Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 43 Minning Ragna Einarsdóttir Fædd 1. febrúar 1935 Dáin 19. september 1992 Það er komið haust. Með hverj- um deginum sem líður breytast lit- irnir. Græni liturinn á trjánum breytist í gulan, rauðan og brúnan lit, síbreytilega litasinfóníu. Haust- ið er oft yndislegur tími. Ekki bara tími hnignunar.heldur einnig upp- skerutíð. Við njótum þá ávaxtanna af eftirvæntingu vorsins og gleði sumarsins. Það er líka oft talað um haustið í lífi manns. Oft kemur það með kyrrð og ró og við njótum langra litríkra daga. En stundum fer haustið hratt og gefur engin grið. Það var enn árla hausts þeg- ar laufin féllu af lífstrénu hennar Rögnu. Hún lést í Landspítalanum eftir erfið veikindi 19. september sl. langt um aldur fram. Kór Víðstaðasóknar hafði starf- að í rúmt ár þegar systurnar Ragna og Fjóla bættust í hópinn og áttu þær því dijúgan þátt í uppbygging- arstarfínu. Þessar kátu og hressu systur reyndust kórnum góðir liðs- menn og traustir félagar. Fjóla starfaði með okkur í nokkur ár eða þar til hún flutti úr bænum en Ragna var félagi í kómum til dauðadags. Minningabrotin streyma fram. Kórinn fór í sína fyrstu utanlandsferð þetta sama ár, mikla ævintýraferð til Skot- lands þar sem dvalið var í miðald- akastala. Ragna hafði þjóðbúning- inn sinn með og klæddist honum við hátíðleg tækifæri. Þennan bún- ing, sem er einn fallegasti upphlut- ur sem ég hef séð, saumaði hún' sjálf. Hún bar mikla virðingu fyrir íslenska þjóðbúningnum og klædd- ist honum oft. Einu var sagt við hana í gamni að það væri hálf afstætt að hún Vestmanneyingur- inn, „útlendingurinn", væri kannske þjóðlegust af okkur öllum. Ragna var góð saumakona og mik- il smekkmanneskja enda alltaf vel og glæsilega klædd. Við Ragna störfuðum saman í stjórn kórsins í nokkur ár, ég sem formaður en hún sem gjaldkeri. Mér líkaði vel að vinna með henni og með okkur tókst góð vinátta. Það var alltaf hægt að treysta því að þau verk sem hún tók að sér væru vel og samviskusamlega unn- in. Hún kenndi mér líka heilmikið í sambandi við saumaskap og var alltaf tilbúin að gefa mér góð ráð. Ragna var fædd og uppalin í Vest- mannaeyjum og var alltaf mikíll Vestmanneyingur í sér. Hún var dagfarsprúð kona, hrein og bein og falslaus og sagði hlutina augliti til auglitis en ekki á bakið á nein- um. Ef henni mislíkaði lét hún óspart til sín heyra eins og þegar vindurinn rýkur upp á Stórhöfða. Enginn var þó fljótari að skipta yfir í hlýtt bros og dillandi hlátur þegar málin höfðu verið rædd. Oftast var hún glöð og kát eins og aldan sem leikur sér við Eyjam- ar hennar í blíðviðri. Ekki er hægt að skrifa kveðju- orð Rögnu án þess að minnast á Hadda. Hans Ólafsson eiginmaður Rögnu lést fyrir tveimur árum, einnig langt um aldur fram og úr sama sjúkdómi og varð henni að aldurtila. Haddi fór með okkur í tvær fyrstu ferðirnar til útlanda. Hann var afbragðs félagi, kátur og hress og alltaf í' góðu skapi. Hann fór fyrir „aðdáendaklúbbnum“ og stjórnaði klappliðinu með glæsi- brag. Ég minnist þeirra hjóna á ýmsum gleðistundum. Þá voru oft sungnar Eyjavísur, jafnvel heilu kvæðabálkarnir. Síðasta