Morgunblaðið - 29.09.1992, Side 34

Morgunblaðið - 29.09.1992, Side 34
Morgunblaðið/Rúnar Þór Almenningur sýndi Ferðakaupstefnu Vestur-Norðurlanda mikinn áhuga og var íþróttahöllinn troðfull af gestum þann tíma sem hún var opin. Ferðakaupstefna Vestur-Norðurlanda: Kaupstefnan skílaði 30-40 millj. veltu inn í bæjarfélagið Kennarar á Norðurlandi Niðurskurði mótmælt Á AÐALFUNDI Bandalags kenn- ara á Norðurlandi eystra, sem haldinn var á Laugum í Reykja- dal fyrir nokkru, var samþykkt ályktun þar sem hugmyndum um frekari niðurskurði til mennta- mála er harðlega mótmælt. „Stjómvöld hafa nú þegar vegið grimmilegt að skóiastarfi í landinu og því ljóst að ef af áframhaldandi niðurskurði verður er öllu skóla- starfi í landinu stefnt í hreinan voða,“ segir í ályktuninni. Þá kemur fram að Bandalagið hvetur félaga sína til að vera virkir í umræðum um skólamál og láta ekki hugfallast á tímum niðurskurð- ar og þrenginga í þjóðfélaginu. „Að undanfömu hefur verið vegið harka- lega að kennarastéttinni og skóla- starfi í landinu. Því er mikilvægara ^nú en nokkru sinni að kennarar standi dyggan vörð um hagsmuni sína og skólanna." -----♦ ♦ ♦--- Einn á 99 km. á Glerárgötu ÖKUMAÐUR var sviptur ökuleyfi sínu um helgina eftir að hann hafði mælst á 99 kílómetra hraða á klst. á Glerárgötu, þar sem leyfi- legur hámarkshraði er 50 km/klst. Nokkuð erilsamt var hjá lögregiu um helgina, að sögn varðstjóra, al- menn ölvun töluverð og rúður voru brotnar í miðbænum. Tvö óhöpp urðu í umferðinni, tveir bílar rákust saman á gatnamótum Eyralandsvegar og Hrafnagilsstræt- is og var einn maður fluttur á slysa- deild, en reyndist ekki mikið meidd- ur. Þá valt bíll skammt frá bænum Rein í Eyjafjarðarsveit, ekki urðu slys á fólki, en bifreiðin er mikið skemmd. Sjö tilboð bárust í verkið og voru þau öll undir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 53,7 milljónir króna. Vör hf. átti lægsta tilboðið, um 41,6 „AÐSÓKNIN fór fram úr björt- ustu vonum,“ sagði Jón Gauti Jónsson starfsmaður Atvinnu- málanefndar Akureyrar, en Ferðakaupstefna Vestur-Norð- urlanda sem haldin var í Iþrótta- höllinni á Akureyri fyrir helgi var opin almenningi á laugardag. Þetta er í fyrsta sinn sem al- milljónir króna, eða 77,4% af áætluð- um kostnaði. Gert er ráð fyrir að verkinu verði skilað 1. júní á næsta ári. menningi gefst kostur á að skoða kaupstefnuna er hún hefur verið haldin á íslandi og greinilegt af góðri aðsókn að Norðlendingar hafa kunnað að meta það. Jón Gauti Jónsson sagði erfitt að segja til um hversu miklum pen- ingum kaupstefnan hefði skilað, en menn hefðu verið að leika sér að tölum í því sambandi og nefnt að ekki væri ólíklegt að hún hefði skil- að 30 til 40 milljóna króna veltu inn í bæjarfélagið. Þá væntu menn þess einnig að í kjölfarið myndi ferða- þjónusta á svæðinu aukast og að fyrirtæki á svæðinu gætu í fram- haldi af kaupstefnunni náð samn- ingum við nýja ferðaheildsala. „Þessi kaupstefna var mikil lyfti- stöng fyrir bæinn og hún gekk í alla staði vel, hún skilaði tugum milljóna króna inn í bæjarfélagið, en hér voru um 500 manns í 3 til 5 daga og þá má einnig nefna að hingað kom fjöldinn allur af fólki sem engin kynni hafði haft af Akur- eyri áður. Við vonumst til þess að sú viðkynning verði til þess að blása auknu Iífi í ferðaþjónustu hér á svæðinu á næstu árum. Bærinn hefur aldrei áður fengið svo mikla kynningu og þessa daga sem kaup- stefnan stóð og við vonum auðvitað að hún skili sér,“ sagði Jón Gauti. Þátttakendur voru mun