Morgunblaðið - 29.09.1992, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
671800
MMC L-300 GLX 4x4 diesel, '88, hvítur,
8 manna, 5 g., ek. 70 þ., álfelgur o.fl.
V. 1250 þús., sk. á ód.
Toyota Landcruiser turbo diesel, '87,
steingrár, 5 dyra, ek. 100 þ., talstöö o.fl.
Úrvalsjeppi. V. 1980 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. 48 þ., central, rafm. í rúðum o.fl.
V. 780 þús.
Subaru 1800 DL 4x4 station '91, stein-
grár, 5 g., ek. 42 þ. Fallegur bíll. V. 1050
þ. stgr.
Honda' Prelude EX '87, hvítur, sjálfsk.,
ek. 68 þ., sóllúga, rafm. í öllu. Fallegur
bfll. V. 890 þ. Sk. á ód.
MMC Pajero Diesel Turbo (langur) '88,
gott eintak. V. 1500 þ. stgr.
Nissan Sunny SCX Coupé '92, sjálfsk.,
ek. 6 þ. V. 930 þ. stgr.
MMC Lancer 4x4 hlaðb. '92, rauöur, 5
g., ek. 27 þ., rafm. í öllu o.fl.
V. 1080 þús. stgr.
MMC L-300 4x4, 8 manna '88, grásans,
5 g., ek. 68 þ. sportfelgur o.fl.
V. 1180 þ. Sk. ód.
MMC Galant GLSi hlaðbakur '92, stein-
grár, sjálfsk., ek. 14 þús. Einn m/öllu. Sem
nýr. V. 1550 þús. stgr.
MMC Galant GLSi '89, 5 g., ek. 49 þ.,
rafm. í öllu o.fl. V. 950 þ. stgr. Sk. ód.
Fiat X1/9 Bertone Spider '80, rauður, 5
g., ek. 55 þ. Óvenju gott eintak. Skoöaður
'93. V. 430 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla XL '92, 5 dyra, blásans.
5 g., ek. 11 þús.. vökvast., central o.fl.
Sem nýr. V 920 þús. stgr.
Cherokee Pioneer 4.0 I 87, brúnsans.,
sjálfsk., ek. 160 þús., raf. rúður, o.fl. Mjög
gott ástand. V. 1250 þús. stgr.
URVAL GODRA BIFREHDA A
MJÖG GÓÐUM STGR.AFSUETTI
Dodge Shadow 88, hvítur, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. 37 þ. mílur. Fallegur bfll. V. 890 þús. stgr.
MMC Pajero V-6 90, svartur, 5 g., -ek. 7
þ., 31" dekk, rafm. rúöur o.fl.
V. 1800 þús. stgr.
Ford Ranger XLT Super Cap 89, 6 cyl,
sjálfsk. ek. 45 þ. V. 1280 þ. stgr., sk. á ód.
Nissan King Cap 4x4 m/húsi '87, 6 cyl.,
sjálfsk., ek. 74 þ. Fallegur bfll.
V. 1080 þ. stgr.
Plymouth Laser RS Twin Cam 16v '90,
grásans, 5 g., ek. 32 þ. mílur, rafm. í öllu
o.fl. Glæsilegur bfll. V. 1490 þús. stgr.,
sk. á ód.
Ford Econoline 150, 8 farþega '91,
sjálsk., ek 28 þ. V. 1550 þ., sk. á ód.
Ferinnálang
flest
heimili landsins!
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sviss
ÞYSKAI. AND
Samþykkt að auðvelda umferð
um Alpana með lestargöngum
Þingmönnum neitað um hærri laun
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
MEIRIHLUTI Svisslendinga, eða 63,5%, samþykkti í þjóðaratkvæða-
greiðslu um helgina að gerð yrðu ný járnbrautargöng í gegnum
Alpana til að hamla á móti aukinni umferð stórra vöruflutningabíla
í geguum landið. Niðurstaðan sýnir að Svisslendingar eru reiðubún-
ir til að starfa með Evrópubandalaginu (EB), en hún er ekki trygg
vísbending um afstöðu þjóðarinnar til samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið (EES) eða aðildar að EB. Ahrifamestu andstæðingar
EES og EB voru hlynntir göngunum og lítill vafi lék á að tillagan
yrði samþykkt. Stærri meirihluti, eða 72,5%, felldi tillögu um
hækkun þingfararkaups.
