Morgunblaðið - 08.08.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992
25
„Heil sinfónía af gríni, spennu
og vandræðum."
TÖFRALÆKNIRINN
Vegna fjölda áskorana
sýnum við þcssa frábæru
mynd með Sean Connery
í nokkra daga.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Miðav. kr. 300 kl. 5 og 7.
-------- rwrn vw - KYNNING A FREYJUHRIS
- PLAGGÖT AF BEETHOVEN FYRIR ÞAU YNGSTU!
STALLONE ■ ESTELLE GETTY
Fjrsf sbe dwmed up bis ^crtnwnt.
áe's desniag up Hie sbésts.
STOPP EÐA MAMMA
HLEYPIRAF
Óborganlegt grin og
spenna.
Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11.
Miðaverð kr. 300
kl. 3,5og 7.
Á STÓRU TJALDI í
| Y II DOLBYSTEREO | □□
Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11.
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá tónleikum Félags norrænna langspilsleikara.
Félag- norrænna langspilsleikara:
Langspil kynnt
FELAG norrænna langspilara hélt tónleika og kynningu á langspilum
í Norræna húsinu laugardaginn 1. ágúst sl. Á meðal þeirra sem spiluðu
á þessum tónleikum var Anna Þórhallsdóttir en hún endurvakti is-
lenska langspilið upp úr 1960.
Anna Þórhallsdóttir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að Félag nor-
rænna langspilara hefði verið stofnað
í Vástra Tunhem í Svíþjóð árið 1986.
Það hefðu verið tveir Svíar, Rodney
Sjöberg og Ingvar Ekbrand, sem
hefðu staðið að stofnuninni en mark-
mið félagsskaparins væri að endur-
vekja gömul hljóðfæri og varðveita
■ PRÓFESSOR Claus Schaffer
heldur fyrirlestra um oxunar-afox-
unarhvörf og rannsóknir sínar á
mánudag. Hann er hér í boði Raun-
vísindadeildar Háskóla Islands og
Efnafræðistofu Raunvísindastofn-
unar Háskólans. Claus Scháffer er
prófessor í ólífrænni efnafræði við
Háskólann í Kaupmannahöfn, Ke-
misk Labaratorium I í H.C. Orsted
Institutet. Rannsóknarsvið hans er
tenglasviðskenningin. Auk þess að
vera til viðtals um rannsóknir í efna-
fræði flytur hann tvo fyrirlestra
meðan á dvölinni stendur. Fyrri fyrir-
lesturinn, sem er almenns eðlis, fjall-
ar um oxunar-afoxunarhvörf og
framkvæmir Scháffer sýnitilraunir
sem útskýra efnið. Fyrirlesturinn
verður flúttur í kennsluhúsnæði
Verkfræði- og raunvísindadeilda,
VR-II stofu 158, á mánudag, 10.
ágúst kl. 14. Seinni fyrirlesturinn er
sérhæfðari og fjallar um rannsóknir
Scháffers og skyld atriði. Báðir fyrir-
lestrarnir eru fluttir á ensku.
þau. Að sögn Önnu spiluðu 8 lang-
spilsleikarar á hljómleikunum í Nor-
ræna húsinu. Margmenni var á tón-
leikunum og flestir áheyrenda voru
útlendingar.
Anna sagði að spilað hefði verið
á hljóðfæri af norrænu langspilsfjöl-
skyldunni. Frá Svíþjóð hefði verið
komið með psalmodiken, hljómmikið
hljóðfæri sem hefði verið notað í
kirkjum, frá Noregi langeleiken, og
frá Finnlandi vireecanel. Anna sagði
að með hljómleikunum væri verið að
undirstrika sameiginlegan menning-
ararf Norðurlandanna.
Að sögn Önnu fékk hún sitt lang-
spil árið 1961 og vakti þá hljóðfærið
af hálfrar aldar dauðadái. Hún sagði
að hún hefði fengið sérstakt leyfi til
þess að láta smíða eftir langspili sem
væri á safni í Danmörku og hefði
danskur maður að nafni Sven Jensen
smíðað hljóðfærið. En bogann fyrir
langspilið lét Anna sérsmíða í Bret-
landi. Anna sagði að íslenskur smíða-
kennari hefði sýnt því áhuga að fá
að smíða langspil og væri það
ánægjulegt. Hún sagði að íslenska
langspilið hefði afburða góðan hljóm
af gömlu hljóðfæri að vera og væri
eitt af athygliverðustu hljóðfærunum
frá gamla tímanum.
