Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 45 Minning Ólafía Jónsdóttir Fædd 6. janúar 1914 Dáin 21. september 1992 í dag er gerð útför frú Ólafíu Jónsdóttur húsfreyju frá Fríkirkj- unni í Reykjavík. Hún ólst upp í frumbernsku sinni með systur sinni Gíslínu á Bræðraborgarstíg 5 í litlu húsi, sem fyrir löngu er horfíð og flutt brott í Kópavog. Foreldrar þeirra voru Jón Halldór Gíslason múrarameistari (f. 19. maí 1883, d. 9. desember 1969) ættaður austan úr Flóa af Jötuætt og var Sesselja móðir hans alsystir Brynj- ólfs, rithöfundar og fræðimanns, Jónssonar á Minna-Núpi, og fyrri kona hans, Auðbjörg Pétursdóttir í Bakkakoti á Seltjamamesi (f. 12. júlí 1881, d. 21. október 1921), Ingimundarsonar í Bollagörðum, Ingimundarsonar á Völlum, Bjarna- sonar. Þau eignuðust ekki fleiri böm saman en þessar tvær dætur. Gísl- ína lifir systur sína og býr á Sörla- skjóli áttatíu ára gömul. Auðbjörg móðir þeirraveiktist af berklum og dó aðeins fertug 1921 þegar Lóa, eins og við kölluðum hana ævin- lega, var aðeins 7 ára. Þá var kreppa í landi og atvinnuleysi. Jón Gíslason varð að láta frá sér báðar dætumar. Gíslína var tekin í fóstur af ættingjum austur í sveitum en Lóa varð sjúklingur á Vífílsstöðum. Hún hafði dottið við leik og meitt sig í hné, sem ekki var gefinn of mikill gaumur að. En það greri ekki og hlupu berklar i meinið. í heilt ár barðist hún við sjúkdóminn á Vífilsstöðum og fékk loks bót en þá var hnjáliðurinn orðinn fastur og gekk hún með staurfót alla ævi. Faðir hennar, Jón Gíslason, kvæntist aftur nokkm seinna, Guð- rúnu Jónsdóttur frá Hafþórsstöðum í Norðurárdal. Þau fluttu á Berg- staðastræti 17 og bjuggu þar alla tíð. Með Guðrúnu átti Jón fjögur börn: Guðjón Björgvin, skrifstofu- stjóra í Reykjavík, Sesselju og Ingi- björgu, sem vom tvíburar og Svövu. Ingibjörg og Svava em látnar fyrir mörgum árum. Eftir fermingu tók við þrotlaus leit að vinnu og var ekki um auðug- an garð að gresja. Á unglingsámm réði hún sig í vist hjá ýmsum borg- urum þó að ekki væri hátt kaupið. Eitthvað mun hún hafa unnið í veit- ingahúsum þó að ég viti lítið um það skeið ævi hennar nema hvað fátækt og basl vom þar áberandi í lífsbaráttunni. Árið 1943, þann.27. febrúar, gift- ist hún Gils Sigurðssyni, verslunar- manni, fangavarðar, Péturssonar í Reykjavík. Þau leigðu sér litla íbúð í húsi númer 19 við Frakkastíg. Þar hitti ég Lóu fyrst í gegnum kynni mína af Ingibjörgu systur hennar. Það var strax ákaflega ánægjulegt. Ég var þá ráðdeildarlítill stúdent af öðru landshorni, alltaf blankur og oft svangur. Ég leigði herbergi ekki langt frá og þegar ég hafði nokkmm sinnum heimsótt hana með systur hennar, fór hún að gefa okkur súpu og stundum mat. Svo ERFIDRYKKJUR Perlan á Öskjuhlíð KkLAN sími 620200 'SCom, Opið alla daga frá kl. 9 22. sagði hún mér að koma og fá mér súpu þegar vont væri veður á leið í mötuneytið, sem var í háskólanum. Það varð svo að vana og endaði með því, sem hún hafði ætlað sér, að taka mig í fæði. Ég borðaði síð- an hjá þeim hjónum heilan vetur mér alveg að kostnaðarlausu. Og það var ekkert slorfæði. Hún virtist njóta þess að búa til góðan mat og ' gleðjast yfir því að bera lystilega rétti fyrir manninn sinn og gesti þeirra. Hún var mikil húsmóðir. Og þama á Frakkastígnum held ég að hún hafi fýrst farið að njóta sín sem húsmóðir á eigin heimili, eftir allt baslið í kreppunni fyrir stríð. En bestu ár ævinnar, sem hún minntist jafnan með gleði, hófust þegar þau hjónin fluttu í nýja rúm- góða íbúð í húsið númer 6 við Kjart- ansgötu árið 1949. Það var nýtt hús í nýju hverfi og þar bjó Lóa manni sínum fallegt heimili þar sem allt gljáði af snyrtimennsku og myndarskap. Þangað komum við oft í heimsókn, ég og systir henn- ar, sem var orðin konan mín, þegar við vorum flutt til Vestfjarða og komum í heimsókn til Reykjavíkur. Til þeirra lá leiðin gjaman fyrst. Hún var svo mikill vinur okkar og þau hjónin bæði. Og svo hlotnaðist henni sú gæfa að eignast dóttur. Þann 7. desem- ber 1954 