skiptið sem þau voru bæði með okkur var eftir konsert uppi í Skíðaskála í Hveradölum. Þá tók Haddi gítarinn og spilaði og þau hjónin sungu fyrir okkur Eyjavísurnar sínar af hjartans lyst við mikinn fögnuð okkar allra. Þannig vil ég muna þau. Það er mikil lífsreynsla fyrir börn Rögnu ög Hadda að sjá á bak báðum foreldrum sínum á skömm- um tíma. En sagt er að tíminn lækni öll sár og ég veit að með tímanum verður minningin um góða og hugrakka foreldra þeim styrkur. Elsku Helga Rósa, Einar Vignir og fjölskylda, elsku Fjóla mfn. Ykkur öllum, móður Rögnu og systkinum sendi ég einlægar sam- úðarkveðjur. Rögnu kveð ég með þakklæti og virðingu. Kristín B. Sigurbjörnsdóttir. Kveðja frá kór Víðistaða- sóknar I dag kveðjum við hinstu kveðju kórfélaga okkar Rögnu Einarsdótt- ur. Fyrir um það bil ári veiktist hún af þeim sjúkdómi sem dró hana til dauða. Hún gekkst undir uppskurð og virtist á góðum batavegi í nokkra mánuði en með vorinu fór heilsa hennar versnandi og hún lést í Landspítalanum 19. septem- ber sl. Það er skammt stórra högga á milli hjá kórnum okkar. Það eru ekki liðnir þrír mánuðir síðan við kvöddum annan kórfélaga, Erlu Gestsdóttur, en hún féll fyrir sama sjúkdómi og Ragna. Þetta er mikil blóðtaka hjá 30 manna kór. í svona litlum hópi er hver persóna svo mikilvæg, allir koma öllum við. Skarðið eftir þær er stórt. Ragna starfaði með kórnum í þrettán ár. Hún lagði alltaf áherslu á vönduð vinnubrögð og vildi að lögð væri rækt við sálmasöng í messu jafnt sem söng á konsertum. Ragna sat í stjórn kórsins í nokkur ár og reyndist góður liðsmaður. Hún tók mikinn þátt í félagslífi kórsins, ferðum utanlands og innan og námskeiðum í Skálholti. Eigin- mann sinn, Hans Ólafsson, missti Ragna fyrir tveimur árum. Það var þungt áfall en Ragna bar harm sinn af mikilii hugprýði. Börnum Rögnu, Helgu Rósu og Einari Vigni, móður hennar svo og fjölskyldunni allri sendum við kórfélagarnir okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við þökkum fyrir allar stundirn- ar sem við áttum með Rögnu og kveðjum hana með því sem samein- aði okkur — söng. Lokar þú augunum fyrir skemmtilegu fríi í útlöndum? Ef svo er getur þú opnaö þau fyrir ódýru fargjöldunum hjá SAS, þau eru ótrúieg en sönn og spennandi áfangastaðir bíða þín um alia Evrópu. 96 oOOi' Kaupmannahöfn Gautaborg Malmö Osló Stavanger Bergen Kristiansand 7» .90»'* Stokkhólmur Norrköping Jönköping Kalmar Vesterás Helsinki Frankfurt 9001' 9,0 Múnchen Zúrich Vínarborg 9OO1' Hamborg LágmarKsdvöl 6 dagar, hámarksdvöl 1 mánuöur. Barnaafsláttur er 33%. Bókunarfyrirvari er 14 dagar til borga Skandinavíu og 21 dagur til annarra borga Evrópu. Verðiö gildir fyrir feröir sem hefjast fyrir 1. nóvember. Flugvallarskattur er ekki innifalinn f uppgefnu veröi: 1250 kr. á íslandi, auk 630 kr. á fargjald til Kaupmannahafnar og 225 kr. til Þýskalands. Brottfarardagar: Mánudagar, miðvíkudagar og laugardagar. Komudagar: Þriöjudags-, föstudags- og sunnudagskvöld. Hafðu samband við SAS eða ferðaskrifstofuna þína. /f///SAS SAS á íslandi - valfreisi í flugi! Laugavegi 172 - Sími 62 22 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.