Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 25 íslensk rokktón- list 1968-1975 Áhugi fyr- ir útgáfu erlendis MIKILL áhugi er á íslenskum plöt- um hjá plötusöfnurum á hinum Norðurlöndunum og einnig hafa erlendir útgáfuaðilar sýnt áhuga á að endurútgefa plötur sem gerð- ar voru á árunum 1968-1975. í samtali við Pétur Kristjánsson kom fram að safnarar hefðu mestan áhuga á plötum sem gefnar voru út á árunum 1968-1975. Eftirsóttustu hljómsveitimar væru Trúbrot, Svan- fríður, Náttúra, Pelikan, Óðmenn og Icecross. Pétur sagði að plötusafnar- ar teldu að íslenskt rokk, sem gefið var út á þessum árum, væri eitt af því allra besta sem til væri af nor- rænu rokki. Pétur sagðist vera í sambandi við einn sænskan plötusafnara, Stefan Dimler, sem hefði í hyggju að gefa út safn þyngri laga hljómsveitarinnar Pelikan á geisladisk sem ætti að heita „Life is a Liar“. Hann sagði áhugann á útgáfu íslenskrar rokk- tónlistar ekki eingöngu vera bundinn við Norðurlönd heldur hefði fyrirtæki í New York, Lasers Edge, sýnt því áhuga að gefa út á geisladisk Svan- fríðarplötuna sem kom út árið 1972. Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson Hitaveiturörið einangrað á staðnum. Lundarreykjadalur Hitaveita á flesta bæi í Sveinbjöm Berenlsson Tveir stórir byggingarkranar voru notaðir við flutning á húsinu. Hjólsagarblöð dalnum í byrjirn október Hvannatúni í Andakíl. Hvannatúni í Andakíl. BÆNDUR í Lundarreykjadal í Borgarfirði eru að leggja hita- veitu á flestalla bæi úr borholu í laudi Snartarstaða. Þar var borað á sl. hausti með góðum árangri, það fengust um átta sekúndulítrar af 97 gráða heitu vatni. Nú er verið að reisa dæluhús við borholuna. Þaðan verða í þess- um áfanga tengd 17 heimili eða bæir og kirkjan á Lundi. Vatns- leiðslan liggur á tveimur stöðum undir Grímsána og er um 18 til 19 km löng. Hönnuður veitunnar er Úlfur Harðarson á Flúðum. Lagt er í plaströrum frá Hulsu hf. á Flúðum sem einangruð eru á staðnum með laustengdum úret- hanhólkum frá Hjúpi hf. á Flúðum. Áætlaður kostnaður er um 20 milljónir króna og munu heima- menn geta lagt fram a.m.k. tíunda partinn með eigin vinnu. í efri hluta dalsins eru tveir bæir með eigin hitaveitu ásamt samkomuhúsi og sundlaug. Eftir verða þá fjögur býli sem áætlað er að tengja veitu úr Englands- hver. Verkstjóri við framkvæmd- imar er Ólafur Jóhannesson á Hóli. - D.J. Hafnarfjörður Gamla sýslumannshúsið flutt yfir Suðurgötuna GAMLA sýslumannshúsið í Hafnarfirði var um helgina flutt af Suðurgötu 8 yfir götuna og stendur nú við Suðurgötu 11. Að sögn Erlends Hjálmarssonar, byggingafulltrúa bæjarins, var hús- ið flutt sökum þess að á lóðinni nr. 8 á að byggja safnaðarheimili og tónlistarskóla og eru þær framkvæmdir hafnar. Gamla sýslumannshúsið er síðast var Bifreiðaeftirlitið með byggt samkvæmt fasteignaskrá aðstöðu í því. Vegna flutningsins árið 1905 en Erlendur segir að var nýr grunnur byggður undir sumir telji það byggt fyrir alda- húsið á lóðinni nr. 11 og gekk mótin. Margvísleg starfsemi hefur flutningur þess áfallaiaust fyrir verið í húsinu á seinni áram en sig. þau endast! Cterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Minnismerki á Keflavíkurflug- velli endumýiað Keflavík. •/ V YFIRMAÐUR flotastöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, Charles T. Butler kafteinn og Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri Sam- bands sveitarfélaga á Suðurnesjum endurvígðu á föstudaginn minnis- merki sem er gömul flutningavél af gerðinni DC 3, eða „Þristur" eins og þessar vélar voru jafnan nefndar. Bæjar- og sveitarsljórar uágrannabyggðanna á Suðurnesjum voru viðstaddir og voru þeir sérstakir gestir við þessa athöfn. Flugvélin, sem er af gerðinni Douglas C-117D, er endurbyggð útgáfa af hinum frægu Douglas Dakota DC-3 „Þristi“ eða C-47/R- 4D eins og vélin hét hjá flugher og flota. Henni var komið fyrir á stalli árið 1977 til heiðurs liðsmönnum Bandaríkjahers sem starfað hafa á íslandi í gegnum árin, en hún varð að víkja fyrir íbúðabyggð á síðasta ári. Að sögn Friðþórs Eydals blaða- fulltrúa vamarliðsins komu C-117D vélarnar eða „Súper Þristarnir“ eins og þær voru gjarnan nefndar til íslands árið 1973 og leystu af hólmi nokkrar C-47 vélar sem höfðu þjón- að varnarliðinu frá upphafi og komu tvær C-47 og ein C-117D vélar varnarliðsins verulega við sögu flutninga milli lands og Eyja á með- an á gosinu stóð árið 1973. Friðþór sagði að helstu endurbætur sem gerðar hefðu verið á C-117D vélun- um hefðu verið stærri hreyflar og stélfletir, breyttir vængendar, straumlínulagaðri hreyfill og hjól- hlífar og lengir búkur ásamt styrk- ingu. Þessar breytingar hefðu aukið hraða, burðargetu og langdrægni vélanna talsvert, en þær hefðu ver- ið í notkun hjá flugdeildum flotans allt til ársins 1982. -BB Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Gamli Þristurinn sem nú gegnir hlutverki minnismerkis vígður af þeim Guðjóni Guðmundssyni framkvæmdastjóra SSS og Charles T. Butler kafteini og yfirmanni flotastöðvarinnar. Þessi tiltekna vél var smíðuð árið 1944 og kom hún til landsins í september árið 1973 og átti að baki meira en 20.000 flugstundir þegar henni var lagt. m ÍSLENSK VERSLUN NIÐURFELLING AÐSTÖÐUGJALDS? ÍSLENSK VERSLUN, þ.e. Félag íslenskra stórkaupmanna, Bílgreiðnasambandið og Kaupmannasamtök íslands, boðar til hádegisverðarfundar fimmtudaginn 1. októ- ber nk. kl. 12:00 í Átthagasal Hótels Sögu. Nýlega skipaði félagsmáiaráðherra starfs- hóp, sem fjallað hefur um breytingar í tekjuöflun sveitarfélagá við niðurfellingu aðstöðugjalds og hefur starfs- hópurinn nú skilað skýrslu til félagsmála- ráðherra um málefnið. Gestir fundarins verða Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, borgarfulltrúi, og Óttar Yngvason, framkvæmdastjóri, formaður starfshópsins. Munu þeir fjalla um áðumefnda skýrsfu. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir fyrirspurnir fundarmanna. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 678910. Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500,- FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN ©
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.