Morgunblaðið - 29.09.1992, Síða 55

Morgunblaðið - 29.09.1992, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 55 Aukaþing Sambands ungra sjálfstæðismanna í Neskaupstað • • Ollum hugmyndum um veiðileyfagjald hafnað Samþykkt að kjörtímabilið skuli lengt, vægi atkvæða jafnað og þingmönnum fækkað AUKAÞING Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) var haldið í Neskaupstað um helgina og þar voru ályktanir um helstu svið sljórnmálanna samþykktar. í stjórnmálaályktun þingsins er öllum hugmyndum um veiði- leyfagjald hafnað og kveðið er á um að ekki skuli hafna erlendu áhættufjármagni í íslenskum sjávarútvegi. I ályktun þingsins um utanríkismál er eindregnum stuðningi lýst yfir við aðild ís- lendinga að Evrópsku efnahags- svæði (EES) og sagt að ástæðu- laust sé að ræða um nánara sam- starf við Evrópubandalagið á meðan ekki hefur fengist reynsla af EES. Auk áðumefndra mála leggur SUS áherslu á nokkur atriði í stjómmálaályktun og meðal þeirra em eftirfarandi: * Atkvæðisréttur verði jafn og þingmönnum fækkað. * Byggðastofnun sjái um almenna ráðgjafarstarfsemi fyrir opinbera aðila, en ekki lánafyrirgreiðslu eða styrki. Flytja skal starfsemi stofn- unarinnar út á land. * Ríkisstjórnin gerir rétt með því að beina atvinnuskapandi aðgerð- um á næstu árum mestmegnis til vegamála. * Fijálsa aðild að verkalýðsfélög- um. * Frelsi til að ákveða í hvaða líf- eyrissjóði einstaklingar greiði. * Leggja niður félagslega íbúða- kerfíð í núverandi mynd. * Að fa,gleg og fjárhagsleg ábyrgð í heilbrigðisþjónustunni fari sam- an, að sjúkratryggingar verði end- urvaktar og að tekjutengt iðgjald innheimtist sem hluti af sköttum. * Islendingar bregðist við breyt- ingum á alþjóðavettvangi af var- færni og fordómalaust. * Halda ber gengi stöðugu, það er ein forsenda stöðugleika í efna- hagsmálum. * Draga á enn meir úr miðstýringu í landbúnaði og hætta ber niður- greiðslum og útflutningsbótum til landbúnaðar. Gefa skal framleiðslu og verðlag fijálst. * Hætta skal skuldasöfnun ríkis- ins og skila hallalausum fjárlögum með útgjaldalækkunum en ekki skattahækkunum. * Lækka þarf tekjuskatt einstakl- inga og fyrirtækja og einnig skal lækka virðisaukaskatt verulega með því að afnema undanþágur. * Huga ber að enn frekari einka- væðingu opinberra fyrirtækja -en hefur verið gert hingað til. Einka- væðing fyrirtækja í samkeppni á að hafa forgang og leggja ber höfuðáherslu á einkavæðingu opin- beira peningastofnana og kanna möguleika á einkavæðingu raf- orkufyrirtækja. * Aðstöðumunur sjóvinnslu um- fram landvinnslu verði afnuminn. * Þjóðaratkvæðagreiðsla um samninginn um Evrópska efna- hagssvæðið er talin ástæðulaus. Miklar umræður um sjávarútvegsmál í ályktun þingsins um sjávarút- vegsmál segir meðal annars: „Markmiðið með stjórnun fiskveiða er að veiða sem hagkvæmast magn með sem minnstum tilkostnaði, og vemda stofnana. Ekki hefur komið fram raunhæfari leið til þess að ná þessum markmiðum en afla- markskerfið. Festa verður það Miklar umræður urðu í sjávarútvegsnefnd aukaþings Sambands ungra sjálfstæðismanna í Neskaupstað um helgina. A meðfylgjandi mynd sjást nokkrir nefndarmenn og eru þeir þungbrýndir eftir löng funda- höld. kerfí í sessi til þess að eyða óvissu og til þess að hagræðingin geti orðið hraðari en ella. [...] Ungt sjálfstæðisfólk hafnar öllum hug- myndum um veiðileyfagjald. Frjálst framsal verður að vera á aflaheimildum til þess að markmið um hagræðingu náist.