Morgunblaðið - 28.10.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
—------—------------!,>' r»M—1-77—h rH7 H———
n
Hrönn hf. hættir við að kaupa Sölva Bjarnason BA á Bíldudal
Heimamenn fá frest
til að selja togarann
EIGENDUR Hrannar hf. og íshússfélags ísfirðinga hafa fallið frá
samkomulagi um kaup á togaranum Sölva Bjarnasyni BA á Bíldudal
af Útgerðarfélagi Bílddælinga hf. en það fól í sér að í staðinn yrði
Bílddælingum látinn í té 140 tonna linubátur, Hafdis ÍS. Var sala
togarans forsenda fyrir tilboði hóps heimamanna á Bíldudal í fast-
eignir og hlutabréf þrotabús Fiskvinnslunnar á staðnum. Að sögn
Skarphéðins Þórissonar bústjóra vilja Bílddælingar reyna að standa
við tilboðið þrátt fyrir þetta og á fundi bústjóra með veðhöfum í
gær gerði hann það að tillögu sinni að frestað yrði í þijár vikur að
taka afstöðu til tilboðsins svo tilboðsgjafar fengju svigrúm til að
kanna aðra möguleika á sölu togarans. Var það samþykkt.
„Það eru allir sammála um það ingu fyrir Ishússfélagið upp á 400
að til að þetta geti gengið verður
að selja togarann. Annað er tóm
endaleysa," sagði Skarphéðinn.
Fiskveiðasjóður og Byggðastofnun
höfðu fyrir nokkru samþykkt tilboð-
ið fyrir sitt leyti að því gefnu að
togarinn yrði seldur íshússfélaginu
og í gær lá einnig fyrir samþykki
Landsbankans Við því en það var
þá orðið of seint þar sem Hrönn
hf., sem er aðaleigandi íshússfé-
lagsins, hafði þá fallið frá kaupun-
um.
Þorleifur Pálsson, stjórnarfor-
maður íshússfélags ísfirðinga hf.,
sagði að ákvörðun þeirra væri end-
anleg. Kaupin hefðu þýtt skuldsetn-
til 450 milljónir króna og þeir hefðu
ekki treyst sér til að standa undir
þeirri greiðslubyrði eins og ástandið
væri i fiskvinnslu og veiðum í dag.
Magnús Bjömsson, stjórnarfor-
maður Útgerðarfélags Bílddælinga
hf., sagði að beiðni hefði borist frá
ísfírðingunum á mánudag um að
þeir fengju að falla frá gerðu sam-
komulagi og það mál væri nú í
skoðun. „Þeir virðast hafa misst
áhugann og bera fyrir sig að þeir
fái ekki þann stuðning í íslands-
banka sem þeir ætluðust til og hafa
þess vegna komið þeirri beiðni á
framfæri að þeir verði leystir undan
þessum samningi,“ sagði hann.
„Þetta kom óvænt upp á og menn
þurfa að draga andann til að átta
sig á hvemig þetta muni þróast,“
sagði Magnús.
Þorleifur sagði aðspurður að fyr-
irhuguð kaup togarans hefðu ekki
strandað á afstöðu banka eða kröfu-
hafa þrotabús Fiskvinnslu Bíldudals
sem hefðu að því er hann best vissi
ekki lagst gegn kaupunum.
Sagði hann að þótt málið hefði
verið komið langt væri ekki um rift-
un að ræða. „Okkur þykir leitt
gagnvart Bílddælingum að við
skyldum ekki hafa áttað okkur fyrr
á málinu og við vonum að það leys-
ist úr þeirra málum. Við sáum hins
vegar engar leiðir til að standa við
þær skuldbindingar sem við hefðum
tekið á okkur eins og ástandið er
í dag. Við sjáum ekki að það eigi
að gera neitt til að leiðrétta rekstr-
arhallann sem er í greininni. Þá er
betra að bíða átekta með það sem
við höfum,“ sagði hann.
Skiptafundur í þrotabúi físk-
vinnslunnar á Bíldudal verður hald-
inn á morgun.
Orri Vigfússon um ályktun um laxveiðar í sjó
Menn hafa ekki hugmynd um
hvað er að gerast í kringum þá
ORRI Vigfússon, forstjóri Sprota hf. og formaður Norður-Atlants-
hafslaxsjóðsins, segir að ályktun Fiskiþings um tilraunaveiðar á laxi
beri vott um að menn hafi ekki hugmynd um hvað sé að gerast í
kringum þá. Hann segir veiðarnar bannaðar með lögum og bendir
á að þar að auki hafi íslendingar beitt sér fyrir því á alþjóðavett-
vangi að aðrar þjóðir hætti laxveiðum í sjó.