fleiri en búist hafði verið við, en síðast þeg- ar Ferðakaupstefna Vestur-Norð- urlanda var haldin á íslandi, í Reykjavík árið 1989, voru þátttak- endur rúmlega 300. Nú tóku þátt í kaupstefnunni um 500 manns. „Það virðist einhver bylgja vera í gangi núna, það er aukinn áhugi fyrir norðlægum löndum og það var mikið um nýja ferðaheildsala á þessari kaupstefnu, sem ekki hafa áður boðið Islandsferðir, en eru að bæta þeim við,“ sagði Jón Gauti. Endurskoðuð fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar Tekjur hafa aukist Slökkvistöðvarbyggingin Samið verði við Vör hf. BÆJARRÁÐ hefur lagt til að samið verði við Vör hf. um breyting- ar á Árstíg 2, þar sem koma á upp framtíðarhúsnæði fyrir Slökkvilið Akureyrar og Strætisvagna Akureyrar. um 8 milljónir króna TEKJUR Dalvíkurbæjar vegna aðstöðugjalds eru um 6 milljónum króna meiri en gert var ráð fyrir við gerð fjárhagsáætlunar, sem sýnir að velta fyrirtækja í bænum er meiri en búist var við er áætlunin var gerð. Bæjarstjórn Dalvíkur afgreiddi endurskoðaða fjárhagsáætlun á fundi síðastliðinn þriðjudag og greinir Bæjarpóst- urinn á Dalvík frá helstu breytingum á áætluninni, sem eru að auknu fé er veitt til framkvæmda í bænum. Áætlað var að veija 25 milljón- um króna til sundlaugarbyggingar á árinu, en sú upphæð hefur verið hækkuð um 7 milljónir króna svo unnt verði að gera sundlaugarhús- ið fokhelt fyrir áramót. Þá sam- þykkti bæjarstjórn að veija tæpum 1,4 milljónum til leikavalla og 1,6 milljónum til kaupa á erfðafestu- löndum í stað 500 þúsunda og loks má nefna að kaup á hlutafé í Hamri hf. var hækkað úr 9,5 millj- ónum í 12,5 milljónir króna. Áætlað hafði verið að bærinn legði fram 6 milljónir króna til að Ijúka gerð íþróttasvæðis fyrir unglingalandsmót sem haldið var á Dalvík í sumar, en sú upphæð var hækkuð í 8,8 milljónir. Ljóst er nú að heildarkostnaður við svæðið nemur 11,7 milljónum og er hlutur Dalvíkurbæjar 10 millj- ónir króna. Aukin útgjöld eru að hluta fjár- mögnuð með lántökum, en gert er ráð fyrir að þær aukist um tæpar 5 milljónir. Skatttekjur auk- ast um 8 milljónir króna frá því sem gert var ráð fyrir við gerð fjárhagsáætlunar í upphafi árs, en þar munar mestu um að aðstöðu- gjald skilar bænum 6 milljónum króna meira í tekjur en búist var við. Morgunblaðið/Rúnar Þór * A skautum til Dalvíkur Nokkrir unglingar úr íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hlupu áheitahlaup frá Akureyri til Dalvíkur, eða rúmlega 40 kílómetra leið, til fjáröflunar fyrir félagið á laugardaginn. Ferðin gekk vel, en skauta- menn voru tvær klukkustundur og 45 mínútur á leiðinni. Nokkurt fé safnaðist og verður það notað til reksturs deildarinnar. Aðalfund- ur Skautafélags Akureyrar verður haldinn annað kvöld, miðvikudags- kvöld þar sem eflaust verður rætt um fjárhagsvanda félagsins, en reksturinn hefur verið þungur að undanförnu og m.a. skuldar félag- ið Rafveitu Akureyrar 1,2 milljónir króna vegna rafmagnsreiknings fyrir síðasta vetur. Verið er að leita leiða til að greiða reikninginn svo rafmagni verði hleypt á skautasvæðið, en rafmagnsleysi hefur staðið í vegi fyrir framkvæmdum við svæðið. „Við vonum að þetta mál leysist fljótt. Það er mjög brýnt orðið fyrir okkur að geta farið að hefja æfingar, við höfum Islandsmeistaratitil að veija og ég get fullyrt að íshokkíið er eina íþróttagreinin þar sem við Akureyringar höfum verulegt forskot á aðra landsmenn,“ sagði Magnús Finnsson, formaður íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.