Græningjar, Bílaflokkurinn og
svissneskir lýðræðissinnar voru
einu stjórnmálaöflin sem voru á
móti tillögunni um gerð járnbraut-
arganganna. Bygging þeirra er lið-
ur í samningi sem Adolf Ogi, sam-
gönguráðherra, gerði við EB um
ferðir 40 tonna flutningabíla banda-
lagsríkjanna um Sviss eftir að
Svisslendingar samþykktu að
banna -ferðir bíla yfir 28 tonn um
landið. Ogi skuldbatt Svisslendinga
til að byggja ný göng í gegnum
Lötschberg og Gotthard til að auð-
velda vöruflutninga með lestum.
Niðurstaða kosninganna er per-
sónulegur sigur fyrir hann. Búist
er við að gerð ganganna taki 10
til 15 ár og þau muni kosta 15
milljarða franka eða 645 milljarða
ÍSK.
Svissneska þjóðþingið kemur
saman í þrjár vikur í senn fjórum
sinnum á ári. Þingnefndir starfa
allt árið og það kemur fyrir, eins
og þegar EES var rætt í sumar,
að aukaþing sé kallað saman. Þing-
mennska hefur ekki verið fullt starf
og andstæðingar hærri launa fyrir
þingmenn vildu fyrst og fremst
forða þjóðinni frá því að sitja uppi
með atvinnuþingmenn. Fyrir kosn-
ingarnar benti allt til að þjóðin
myndi neita þingmönnum um
launahækkun en ekki var búist við
að svo stór hluti kjósenda myndi
gera það. Fréttaskýrendum kemur
saman um að niðurstaðan/ sýni
óánægju þjóðarinnar með frammi-
stöðu þingmanna auk þess sem
Svisslendingar eigi í efnahagserfið-
Ieikum eins og aðrar Evrópuþjóðir
og þetta sé ekki rétti tíminn til að
fara fram á launahækkun. Óæðri
hvatir eins og níska og illgimi réðu
afstöðu sumra: „Þú færð ekki meiri
peninga frá mér til að komast oftar
í hárgreiðslu," sagði einn kjósenda
á sunnudagskvöld og það hlakkaði
í honum fyrir framan sjónvarpið
þegar kvenfulltrúi Kristilega þjóð-
arflokksins harmaði afdrif tillög-
unnar.
Svissneskir þingmenn hafa að
meðaltali 54.000-60.000 franka í
laun á ári, 193.000-215.000 ÍSK á
mánuði. Launin hefðu farið upp í
82.000-90.000 franka á ári, eða í
293.000-322.500 ÍSK á mánuði, ef
tillagan hefði verið samþykkt.
Tillaga um þingmannastyrki
vegna kostnaðar við skrifstofu-
rekstur og aðstoðarfólk var einnig
felld. Tillaga um aukna samvinnu
ríkisstjómar og þingdeilda og reglu-
breytingar varðandi þingnefndir var
hins vegar samþykkt. Túlka má
þessa niðurstöðu svo að Svisslend-
ingar ætlist til þess að svissneska
þingið skili betri vinnu fyrir sama
verð.
Einnig voru greidd atkvæði um
skattheimtu sem verið hefur um-
deild. Ríkissjóður hefur haft um 2,1
milljarð franka, 90,3 milljarða ÍSK,
í tekjur á ári af stimpilgjaldi sem
bankarnir leggja á verðbréfavið-
skipti í landinu. Bankamir hafa
löngum kvartað undan þessum
skatti og sagt að þeir væru ekki
samkeppnisfærir í verðbréfaheimin-
um vegna hans. Þjóðin samþykkti
með 61,5% atkvæða í kosningunum
um helgina að afnema skattinn og
auðvelda bönkum þannig sam-
keppnina í framtíðinni.
43,4% þjóðarinnar tóku þátt í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um helg-
ina. Það er góð þátttaka á svissn-
eskan mælikvarða og sýnir að þjóð-
inni þótti málefnin mikilvæg sem
tekist var á um.
Þijú flugslys um helgina
167 fórust skammt frá
flugvellimim í Kathmandu
Talið að hátt í 200 manns hafi farist með Herkúles-vél í Nígeríu
Kathmandu, Nepal. Lagos, Nígeríu. Lúanda, Angólu. Reuter.
AIRBUS-þota frá pakistanska flugfélaginu Pakistani Airlines (PIA)
skall á fjallshlíð í aðflugi að flugvellinum í Kathmandu í Nepal í fyrri-
nótt með þeim afieiðingum að allir sem um borð voru, 155 farþegar
og 12 manna áhöfn, fórust. Á laugardagskvöld fórst Herkúles C-130
fiutningafiugvél skömmu eftir flugtak í Lagos og með henni að minnsta
kosti 180 manns.
Óljóst er hvað olli flugslysinu í
Nepal en sambandslaust varð við
flugmenn PIA-þotunnar er hún var
um átta kílómetra frá flugvellinum.
