Morgunblaðið - 27.10.1992, Blaðsíða 2
L'GGI H39ÖTX0 .VL' HU0/XIJL6IH(I CfIÖAd9MU0HÖM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
Jón Bragason eigandi úrsins,
og Sigríður Ingvarsdóttir um-
boðsmaður Sotheby’s, ræða
málin.
Úrið góða. í öskjunni var upp-
runa- og ábyrgðarskirteini úrs-
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
135 ára gamalt úr reynd-
ist vera 5 milljóna virði
JÓN Bragason efnaverkfræðingur geymir nú úr, sem langalang-
afi hans átti eitt sinn, í bankahólfi en áður hafði það verið í
hálfgerðu reiðileysi í hirslum á heimili hans. Jón lét úrsmiði skoða
úrið á úrasýningu í Perlunni um síðustu helgi og fékk þá úr þvi
skorið að hann væri með dýrgrip í höndunum, lítið kvenvasaúr
smíðað þjá Pateq Philippe í Genf árið 1857. Jón sagði að úrsmið-
ir hefðu tjáð sér að úrið gæti verið allt að fímm miiljóna kr. virði.
Jón sagði að úrið hefði verið í lands í Perlunni til að athuga
sinni eigu í mörg ár. Langalang-
afí Jóns, Axel Erdmann, sem var
sænskur jarðfræðingur fæddur
árið 1814, keypti úrið og gaf það
eiginkonu sinni Soffíu Charlotte.
Úrið komst í eigu sonar þeirra
Edvards Erdmanns og síðan í eigu
Axels Erdmanns, afa Jóns Braga-
sonar. Hann gaf það eiginkonu
sinni, Grétu Bjömsson, ömmu
Jóns, sem fluttist til íslands. Axel
Erdmann fluttist hins vegar aldrei
til íslands. Bettý Jónsdóttir, móð-
ir Jóns, erfði síðan úrið og þaðan
komst það í eigu Jóns.
Jón sagði að úrið seinki sér og
því hefði hann farið með það á
úrasýningu Úrsmíðafélags ís-
hvort unnt væri að gera við það.
„Ég var dreginn afsíðis og spurð-
ur spjörunum úr um úrið. Ég
spurði á móti hvort þetta væri
Trabant eða Mercedes Benz, en
þá var mér tjáð að úrið væri af
hvorugri tegundinni. Þetta væri
Pateq Phiilippe, eins konar Rolls
Royce úranna. Það eina sem var
að úrinu voru óhreinindi sem
höfðu safnast inni í því, en mér
var ráðlagt að láta ekki hreyfa
við því. Mér var sagt að úrið
gæti verið allt að fimm milljóna
kr. virði,“ sagði Jón.
„Ég sá að úrinu fylgdi kvittun
frá þessu fræga fyrirtæki, Pateq
Phillippe," sagði Axel Eiríksson,
formaður Úrsmíðafélags íslands.
„Úrið var keypt í útibúi Pateq
Phillippe í París. Ég held að kvitt-
unin auki verðmæti úrsins mikið.
Á henni er nafn kaupandans
skráð, Axels Erdmanns, og dag-
setningin, ágúst 1857. Kaupverð-
ið var 287 frankar og nákvæm
lýsing á úrinu fylgir. Skífan er
ekki merkt, en það var algengt í
gamla daga. Skífan er falleg, með
rómverskum stöfum á hvítum
grunni. Við treystum okkur hins
vegar ekki til að meta úrið til
fjár.“
Sigríður Ingvarsdóttir, um-
boðsmaður uppboðshaldarans
Sotheby’s í London, hafði sam-
band við Jón og hittust þau í
gærkvöldi. Sigríður kvaðst ekki
geta fullyrt hvort Sotheby’s myndi
bjóða úrið upp og í raun væri
ekkert vitað um verðmæti þess.
Hún sagði að sér þætti málið
áhugavert.
Þúsund íslendingar í versl-
unarferðir um hverja helgi
Féll milli
skips og
bryggju
FÆREYSKUR sjómaður fannst
látinn í sjónum skammt frá þorp-
inu á Fáskrúðsfírði á sunnudag.
Lögregla telur líklegt að hann
Kafí fallið milli skips og bryggju.
Sjómaðurinn, sem var háseti á
Guðmundi Kristni, sást síðast kl.
22 á laugardagskvöld. Á sunnu-
dagsmorgun leitaði félagi hans til
lögreglu, þar sem honum þótti und-
arlegt að hann var hvergi að fínna.
