Morgunblaðið - 28.10.1992, Page 36
t36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2,8. OKTÓBER 1992
t
Ástkær eiginmaður minn,
STEFÁN GUÐMUNDUR JÓHANNSSON,
lést í Landspitalanum 26. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásta Björg Tómasdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
HARALDUR AÐALSTEINSSON,
Mýrum 13,
Patreksfirði,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt 27. oktöber.
Arnbjörg Guðlaugsdóttir,
börn og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær móðir okkar,
ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Gyðufelli 4,
Reykjavik,
lést í Sjúkrahúsi Neskaupstaðar mánudaginn 26. október.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Gurí Lif Stefánsdóttir,
Óskar Hjaltason,
Trausti Hjaltason,
Ásta Hjaltadóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Hásteinsvegi 62,
Vestmannaeyjum,
lést í Landspítalanum laugardaginn 24. október.
Jarðarförin ferfram frá Landakirkju laugardaginn 31. október kl. 14.
Jensína Guðjónsdóttir,
Ólafur Guðjónsson,
Hörður Guðjónsson,
Hrefna Guðjónsdóttir,
Bryndís Guðjónsdóttir,
Ágúst Karlsson,
Árný Heiðarsdóttir,
og börn.
Sigurður Sigurbergsson,
Böðvar Bergþórsson,
+
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi,
ÁRNI FRÍMANNSSON
simaverkstjóri,
Skólagerði 12,
Kópavogi,
er lést 21. þ.m., verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn 29. októ-
ber kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er
bent á Hjartavernd.
Ingibjörg Ragna Ólafsdóttir,
Ingibjörg Narfadóttir,
Fri'mann Árnason,
Guðrún Ágústa Árnadóttir, Kristmundur Jónasson
og barnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR KJARTAN ÓLAFSSON,
Funafold 55,
áður Látraströnd 26,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 29. október kl. 15.00.
Hjördfs Einarsdóttir,
Sesselia Ó. Einarsdóttir,
Katrin S. Einarsdóttir,
Ágústa Einarsdóttir,
Sigrún Einarsdóttir,
Gróa Einarsdóttir,
Þórey Einarsdóttir,
Lind Einarsdóttir,
Ólafur Einarsson,
tengdabörn, barnabörn
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður og afa,
GUNNARS VILMUNDARSONAR,
Reykási 33.
Gurí Liv Stefánsdóttir,
Jóhanna Jóhannsdótttir, Abdel Aiyub,
Sóffa Aiyub.
Þórey Þórðar-
dóttir - Minning
Nú er hljótt í stofunni hjá ömmu
Þóreyju og afa Tete á Sólvallagöt-
unni. Alltof snemma og óvænt
kvaddi amma okkur. Það er undar-
legt að kveðja hana því varla er
hláturinn og gleðiærslin í boðunum
hjá þeim þagnaður. Alltaf var gam-
an að koma til þeirra og þar máttu,
og helst áttu, börnin að fara í fjör-
uga leiki. Minningarnar um ömmu,
sem bar hag okkar allra í fjölskyld-
unni fyrir brjósti, og sem nú er
farin, kalla fram tár en um leið
minnumst við hennar með miklu
þakklæti fyrri allar góðu stundimar
sem hún gaf okkur.
Amma Þórey fæddist í Reykjavík
26. nóvember 1912, hún var dóttir
hjónanna Þórðar Bjamasonar versl-
unarmanns frá Reykhólum og
Hansínu Linnet frá Hafnarfirði. Þau
áttu lengst af heimili í Vonarstræti
12 í Reykjavík og einkenndist það
mannmarga heimili af miklum
áhuga fyrir leiklistar- og hljómlist-
arlífi, enda átti hluti systkinahóps-
ins eftir að leggja fyrir sig þessar
listir og þó að amma Þórey hafi
ekki farið út á þá braut var hún
ætíð mikil áhugamanneskja á þessu
sviði. Hún sótti leiksýningar og tón-
leika fram á síðasta dag.