Á tónleikunum ávarpaði Anna
gestina frá hinum Norðurlöndunum
og þakkaði þeim fyrir að koma og
kynna hljóðfæri sín.
Sígur á seinni hlutann
Nú fer að síga á seinni hluta veiði-
tímans og raunar tæpur mánuður
eftir af veiðitímanum í þeim ám
sem fyrstar opnuðu, Norðurá,
Þverá og Laxá á Ásum. Þverá og
Norðurá eru efstar yfir landið og
þó vel gangi víða annars staðar
má veiðin taka vel við sér ef að
Borgarfjarðarrisarnir tveir láta
efstu sætin af hendi. Lítum á
nokkrar tölur.
Vatnsá byrjar vel...
Austur við Vík í Mýrdal er smááin
Vatnsá sem hefur gefið góða veiði
síðustu sumur. Veiðin þar hefur
byijað mjög vel. Þetta er alger síð-
sumarsá með bæði lax og sjóbirt-
ing, en engu að síður voru komnir
15 laxar á land um verslunar-
mannahelgina. Veiðimenn sem þá
bleyttu færi fengu 7 laxa, en áður
' höfðu veiðst 8 stykki. Reytingur
af staðbundnum silungi hefur einn-
ig veiðst, en sjóbirtingurinn er
ekki kominn, en fer þó fljótlega
að sýna sig. Mjög góð sjóbirtings-
veiði hefur verið í ánni síðustu
sumur á sama tíma og þeim fiski
hefur stórfækkað í nær öllum öðr-
um ám á Suðurlandi, að Grenlækn-
um ef til vill undanskildum.
Stórir laxar á Gíslastöðum
Nú er orðin sæmileg nýting á
Gíslastaðasvæðinu í Hvítá í Ámes-
sýslu og þá er ekki að spyrja að
því. Fyrir skömmu vom komnir
26 laxar á land og höfðu þeir flest-
ir veiðst í vikunni sitt hvoru megin
við mánaðamótin. Besti tíminn á
svæðinu er einmitt að hefjast. Lax-
inn hefur verið mjög stór á svæð-
inu og af 26 löxum var einn 22
pund, einn 19 pund og þrír 18
pund. Flestir hinna um og yfir 10
pund. SVFR er með þetta svæði
og á enn talsvert af lausum leyfum
á lágu verði miðað við verð á lax-
veiðileyfum almennt.
Ágætt í Ilvolsá og
Staðarhólsá
„Þetta hefur verið ágætt, það eru
komnir um 200 laxar á land og
horfur eru góðar með framhaldið.
Besti tíminn er líka eftir hjá okk-
ur,“ sagði Rögnvaldur Guðmunds-
son, einn af leigutökum Hvolsár
og'Staðarhólsár í samtali við Morg-
unblaðið í vikunni. Stærsti laxinn
sem hefur verið bókaður var 23
punda, en Rögnvaldur dró sjálfur
24 punda hrygnu úr Lóninu fyrir
nokkru, en gaf henni líf eftir að
hafa mælt hana og vegið.„Þetta
var ægifögur hrygna sem tók hjá
mér rauða Frances númer 8. Eg
var 40 mínútur að ná henni, en
tímdi ekki að drepa hana,“ sagði
Rögnvaldur. Mikil sjóbleikja er
einnig á svæðinu og hefur talsvert
af henni veiðst. Algeng stærð er
3 til 5 pund, en engin stærri hefur
þó veiðst enn sem komið er. Rögn-
valdur og félagar eiga eitthvað
eftir að lausum leyfum í árnar, en
veitt er á fjórar stangir.
Hér og þar...
Við höfum heimildir fyrir því að
Gljúfurá í Borgarfirði sé komin í
150 laxa og talsvert sé af laxi í
ánni, vel dreifður.
Nokkrir laxar hafa verið dregnir
úr Tungufljóti í Vestur Skaftafells-
sýslu. Ain er þó fyrst og fremst
sjóbirtingsá og lítið hefur sést til
birtinga enn sem komið er. Einn
og einn hefur þó náðst.
Feðgar hampa 18 punda laxi úr Hvolsá og Staðarhólsá.
Þessi 6 punda lax veiddist í Hvolsá og Staðarhólsá og ekki leynir
sér að einhver óprúttinn ætlaði sér laxinn áður. Húkkgræjur voru
á kafi í síðu laxins, en veiðiþjófurinn hafði ekki gætt þess að línan
væri af sama styrkleika og hin tólin, því laxinn hafði slitið sig lausan.