Björgunarsveitarmenn leituðu
mannsins einnig, en hann fannst
þegar smábátar hófu leit úti á fírð-
inum.
Maðurinn hét John Finn Bisp,
45 ára, frá Þórshöfn í Færeyjum.
-----», » »--
Grandi segir
upp 13 manns
Útgerðarfyrirtækið Grandi hf.
í Reykjavík hefur sagt upp þrett-
án starfsmönnum, en um 400
manns starfa hjá fyrirtækinu.
Um er að ræða skrifstofufólk,
iðnaðarmenn og verkstjóra.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er gripið til uppsagn-
anna í framhaldi af hagrseðingu
innan fyrirtækisins. Togaralöndun
er flutt að Norðurgarði, ísfram-
leiðslu hætt í Mýrargötu og dregið
úr þjónustu iðnaðarmanna. Þá rak
fyrirtækið tvö frystihús, á Granda-
garði og Norðurgarði, en vinnslan
hefur verið sameinuð í öðru hús-
anna. Uppsagnarfrestur þeirra sem
sagt er upp er þrír til sex mánuðir
og fer hann eftir starfsaldri.
-----♦-------
Úrslit Evrópu-
keppni skákfélaga
Jóhann tefl-
ir með Bayem
JÓHANN Hjartarson keppir með
liði Bayern Miinchen til úrslita í
Evrópukeppni skákfélaga sem
fram fer í Munchen í dag og á
morgun, en mótheijinn er rússn-
eska liðið Poljot frá Tsjeljabínsk,
sem sigraði lið Solingen frá
Þýskalandi mjög óvænt í undan-
úrslitum með 6Vj vinningi gegn
5Vt.
Teflt er á sex borðum og teflir
Jóhann á 3. borði. Þýski stórmeist-
arinn Hubner teflir á 1. borði og
Ungveijinn Ribli á 2. borði og aðrir
í sveitinni eru sterkir þýskir stór-
meistarar. Einungis einn stórmeist-
ari er í sveit Poljot, stórmeistarinn
Svesjnikov, sem teflir á 1. borði,
en hann sigraði Englendinginn Nig-
el Short með 2 vinningum gegn
engum j. undanúrslitunum gegn
Solingen.
UM ÞÚSUND íslendingar skoða
sig um í svokölluðum verslunar-
borgum erlendis um hverja helgi.
Ferðaskrifstofufólki sem selur
flug til Dublin, Glasgow, Edin-
borgar og Newcastle ber saman
um að mest sé um hópa í ferðun-
um en menn fari alls ekki til
þess eins að versla.
Helgi Jóhannsson forstjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar segir að um
síðustu helgi hafí 520 manns verið
í Dublin á vegum fyrirtækisins. Það
hefur í samvinnu við verslunarráð
borgarinnar gefið út bækling á ís-
lensku og í stórmörkuðum hafa
verið fest upp skilti þar sem íslensk-
ir viðskiptavinir eru boðnir vel-
komnir á íslensku.
Helgi segir að alls konar fólk
fari í stuttar írlandsferðir, mikið
sé um saumaklúbba og litla hópa
en starfsmannafélög og stærri hóp-
ar fari talsvert líka. Skoðunarferðir
séu mjög vinsælar, margir leigi sér
bíla og fari sjálfír á stúfana en
menn virðist lítið fara eingöngu til
að versla. Samvinnuferðir fljúga
fjórum sinnum í viku til Dublin með
leiguflugi og hefur sala í haustferð-
imar gengið vel, aðeins um 360
sæti af 6.000 eru enn óseld.
Margrét Hauksdóttir í upplýs-
ingadeild Flugleiða segir Glasgow
og Amsterdam helstu verslunar-
borgir félagsins. Um 800 manns séu
bókaðir til Glasgow og 2.200 til
Amsterdam fram að jólum. Margrét
gerir ráð fyrir að 100 til 150 ís-
lenskir ferðamenn séu í Glasgow
um hveija helgi, en talsvert sé einn-
ig um að fólk ferðist áfram á eigin
vegum.
Laufey Jóhannsdóttir sölustjóri
hjá Alvís í Hafnarfirði segir að
2.000 manns hafí farið og bókað
sig í leiguflug til Newcastle á tæp-
lega tveggja mánaða tímabili í
haust. Alvís býður þriggja eða fjög-
urra nátta ferðir til Bretlands og
segir Laufey að fólk óski í æ ríkari
mæli eftir vikudvöl. Mest sé um að
menn fari í hópum og vilji langflest-
ir nýta sér skoðunarferðir til borga
eins og York.
