Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
----i-------------)------------,------j---
Serbneskar her-
sveitir í stórsókn
Sanyevo, Genf. Reuter.
HERSVEITIR Serba sóttu í gær að bosníska bænum Jajce, sem er eink-
um byggður múslimum, eftir harða bardaga sem kostuðu tugi manna
lífið að sögn útvarpsins í Sarajevo, höfuðborg Bosníu-Herzegóvínu.
Reuter
Reynt að bjarga grindinni
Níutíu grindhvalir syntu upp í fjöru á norðurströnd Nýja Sjálands í gær. Hér má sjá sjálfboðaliða reyna
að bjarga hvölunum.
Útvarpið sagði að hersveitir Kró-
ata og múslima hefðu barist saman
til að veija Jajce, sem er um 160
km norðan við Sarajevo. Það hafði
eftir herforingjum Bosníuhers að
liðsauki og vopn hefðu verið flutt
með þyrlum til serbnesku hersveit-
anna frá norðurhluta Bosníu. Sé
þetta rétt hafa Serbar þar með brot-
ið gegn banni Sameinuðu þjóðanna
við flugi yfir þessu svæði.
Júgóslavneska fréttastofan Tanj-
ug skýrði frá því að hersveitir Kró-
ata og múslama væru að hörfa frá
Jajce í átt að nágrannabænum
Travnik. Næðu Serbar Jajce á sitt
vaid yrði það mikið áfall fyrir músl-
ima og fall Travnik myndi hafa enn
alvarlegri afleiðingar fyrir þá. Þar '
með myndu Serbar hafa stórt svæði
í miðhluta Bosníu á sínu valdi. Um
70% landsins eru nú á valdi Serba,
sem hafa þegar unnið stríðið að
margra mati.
Eruni sósíaldemókratar og
alls ekkí neinir kommúnistar
- segir talsmaður sigurvegaranna í kosningunum í Litháen
SIGUR Lýðræðislega verkamannaflokksins (DLP) í Litháen í þingkosn-
ingnum á sunnudag hefur vakið mikla athygli en andstæðingar DLP
segja flokksmenn kommúnista í dularklæðum. Morgunblaðið ræddi í
gær símleiðis við Neris Germanas, nýkjörinn þingmann DLP og yfir-
mann annarrar aðalsljórnstöðvar flokksins.
„Það hafa ekki farið fram neinar
viðræður milli okkar og Sajudis og
við höfum ekki heyrt um frekari við-
brögð við tillögum Brazauskas
[flokksleiðtoga] um stjómarsam-
starf,“ sagði Germanas. Hann var
spurður hvort stefna DLP væri mjög
ólík stefnu Sajudis í efnahagsmálum
en Sajudis vill hraða einkavæðingu
og koma á markaðskerfi. Germanas
sagðist ekki vera sérfræðingur í
efnahagsmálum en flokkur hans
styddi tvímælalaust uppbyggingu
markaðshagkerfis og vildi einkavæð-
ingu, einnig í landbúnaði, en vitað
er að margir sem kjósa DLP vilja
fara hægt í sakirnar í þeim efnum.
Andstæðingar DLP segja að í flokkn-
um sé að finna megnið af gamla
harðlínugenginu sem stjómaði land-
inu meðan það var enn undir jámhæl
Kremlarvaldsins. Germanas sagði
þetta alrangt.
„Við emm sósialdemókratar, lýð-
ræðissinnar og alls ekki neinir
kommúnistar. DLP vill raunsæja
áætlun um markaðsbúskap,
raunsæja stefnu gagnvart umheimin-
Morgunblaðið/Þorkell
Conrad J. Sidego
upp árið 1986 vegna deilna um
aðstöðu í skólastofum. „Margir
þeirra sem þá yfirgáfu skólana í
mótmælaskyni em nú á þrítugs-
aldri. Þeir hafa ekki lokið neinu
námi, fá ekki vinnu og hafa jafnvel
margir hveijir misst löngunina til
að vinna. Þessi hópur er kallaður
„glataða kynslóðin" og það veit
enginn hvað hann er fjölmennur,
líklega á bilinu þrjár til fjórar millj-
ónir ungmenna. Það þarf ekki mik-
ið ímyndunarafl til að gera sér grein
fyrir áhrif þessa á samfélagið í
heild sinni. Hvemig á þetta fólk til
dæmis að geta séð fyrir fjöl-
skyldu?" segir Sidego. „Þetta er
meðal þeirra mála sem þau lönd sem
vilja aðstoða Suður-Afríku ættu að
íhuga. Það var réttmætt að beijast
á móti aðskilnaðarstefnunni á sín-
um tíma en nú þegar breytingarnar
em famar að eiga sér stað ættu
þeir sem á sínum tíma gagnrýndu
ástand mála að koma og hjálpa til
á uppbyggilegan hátt. Suður-
afríska lýðræðið er að fæðast en
fæðingahríðirnar em mjög erfiðar.
Það er því þörf á því að menn komi
og haldi í höndina á þessari konu,
sem hefur þurft að þola svo miklar
barsmíðar í gegnum tíðina, á meðan
þetta er að ganga yfir.“
Sidego segir að einungis með
samningum muni mönnum takast
að byggja upp betri Suður-Afríku.
„Hin pólitíska forysta skiptir þar
miklu. Við höfum ekki þörf á hefð-
bundnum stjómmálamönnum þessa
stundina heldur landsfeðmm sem
taka tillit til hagsmuna allrar þjóð-
arinnar en ekki bara síns flokks.
