Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 Góð ilmandi sápa kryddar tilveruna Ilmtegundlf: Rós, (rose), Dísaminnur, (Ulac). Maiklukka, (muguet). Járnurt, (verbena). Goðalllja, (hyazlnth). FreysUlja, (freesia). Laugavegi )2 ■ Siml 62 64 H0 vistunarmálum þeirra sé vel sinnt í hverju sveitarfélagi. A síðastliðnu ári skrifaði stjórn Landssambands aldraðra öllum stærri sveitarfélög- um í landinu og minnti á brýna þörf fyrir frumkvæði þeirra í hús- næðismálum aldraðra, vegna þeirra einstaklinga sem ekki valda því af eigin rammleik að leysa sín húsnæðismál. Þó að sveitarstjórnir hafi ekki mikið fjármagn til þess að leggja í íbúðabyggingar standa þær nær íbúunum í hveiju byggð- arlagi en ríkisvaldið og þekkja bet- ur vandamál einstaklinganna. Frumkvæði þeirra og fyrirgre- iðsla í svona málum getur því oft valdið úrslitum. Skylt er að geta þess að nokkur sveitarfélög hafa þegar leyst húsnæðis- og vistunar- mál aldraðra í sínu byggðarlagi og eru ætíð vakandi fyrir nýrri þörf. Allmörg sveitarfélög standa auk þess í margvísiegum framkvæmd- um á því sviði, eða eru með þær í undirbúningi. Má þar sérstaklega nefna Hafnarfjörð, en þar hafa fyrir frumkvæði bæjarfélagsins verið mynduð „Öldrunarsamtökin Höfn“ af 14 félögum og klúbbum í bænum. Verkefni Hafnar er að standa fyrir því að skipuleggja og byggja upp íbúðir og þjónustu- stofnanir fyrir aldraða á stóru svæði í nágrenni Sólvangs í Hafn- arfirði. Fyrsta húsið með 40 íbúð- um verður fokhelt í haust. Þó að íbúðarbyggingar aldraðra, ásamt tilheyrandi aukningu á heimahjúkrun og heimilishjálp sveitarfélaga á síðustu árum, hafi létt á þörfinni fyrir vistheimili og aðrar stofnanir fyrir aldraða, má búast við því að þar sé að hluta til um frestun að ræða. Því er tíma- bært að búast við vaxandi þunga á sjúkradeildir og vistheimili á næstu árum. Því er mikilvægt að fylgjast vel með nýjungum á því sviði. Minni ég þar enn á sambýlin fýrir aldraða, sem gerðar hafa ver- ið tilraunir með í Kópavogi með góðum árangri. Höfundur er formaður Landssambands aldraðra. Sveitarfélögin byggi fleiri leiguíbúðir fyrir aldraða eftir Ólaf Jónsson reynslu og tækni verktaka til þess að annast framkvæmdir. Það er eðlilegt hlutverk verktakanna, en ekki að taka sér það verkefni sveit- arstjórnarmanna að ráða staðarv- ali, skipulagi og eignarfyrirkomu- lagi á byggingum fyrir aldraða. Jafnframt byggingum leigu- íbúða er mikilvægt að byggðar séu íbúðir þar sem aldraðir geta tryggt sér leigurétt með því að kaupa eignarhlutdeild í íbúðinni, þó að þeir hafí ekki fjármagn til þess að kaupa íbúð á fullu markaðsverði. Landssamband aldraðra telur það eitt af mikilvægustu hagsmuna- málum aldraðra að húsnæðis- og Ljósaskoðunarátaki lýkur 1. október UNDANFARIÐ hafa óvenju margar kvartanir borist Umferðarráði og Félagi íslenskra bifreiðaeigenda vegna fjölda eineygðra bíla og bíla með vanstilltan ljósabúnað í umferðinni, og því hefur Bílgreina- sambandið í samvinnu við Umferðarráð og FIB upp á síðkastið beitt sér fyrir sérstöku ljósaskoðunarátaki sem lýkur 1. október næstkomandi. Fjöldi verkstæða innan Bíl- ►greinasambandsins taka þátt í Ijósaskoðunarátakinu og veita þau ljósaskoðun forgang þessa dagana. Þannig geta þeir bíleigendur sem vilja Iáta skoða ljósin komið á þessi verkstæði