Hörður Gunnarsson forstjóri Úr-
vals-Útsýnar segir að 153 farþegar
Sigurbjartur sagði að afkoma
kartöflubænda þetta árið væri víð-
ast hvar ömurleg, og á Austurlandi
hefði uppskeran til dæmis misfarist
með öllu vegna tíðarfarsins í sumar.
„Víðast hvar var uppskeran um
helmingur þess sem hún var í fyrra,
en í Eyjafirði var hún einna skást
eða rúmlega helmingurinn. Þetta
þýðir það að ef okkur tekst ekki
að ná verðinu upp þá verður afkom-
Beið bana
í árekstri
29 ÁRA maður, Erlingur Kristinn
Garðarsson, lést eftir bílslys í
Hamarsfírði, suður af Djúpavogi,
á sunnudag.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
varð slysið um kl. 14-14.30 og með
þeim hætti að tveir bílar mættust á
blindhæð þar sem heitir Brunnaklif
og skullu saman á fullri ferð. Vegur-
inn er lagður bundnu slitlagi og á
honum eru góðar yfirborðsmerking-
ar. Erlingur, sem var á suðurleið,
var einn í bílnum. í bifreiðinni sem
kom á móti voru hjón frá Reyðar-
firði. Þau voru flutt með sjúkrabíl
til Djúpavogs og þaðan með flugvél
til Reykjavíkur, þar sem þau voru
lögð inn á Borgarspítalann. Meiðsli
þeirra reyndust minni háttar.
Erlingur Kristinn Garðarsson var
fæddur 12. september árið 1963.
Hann var til heimilis í Selnesi 32 á
Breiðdalsvík. Hann lætur eftir sig
unnustu og sjö ára son úr fyrri sam-
búð.
MAÐUR um sextugt lést eftir fall
úr stiga við hús sitt í Borgarnesi
aðfaranótt laugardags.
Talið er að maðurinn hafí verið
lyklalaus og að reyna að komast inn
í íbúð sína þegar slysið varð aðfara-
nótt laugardagsins. Hann fannst á
tíunda tímanum morguninn eftir með
höfuðáverka og var fluttur á Borgar-
spítalann, þar sem hann lést.
séu hverju sinni á vegum fyrirtækis-
ins í Edinborg. Raunar bætist við
leiguflugsfarþega fólk sem taki
rútu frá Glasgow og því fari talan
upp fyrir 200 öðru hvoru. Frá októ-
ber fram í desember fara 3.300
manns með leiguflugi til Edinborg-
ar og segir Hörður að fólk fari
mikið í skoðunarferðir en versli
auðvitað líka.
an ömurleg. í haust fór verðið allt-
of langt niður og það er því lífs-
spursmál fyrir menn að ná fram
hækkun á verði, en samkeppnin er
hins vegar mikil á markaðnum og
þess vegna erfítt að koma því í
kring. Þetta tjón er þó ekki af þeirri
stærðargráðu að það flokkist sem
slíkt hjá Bjargráðasjóði, nema þá
ef vera skyldi á AustQörðunum,"
sagði hann.
fttgr&ittiiMaMft
ídag
Leiklist
Stórkostlegt Tsjekov-leikhús. Sús-
anna Svavarsdóttir gagnrýnandi
segir sögur úr sveitinni, ævintýra-
för í leikhúsið 16
Frjálsa kjötið
Seldist upp á sjö tímum. Mikil kjöt-
sa/a á svarta markaðnum 24
Stríðið
Leiðari
Hver man eftir Alan Gosling sem
er nú í pílagrímsför á íslandi? 53
Atvinnuleysi og endurhæfing 28
Iþróttir
► Afreksmannasefna sam-
þykkt á ÍSÍ-þinginu. Bikar-
meistarar FH slegnir ÚL AC
Milan í metaskrá. Eyjólfur
Sverrisson skoraði hjá Köln.
Kartöfluuppskeran
mun minni en í fyrra
Kartöfluuppskeran í ár varð helmingi minni en í fyrra, að sögn
Sigurbjarts Pálssonar, formanns Landssambands kartöflubænda.
Hann sagði að á markaðinn nú hefðu farið um 5 þúsund tonn en í
fyrra fóru rúmlega 10 þúsund tonn 4 markað. Sigurbjartur sagði
að þær birgðir sem nú væru til myndu að öllum líkindum endast fram
í apríl-maí á næsta ári.
^\SÞvottá Umferðarslysið
4? )/ varð á blindhæð
O (U á Brunnaklifi
Hvalnes norðanvert á
Melrakkanesi
Lést eftir fall