fæddist Auður Gilsdóttir, sem var augasteinn foreldra sinna og hápunktur gæfunnar hennar Lóu, sem hana vafalaust hefur dreymt um í fátækt, basli og sjúk- dómi unglingsáranna. Eftir þær raunir allar þykir mér eins og hún hafí átt þetta lífslán fullkomlega skilið að eignast svo vel gerða, væna og fallega dóttur sem Auður Gilsdóttir er. Hún hefur reynst móður sinni frábærlega vel í veik- indum hennar seinustu árin, umvaf- ið hana umhyggju og ástúð. Lóa missti Gils manninn sinn 13. janúar 1979. Hún bjó eftir það í Arahólum í Breiðholti, ekki langt frá heimili Auðar dóttur sinnar og manns hennar Björns Halldórsson- ar, í Austurbergi 12. Seinustu árin hrakaði heilsu hennar mjög og dvaldi hún lengst af á Vífílsstaðaspítala og þar fékk hún hægan dauðdaga 21. septem- ber síðastliðinn. Mig hefði langað til að minnast þessarar mágkonu minnar og vel- gerðarkonu meir og betur en hér hefur til tekist því ég á henni mik-' ið að þakka og á um hana margar góðar minningar frá löngu liðnum árum. Blessuð sé minning Ólafíu Jóns- dóttur. Þórarinn Þór. GRÁSTEINN % I_ Á G R V T I , L I P A B I T GABBRÓ.MARMARI G R A N í T I.HELGASON HF STEINSffllDJA SKEMMUVEGI 48 KÓPAVOGI SÍMI: 91 76677 t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR EMIL GESTSSON pípulagningamaður, - Unufelli 50, andaðist í Borgarspítalanum þann 25. þessa mánaðar. Útförin auglýst síðar. Ingibjörg Axelsdóttir, börn,tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. - t Systir okkar, VILBORG JÓNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Seljakirkju miðvikudaginn 30. september kl. 13.30. Steinunn Jónsdóttir, Svava Jónsdóttir, Steinþór Jónsson. t Útför bróður okkar, STEFÁNS ÞORKELSSONAR, fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 29. september kl. 13.30. Sigurgeir Þorkelsson, Ingimar Þorkelsson, Gylfi Þorkelsson. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, VILHJÁLMUR G. SVEINSSON, Smyrlahrauni 42, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 30. sept- ember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Félag nýrnasjúkra og Hjartavernd. Esther Kristinsdóttir, Sigurður Bergsteinsson, Þorgeir Vilhjálmsson, Sveinn Rúnar Vilhjálmsson, Helga Fjeldsted, Sesselja Unnur Vilhjálmsdóttir, Valgeir Guðbjartsson, Jónína Sigurbjörg Viihjálmsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MOGENS A. MOGENSEN lyfsali, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. október 1992 kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið. Petra Mogensen, Ellen M. Thors, Jón Thors, Gunnar Mogensen, Hulda G. Mogensen, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA ÞORLEIFSDÓTTIR, Suðurgötu 17, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju miðvikudaginn 30. september kl 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir. Helgi K. Haraldsson, Ásthildur Einarsdóttir, Þorgeir Haraldsson, Guðríður H. Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNATANSDÓTTIR, si'ðast til heimilis á Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Eskihlíð 12b, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. október kl. 13.30. Jón Júli'usson, Signý Sen, Anna Júli'usdóttir, Bergþór Smári, Erlendur Jónsson, Sigríður H. Jónsdóttir, Júli'us Smári og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir sýnda vináttu og samúð við fréfall og útför GUÐLAUGS EYJÓLFSSONAR fyrrverandi kaupfélagsstjóra. Þorbjörg Guðlaugsdóttir, Sigurður Guðlaugsson, Ingólfur Guðlaugsson, Jón G. Guðlaugsson, Bárður Guðlaugsson, Magna Baldursdóttir, Rannveig L. Pétursdóttir, Lára Jónsdóttir, Guðný Einarsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNSLAXDAL frá Meðalheimi. Sérstaklega þökkum við starfsstúlkum á dvalarheimilinu Hlíð fyr- ir góða ummönnun. Guðný Laxdal, Oddný Laxdal, Þorgerður Laxdal, Hlaðgerður Laxdal og fjölskyldur. Lokað Vegna jarðarfarar RÖGNU EINARSDÓTTUR verð- ur lokað í dag frá kl. 13.00-15.00. Gallerí Sara, Trönuhrauni 6, Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.