Morgunblaðið - 28.10.1992, Page 1
64 SIÐUR B/C/D
246. tbl. 80. árg.
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tadzhíkístan að liðast sundur
Breiðast átökin út
til nágrannaríkja?
Dúsanbe. Reuter.
BARDAGAR milli hersveita og fjölmargra vopnaðra flokka frá
ýmsum hlutum landsins virðast nú ætla að valda því að Tadzhíkíst-
an, fyrrverandi Sovétlýðveldi í Mið-Asíu, liðist í sundur. Stuðnings-
menn forsetans, Akbarsho Iskandarovs, náðu höfuðborginni Dús-
anbe aftur á sitt vald á mánudag en í sólarhring höfðu liðsmenn
Rakhmons Nabíevs, er hrakinn var af forsetastóli nýlega, þar tögl
og hagldir. Þúsundir manna hafa fallið í átökunum síðustu vikurnar.
ísraelsher í Líbanon
Reuter
ísraelski herinn réðst í gær með skriðdrekum og
öðrum vopnabúnaði inn á svokallað öryggissvæði
í Suður-Líbanon til að eiga hægara með árásir á
skæruliða Hizbollah-hreyfingarinnar. Hafa átökin
staðið síðan á sunnudag þegar skæruliðar felldu
fimm ísraelska hermenn og í gær létu þeir flug-
skeytahríðina dynja á þorpum í Norður-ísrael með
þeim afleiðingum, að 14 ára gamall drengur lést.
Hér er verið að flytja skriðdreka yfir landamærin
til Líbanons en ísraelar neita, að um verulega hern-
aðaraðgerð sé að ræða.
Jeltsín bannar starfsemi
Þj óðfrelsisfylking’arínnar
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, ákvað í gær að banna Þjóðfrelsis-
fylkinguna, samtök nýfasista og kommúnista, sem stofnuð voru um
helgina. Erlendir stjórnarerindrekar í Moskvu sögðu að Jeltsín kynni
með þessu að gefa á sér höggstað. Viðbrögð forsvarsmanna fylking-
arinnar bentu til að mat þeirra væri hið sama.
Tadzhíkar eru flestir múslimar
eins og nágrannar þeirra í Úzbekíst-
an sem eru langtum fjölmennari.
Iskandarov nýtur hylli margra bók-
stafstrúarmanna úr röðum múslima
en Nabíev er gamall kommúnista-
leiðtogi. Andstæðingar hans eru
hins vegar klofnir í ótal flokka og
fylkingar.
Rússar hafa enn allmikið lið
landamærahermanna í landinu,
meðal annars í höfuðborginni og
hafa reynt að stilla til friðar. Vegna
Finnland
EES stað-
fest á þingi
Helsinki. Reuter.
FINNSKA þingið staðfesti í
gærkvöld samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið,
EES, með miklum meirihluta
atkvæða, eða 154 gegn 12.
Einn þingmaður sat hjá og
52 voru fjarverandi.
Tvo þriðju atkvæða þurfti til
að staðfesta samninginn en
aldrei var nokkur vafi á hver
úrslitin yrðu. Aðild að Evrópska
efnahagssvæðinu hefur verið
lítið deiluefni í Finnlandi enda
er meira en helmingur viðskipta
Finna við ríki Evrópubanda-
lagsins. Töluverð andstaða er
hins vegar við hugsanlega aðild
að EB en finnska stjómin hefur
sótt um hana og vonast eftir
inngöngu 1995.
upplausnarinnar gengur það ekki.
„Enginn hefur undirtökin í Tadz-
híkístan núna, það eru aðeins byss-
urnar sem talast við,“ sagði Vítalí
Grítsan, hershöfðingi og yfirmaður
Rússanna í Dúsanbe. Hann sagðist
óttast að átökin breiddust út til
Úzbekístan og jafnvel Kírgístans.
Þjóðarbrot Úzbeka í landinu sæt-
ir vaxandi andúð eftir að sjónvarpið
í Dúsanbe fullyrti að Úzbekar hefðu
verið í árásarliði Nabíjevs. „Grannar
okkar urðu óvinir okkar á einum
degi,“ sagði Úzbeki við háskólann
í höfuðborginni.
Fréttastofan Itar-Tass hafði það
eftir Jeltsín að fylkingin væri hræði-
leg ógnun við Rússland. „En á
Vesturlöndum skilja menn það ekki
ennþá,“ sagði hann. Erlendir
stjómarerindrekar sem Reuters-
fréttastofan ræddi við sögðust sum-
ir hissa á ákvörðun Jeltsíns. Fylk-
ingin væri engin klár ógnun við
hann. Það kynni að vera að hann
hefði rasað um ráð fram og í raun
gefíð andstæðingum sínum högg-
stað á sér. Fylkingin er fyrsta
stjórnmálaaflið sem bannað er í
Rússlandi frá því kommúnistaflokk-
urinn var bannaður eftir valdaránið
mislukkaða í ágúst í fyrra. Lýðræð-
issinnar hafa kallað fylkinguna
„Aðra neyðarnefndina" með vísun
til neyðarnefndarinnar sem stóð að
valdaráninu.