á vanalegum vinnutíma og eru allar líkur á að þeir geti þá strax fengið ljósaskoðun. Fast verð er á ljósaskoðuninni þar til átaki þessu lýkur 1. október, en það er 450 krónur. Afmælistónleikar á Akranesi UM HELGINA voru haldnir tvennir tónleikar á Akranesi í til- efni af 50 kaupstaðarafmælis Akranesbæjar. Á föstudag lék rokksveitin Jethro Tull og á laugardag Black Sabbath. Agæt mæting var á tónleika Jethro Tull, en lakari á Black Sabbath og (jóst að tap varð allnokkuð af tónleikunum. Tónleikar Jethro Tull þóttu mikið; það kæmi ekki í ljós fyrr takast gríðarvel og tónleikagestir almennt í sjöunda himni. Black Sabbath-tónleikamir vom lítt síðri, þó stemmningin hafí ekki verið eins lífleg. Sigurður Sverrisson, sem var í forsvari fyrir tónleikaskipu- leggjendur, sagðist fyrst og fremst stoltur af því hve vel tókst til með tónleikana, en vissulega væm tilfínningar nokkuð blendn- ar því ljóst væri að nokkuð tap hefði orðið af tónleikunum. Ekki sagðist hann gera sér grein fyrir að svo stöddu hve tapið væri en að viku liðinni. Gestir á tónleika Jethro Tull á föstudagskvöld vou vel á þriðja þúsund og sagði Sigurður að ef aðeins hefðu verið þeir einu tón- leikar hefði orðið hagnaður af öllu saman, því ekki komu nema um 1.200 á tónleika Black Sab- bath á laugardagskvöld og marg- ir þeirra keyptu miða á niður- settu verði. Sigurður sagði að þeir sem stóðu að tónleikunum séu að velta því fyrir sér að halda áfram að flytja inn hljómsveitir, enda öðlast mikla reynslu af því að skipuleggja þessa tónleika og komnir í góð sambönd ytra. Hann sagði að hann og aðrir sem að tónleikunum stóðu séu persónu- lega ábyrgir fyrir tapinu, Akra- nesbær þurfí engu að kosta til. Sigurður sagði mun betra hafa verið að eiga við Jethro Tull-liða en Sabbath-menn, enda hefði allt staðið eins og stafur á bók sem Tull-liðar sögðu, en sífellt var að bætast við aukakostnaður og umstang vegna Sabbath. Hann sagði og að svo vel hefði Jethro Tull líkað á íslandi að hljómsveit- in hygðist koma hingað til lands næsta haust, eða snemma vetrar og leika þá á tvennum eða þrenn- um tónleikum í Háskólabíói. Texti: Árni Matthíasson Sú kynslóð sem fædd er á fyrsta fjórðungi þessarar aldar er nú öll komin á eftirlaunaaldur. Eitt af stæstu verkefnum hennar hefur verið að byggja varanlegt íbúðar- húsnæði yfír sig og sína afkomend- ur. Þau mannvirki sem hún tók við voru flest af vanefnum gerð og uppfylltu ekki þær kröfur sem nú eru gerðar til íbúðarhúsnæðis. Að þessu verkefni hefur hún unnið af miklum dugnaði og atorku. Eru þess mörg dæmi að sama fjölskyld- an hafí byggt þrisvar sinnum nýtt íbúðarhús. Framyfir miðja öldina var engin opinber fyrirgreiðsla við íbúðar- byggingar einstaklinga og var þá leitast við að leysa verkefnið með sparnaði og óhóflegri aukavinnu allrar fjölskyldunnar. Síðastliðna áratugi hefur hins vegar verið um verulega lánafyrirgreiðslu að ræða, m.a. úr lífeyrissjóðum þeirra sem nú eru komnir á eftirlaunaald- ur. Þessi uppbygging íbúðarhús- » væðis hófst með byggingu verka- mannabústaða í miðri heimskrepp- unni eftir 1930 og hefur staðið með nokkrum sveiflum til þessa dags. Er nú svo komið að okkar þjóð sem fyrir 70 árum átti aðeins örfá- ar varanlegar íbúðir býr nú í rýmri og vandaðri íbúðum en flestar aðr- ar þjóðir