Morgunblaðið - 08.08.1992, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992
fclk f
fréttum
MÓTLÆTI
Olivia glímir enn
við krabbamein
KRAFTAKARLAR
Aflraunakeppni á Vestfjörðum
*
AHéraðsmóti Hrafna-Flóka,
sem haldið var á Bíldudal
dagana 17.-19. júlí fór fram
fyrsta aflraunakeppnin sem haldin
hefur verið á Vestfjörðum. Ellefu
aflraunamenn mættu á svæðið og
sýndu þeir ýmis atriði eins og t.d.
trukkadrátt, bankastjórakast,
biladrátt, dauðagöngu, bekk-
pressulyftingar og ólympískar
lyftingar og glerbrotagöngu. Það
voru Njáll Torfason og Otri Sig-
urðsson sem skipulögðu aflrauna-
keppnina.
Lokaúrslit urðu þau að Andrés
Guðmundsson sigraði og hlaut 49
stig af 50 mögulegum. Glöggir
menn segja að Andrés verði næsti
sterkasti maður heims. Guðni Sig-
uijónsson, heimsmeistari í lyfting-
um, varð í öðru sæti með 44 stig.
Kjartan Guðbrandsson varð þriðji
með 38 stig og Otri Sigurðsson
og Baldvin Skúlason urðu í 4.-5.
sæti með 34 stig. Vestfjarðaskel-
firinn Njáll Torfason varð í sjötta
og síðasta sæti með 26 stig.
Baldvin Skúlason sýndi krafta
sína þegar hann skreið undir 900
kg bifreið og lyfti henni upp að
aftan með höndunum við mikinn
fögnuð áhorfenda. Baldvin sigraði
einnig í handlóðalyftum. Hann
lyfti 36 sinnum með hvorri hönd
30 kg lóðum og geri aðrir betur.
Að sögn Njáls Torfasonar og Otra
Sigurðssonar, sem skipulögðu
keppnina, voru viðtökumar hreint
frábærar. Áhorfendur voru með á
nótunum allan tímann og klöppuðu
vel fyrir þessum hraustu mönnum.
Veðurblíða var báða dagana, sól
og 15-20 stiga hiti.
R. Schmidt
ÞRAS
Jackson á ekkí sjö
dagana sæla
Poppgoðið Michael Jackson er í
vondum málum. Um þessar
mundir standa yfir málaferli hans
gegn breska blaðinu Daily Mirror,
en hann sækir fast skaðabætur og
afsökunarbeiðni frá blaðinu vegna
myndbirtingar og umsagnar um
meintar skurðaðgerðir sem talið er
að hann hafi látið gera á andliti sínu.
Blaðið birti nærmynd af andliti Jack-
son með þeim texta, að þar mætti
glöggt sjá hvemig skurðaðgerðir
hefðu leikið popparann. Á myndinni
sjást ör og ójöfnur á andliti Jack-
sons, en hann varð æfur vegna birt-
ingarinnar.
Meintar skurðaðgerðir á andliti
Jacksons hafa lengi verið milli tann-
anna á fólki og hefur verið talið að
fremur beri að deila um hversu
margar þær hafi verið fremur en
hvort hann hafi nokkru sinni látið
lýtalækni skera í sig. Mitt í rim-
munni milli Jacksons og blaðsins
hefur það rifjast upp, að systir Jack-
sons, La Toya, greindi frá skurðun-
um í viðtali síðast liðið haust. Gagn-
rýndu margir vinir og ættingjar La
Toyu fyrir bersöglina, en Michael
varð æfur og reyndi að stöðva viðtal-
ið með lögbanni, en allt kom fyrir
ekki.
Breska blaðið The Sun gagnrýndi
í vikunni forráðamenn Daily Mirror
fýrir að gera Jackson að féþúfu.
Ekki snérist gagnrýnin um mynd-
birtinguna og textann sem slíkan,
enda hefði það verið gijótkast úr
glerhýsi. Heldur var gagnrýnin
vegna þess að eigendur Daily Mirror
•leyfðu sér að hækka verð blaðsins í
lausasölu daginn sem myndin
„Scarface" birtist.
Michael Jackson á ekki sjö daganna sæla...
Keppendur kepptu m.a. í þvi að lyfta tveimur ilöngum steypuklumpum sem hvor um sig vó 90 kg.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
ÍÞRÓTTIR
Otrúleg afrekssaga Gail Devers
Gail Devers fær sér vatnssopa..