Það er alltaf mjög auðvelt að spá
því að allt sé að fara úrskeiðis; að
Suður-Afríka rambi á barmi borg-
arastyijaldar. Það getur verið erfið-
ara að vera bjartsýnn og mála fram-
tíðina björtum litum. Ef hins vegar
er litið á hina pólitísku forystumenn
sem menn sátta mun það smita út
frá sér. Auðvitað munu menn alltaf
deila eins og við sjáum með deilun-
um um Maastricht í hinum grónu
lýðræðisríkjum Evrópu. Þar deila
menn hins vegar með orðum. Við
erum enn á frumstigi lýðræðis og
menn verða að skilja það að hægt
er að fá fólk til að skipta um skoð-
un án þess að vega það.“
um, jafnt Vesturlöndum sem Rúss-
landi en Rússland skiptir okkur svo
miklu máli efnahagslega. Með góðum
og eðlilegum viðskiptum við Rússa
gætum við leyst mörg af efnahags-
vandamálum okkar. Við í DLP brut-
umst undan merkjum gamla komm-
únistaflokksins þegar 1989. Ég veit
ekki hvað hefur orðið um gamla
harðlínukommúnista, leiðtogi þeira á
níunda áratugnum dvelst nú aðallega
í Moskvu. Ég veit ekkert um athafn-
ir þeirra hér i Litháen, við höfum
ekkert samband við þá“.
Germanas var spurður um sam-
skipti flokksins við rússneska stjórn-
málaleiðtoga, t.d. Arkadí Volskí, sem
fer fyrir afturhaldsöflum á rússneska
þinginu og er helsti talsmaður hags-
muna áhrifamanna í stóriðnaði og
hemum. „Já við höfum ágæt sam-
skipti við Volskí, einnig Rútskoi,
[varaforseta Rússlands er hefur beitt
sér gegn umbótastefnu Borís Jeltsíns
forseta undanfarna mánuði. Aths.
NÝJAfí UMBÚÐIfí!
SÖMU GÆÐIN!
íXLft
UMBOÐS- 0G HEILDVERSLUN
SMIÐJUVEGI 4A KÓPAVOGI.
SÍMI 641005 / 641006
Ferðaskrifstofa
Því er spáð, að sú atvinnugrein, sem mest á
eftir að vaxa íframtíðinni, sé þjónusta við ferða-
menn.
Nú er til sölu hlutur í velkynntri ferðaskrifstofu
á góðum stað. Fyrir aðila með reynslu í ferða-
málum getur starf fylgt.
Fyrirspurnir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
30. okt. merktar: „Frjálst flug ’93“.
Cyrus Vance og Owen lávarður,
héldu í gær áfram friðarumleitunum
fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna og
Évrópubandalagsins og lögðu fram
tillögu um framtíð Bosníu. Þar er
gert ráð fyrir að ein stjórn fari með
völdin í landinu en því verði skipt í
héruð, sem njóti töluverðrar sjálf-
stjórnar en geti þó ekki stofnað sjálf-
stæð ríki.
Morgunblaðsins]. Við tókum upp
samband við Lípítskí, fulltrúa flokks
Rútskois, fyrir tveim mánuðum, höf-
um gott og eðlilegt samband við
þessi stjórnmálaöfl. En við höfum
ekkert samband við Jeltsín eða
stuðningsmenn hans“. Er Germanas
var spurður hvort flokkurinn vildi
að Litháen tæki upp náin pólitísk
tengsl við Rússland á ný svaraði
hann neitandi, markmiðið væri að-
eins nánari efnahagssamvinna við
Rússa en einnig Pólveija og Hvít-
rússa.
Germanas sagði DLP vilja efla
sjálfstæði landsins og herlið gömlu
Sovétríkjanna, sem enn hefur bæki-
stöðvar í Litháen, yrði að yfirgefa
landið eins og samið hefði verið um.
Hann var spurður hvort aukin völd
DPL gætu ógnað sjálfstæði og frelsi
Litháens. „Alls ekki, við börðumst
fyrir sjálfstæði frá 1989, þá voru
andstæðingar okkar leiðtogar komm-
únista annars vegar og róttækling-
arnir í Sajudis hins vegar. En við
vildum og viljum enn sjálfstæði,“
sagði Germanas..
Feðrum
úthýst
Veróna. Reuter.
FÆÐINGIN ætti eingöngu
að vera tími fyrir móður og
barn — feðurnir ættu að
halda sig utan fæðingarstof-
unnar, að því er einn fremsti
fæðingarlæknir Frakka,
Frederick Leboyer, sagði á
ráðstefnu í Veróna á Ítalíu á
mánudag.
„Þungun og fæðing eru lífs-
reynsla, sem karlmaðurinn ber
ekki skynbragð á,“ sagði
Leboyer, sem er 74 ára að aldri.
„Fyrir móðurinni eru þessi fyr-
irbæri eins og leyndardómsfullt
ferðalag, pílagrímsferð sem
karlinn getur ekki tekið þátt í.“
Þegar barnið er fætt, missir
það öryggið sem móðurlífið hef-
ur veitt því og það fínnur til
höfnunartilfinningar, að sögn
Leboyer. Hann er einn af upp-
hafsmönnum „náttúrulegrar
fæðingar", telur, að lífsreynsla
barnsins fyrstu fímm mínútur
ævinnar geti haft úrslitaáhrif á
líf þess.
Endurklœbum húsgögn.
Gott úrval áklceba.
Fagmenn vinna verkib.
Bólstran Ásgríms,
Bergstaðastræti 2,
sími 16807.
Dráttarbeisli
Dráttarbeisli á fólksbíla og
jeppa. Einnig dráttarkúlur
og hlífar, öryggiskeðjur,
rafmagnstengi og fleira
tilheyrandi.
Inausú
Borgartúni 26
Sími: 91-622262