Morgunblaðið - 28.10.1992, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.10.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 3k_ Einhverfa o g fagfólk eftir Hallgerði Gísladóttur og Sjöfn Guðmundsdóttur Ef barn þitt eða barnabarn er seint til máls og endurtekur í sífellu það sem það kann, er ár- áttuhneigt, vill t.d. alltaf skoða sömu bókina eða fara upp og niður stigann, hefur lélegt augn- samband og sýnir öðrum börnum ekki áhuga gæti það hugsanlega verið einhverft, en svo kallast þroskatruflun sem m.a. saman- stendur af ofangreindum ein- kennum hjá ungum börnum. Ef það reyndist rétt á fjölskylda þín býsna mikið undir fagfólki í framtíðinni. í nýlegum þýddum heilsuíjöl- fræðiritum, svo sem Heimilislækn- inum eða Líkami mannsins og lækn- ingar eftir B. Ward getur enn að líta löngu úreltar kenningar um ein- hverfu. Framlag einstaklinga úr heilbrigðisstéttum vegna búsetu- mála einhverfra, sem voru nokkuð í sviðsljósinu um hríð, hefur jafn- framt vakið furðu þeirra sem náið þekkja til. Eftirfarandi grein er byggð á samantekt heimsþekktra sérfræðinga á rannsóknum um ýmsa þætti sem varða fagfólk og fjölskyldur einhverfra. Skilningur okkar á einhverfu, orsökum hennar og meðferðar- möguleikum á ennþá langt í land, þó að margt hafi komið í ljós síðan Kanner skilgreindi fyrst einkenni bamaeinhverfu fyrir tæplega 50 árum. Fátt er þar mikilvægara en breytingar á viðhorfi til foreldra einhverfra. Þetta hefur víðast hvar gerst hratt. Nú teljast foreldrar ein- hverfra ekki lengur ábyrgir fyrir fötlun bama sinna eins og áður var, heldur er litið á þá sem stuðn- ingsmenn bamanna og samverka- menn í meðferð þeirra. Talið er að samvinna fagfólks og foreldra sé í raun forsenda þess að búast megi við árangri. Umræddar viðhorfsbreytingar fela í sér fjóra meginþætti: 1) Nýjar skilgreiningar á ein- hverfu í samræmi við niðurstöður rannsókna. 2) Fagfólk, sem mótar að mestu skoðanir samfélagsins, leggur nú aðrar áherslur. 3) Önnur viðhorf foreldra, en þau mótast að hluta af upplýsingum frá fagfólki. 4) Skilningur samfélagsins á ein- hverfu hefur breyst og félagsleg stefna mótast af þeim breytingum. Hér á eftir verður rakin þróun þessara þátta síðustu áratugi. Skilgreiningar endurskoðaðar Skilgreining Kanners á einhverfu er ennþá að mestu í gildi. Sam- kvæmt henni em helstu einkennin skortur á mannlegum tengslum frá fæðingu, ruglingslegt málfar og áráttukennd hegðun. Fjórði þáttur- inn sem Kanner nefndi ekki er brengluð skynjun. Sú viðbót hefur síðan verið studd mörgum fræðileg- um rökum. Nýlegri rannsóknir hafa leitt í ljós fleiri vankanta á sálgreiningar- kenningu Kanners um einhverfu. Hér em nokkur dæmi um slíkt: Orsakir Kanner taldi að einhverfa væri sálrænn kvilli sem gæti stafað af sjúklegu ástandi foreldra. Síðar hefur komið í ljós að orsaka þess- ara tmflana er fyrst og fremst að leita í frávikum frá eðlilegri heila- starfsemi sem rekja má til fóstur- stigs eða tímabilsins fyrst eftir fæð- ingu. Rannsóknir hafa t.d. leitt í ljós að 25% einhverfra fá krampa- flog á aldrinum 15-29 ára vegna röskunar á heilastarfsemi. Ein- hverfa hefur einnig verið tengd rauðum hundum á meðgöngu, efna- skiptasjúkdómum og litningagöll- um. Allt bendir til að fjöldi ólíkra líffræðilegra þátta, sérstakra eða samvirkandi, valdi einhverfuein- kennunum. Toppgáfur eða greindarskortur Kanner tók eftir því að einhverf böm höfðu oft yfirburðagáfur á aftnörkuðum sviðum. Hann skýrði þetta svo að þau hefðu í raun eðli- lega greind, en annað getuleysi stafaði af félagslegri vanhæfni sem aftur ætti rót sína að rekja til upp- eldisins. Nýrri og víðfeðmari rann- sóknir sýna hins vegar að meira en 50% einhverfra bama hafa greind- arvísitölu