Orri minnti á að árið 1932 hefðu
verið samþykkt lög um bann við
sjávarveiðum á laxi og hefðu þau
ætíð síðan þótt sýna að íslendingar
stæðu öðrum þjóðum framar í
verndun laxastofna. Hann rakti
hnignun stofnsins og sagði að Al-
þjóða hafrannsóknarráðið hefði
komist að því að laxastofninn hefði
aldrei verið í jafn mikilli hættu og
undanfarið. „Það er meðal annars
vegna þessara staðreynda og ann-
arra að Samtök um kaup á úthafs-
veiðikvóta og síðar Norður-Atlants-
hafslaxsjóðurinn hafa beitt sér fyrir
því ásamt opinberum aðilum og
einkaaðilum í öllum löndum beggja
vegna Atlantshafsins sem eiga enn
ár sem lax gengur í að sjávarveiði
á laxi yrði hætt. í framhaldi af því
er unnið að því að kaupa alla lax-
veiðikvóta í Norður-Atlantshafinu.
Eru þá ótaldar ráðstafanir Kanada-
manna, Bandaríkjamanna, Norð-
manna og Breta og fleiri til að end-
urreisa laxastofna með friðunar-
og ræktunaraðgerðum," sagði Orri
m.a.
Orri segir að hugmyndir um til-
raunaveiðar hljóti að tengjast þeirri
skoðun að síðar megi taka upp slík-
ar veiðar almennt, þjóðarbúinu til
hagsbóta. Hann segir hins vegar
ljóst að ályktun Fiskiþings miði að
því að draga úr tekjum þjóðarbúsins
af laxveiðum um 90%. Heildartekjur
af laxveiðum nú séu um 1,5 millj-
arður en yrði laxinn veiddur af
bátum fiskiþingsmanna myndi hann
skila um 150 milljónum króna. Þeg-
ar fjárfest hafí verið í bátum og
tækjum mætti svo reikna út hagn-
aðinn. „Meðalverð á sjávarveiddum
laxi er talið um 800 kr. en stangar-
veiddur lax skilar um 60.000 kr. í
þjóðarbúið," sagði Orri.
Hann segir að afleiðingamar
yrðu líka alvarlegar fyrir hafbeitar-
stöðvarnar og spyr hvort það sé
hugmynd fulltrúanna á Fiskiþingi
að hafbeitastöðvarnar sjái útgerð-
um þeirra fyrir laxi til veiða í sjó.
Sr. Heimir Steinsson, útvarpssljóri, Jón Nordal, tónskáld sem
hlýtur heiðursfé Tónvakans 1992 og Guðmundur Emilsson, tónlist-
arstjóri Útvarpsins og formaður dómnefndar.
Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins 1992
Jón Nordal hlýtur
heiðursfé Tónvakans
JÓN Nordal tónskáld og fyrrverandi skólastjóri hlýtur heiðursfé
Tónvakans, Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins 1992. Heimir Steins-
son, útvarpsstjóri, afhendir verðlaunin á sérstökum hátíðartónleik-
um i Háskólabíói 26. nóvember nk., en verðlaunaupphæðin er 250
þúsund krónur, auk þess sem gerðar verða sérstakar útvarpshljóð-
ritanir á verkum Jóns árið 1993, segir í frétt frá tónlistardeild Ríkis-
útvarpsins.
í reglum um Tónlistarverðlaun
Ríkisútvarpsins segir að heiðursféð
skuli veitt tónlistarmanni fyrir ára-
löng og merk störf í þágu íslenskr-
ar tónmenningar. Auglýst var eftir
tilnefningum frá almenningi vegna
heiðursíjárins auk tilnefninga dóm-
nefndar en hana skipuðu auk Guð-
mundar Emilssonar, tónlistarstjóra
Ríkisútvarpsins, þau Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanóleikari,
Bjöm Th. Amason, skólastjóri og
formaður Félags íslenskra hljóm-
listarmanna, Gunnar Kvaran, selló-
leikari, John A. Speight, söngvari
og formaður Tónskáldafélags ís-
lands, Rut Magnússon, söngkenn-
ari og framkvæmdastjóri Tónlistar-
félagsins, og Sigursveinn K. Magn-
ússon, skólastjóri og formaður
stjórnar Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
Dómnefndin valdi Jón Nordal
einum rómi.