“ Það er athyglisvert að þingið skuli taka svo eindregna afstöðu gegn veiðileyfagjaldi, ekki síst með tilliti til samþykktar síðasta aðal- þings um sjávarútvegsmál, sem haldið var á Isafírði i ágúst í fyrra. Á því þingi var hart deilt um hvort til greina kæmi að innheimta ákveðið gjald af útgerðaraðilum fyrir afnot af auðlindinni. Á ísa- fjarðarþinginu komu menn sér saman um þá málamiðlun að eðli- legt væri að innheimta hlunninda- gjald, sem látið yrði standa straum af kostnaði við þá þjónustu sem sjávarútvegurinn notaði, s.s. rekstri Hafrannsóknastofnunar. Eftir þingið í fyrra kom hins vegar í ljós að menn voru ekki alveg sammála um túlkun ályktun- arinnar. Davíð Stefánsson, for- maður SUS, sagði í viðtali rétt eftir þingið að því væri haldið nokkuð opnu hvernig menn túlk- uðu hugtakið hlunnindagjald. Hægt væri að nota þetta orð eða tala um veiðileyfagjald en það sem átt væri við í báðum tilvikum væri hlunnindagjald fyrir veiðiheimild eða nýtingarréttinn. Sumir and- stæðingar veiðileyfagjalds eða gjaldtöku af útgerðaraðilum héldu því hins vegar fram að í ályktun- inni fælist síður en svo viðurkenn- ing á gjaldtöku ríkisins fyrir nýt- ingarréttinn heldur eingöngu fyrir þá þjónustu sem sjávarútvegurinn notaði. í ályktunardrögum aukaþings- ins, sem haldið var í Neskaupstað um helgina, sagði að sjávarútveg- urinn þyldi ekki meiri álögur, sér- staklega eins og staðan væri í dag, og ætti það jafnt við um veiði- leyfagjald sem önnur gjöld. í með- förum sjávarútvegsnefndar þings- ins var mun harðari afstaða tekin og veiðileyfagjaldi alfarið hafnað. Formaður sat hjá í atkvæðagreiðslu 'Á þinginu sjálfu voru ályktunar- drög nefndarinnar samþykkt án mótatkvæða en Davíð Stefánsson, formaður SUS, sat meðal annarra hjá við atkvæðagreiðsluna. Davíð skýrði hjásetu sína í ræðu, þar sem hann lýsti yfír því að hann væri ósammála niðurstöðum nefndar- innar. Hann sagðist þó ekki ætla að gera þær að ágreiningsefni á þinginu vegna þess að hann vissi að þar væri hann í minnihluta með skoðanir á stjómun fiskveiða. „í þessari ályktun sé ég ekki mjög margt nýtt og ég verð að segja það, að í þessari ályktun er ekki djarft á málum tekið. Það er undir það tekið sem flokksforystan hefur lagt til í þessum málum og menn eru tregir til að koma með nýjar hugmyndir. Ég harma í raun að menn skuli vera svo skammsýnir að útiloka með öllu einhvers konar veiðileyfagjald um alla framtið. Ég harma einnig að menn skuli ekki einu sinni hafa þann möguleika opinn. Það er nefnilega svo að kvótar eru pólitísk leyfi og hér erum við að fjalla um að afhenda mönnum þessi leyfi. Við erum sam- mála um að menn eigi að fá póli- tísk leyfí og takmarka aðganginn að þessari auðlind. En það, að menn fái pólitísk leyfí gefins til aldurs og ævi og þau gangi í arf til bamabama þessa fólks og svo framvegis, það get ég ekki saétt mig við án frekari umræðu. Við erum að horfa upp á það að vera búin að afhenda ákveðnum hópi í landinir til eignar helstu auðlind þjóðarinnar." Opnað fyrir fjárfestingar erlendra aðila í sjávarútvegi í ályktun þingsins um sjávarút- vegsmál er hvátt til þess að útlend- ingum verði gert kleift að leggja fram áhættufé í sjávarútvegi og bent á að þegar rætt sé um eignar- aðild þeirra sé lítill munur á því