Systkinahópurinn í Vonarstræti
var samheldinn, alls vom þau systk-
inin sjö og auk þess ein fóstursyst-
ir, sem ein er á lífi nú. Þau hétu:
Sigurður bankafulltrúi, fyrri kona
hans var Lóa Hjaltested en seinni
kona Þórey Hannesdóttir; Hans
Ragnar stórkaupmaður, fyrir kona
hans var Guðrún Sveinsdóttir en
seinni kona Hanna Þórðarson, fædd
Frederiksen; Regína leikkona, eig-
inmaður Bjarni Bjamason læknir;
Skúli forstöðumaður, fyrir kona
hans var Anna Einarsdóttir en
seinni kona Erla Valdimarsdóttir;
Bjami píanóleikari og kona hans
var Hjördís Þorleifsdóttir; Hendrik,
lést bam að aldri; svo ólst upp hjá
foreldrum ömmu Þórey Brynjólfs-
dóttir. Þetta góða fólk var ömmu
Þórey afar kært og mikil stoð í líf-
inu, aldrei þreyttist hún á að segja
sögur frá í gamla daga. Eins og frá
því þegar Bjami bróðir kom heim
með skólabræður úr skólanum og
byijað var að spila og syngja eða
aðrar uppákomur á hinu fjöruga
heimili.
Amma Þórey giftist 29. apríl
1937 afa okkar Stefáni Bjamasyni,
f. 21. mars 1908, forstjóri Kaup-
hallarinnar, sem ættaður var frá
Galtafelli í Hrunamannahreppi og
Asólfsstöðum í Gnúpverjahreppi.
Þau ár sem þau áttu saman var
yndislegur tími og ferðuðust þau
mikið erlendis en hugurinn var þó
mikið bundinn heimaslóðum í Ar-
nesþingi og var henni mjög annt
um Ásaheimilið og frændfólkið á
Ásólfsstöðum. Afi Stefán og amma
Þórey misstu fmmburð sinn, dreng,
aðeins tveggja daga gamlan en síð-
ar áttu þau eftir að eignast tvo
drengi, Bjama og Þórð. Það fóm
erfiðir tímar í hönd, afi Stefán dó
í blóma lífsins aðeins 44 ára 18.
október 1952. Á þessum árum var
hjá þeim, þá ung stúlka, Jóhanna
Bacher, og reyndist hún mikil stoð
fyrir heimilið og ungu drengina,
hefur hún ætíð verið sem ein úr
fjölskyldunni.
Öll él styttir upp um síðir og enn
brosti gæfan við ömmu þegar hún
hitti afa Tete, Sigurð Demetz
Fransson ópemsöngvara, ættaðan
frá Ortisei í Týról og gengu þau í
hjónaband 24. júní 1960. Afi Tete
og amma Þórey voru svo sannarlega
samrýmd hjón, síung og ástfangin.
Næstu ár vom bæði annasöm og
skemmtileg. Afi Tete vann við söng-
kennslu og þjálfaði kóra bæði hér
í Reykjavík og úti á landi. Ömmu
Þórey þótti gaman að fylgjast með
söngkennslunni enda músíkölsk og
naut sín vel innan um nemendahóp-
inn, þetta voru hamingjuríkir tímar
sem við bamabörnin hennar minn-
umst nú. Þegar farið var norður á
Akureyri í Vanabyggðina, þar sem
þau bjuggu í nokkur ár, eða þegar
amma Þórey og afi Tete komu í
heimsókn til okkar i Kópavoginn
og amma Þórey fékk lögregluna til
að loka Hrauntungunni svo bömin
gætu rennt sér almennilega í snjón-
um. Við vorum líka alltaf saman á
jólunum og eigum margar góðar
minningar úr stofunni heima á
Galtafelli á aðfangadagskvöld. Þá
voru ferðirnar til italíu og heim-
sóknir til systkina afa Tete mikið
ævintýri og í Ortisei eignaðist hún
marga vini. Það er svo undarlegt
að þessi líflega og fallega kona, sem
reyndi svo margt, bæði erfitt og
ljúft, skyldi hafa kvatt okkur svo
skyndilega. En hún amma kvaddi
þennan heim á sama hátt og hún
gerði allt annað, með reisn.