A hátíðartónleikum Ríkisút-
varpsins og Sinfóníuhljómsveitar
íslands fímmtudaginn 26. nóvem-
ber leikur Sinfóníuhljómsveitin tvö
verk eftir Jón Nordal: Choralis
(1982) og Leiðslu (1973), auk þess
sem Bryndís Halla Gylfadóttir,
sellóleikari og sigurvegari í keppn-
inni um Tónvakaverðlaunin leikur
einleik með Sinfóníuhljómsveitinni
í Konsert fyrir selló og hljómsveit
í h-moll opus 104 eftir Antonín
Dvorák. Thomas Baldner stjómar.
Sala aðgöngumiða hefst mánu-
daginn 23. nóvember í Háskólabíói.
Sýn bíður eftir endur-
skoðun útvarpslaganna
-segir Páll Magnússon sjónvarpsstjóri
„VIÐ bíðum eftir endurskoðun útvarpslaganna áður en endanleg
ákvörðun verður tekin um í hvaða mynd Sýn verður rekin,“ segir
Páll Magnússon sjónvarpsstjóri á Stöð 2. Páll sagði að í þessari viku
ætti að liggja fyrir frumvarp frá útvarpslaganefnd um breytingar
á útvarpslöggjöfinni vegna EES-samningsins. Nefndin hefði sömu-
leiðis unnið að heildarendurskoðun á lögunum og því yrði að koma
í Ijós við hvaða aðstæður og innan hvaða lagaramma íslenskar sjón-
varpsstöðvarnar ættu að starfa áður en endanlegar ákvarðanir um
rekstur og útsendingar Sýnar yrðu teknar.
Helgarútsendingar Sýnar hófust
21. mars sl. og hefur dagskrá stöðv-
arinnar verið takmörkuð við sýn-
ingu náttúrulífsþátta og annars
fræðsluefnis í tvær klukkustundir á
laugardögum og sunnudögum auk
beinna útsendinga frá öllum fund-
um Alþingis. Páll sagði að ekki
væri fyrirhugað að gera neinar
breytingar á þessum útsendingum
á næstu vikum fyrr en fyrir lægi
hvaða breytingar yrðu gerðar á
útvarpslöggjöfmni. Ákvörðun um
sölu áskriftargjalda frestaðist líka.
Páll benti á að frá og með næstu
áramótum væri þýðingarskylda í
sjónvarpi afnumin í samræmi við
EES-samningana. Eins ætti eftir
að koma í ljós hvaða reglur verði
settar um auglýsingar og um beint
endurvarp frá gervihnattatöðvum.
Sagði hann að sér skildist að
frumvarpið gerði ráð fyrir að beint
endurvarp frá gervihnöttum yrði
bundið við dreifingu í kapalkerfum
en verði hins vegar ekki leyft á
VHF-rásunum sem hefur verið út-
hlutað til íslenskra sjónvarpsstöðva.
Sagði Páll að fyrst yrði að sjá
hvaða samkeppnisaðstæður sköp-
uðust áður en séð yrði hvort grund-
völlur væri til að lengja dagskrána
umtalsvert eins og fyrirhugað hafði
verið.
Notkun funda í stjórnun og rekstri
Markviss fundarþátttaka
í mörgum fyrirtækjum og stofnunum er ótrúlega miklum vinnutíma varið í
fundi. Hafa stjórnendur vissu fyrir því, að tíminn sé vel nýttur og
niðurstaðan sé öllum fundarmönnum Ijós?
Staðreyndin er að tækni og aðferðir á fundum getur haft úrslitaáhrif á
skilvirkni fundar. Stjórnunarfélagið hefur fengið til liðs við sig fimm
stjórnendur fyrirtækja til að fjalla um þetta efni. Hvernig er fundum háttað í
fyrirtækjum þeirra? Hvað telja þeir að tryggi best „góðan fund“.
Á námskeiðinu verða kynntar aðferðir við skipulagningu og stjórnun funda
hjá einkafyrirtækjum, opinberum stofnunum og/eða félagasamtökum.
Rætt verður um fundarstörf og helstu gryfjur sem menn falla í. Hvernig
verða fundir markvissir? Niðurstaða funda og/eða útkoma funda. Sýnt
verður myndband til frekari skýringa.
Námskeiðið er ætlað þeim sem sitja fundi og stjóma þeim.
Þórður Jón
Hildur Árni
Leiðbeindendur:
Þórður Sverrisson, frkvstj. hjá Eimskip.
Jón Ásbergsson, trkvstj. hjá Hagkaup.
Hildur Petersen frkvstj. hjá Hans Petersen.
Árni Sigfússon, frkvstj. hjá SFl.
Tími: 3. og 4. nóvember kl. 13-17 báða dagana í Ánanaustum 15.
Síjórnunarfelag
islands
Ánanaustum 15, sími 621066