hvort þeir eigi lánsfé eða hlutafé í greininni. Hægt sé að setja regl- ur um hámarkseignaraðild og/eða atkvæðisrétt erlendra aðila. Þó eigi að setja það skilyrði fyrir fjárfest- ingum útlendinga að ekki sé um ríkisstyrkt fyrirtæki að ræða. Á að lengja kjörtímabilið? í ályktunum þingsins segir einn- ig að ef ætlunin sé að tengjast ECU sé heppilegast að setja krónuna fyrst á flot og láta hana ná mark- aðsjafnvægi. Einnig kemur fram að víðtæk verkefnatilfærsla í þjóð- félaginu, frá ríkinu til einstaklinga, sé best til þess fallin að losa efna- hagskerfíð úr viðjum þeirrar stöðfi- unar, sem ríkt hefur hér á landi undanfarin ár. Það er talið grund- vallaratriði að ríkissjóður sé ekki rekinn með halla og segja að lang- varandi hallarekstur og sjálfvirk útgjaldaaukning sé aðalvandinn í ríkisfjármálum. Ungir sjálfstæðis- menn telja eina af þeim leiðum, sem færar eru til lausnar vandan- um, vera þá að lengja kjörtímabil- ið, til dæmis í sex ár, og auka þar með líkumar á því að valdhafar velti ekki vandanum á undan sér fram yfir kosningar heldur njóti ávaxta góðra verka en taki afleið- ingunum af slæmum verkum. Hvatt er til þess að meira verði skorið niður í ríkisfjármálum en gert hefur verið til þessa. SUS hvetur til skattalækkana og til þess að vörur verði verðmerktar þannig að virðisaukaskattur komi fram sérstaklega. Þá er hugmynd- um um hátekjuskatt hafnað, sagt að hann séu í sjálfum sér ósann- gjarn og ósennilegt sé að með slík- um skatti náist til þeirra, sem hafa í raun hæstar tekjur. Stuðningi er lýst við fjármagnstekjuskatt en talið óskynsamlegt að fara út í þá skattlagningu nú vegna stöðunnar á fíármagnsmarkaði. I samgöngumálaályktun þings- ins er lögð áhersla á að öll sér- leyfí verði tafarlaust lögð niður og hvatt til aukinnar einkavæðingar vega, hafna og flugvallarmann- virkja. í landbúnaðarályktun er hvatt til þess að framleiðsla og verðlag landbúnaðarafurða verði gefín frjáls, niðurgreiðslum hætt, einokun einstakra fyrirtækja af- numin, dregið verði úr mikilvægi framleiðslukvóta og þeir lagðir nið- ur sem fyrst. Samantekt: Kjartan Magnússon. Samtök fjárfesta * Aformum um hækkun eignarskatta mótmælt SAMTÖK fjárfesta fagna því að samkvæmt yfirlýsingum ráðherra undanfarna daga virðist nú orðið (jóst að tekjuskattur verður ekki lagður á vexti af sparifé landsmanna á þessu ári, segir í frétt frá Samtökum fjárfesta. Samtökin mótmæla hins vegar harðlega framkomnum áformum um hækkun eignarskatta og breikkun eignarskattsstofns. Það hefur verið eitt af aðalbar- áttumálum Samtaka fjárfesta, al- mennra hlutabréfa- og sparifjáreig- enda, frá stofnun samtakanna árið 1988, að beijast gegn því að vextir af sparifé verði skattlagðir. Einnig hafa samtökin barist gegn ósann- gjörnum eignarsköttum, sem hafa verið með þeim hæstu sem þekkjast. ■jpp VMIN MN FJðLSKYLDA? Heildarvinningsupphæðin: 113.067.286 kr. Röðin: 122-112-2X2-X1X2 13 réttir: 21 raöir á 12 réttir: 437raðirá 11 réttir: 5.266 raöir á 10 réttir: 43.579 raöirá Nú er EUROTIPS 2 í gangi og lokar fyrir sölu kl. 17:00 á miövikudaginn. Aö EUROTIPS standa Austumkismenn, Danir, Svíar ásamt okkur. Muniö aö nota GULA SEÐIUNN fyrir kl. 17:00 á miövikudag. 1X2- ef þú spilar til aö vinna 1.453.720 - kr. 43.980 - kr. 3.860 - kr. 980 - kr. —týrir þlg og þíns fjöískyldu!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.