar ofan í 67. greinina. Mis- mununin í dag er geigvænleg og hún stafar af því að menn hafa ekki gert skyldu sína og fengið álit valinkunnra manna um þetta atriði. Ef hins vegar stjórnvöld og þeir sem era að endurskoða núverandi kvóta- löggjöf gera ekki skyldu sína núna mega þeir búast við því að Evrópu- dómstóllinn rassskelli þá. Vilji stjórnvöld rassskellingar utan úr heimi meira en orðið er, er um að gera að aðhafast ekkert í þessu máli. En nú er tækifærið, það er verið að endurskoða þessi lög og á þeim eru margir og ljótir gallar. Þetta var afgreitt með hrossakaup- um og hroðvirkni og það er skylda allra aðila sem eru að endurskoða lögin að ríghalda ekki í einhveija ímyndaða hagsmuni heldur að semja vandaða löggjöf með almenn- um leikreglum þar sem jafnréttis- reglan og grandvallarmannréttindi eru í heiðri höfð. Ég bað um þetta álit til að koma þessari umræðu af stað. Núverandi kvótakerfi eins og það er uppbyggt er að mínu mati algjörlega vonlaust, enda er það að leiða af sér stórfelldar deilur og vaxandi átök í þjóðféiaginu svo það verður ekkert komist hjá því að lag- færa þetta. Félag um nýja sjávarútvegs- stefnu mun sjálfsagt reyna að fá menn til að lagfæra þessa hluti með góðu og við erum allir sem einn sammála um að lagfæra verði nú- verandi leikreglur mismununar og ofbeldis, sem er útilokað að búa við. Verði engin breyting á geri ég ráð fyrir að stjórnvöld séu að kalla yfir sig rassskellingar utan úr heimi og það verða nógir til þess að kæra málið fyrir mannréttindadómstóli Evrópu,“ sagði Kristinn. staklega áskilin. Hér kemur 69. gr. sérstaklega til skoðunar, Engin bönd má leggja á atvinnufrelsi manna, nema almenningheill krefji, enda þarf lagaboð til. Með ákvörðun þess hámarksafla sem veiða má á tilteknu tímabili era bönd lögð á atvinnufrelsi manna og það ber að gera með lögum. í dómi Hæstaréttar uppkveðnum 15. desem- ber 1989 skýrði meirihluti réttarins framangreint stjómarskrárákvæði sem hér segir: Samkvæmt 69. gr. stjómarskrár- innar þarf lagaboð til að legja bönd á atvinnufrelsi manna. Með orðinu „lagaboð" er átt við sett lög frá Al- þingi. Reglugerðarákvæði nægjaekki ein sér. Lagaákvæði er takmarka mennréttindi verða að vera ótvíræð. Sé svo ekki ber að túlka þau einstakl- ingi í hag, því að mannréttindaá- kvæði era sett til vemdar einstakling- ' um, en ekki stjómvöldum. (Hæsta- réttardómar 1988, bls. 1532, einkum 1535). í 3. gr. laganna um stjóm físk- veiða er ákvörðunarvald tií að leggja bönd á atvinnufrelsi manna framselt sjávarútvegsráðherra og verður ekki séð að það samrýmist 69. gr. stjóm- arskrárinnar svo sem Hæstiréttur hefur túlkað hana. í öðra lagi er almennt viðurkennt að við því sem einu sinni hefur verið lögfest verði ekki haggað nema með lögum. Hér er ekki um slíkt að ræða svo að um þetta viðmið er þarflaust að fjölyrða. Þá teljast lög nauðsynleg þegar setja á almennar nokkurn veginn varanlegar reglur þjóðfélagsþegnum til eftirbreytni hvort sem viðurlög fylgja eða ekki. Hér er slíku tæplega til að dreifa þar sem mælt er fyrir um ákvörðun sem bundin er við af- markað stutt tímabil. Loks era lög nauðsynleg þegar leggja á byrðar á menn, svo sem með því að skerða eignir þeirra eða fijálsræði. Á þetta ekki sízt við á þeim sviðum réttarins sem teljast mikilvæg vegna þess að hagsmunir margra eða mjög mikilvægir hags- - munir era í húfi. Með þetta viðmið í huga bera að skoða 3. gr. nánar. Ekki fer á milli mála að ákvörðun samkvæmt 3. gr. skerðir athafna- frelsi manna og snertir mjög mikil- væga hagsmuni margra. Slíka ákvörðun ber að taka með lögum, en ekki fela han ráðherra svo sem gert er. Sú skipan er ekki í samræmi við þessa viðurkenndu meginreglu. Hér að framan lýsi ég einungis eigin skoðunum, en spái engu um það hver niðurstaða yrði ef mál þar sem á þetta reyndi kæmi til kasta dómstóla. Sterklega verður að minna á að íslenzkir dómstólar eins og dóm- stólar á Norðurlöndum hafa farið afar gætilega við það að lýsa lög - andstæð stjómarskrá. Hefur það við- horf verið ráðandi að virða beri eins og frekast er unnt ákvarðanir lög- gjafa sem sækir umboð til þjóðarinn- ar, enda sé staða dómstóla ekki sam- bærileg. Ég teldi því í betra samræmi við stjómskipan ríkisins að lögum yrði breytt í það horf að Alþingi tæki sjálft ákvörðun um þann heildarafla sem veiða má. Um framsal valds og álitsefni þar að lútandi vísa ég til rits míns: Stjóm- kerfi búvöraframnleiðslunnar og sljómskipan íslands, einkum bls. 66. o. áfr. og 181 o. áfr. Að lokum skal tekið fram til að koma í veg fyrir hugsanlegan mis- skilning að framangreindar hugleið- ingar standa í engu sambandi við síðustu ákvarðanir um hámarksafla og þann ágreining sem af þeim hefur risið. Hér er ég einungis að lýsa ai^- mennu viðhorfi mínu til stjómlaga óháð allri dægurmálaumræðu."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.