Við vitum að Guð mun varðveita
minningu ömmu Þóreyjar og veita
afa Tete styrk.
Kveðja frá systkinunum
á Galtafelli.
Þórey Þórðardóttir, sem fædd var
í Reykjavík 26. nóvember árið 1912,
lést á Landspítalanum 15. október
sl. Með vinum sínum gegndi hún
ætíð gælunafninu Eyja.
I minningunni verður Eyja ávallt
hýr og brosmild. Þó að erfíðir sjúk-
dómar hijáðu hana geislaði hún af
elsku og æskufjöri, sem hún varð-
veitti undir það síðasta með aðdáun-
arverðum hætti, og hlaut að hrífa
alla í nærveru hennar og hræra til
gleði.
Eyja umgekkst unga sem aldna
jafn vingjarnlega og eðlilega og
sýndi vænlegum söngnemum eigin-
manns síns, Sigurði V. Demetz,
ekki síður áhuga en hann. Hún tók
þátt í starfi hans af lífi og sál og
var ekki spör á hvatningarorðin,
þegar henni líkað vel söngurinn, en
hún var afar tónelsk.
Söngfólkinu stóðu einlægt opnar
dyr að heimili þeirra hjóna. Urðu
böndin sterk sem tengdu það við
þau bæði, enda sagði Eyja stundum:
Þið eruð bara eins og bömin okkar.
Hlýlegt viðmót, rausn og gest-
risni þeirra bjuggu mörgum söngv-
urum umhverfi til menntunar og
eflingar í listinni, sem hlýtur að
vera einstakt víðast hvar nú orðið.
Árangur þess er ótvíræður. Hlutur
Eyju í hinu mikilsverða og farsæla
starfí, sem söngkennsla manns
hennar hefur verið í meira en þijá
áratugi, verður seint fullþakkaður.
Hún hafði hlakkað til afmælis-
tónleikanna í Ijóðleikhúsiinu 6.
október sl., sem haldnir voru til
heiðurs manni hennar áttræðum.
En bráð veikindi öftrúðu henni frá
því að sækja tónleikana. Hún and-
aðist rúmri viku eftir þá, en hafði
á sjúkrabeði sínu glaðst yfír fram-
taki nemenda og annarra velunn-
ara, sem henni auðnaðist þó ekki
að hitta.
Blíðlyndi Eyju og glaðværð nýtur
nú á öðrum stað, þar sem engir
sjúkdómar þrífast. Blessuð sé minn-
ing hennar. Guð gefí lærimeistara
okkar, Sigurði V. Demetz, styrk.
Öllum aðstandendum vottum við
einlæga samúð.
Þór Jónsson, Guðbjörn Guð-
björnsson, Gunnar Guðbjörns-
son, Kolbeinn Ketilsson og
Sigurður Örn Bernhöft.
+
THEÓDÓRA GUÐLAUGSDÓTTIR
frá Hóli i Hvammssveit,
Dalasýslu,
Snorrabraut 40,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
29. október kl. 13.30.
Hulda J. Óskarsdóttir,
Marinó Óskarsson,
Gréta Óskarsdóttir,
Agnar B. Kristjánsson,
Maria Kristjánsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
SIGURJÓNS EIRÍKSSONAR
fyrrv. eftirlitsmanns vftanna.
Helgi Sigurjónsson,
Eirfkur Grétar Sigurjónsson, Jóna Þorvaldsdóttir
og barnabörn.