Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 17

Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 17 Um íslenska menningu og tungn, bókaskatt - og virðingn Alþingis eftir Ólaf Oddsson Töluverðar umræður hafa orðið nýlega vegna hugmynda, sem fram hafa komið, um að Alþingi taki í raun aftur þá ákvörðun sína, að íslenskar bækur og blöð og marg- vísleg menningarstarfsemi skuli undanþegin virðisaukaskatti. Sumt í þeirri umræðu hefur verið helst til sterklega orðað að minni hyggju. Kannski er það smekksatriði, en ég tel heppilegra að ræða fremur um málefni en einstaka menn, og á þessu máli eru ýmsar hliðar og mikilvægir hagsmunir í húfi. í þessu greinarkomi verða sett fram við- horf mín í þessum efnum. Tekið skal fram, að ekki er hér ritað á vegum hagsmunasamtaka, en það er þó ekkert launungarmál, að ís- lensk menning, bækur, skólar o.fl. eru mér ofarlega í huga — og þá einkum hagsmunir íslenskrar tungu. efni verður sérstaklega að huga að útgáfu fræðibóka. Fagnaðarefni og hryggðarefni Það var fagnaðarefni, að Alþingi ákvað að afnema bókaskattinn, og það yrði hryggðarefni, ef þingmenn vorir tælqu þá ákvörðun að koma honum á að nýju. Ég er hræddur um, að það hefði alvarlegar afleið- ingar í menningarlegu tilliti. Af áratuga reynslu veit ég, að fátt hefur meiri og betri áhrif á íslensku- nám ungmenna en það að lesa góð- ar íslenskar bækur og líta á þær sem vini, sem gott er að leita til. Lágt verð á bókum eykur sam- keppnishæfni þeirra og stuðlar að meiri lestri. Mér er um það kunnugt, að á Alþingi eru ýmsir velviljaðir menn, sem vilja láta gott af sér leiða, ekki síst í kyrrþey. Ég bið þá að athuga vel sinn gang, áður en þeir taka „Það var fagnaðarefni, að Alþingi ákvað að afnema bókaskattinn, og það yrði hryggðar- efni, ef þingmenn vorir tækju þá ákvörðun að koma honum á að nýju.“ ákvörðun, sem gæti reynst afdrifa- rík. — Hér má og benda á, að ís- lensk málnefnd getur veitt ráð í málefnum íslenskrar tungu. Vilji menn fá traustar og fræðilegar leið- beiningar í þessum efnum, er unnt að leita þangað. Ákvörðun Alþingis: raunveruleiki eða markleysa? Allir vita, að verulegir erfiðleikar eru nú í íslensku þjóðfélagi, og er auðvitað brýnt að sigrast á þeim, einkum hinu ömurlega atvinnuleysi, sem er undirrót margvíslegra mannlegra erfiðleika og óhamingju. Þessu hafa ýmsir íslenskir rithöf- undar lýst og vakið þannig skilning á eðli atvinnuleysisins. — E.t.v. getur reynst óhjákvæmilegt að leggja á menn ýmsar álögur af þessum sökum. Og ekki skal það gagnrýnt hér, þótt menn hugleiði þá skatta í ýmsum myndum. En sem áhugamaður um íslenska menningu og tungu bið ég þingheim um að setja ekki á bókaskatt á ný. Skiptir formið í því sambandi litlu máli, þ.e. hvort afnumin verður endurgreiðsla á svonefndum inn- skatti eða sett á nýtt skattþrep. En verði þetta gert, er ég hræddur um, að íslensk tunga og menning bíði hér tjón af — og einnig virðing Alþingis. Ákvörðunin fyrir fáeinum Ólafur Oddsson misserum um að styðja íslenska menningu og tungu með afnámi bókaskattsins reyndist þá mark- leysa ein. Ég vona innilega, að til þess komi ekki. Höfundur er (slenskufræðingur og kennari. Virðingarverð ákvörðun Alþingis Svo vill til, að ég vann fyrir mörgum árum í bókasafni Alþingis við það að búa þingtíðindi til prent- unar og kynntist þá nokkuð starf- semi þingsins. Komst ég þá að því, að ýmsar fréttir af störfum þingsins voru afar villandi. Þar var einkum fjallað um uppákomur og rifrildi í sölum