Morgunblaðið - 28.10.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.10.1992, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 Flugleiðir athuga með samstarf við evrópsk flugfélög FLUGLEIÐIR hafa undanfarna mánuði rætt við nokkur flugfélög í Evrópu um möguleika á samstarfi eftir að reglur um Evrópska efna- hagssvæðið ganga í gildi en þá opnast möguleikar fyrir Flugleiðir að fljúga áætlunarflug milli áfangastaða erlendis svo sem Þýsklands og Bretlands. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að í þessum viðræðum hafi ekkert verið rætt um hlutabréfakaup eða hlutabréfaskipti, en í danska blaðinu Börsen í gær er rætt um líkur á þvi að SAS kaupi hlut í Flugleiðum. Einar sagði að SAS væri eitt af þeim flugfélögum sem Flugleiðir hefðu rætt við. Hann sagði að niður- staða væri ekki komin í þessar við- ræður og ákvörðun lægi ekki fyrir um hvar félagið myndi bera niður þegar þar að kæmi. „Ástæðan fyrir því að Flugleiðir telja að það sé mikilvægt fyrir félagið að eignast samstarfsaðila í Evrópu er sú að þegar Evrópska efnahagssvæðið opnar flugsamgöngur í álfunni vilja Flugleiðir eiga aðgang að mörkuð- um utan íslands og fljúga með far- þega milli ríkja í Evrópu. Félagið telur að það verði mjög erfitt nema í nánu markaðssamstarfi við annað evrópskt flugfélag,“ sagði Einar. ♦ ♦ 4----- Nafn manns- ins sem lést MAÐURINN sem lést eftir að hafa fallið úr stiga i Borgarnesi aðfara- nótt laugardagsins, hét Rafn Sig- urðsson. Rafn var 61 árs gamall, fæddur 1. júní 1931. Hann var til heimilis á Bröttugötu 6 í Borgamesi og lætur eftir sig þijú böm. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Áreksturá Grensásvegi Árekstur varð á mótum Breiðagerðis og Grensás- vegar um kl. 14 í gær. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild. Annar þeirra var lagður inn og var rannsókn ekki lokið þegar síðast fréttist en hinn var talinn minna slasaður. Inger Ágústa Kristjánsdóttir Lést í bílslysi í Kaliforníu ÍSLENSK kona, Inger Ágústa Kristjánsdóttir, 47 ára gömul, lést í bQsIysi í San Jose í Kaliforníu siðastliðinn laugardag. Inger var búsett í San Jose og var akandi á leið til vinnu sinnar í Santa Cruz þegar ekið var á bfl hennar. Hún lést samstundis við áreksturinn. Inger Ágústa Kristjánsdóttir var fædd í Reykjavík, 14. apríl 1945, elst fimm bama hjónanna Kristjáns Inga Einarssonar, sem lést vestan- hafs, og Sigríðar Á. Söebech. Inger fluttist til Bandaríkjanna ásamt for- eldrum sínum fimm ára að aldri en varð þar eftir, ásamt bróður sínum Einari, er móðir hennar og þrjú systkini, Pétur, Kristján og Ellen, fluttust heim. Inger Ágústa lætur eftir sig tvö uppkomin böm. Útför hennar verður gerð í San Jose á morgun, fimmtu- dag. í dag Laxveiöar í sjó________________ Menn hafa ekki hugmynd um hvað er að gerast í kring um þá, segir Orri Vigfússon um áiyktun Fiski- þings um tilraunaveiðar á laxi 21 Feðrum úthýst__________________ Fæðingin ætti eingöngu að vera fyrir móður og bam segir franskur- fæðingariæknir 23 Ættartalan í Jökulsárgljúfri Hvað segir myndhöggvarinn Ger- hard Lentink, annar höfunda verksins? 25 Leiðari________________________ Óvæn t kosningaúrsiit í Litháen 24 Útbúnir listar yfir íslend- inga til friðargæslustarfa SÞ vilja fólk til kosningæftirlits í Afríkulöndum SAMEINUÐU þjóðirnar hafa sent íslenskum stjórnvöldum óskir um að nefndir verði tU menn til friðargæslustarfa í fyrrum Júgóslavíu og víðar og til eftirlits með kosningum í Afríkuríkjum. Rikisstjórnin ákvað í gær að láta útbúa lista yfir menn sem uppfylla skilyrði SÞ og athuga hvort þeir verði fúsir til starfa fyrir stofnunina. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra segir að fulltrúum utanríkis- og íjármálaráðuneytis verði í samvinnu við hjálparsamtök falið að útbúa nafnalista. Samein- uðu þjóðirnar geti leitað til manna af þeim vegna friðargæslu. Ekki sé um hermennsku að ræða, heldur skipulags- og stjómgæslustörf. Jón segir að ráðuneytinu hafi jafnframt borist beiðni um menn til starfa í tengslum við kosningar. Sameinuðu þjóðirnar hafa beðið um fimm manns til friðargæslu- Fjárfestingarfélagið Skandia hf. Akvörðun um sjóðina að öllum líkindum tekin í dag Landsbankinn hafnar fyrirgreiðslu við félagið ÁKVÖRÐUN verður að öllum líkindum tekin í dag um að hefja starf- semi verðbréfasjóða Fjárfestingarfélagsins Skandia hf. á nýjan leik, samkvæmt upplýsingum Brynhildar Sverrisdóttur, forstöðumanns sjóða félagsins. Eins og greint var frá í frétt Morgunblaðsins í gær hafa for- svarsmenn Skandia kannað hvort Landsbankinn væri reiðubúinn til þess að vita féláginu yfírdráttar- heimild sem það hefði sem trygg- Úr verinu ► Samvinna mflli frystitogara og landvinnslu hlýtur að aukast — Mexíkó er land mikilla mögu- leika — fiskimjölsframleiðsla i heiminum í nokkru jafnvægi ingu upp á að hlaupa. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er afstaða Landsbankans sú að hann sé ekki reiðubúinn að veita félaginu slíka fyrirgreiðslu nema tilmæli komi um það frá viðskiptaráðherra. Myndasögur ► Völundarhús - Myndir ungra listamanna - Drátthagi blýanturinn - Stafarugl - Leikir - Skemmtilegar mynda- sögur starfa í lýðveldum fyrrum Júgó- slavíu í hálft til eitt ár. Áskilið er að þetta séu starfsmenn utanríkis- þjónustunnar eða aðrir embættis- menn. Þá er beðið um átta háskóla- gengna menn til starfa við upplýs- ingaöflun og aðra stjórnsýslu á ein- hveiju af friðargæslusvæðum SÞ. Gert er ráð fyrir að íslensk stjórn- völd greiði laun þeirra en Samein- uðu þjóðimar ferða- og dvalar- kostnað, en fyrri hópurinn myndi fá laun frá SÞ. Kosningadeild SÞ sem komið var á fót á síðasta allsheijarþingi hefur beðið utanríkisráðuneytið að útvega mannskap til að aðstoða við fram- kvæmd kosninga í ýmsum Afríku- ríkjum. Beiðnin er nú til umfjöllun- ar á alþjóðaskrifstofu ráðuneytisins en hefur ekki verið rædd í ríkis- stjóm. Til em eldri listar yfír íslend- inga sem unnið gætu að kosningum erlendis. í bréfi kosningadeildarinnar segir að þörf sé fyrir fólk til að fylgjast með undirbúningi kosninga; þing- menn, háskólakennara eða stjómar- erindreka. Þá er talað um starfs- menn til lengri tíma, frá nokkrum vikum upp í hálft ár, með sérþekk- ingu á kosningaundirbúningi. Og loks ráðgjafa eða sérfræðinga til starfa í tengslum við kosningar, í þijár vikur upp í sex mánuði, og býðst stofnunin til að greiða allan kostnað vegna þeirra. í fyrri tilvik- unum tveimur myndu íslensk stjómvöld borga kaup starfsfólksins en SÞ ferðir þess. Um er að ræða kosningar í tíu Afríkulýðveldum á þessu ári og tveimur næstu. Fullui' áfeng- is og iðrunar ÖKUMAÐUR var stöðvaður í Hlíðunum um helgina grun- aður um ölvun við akstur. Þremur tímum eftir að hon- um var sleppt var hann grip- inn á ný og aftur í Hlíðunum. Ekki var að sjá að runnið hefði af honum í millitiðinni. Þegar lögreglan stöðvaði för mannsins í fyrra skiptið var hann fullur iðmnar. Hann fékk vinkonu sína til að koma á lög- reglustöðina og aka bílnum heim fyrir sig. Þremur tímum síðar sást til mannsins, þar sem hann ók bíl sínum hinn ánægðasti um Hlíðahverfið og þótti lögreglu- mönnum sem lítið hefði mnnið af honum frá því að þeir sáu hann fyrr um nóttina. Ekki fylgir sögunni hvort hann var jafn fullur iðrunar í síðara skiptið. 18 manns handteknir vegna fíkniefnamála UNDANFARNA tíu daga hefur fikniefnalögreglan lagt hald á ell- efu belgi af alsælu, 25 grömm af amfetamíni og 130 grömm af hassi við fjórar húsleitir sem gerðar hafa verið í Reykjavík og Kópa- vogi. 18 manns hafa verið hand- teknir vegna málanna, þar af tvær konur. Við eina húsleitina var lagt hald á þýfi úr innbroti. Einn hinna hand- teknu var gmnaður um að aka und- ir áhrifum kannabisefna og annar undir áhrifum áfengis. Málum flestra þessara 18 hefur verið lokið með lögreglustjórasátt, samkvæmt nýjum réttarfarslögum, en þær em 20 þús- und krónur að lágmarki. Mál ein- hverra úr þessum hópi verða þó send ríkissaksóknara til ákvörðunar, en flest hefur fólkið áður komið við sögu fíkniefnamála. -----♦ ♦ ♦----- Bayern vann JÓHANN Hjartarson vann sína skák þegar Bayem MUnchen vann rússneska liðið Poþ'ot 4—2 í fyrri umferð úrslitanna í Evrópukeppni taflfélaga sem fram fór í Miinchen í gær. Síðari umferðin verður tefld í dag. Jóhann tefldi við Kharlov og sagði að andstæðingurinn hefði haft betra tafl framan af, en fórnað manni fyr- ir tvö peð, leikið illa af sér skömmu síðar og tapað skákinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.