Flugmennirnir höfðu ekki tilkynnt
um neina erfiðleika. Starfsmenn
flugvallarins í Kathmandu sögðu þó
að þotan hefði verið 1.500 fetum
neðar en eðlilegt væri eða í 7.500
feta hæð í stað 9.000.
Flugmenn telja flugvöliinn í Kat-
hmandu með þeim erfiðari en hann
er ofan í djúpri fyallaskál og um-
lykja háir fjallsveggir völlinn á alla
vegu. Athafnarými flugmanna er því
lítið og þröngt. Verða þeir í aðflug-
inu að lækka flugið í gormlaga ferli
yfir flugbrautarendanum. Engin rat-
sjá er á flugvellinum til þess að leið-
beina flugvélum í nágrenni hans.
Úrhellisrigning var á slysstaðnum
og skýjað svo ekki var hægt að senda
björgunarþyrlur á vettvang, heldur
urðu björgunarsveitir að fara fót-
gangandi upp fjallshlíðarnar sem er
erfið leið yfirferðar. Þota PIA var
af gerðinni Airbus 300 og langflest-
ir farþeganna voru Nepalir á heim-
leið frá Miðausturlöndum til að taka
þátt í árlegri hátíð hindúa.
Talið er að hreyfilbilun og of-
hleðsla hafi valdið því að Herkúles
flugvél Nígeríuhers fórst á laugar-
dagskvöld. í gær höfðu fundist lík
180 manna sem fórust með flugvél-
inni og var óttast að fleiri væru
ófundin. í mörgum löndum er ekki
leyfilegt að flytja nema 130 hermenn
í Herkúles-flugvél og eru vopn þeirra
þá ekki höfð meðferðis. Talið er að
allt að 200 manns hafi verið í flug-
vél Nígeríuhers og með henni fórust
margir af helstu foringjum nígeríska
hersins. Flugvélin kom niður á fenja-
svæði 10 km frá flugvellinum í La-
gos og sökk svo að einungis stélið
stóð upp úr.
Loks biðu fjórir rússneskir fluglið-
ar og 11 farþegar bana þegar þyrla
Sameinuðu þjóðanna fórst í héraðinu
Uige í norðurhluta Angólu á sunnu-
dag. Þyrlan var notuð til að fljúga
með eftirlitsmenn sem fylgdust með
fyrstu frjálsu kosningunum sem
fram fara í dag, þriðjudag, og á
morgun.
Umferðin í Rússlandi
Fjöldi dauðaslysa
minnir á stríðsfréttir
Moskvu. Reuter.
TALA banaslysa í umferðinni í Rússlandi, sem hefur verið hrikalega
há, virðist ekki hafa lækkað á fyrri helmingi þessa árs. Frá janúar-
byrjun til júníloka fórust álíka margir í umferðarslysum þar í landi
og létu lífið á tíu árum í styrjöldinni í Afganistan.
Samkvæmt forsíðufrétt, sem
dagblaðið Trud birti í síðustu viku
og hafði eftir ríkisskipaðri nefnd
um tölfræðimálefni, fórust 13 þús-
Vaskhugi
Ari Vilhjálmsson,
framkvstj. og eigandi
Hjólheima sf.:
Hringið og við sendum bækling um hæl
ny Vaskhugi hf. ÍT 682 680
und manns í umferðarslysum á fyrr-
greindu tímabili og 75.000 slösuð-
ust.
„Vikulegar tölur um umferðar-
slys minna einna helst á stríðsfrétt-
ir, svo margir láta lífið eða slas-
ast,“ sagði í fréttinni. „Það er eng-
in tilviljun, að stríðið í Afganistan
kemur æ oftar upp í hugann í þessu
sambandi."
Um það bil 13.000 sovéskir her-
menn féllu í tíu ára sögu Afganist-
an-stríðsins.
Trud nefndi engar tölur frá fyrra
ári, en embættismenn segja, að í
Rússlandi, sem bílvæddist tiltölu-
lega seint, séu banaslysin í umferð-
inni tiltölulega fleiri en í nokkru
öðru landi.
Blaðið sagði, að nauðsynlegt
væri að herða viðurlög við umferð-
arlagabrotum til muna, auk þess
sem lögreglan yrði að taka eftirlits-
starf sitt mun fastari tökum en hún
gerði nú.
Á Krossahæðinni
Reuler.
Ferðamenn smokra sér framhjá krossunum á Krossahæðinni í Siauliai
í Litháen. Hæðin og krossasafnið þar er minnisvarði um Litháa sem
urðu fyrir barðinu á hreinsunum Jósefs Stalíns og voru sendir í „gú-
lagið“. Krossarnir eru tileinkaðir Litháum sem sneru aldrei til baka.