undir 50. Þegar sýnt þótti að greindarskortur og einhverfa væm oftast samferða áttuðu menn sig jafnframt á því að hér væm á ferðinni þroskatmflanir en ekki sál- rænar flækjur. Einhverfa og barnageðklofi Kanner áleit einhverfu vera fmmstig barnageðklofa. Oft reyndu fagmenn því ekki að greina þama á milli. Eftir því sem rannsóknir á einhverfu urðu kerfisbundnari sást afgerandi munur á bömum sem voru hömluð frá fmmbemsku og þeim sem veiktust á kynþroska- skeiði. Einstaklingar í fyrri hópn- um, þ.e. hinir einhverfu, vom síður mglingslegir í hugsun, en hegðun þeirra einkenndist af sífelldum end- urtekningum — áráttum — og hreyfingamar vora afbrigðilegri. Rannsóknir sýndu að þeir þróuðu sjaldan með sér ofskynjanir þegar þeir fullorðnuðust gagnstætt því sem gerist með geðklofa. Ekkert benti til að einhverfa væri fmmstig barnageðklofa. Viðurkenning á þessu liggur til gmndvallar því að einhverfa er nú fremur talin þroska- tmflun en geðveiki. Sök foreldra? Eftir að Kanner rannsakaði að- stæður ellefu einhverfra barna komst hann að þeirri niðurstöðu að foreldrar einhverfra væru sérstakir að því leyti að þeir væru vel mennt- aðir og gerðu það gott á sínu sviði. Þar af leiðandi áttu þeir að vera kaldlyndir og uppteknir af smáat- riðum í eigin lífi. Heimili sem slíkir persónuleikar mótuðu og „ískaldar mæður“ stjómuðu taldi Kanner gróðrarstíu fyrir bamaeinhverfu. Kenningarnar um ábyrgð fjölskyld- unnar tóku í meginatriðum til þriggja þátta: — Veralegt álag í frumbemsku bamsins. „Vegna breyttra við- horfa er nú víðast í hin- um vestræna heimi lögð áhersla á að einhverfir geti lifað úti í samfélag- inu og notið þess sem þar er boðið upp á eftir því sem hömlun þeirra leyfir." — Afbrigðileg tengsl bams og for- eldra. Óteljandi rannsóknir hafa verið gerðar varðandi ijölskylduhliðina í seinni tíð og niðurstöður þeirra eru allar á sömu leið. Ekkert hefur komið í ljós sem bendir til að orsak- anna sé á neinn hátt að leita hjá foreldmm. Hins vegar sýnir sig að foreldrar einhverfra bama em alls ekki frábmgðnir öðm fólki sé litið framhjá þeirri staðreynd að þeir eiga fatlað bam. Staða og stétt í framhaldi af þessum rannsókn- um var reynt að finna út hvers vegna Kanner og hans menn töldu að einhverf böm kæmu aðallega úr menntuðum yfirstéttarfjölskyld- um. Nokkrar meginástæður hafa fundist fyrir því. Talið er að mörg einhverf böm hafi verið greind van- gefin vegna ófullnægjandi upplýs- inga um þroskaferil þeirra, en það hefur sýnt sig að því menntaðri sem foreldrar em, þeim mun nákvæm- ari þroskasaga er til um bamið. Á landsvæðum þar sem lítið er um þjónustu fyrir aðra þroskahefta en vangefna, hefur börnum einfaldlega verið vísað þangað. Foreldrar sem lögðu mikið á sig, m.a. ferðalög, til að verða sér úti um viðeigandi þjón- ustu fyrir böm sín vom hins vegar yfirleitt menntaðir og vel efnaðir. Þá virðast menntaðir foreldrar leita fyrr aðstoðar vegna gmns um þroskahömlun og það eykur líkur á réttri greiningu. Víða er litið á það sem skilyrði fyrir því að greina bamaeinhverfu, að hún hafi komið í ljós fyrir 30 mánaða aldur. Yfirgripsmiklar rannsóknir á stórum hópum einhverfra hafa svo Ieitt í ljós að þeir koma úr öllum hópum og stéttum, ekki síður þeim lægri. Læknar og annað fagfólk Það urðu einnig miklar breyting- ar á viðhorfi þeirra sem veita félags- lega og læknisfræðilega þjónustu. Á Kanner-tímabilinu í Bandan'kjun- um, þegar litið var á einhverfu sem afleiðingu tilfinningalegrar höfnun- ar var einhverfum aðeins boðið upp á meðferð til að losa um þann ógn- ar kvíða sem uppeldið átti að hafa skapað. Á meðan þjálfaði félagsráð- gjafi foreldrana til að gera þá hæfa í foreldrahlutverkið svo að bamið mætti yfirstíga