Tuttugu og fímm ára gömul
bandarísk kona, Gail Devers
gerði sér lítið fyrir og sigraði í 100
metra spretthlaupi kvenna á
Ólympíuleikunum í Barcelona í
vikunni og skaut hún aftur fyrir
sig þeim sem sigurstranglegastar
þóttu, Gwen Torrance og Merlene
Ottey sem komust ekki á pall.
Reyndar var ótrúlega mjótt á
mununum, því aðeins sex hundr-
uðustu hlutar úr sekúndu skildu
að fímm fýrstu stúlkumar. Þurftu
dómarar að liggja yfír myndbandi
af hlaupinu nokkra stund til þess
að ganga úr skugga um hvar sig-
urinn lenti.
Ungfrú Devers getur sannar-
lega vel við unað og ólíklegt er
að hún hafí mikið hugsað um
Ólympíugull árið 1989, því þá
greindist hún með illvígan skjald-
kirtilssjúkdóm, svokallað „Graves
Disease". „Mér gekk ömurlega á
Ólympíuleikunum í Seoul 1988 og
strax þar eftir var ég eitthvað
undarleg. Ég var þreytt, hríðlagði
af og fékk óstjómleg skjálftaköst.
Þear augun fóru að standa á stilk-
um fór ég loks í læknisskoðun og
fékk úrskurðinn. Við tók 9 mánaða
geislameðferð og hófst hún í sept-
ember 1990,“ segir Devers.
Að meðferð lokinni byrjaði hún
strax að æfa á ný, en of skjótt,
því fljótlega fékk hún slæm sár á
fætuma. I fyrstu taldi hún það
vera núningssár, prófaði að skipta
um skó, en allt kom fyrjr ekki og
loks var svo komið að hún gat
varla gengið. Fyrrverandi eigin-
maður hennar fylgdi henni þá á
spítala og bar hana á bakinu inn
í húsið. Læknamir sem skoðuðu
hana fölnuðu er þeir litu fætur
hennar, sögðu sárin eftirköst af
sjókdómnum og ef hún hefði reynt
að bögglast áfram á fótum svo sem
tvemur dögum lengur eða svo,
hefðu þeir sennilega þurft að af-
lima hana, taka báða fætuma við
hné. „Ég hafði þá meiri áhyggjur
af því hvort ég gæti nokkra sinni
gengið á ný, hvað þá hlaupið,"
segir Devers.
En hvíld og lyfjagjöf hreif og
sárin gréra og í apríl á síðasta ári
var hún komin út á hlaupabrautina
á ný og æfði af kappi. í maí keppti
hún í fyrsta skipti eftir veikindin
og í fyrra náði þeim ótrúlega
árangri að verða í öðra sæti í 100
metra grindahlaupi á Heimsmeist-
aramótinu. Telja flestir árangur
hennar kraftaverki líkast.
Astralski söngfuglinn Olivia
Newton-John á í erfiðri bar-
áttu við krabba-
mein þessi miss-
erin. Fyrr á þessu
ári greindist
krabbameinsæxli
í vinstra bijóstinu
og var þá hluti
þess numinn
brott. Var haldið
að læknar hefðu ölivia Newton-
komist fyrir mein- john.
ið, en við rannsókn nýverið kom í
ljós að Olaivia var komin með ill-
kynja æxli í hægra brjóstið og fer
hún undir hnífinn á næstunni.
Það hefur verið fátt um ljósa
punkta hjá Oliviu síðan að hún hætti
poppsöng og kvikmyndaleik. Hún
gerðist þá iðnjöfur og verslunarmað-
ur, framleiddi sportfatnað og kom á
fót verslunarkeðju sem sérhæfði sig
i eigin fataframleiðslu. Fór um skeið
mikið fyrir fyrirtækinu, en síðan tók
að halla undan fæti og er það nú
gjaldþrota. Ekki nóg með það, held-
ur töpuðu margir slqólstæðingar
Oliviu aleigu sinni og standa enn
yfir nokkur harðvítug málaferli
vegna þessa. Olivia er nú 43 ára
gömul og er gift Matt Lattanzi.
Hjónaband þeirra er nokkurra ára
gamalt og hefur ekki brostið þrátt
fyrir mótlætið. Matt stendur við hlið
konu sinnar á þessum erfiðu tímum.
COSPER
Engar áhyggjur, ég vinn þig til baka þegar við spil-
um næst.