sem við miðum okkur við þegar rætt er um lífskjör og af- komu. Sennilega erum við í fyrsta sæti ef tekið er tillit til þess að hér eru flestar íbúðir hitaðar upp með jarðvarma. Enn hefur ökkar byggingar- glaða kynslóð ekki lagt árar í bát í þessum efnum, heldur á hún rík- an þátt í stórfelldum framkvæmd- um við byggingar á sérhönnuðum íbúðum fyrir aldraða á síðustu árum. í mörgum tilfellum hafa byggjendur slíkra íbúða verið að flytja sig úr stórum íbúðum eða einbýlishúsum í smáíbúðir sem betur henta litlum fjölskyldum. Með því hefur mörgum tekist að auka verulega möguleika sína á því að búa lengur á eigin heimili, sérstaklega þar sem þjónustumið- ' stöð er tengd íbúðinni og hægt er Ólafur Jónsson „Með því að taka frum- kvæðið í bygging-um leiguíbúða fyrir eigna- lítið eftirlaunafólk geta sveitarstjórnir tryggt áframhaldandi fram- kvæmdir í þágu aldr- aðra á meðan lægð er í byggingum sölu- íbúða.“ Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Ronnie James Dio, söngspíra Black Sabbath. Hér eru í byggingú 40 íbúðir fyrir aldraða við Sólvang í Hafnarfirði. Frá tónleikum Jethro Tull á föstudag. að fá aðgang að mötuneyti og annarri þjónustu. Þessar miklu íbúðarbyggingar aldraðra hafa því dregið verulega úr þörfinni fyrir pláss á vistheimil- um og bætt stöðuna í húsnæðis- málum aldraðra. Þó aðeins þeirra sem áttu fjármagn til þess að kaupa slíkar íbúðir á markaðsverði. Annmarkar þessara fram- kvæmda eru þeir að ekki hafa jafn- framt verið byggðar leiguíbúðir í ríkara mæli en gert hefur verið og íbúðir með hlutdeildareign leigutaka, til þess að einnig þeir efnaminni gætu notið-þessara ný- bygginga. Nú virðist þörf markaðarins fyr- ir söluíbúðir til aldraðra vera full- nægt. Eldri íbúðir hafa lækkað í verði og sölutregða er mikil. Því munu aldraðir fara mjög varlega í íbúðarkaup við óbreyttar aðstæð- ur. Þörfínni fyrir hagkvæmar smá- íbúðir fyrir aldraða er þó ekki full- nægt. Hjá félagsmálastofnunum í flestum stærri bæjarfélögum er alltaf biðlisti aldraðs fólks eftir leiguíbúðum. í þeim hópum eru að meirihluta einstæðar konur sem alla sína starfsæfi hafa unnið á svo lágu kaupi að þær áttu þess aldrei kost að kaupa sér íbúð. í þeim hópum er líka aldrað fólk sem orð- ið hefur fyrir áföllum í fjármálum, t.d. vegna ábyrgða í gjaldþrota- málum. Ef þetta fólk hefur aðeins lífeyr- istekjur sér til framfærslu ræður það ekki við að greiða leiguíbúð á markaðsverði. Fyrir þetta fólk þarf að byggja leiguíbúðir og þar eiga sveitarfélögin að hafa frumkvæði að framkvæmdum. Sveitarstjórn- um ber að kanna þörfína fyrir leiguíbúðir og vistheimili fyrir aldr- aða, ef þær upplýsingar liggja ekki fyrir. Oldrunamefndum í hveiju bæjarfélagi ber að semja stefnu- markandi áætlun um framkvæmd- ir í málefnum aldraðra í sínu byggðarlagi. Með því að taka frumkvæðið í byggingum leigu- íbúða fyrir eignalítið eftirlaunafólk geta sveitarstjórnir tryggt áfram- haldandi framkvæmdir í þágu aldr- aðra á meðan lægð er í byggingum söluíbúða. Til slíkra framkvæmda eiga sveitarfélögin rétt til lána úr Bygg- ingarsjóði verkamanna og þeim ber að nýta þann rétt og sækja um lán til slíkra framkvæmda fyrir 1. október nk. Þegar að framkvæmdum kemur er oftast hagkvæmt að nýta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.