Alexander Shokhin, aðstoðarfor-
sætisráðherra Rússlands, sagði á
fréttamannafundi í gær að Jeltsín
hefði haft nægar ástæður til að
banna fylkinguna. Á stofnfundi
hennar hefði verið hvatt til þess að
ríkisstjórninni og forsetanum yrði
steypt.
Shokhin minntist á fulltrúaþingið
sem kemur saman 1. desember
næstkomandi en gert er ráð fyrir
að þar muni afturhaldsöfl gera
harða hríð að Jeltsín. Sagði Shokh-
in að til álita kæmi að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu — skjóta ágrein-
ingi til þjóðarinnar — ef fulltrúa-
þingið ákvæði að breyta efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar.
Öryggismálaráðuneyti Rúss-
lands, áður KGB, fordæmdi fylking-
una í gær án þess að nefna hana
berum orðum. „Verið er að gera
tilraunir til að skapa öfl sem eru
þess megnug að varpa þjóðfélaginu
í dýflissu vopnaðra átaka.“
Einn leiðtoga fylkingarinnar,
Viktor Alsknis, stundum nefndur
Svarti ofurstinn, fagnaði ákvörðun
Jeltsíns. „Jeltsín hefði ekki getað
gert okkur stærri greiða,“ sagði
hann í samtali við Reuters-frétta-
stofuna. „Hann gerir lýðum ljóst
að hættan stafi af okkur en ekki
þinginu ... ef nauðsyn krefur getum
við haldið baráttunni áfram neðan-
jarðar.“
Ruslan Khasbulatov, forseti
rússneska þingsins, skipaði í gær
þingverðinum, fimm þúsund manna
liði sem lýtur hans stjóm, að standa
vörð um byggingu dagblaðsins Iz-
vestíu. Þingið lítur á blaðið sem
málgagn sitt og samþykkti í síðustu
viku að hunsa tilskipun Jeltsíns um
sjálfstæði blaðsins.
-----» ♦ ♦------
Pólland
Áhyggjur
af Litháen
Varsjá. Reuter.
PÓLSKIR stjórnmálamenn Iýstu
áhyggjum sínum í gær af sigri
Lýðræðislega verkamannaflokks-
ins, flokks fyrrverandi kommún-
ista, í þingkosningunum í Litháen
en flestir töldu litla hættu á svip-
uðum atburði í Póllandi.
„Svo virðist sem kommúnisminn
hafi verið rótgrónari en við héldum
og ekki stuðst eingöngu við sovéska
byssustingi," sagði Stefan Niesi-
olowski, einn af forystumönnum
Kristilega þjóðfylkingarflokksins, og
aðrir stjórnmálamenn sögðu ástæð-
una fyrir góðu gengi Lýðræðislega
verkamannaflokksins vera óánægju
Litháa með að efnahagsumbæturnar
skyldu ekki hafa fært þeim tafar-
lausa lífskjarabót.
Samkvæmt tölum, sem ekki eru
endanlegar, fékk Lýðræðislegi
verkamannaflokkurinn 35 þingsæti
af 70 í þeirri deildinni sem kosið er
hlutfallskosningu til og stefndi í sig-
ur í hinni, sem er skipuð 71 þing-
manni kosnum í einmenningskjör-
dæmi.
Sjá „Erum sósíal...“ á bls. 23
og forystugrein á miðopnu.
Samdrættinum hugsanlega að ljúka
Aukinn hagvöxtur
í Bandaríkjunum
Washingfton. Reuter.
TILTÖLULEGA góður hagvöxtur var í Bandaríkjunum á þriðja árs-
fjórðungi, eða 2,7% miðað við heilt ár. Að sögn talsmanna banda-
ríska viðskiptaráðuneytisins getur það hugsanlega bent til þess að
samdrættinum sem verið hefur í efnahagslífinu síðastliðið hálft ann-
að ár sé lokið. George Bush, forseti Bandaríkjanna, fagnaði þessum
tiðindum að vonum og kvaðst viss um að hagvöxturinn ykist enn á
næstunni.
Hagvöxtur á fyrsta fjórðungi
ársins var raunar 2,9% en ekki
nema 1,5% á öðrum og efnahags-
sérfræðingar höfðu spáð 1,6% vexti
á þeim þriðja. Því kom á óvart að
hann skyldi vera 2,7% en það er
rakið til vaxandi neyslu innanlands,
en hún stendur undir tveimur þriðju
efnahagsstarfseminnar.
Þessar fréttir af efnahagslífinu
eru að sjálfsögðu kærkomnar Bush
forseta þótt ólíklegt sé að þær
breyti miklu á þeim fáu dögum sem
eru til kosninga. Helsta kosninga-
mál Bills Clintons og demókrata
hefur verið óstjórnin í efnahagsmál-
um, sem þeir kalla svo, en Bush
sagði í gær að tölur um hagvöxtinn
gerðu áróður þeirra að engu.
Bush á kosningafundi