einhverfuna. Sú kenning að það eina sem dygði væri að taka barnið frá fjölskyld- unni var einnig vinsæl. Atferlismótunarkenningin, sem leggur áherslu á að beita ýmsum aðferðum til að styrkja viðurkennda hegðun og draga úr því sem nei- kvætt þykir, flýtti vemlega fyrir því að sálgreiningarkenningin missti fylgi. Það dró úr áhuga á dýrri og langvinnri sálgreiningar- meðferð þegar í ljós kom betri árangur af þvi að beita atferlismót- un til að auka æskilega og minnka óæskilega hegðun. Margir atferlis- sinnar héldu þó að einhverfuein- kenni væm afleiðing af vanhæfni foreldra. Meginmunurinn var sá að þeir álitu að atferlismótun væri í sjáifu sér tækni sem foreldrar og aðrir gætu lært að nota. Breytingar á viðhorfum foreldra Á Kanner-tímabilinu var fagleg ráðgjöf til að styðja foreldra sjald- gæf. Nærvera einhverfs barns leiddi oft til þess að fjölskyldur þeirra einangmðust félagslega. Blygðun vegna fordóma samfélagsins og vangeta til að skýra undarlega hegðun bamsins urðu til þess að margir foreldrar lokuðu sig af. Þeg- ar þeir svo leituðu hjálpar til að ijúfa vítahringinn túlkuðu fagmenn oft flókin viðbrögð þeirra gagnvart einhverfa baminu sem orsök ástandsins fremur en afleiðingu. Ranghugmyndir fagfólks um ábyrgð foreldra einhverfra barna á fötlun þeirra vora fjölskyldum þeirra dýrar. Meðal annars vegna þeirra urðu foreldrafélög einhverfra ekki til fyrr en skýringum sálgrein- ingarsinna á einhverfu hafði verið hnekkt. Hér á landi, eins og annars staðar, fengu foreldrar einhverfra sem nú eiga börn á unglingsaldri eða eldri sinn skammt. Á sjöunda áratugnum miðjum urðu miklar breytingar til batnaðai'- í Ameríku. Faðir einhverfs bams, Rimland, gaf þá út vísindarit um sálgreiningarkenninguna og ein- hverfu. Bók þessi var verðlaunuð og vakti mikla athygli. í framhaldi af því gekkst Rimland fyrir stofnun bandaríska umsjónarfélagsins „The National Society for Autistic Children". Félagið óx hratt og efldi mjög rannsóknir og þjónustu á sviði einhverfu, svo og stuðning við ijöl- skyldur einhverfra. Um 1980 hafði sjálfsmynd for- eldra breyst vemlega. í stað þess að upplifa sig sem sökudólga litu þeir nú almennt á sig sem talsmenn bamsins og samverkamenn fag- fólks við að styðja það á þroska- brautinni, en það hefur sýnt sig að sérhæfð og stöðug þjálfun skilar oft góðum árangri í þessum hópi. Vegna breyttra viðhorfa er nú víð- ast í hinum vestræna heimi lögð áhersla á að einhverfír geti lifað úti í samfélaginu og notið þess sem þar er boðið upp á eftir því sem hömlun þeirra leyfir. Höfundar eru mæður einhverfra barna. — Greinin er byggd á bók E. Schoplers og G. Mesibows: „The Effects ofAutism on the Ftunily“. Plenum Press, 1988. Sjúkir foreldrar. SACHS KÚPLINGAR í MAN Framleiðendur MAN og aðrir framleiðendur vandaðra vöru- og fólksflutningabifreiða nota SACHS kúplingar sem upprunalega hluta í bifreiðar sínar. Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 • SlMI: 81 46 70 • FAX: 68 58 84 ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA! Njóttu þess ad velja þinn eigin stíl! Hereford-borðin eru með marmara- eða viðarplötu. Verð m/marmara- píötu kr. 39.900,- stgr. og með viðarplötu kr. 34.485,- stgr. Athugið! Nýr glæsilegur myndalisti 4} fæst í verslun okkar á kr. 200,-. Myndalistinn er hugmyndabanki sem veitir þér innsýn í það glæsilega vöru- úrval semþest aðeins í Habitat. MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 10.00 - 18.00. Á LAUGARDÖGUM KL. 10.00 - 14.00 Q fsl. BÍLASTÆÐI Næg bilastæðl á Bergstöðum (bilageymsluhús) á horni Skóla- vörðustigs og Bergstaðastrætis. habitat ■"1 WlM LAUGAVEGI 13 - SÍMI (91) 625870, ^S/WAsrojAj

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.