þingsins, en lítill gaumur gefinn að því umfangsmikla starfí, sem unnið var í kyrrþey í nefndum og við undirbúning mála. Það var allfróðlegt að kynnast þannig störf- um þingsins. Alþingi ákvað fyrir fáeinum misserum, að ekki skyldi vera virð- isaukaskattur á íslenskum bókum, blöðum og ýmiss konar menningar- starfsemi. Þessi ráðstöfun var gerð til þess að efla íslenska bóka- og blaðaútáfu _ og íslenska menningu og tungu. Ég hef áður í blaðagrein (Morgunblaðið 1. mars 1991) fagn- að mjög þessari ákvörðun og nefnt hana sem dæmi um það, sem vel hefur verið gert í þessum efnum. Flestum hugsandi mönnum er kunnugt um, að íslensk tunga og menning eru ein mikilvægasta for- sendan fyrir sjálfstæði þessarar þjóðar og oft til þess vitnað í okkar sjálfstæðisbaráttu. Því er hér um að ræða afar mikilvæg málefni. Ef menn vilja styðja íslenska tungu í raun, þá hlýtur íslensk bóka- og blaðaútgáfa að vega þar afar þungt, og auðvitað einnig íslenskir skólar og hið mikilvæga starf, sem þar er unnið. Skilningur á skólastarfí hef- ur þó oft verið heldur rýr, og því miður eru þess dæmi, að kennarar á sumum skólastigum geri lítið úr því starfí, sem unnið er á öðrum skólastigum. Afleiðingar bókaskatts Ef Alþingi ákveður að fella úr gildi þá ákvörðun sína að hafa bækur og blöð undanþegin virðis- aukaskatti, er hætt við því, að það hafí margvíslegar afleiðingar. Þetta bitnaði með grimmilegum hætti á blaðamönnum, en í þeirri stétt eru þegar miklir erfiðleikar, og nýlega hefur verið bent á, að þeir geti reynst hættulegir lýðræðinu. Þá hefði bókaskatturinn alvar- legar afleiðingar í íslenskri bókaút- gáfu, en þar er róðurinn býsna þungur fyrir. Bækur hækkuðu tölu- vert í verði, og það yrði áfall nem- endum, sem verða að kaupa bæk- ur. Hvar eru nú þeir menn, sem kynna sig skyndilega sem hollvini ungmenna í dapurlegum vinnudeil- um ríkisins og kennara? Bókaskattur bitnaði auðvitað hart á íslenskum rithöfundum, eink- um hinum yngri, sem ættu miklu erfiðara með að koma verkum sín- um á framfæri. Þá er og hætt við því, að útgáfa íslenskra stórverka yrði miklu erfiðari, einkum þeirra sem eru lengi í smíðum og hafa mikið menningarlegt gildi. I þessu ir stali iiiiliiar lóiiitfi J S B HRAUNBERGI Ftjálsu timamir hafa gengiö alvegfrábærlega vel og ergreinilegt aö þessi þjónusta er þaö sem beöiö var eftir. FRJÁLSIR TÍMAR - frjáls mætinci og ástundun Þessi kort bjóöa uppá frjálsa mætingu, eins oft og þú vilt, innan þeirrar tímalengdar og á þeim tímum dags sem þú sjálf velur. SVONA FERÐU ÞÚ AD: Þú kemur eða hringir í síma 79988 og pantar kort. Fimm daga vikunnar getur þú mætt eins oft og þú vilt. Kortin kosta kr. 4.500,- Nú bjóöum viö uppá barnapössun alla dagana. J S B SUÐURVERI TOPPI TIL TÁAR Námskeið sem hefur veitt ótaimörgum konum frábæran árangur. Þetta kerfi er eingöngu ætlaö konum sem berjast viö aukakílóin. Uppbyggilegt lokað námskeiö. -Fimm tímar í viku, sjö vikur í senn. -Strangur megrunarkúr sem fylgt er eftir daglega meö andlegum stuöningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um mataræöi og hollar lífsvenjur. -Heilsufundir þar sem farið er yfir föröun, klæönaö, hvernig á aö bera líkamann og efla sjálfstraustiö. ALMENNT KERFI RÓLEGT OG GOTT PÚL OG SVITI INNRITUN ALLA DAGA í SÍMA 813730 OG 79988 NÆSTA ÖNN HEFST MÁNUDAGINN 2. NÓVEMBER Sífellt fleiri nýta sér bamapössunina vinsœlu frá kL 10-16 alla daga L í K A M S R * K T SUÐURVERI • HRAUNBERGI 4 DÝRÐIW

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.